Morgunblaðið - 29.04.2004, Side 16
Höfuðborgin | Akureyri | Suðurnes | Austurland | Landið
Minnstaður
Höfuðborgarsvæðið Svavar Knútur Kristinsson, svavar@mbl.is, sími 569-1100.
Suðurnes Helgi Bjarnason, helgi@mbl.is, sími 569-1310 og 669-1310. Akureyri Skapti
Hallgrímsson, skapti@mbl.is, Margrét Þóra Þórsdóttir, maggath@mbl.is og Kristján
Kristjánson, krkr@mbl.is, sími 461-1600. Vesturland Ásdís Haraldsdóttir, asdish@mbl.is,
sími 898-5258. Austurland Steinunn Ásmundsdóttir, austurland@mbl.is, sími 669-1115.
Árborgarsvæðið og Landið Guðrún Aðalsteinsdóttir, frett@mbl.is, sími 569-1290.
Mínstund frett@mbl.is
Útlendingar í Fossavatnsgöngunni |
Fossavatnsgangan fer fram á laugardaginn
en hún er síðasta skíðagöngumót vetrarins
og er hluti af Íslandsgöngunni svonefndu,
mótaröð fjögurra
skíðagöngumóta á
landinu. Sjö erlendir
skíðakappar hafa skráð
sig til leiks að þessu
sinni, sex karlar og ein
kona skv. fréttavef
Bæjarins besta. Fjórir
þessara þátttakenda
koma frá Bandaríkj-
unum, einn frá Þýskalandi, einn frá Ítalíu og
einn frá Frakklandi.
Meðal erlendu keppendanna er Hannes
Larsson frá Frakklandi, sem raunar er af
finnsku bergi brotinn. Hann er einn víð-
förlasti og reyndasti skíðagöngumaður
heims og er m.a. tífaldur Worldloppet Gold
Master, en til að hljóta slíkan titil þurfa
menn að taka þátt í 10 mótum innan World-
loppet-raðarinnar í jafn mörgum löndum og í
a.m.k. tveimur heimsálfum. Þá seríu hefur
Larsson nú klárað tíu sinnum og er enn að,
auk þess að taka þátt í fjöldamörgum mótum
sem ekki eru innan þessarar mótaraðar.
Larsson, sem er um sjötugt og er í forsvari
fyrir alþjóðlegum samtökum Worldloppet-
skíðamanna, mun gera úttekt á mótahaldinu
og veita skipuleggjendum ráðgjöf um frekari
þróun mótsins og sókn á erlendan markað.
Úr
bæjarlífinu
HÉÐAN OG ÞAÐAN
Þörf á nýju atvinnuhúsnæði | Atvinnu-
málanefnd Stykkishólmsbæjar og Efling
Stykkishólms boðuðu til almenns fundar
fyrir skömmu, þar sem farið var yfir fram-
boð og eftirspurn atvinnuhúsnæðis í Stykk-
ishólmi.
Byggingafulltrúi fór yfir mögulegar
byggingalóðir í landi Stykkishólms. Hann
sagði frá þeim lóðum sem eru tilbúnar á
skipulagi.
Fundurinn var mjög vel sóttur og gagn-
legar umræður fóru fram um þessi mál.
Miðað við það sem kom fram hjá fund-
armönnum er lítið framboð af lausu at-
vinnuhúsnæði, og greinileg þörf fyrir hús-
næði undir ýmiss konar iðnað. Stefna ber
að fjölbreyttu atvinnulífi, sem tryggir stöð-
ugri vinnu í bæjarfélaginu.
Á fundinum var myndaður 10 manna
samstarfshópur sem ætlar að koma saman
aftur og ræða framhaldið. Í hópnum eru að-
ilar sem hafa hug á að byggja eða koma sér
upp atvinnuhúsnæði, saman eða sitt í hvoru
lagi.
Áhugi er fyrir sam-starfi milli Ísa-fjarðarbæjar og
Súðavíkurhrepps um
skipulagningu sumarbú-
staðalands á Seljalandi í
Álftafirði, skv. bókun sam-
eiginlegs fundar sveit-
arstjóra á norðanverðum
Vestfjörðum sem haldinn
var fyrir skömmu. Bæj-
arins besta greinir frá
þessu. Jörðin Seljaland er í
eigu Ísafjarðarbæjar en til-
heyrir Súðavíkurhreppi.
Sveitarstjórarnir leggja til
að sveitarfélögin tvö hefji
skipulagsvinnu á Seljalandi
en fyrsta skrefið í sam-
starfinu verði skilgreining
verkefnisins og undirritun
samstarfssamnings. Bol-
ungarvík hefur ekki skipu-
lagt sumarbústaðaland
innan síns svæðis.
Samstarf
Fyrstu dagar sumars hafa verið mildir og góðir íGrundarfirði þannig að gróður hefur tekið örtvið sér. Farfuglarnir koma einn af öðrum og
ekki þarf annað en að ganga eða hjóla örlítið út fyrir
bæjarmörkin til að heyra í lóu eða hrossagauki. Þegar
vorar svo vel eru hjólin tekin fram og hjólað út í góða
veðrið. Þær stöllur Katrín Elísdóttir, Helga Ingibjörg
Reynisdóttir og Sjöfn Sverrisdóttir urðu á vegi Sverris
Karlssonar þegar hann fékk sér göngutúr í góða veðrinu
á sumardaginn fyrsta.
