Morgunblaðið - 29.04.2004, Síða 19
SUÐURNES
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 29. APRÍL 2004 19
SUMARSPRENGJA!
50%
SUÐURLANDSBRAUT 54
(BLÁA HÚSIÐ Á MÓTI SUBWAY) SÍMI 533 3109
AFSLÁTTUR
Í NOKKRA DAGA
KOMIÐ OG GERIÐ GÓÐ KAUP!
Grindavík | Formaður Verkalýðs-
félags Grindavíkur, Benoný Bene-
diktsson, var endurkjörinn formaður
félagsins á aðalfundi þess sl. mánu-
dagskvöld. Þá var stjórn félagsins
jafnframt endurkjörin.
Benoný hefur gegnt formanns-
starfinu samfellt í 20 ár en hann
verður 76 ára í maí nk. Hann var
fyrst kjörinn formaður árið 1984 en
var áður varaformaður í nokkur ár
og þar áður óbreyttur félagsmaður,
eða frá því hann hafði aldur til að
ganga í félagið, að eigin sögn. Óhætt
er að segja að saga Verkalýðsfélags
Grindavíkur og starfsævi Benonýs
hafi því verið samofin næstum heilan
mannsaldur.
Ætlaði að gegna
formannsstarfinu í eitt ár
Um formannsstarfið segir hann:
„Ég ætlaði bara að vera í eitt ár því
að félagið var í erfiðleikum.
[…] Þetta var upphaflega verka-
lýðs- og sjómannafélag en þegar sjó-
menn stofnuðu sitt eigið félag, Sjó-
manna- og vélstjórafélag Grinda-
víkur, fór allur krafturinn úr
félaginu,“ segir hann. Margar hend-
ur hafi lagst á plóginn við að efla það
að nýju og hann hafi notið þeirra for-
réttinda að starfa með nánast sama
fólkinu um langt árabil. Í dag eru
fullgildir félagsmenn um 450 talsins.
Þess má geta að í stjórn félagsins eru
sjö manns, þar af fimm konur.
Benoný, sem er borinn og barn-
fæddur í Grindavík, byrjaði til sjós
um 14 ára aldur, að loknu barna-
skólaprófi. Þá starfaði hann á 6–7
tonna báti sem var með stærstu fiski-
bátum í Grindavík á þeim tíma.
Aðalstarf hans um ævina var hins
vegar hjá Þorbirni og síðar Þorbirni
Fiskanesi þar sem hann starfaði sem
bifreiðastjóri í rúma fjóra áratugi.
Þá var hann bifreiðastjóri hjá Kaup-
félagi Árnesinga um fimm ára skeið.
Benoný hætti að keyra vörubíl fyrir
Þorbjörn Fiskanes fyrir hálfu öðru
ári og hefur síðan einbeitt sér að
verkalýðsfélaginu.
Kjaraviðræður hafa gjörbreyst
En hyggst hann gefa kost á sér í
formannsstarfið að ári?
(Hlær) „Þegar maður er kominn á
þennan aldur þá tekur maður ekki
marga mánuði fyrir í einu.“