Morgunblaðið/Gunnar Kristjánsson
Hjólað mót sumri
Jón Ingvar Jónssonyrkir „Gagaravillu“í tilefni af því að
Hreinn Loftsson sagði sig
úr Sjálfstæðisflokknum:
Kvelur hlustir suð og sónn,
sarg og urg vart þolir
neinn,
þó er eins og einhver tónn
íhaldsflokksins virðist
hreinn.
Hjálmar Freysteinsson
yrkir út af sama máli og
tekur fram að Hreinn
skrifist með stórum eða
litlum staf eftir smekk:
Særir holdið harður fleinn
hrollur er í skrokknum,
af því nú er enginn Hreinn
í Sjálfstæðisflokknum.
Pétur Þorsteinsson
hleraði kött sem hafði
legið í 1984 eftir George
Orwell síðustu daga:
Hér á landi helst er títt
og hafandi í sögur
að ártal vort er uppá nýtt
’84.
Úrsögn Hreins
Mývatnssveit | Birgir Stein-
grímsson skógarbóndi á Litlu-
strönd er hér að skoða fyrsta egg
vorsins á sinni heimaslóð. Það er
ekki af minna taginu, vænsta
álftaregg. Nú þegar fuglafréttir
berast víða að má geta þess að
álft sem á sér ból á bakka Svein-
strandartjarnar sunnan Mývatns
hefur hafið varp og þykir okkur
nokkuð snemma að verið hér í
sveit. Það segir mér fróður fugla-
vinur að líklega haldi hún sig á
Mývatni vetrarlangt með fleirum
álftum. Þess vegna sé hún fyrr
tilbúin að hefja varp að vorinu
heldur en ef hún hefði dvalið í
sólarlöndum yfir veturinn. Flest-
ar tegundir farfugla eru nú
komnar, ekki þó óðinshani, en
jaðrakan er mættur til leiks og
Jón í Belg er búinn að koma auga
á kríu. Gæsin er út um allt og
Böðvar í Baldursheimi hefur séð
helsingja bregða fyrir þar nærri
bæ, annars eru þeir lítið fyrir að
heimsækja Mývetninga.
Síðasta ísspöngin er að kveðja
vatnið á Neslandavík og er það
heldur seinna en í fyrravor.
Morgunblaðið/BFH
Álftin orpin við Mývatn
Vorið
Grundarfjörður | Nú standa yfir gagnger-
ar endurbætur á húsnæði Sögumiðstöðv-
arinnar í Grundarfirði. Jafnframt klæðn-
ingu hússins að utan og lagfæringu á þaki
hefur verið bætt við húsnæði fyrir salerni í
tengslum við aðkomusal, þar sem verður
upplýsingamiðstöð og netkaffi og að sögn
Gísla Ólafssonar formanns stjórnar Sögu-
miðstöðvarinnar er gert ráð fyrir því að
endurbótum ljúki fyrir 1. júní nk.
Gísli sagði að hjallurinn með bátinn
Brönu yrði tilbúinn fyrir 1. júní. Í tengslum
við hjallinn væri gert ráð fyrir smíðaverk-
stæði fyrir börn gesta í Sögumiðstöðinni
þar sem þau gætu dundað sér undir leið-
sögn við að smíða einfalda báta meðan for-
eldrarnir skoðuðu það sem væri til sýnis í
sölum Sögumiðstöðvar. Við endurbæturn-
ar fær húsnæðið á sig nýtt útlit sem hann-
að er af arkitektinum Orra Árnasyni. En
hann er frá Grundarfirði og var það afi
hans Emil Magnússon sem reisti þetta
húsnæði á sínum tíma fyrir verslunina
Grund sem hann átti og rak um árabil.
Endurbætur
á Sögumiðstöð
Gagngerar endurbætur: Sögumiðstöðin
tekur útlitslegum breytingum þessa dag-
ana. Áður var verslunin Grund í húsinu.
Morgunblaðið/Gunnar Kristjánsson
Ísafjörður | Hafnarstjórn Ísafjarðarbæjar
hefur samþykkt að ganga til samninga við
Ósey hf. í Hafnarfirði um smíði á hafn-
sögubát fyrir Ísafjarðarhöfn, skv. frétt
Bæjarins bestu.
Tilboð Óseyjar var ekki lægst en var
engu að síður metið hagkvæmast af Rík-
iskaupum. Ekki liggur þó fyrir samkvæmt
fundargerð hafnarstjórnar nákvæm lýsing
á vél- og tækjabúnaði þess báts er Ósey hf.
hyggst smíða.
Fyrr í vetur auglýsti Ríkiskaup eftir til-
boðum í hafnsögubát fyrir Ísafjarðarhöfn.
Alls bárust 15 tilboð og var lægsta tilboðið
frá Kína að upphæð 44,4 milljónir króna.
Næstlægsta tilboðið barst frá Torshavn
Skipasmiðja í Færeyjum að upphæð 46,5
milljónir króna.
Ósey smíði
hafnsögubát
fyrir Ísfirðinga
♦♦♦
pebl@mbl.is
FAGURGÆS, sem er þekktur varp-
fugl í Síberíu, sást í fyrsta sinn hér
á landi á dögunum. Var gæsin í
hópi helsingja en þetta samneyti er
þekkt í Skotlandi, þar sem fag-
urgæsin er náskyld helsingjanum.
Umrædd fagurgæs sást í Vatnsdal,
sem einmitt er rómaður fyrir feg-
urð sína og við hæfi að sækist sér
um líkir.
Ljósmynd/Yann Kolbeinsson
Fyrsta fagurgæsin
heimsækir landið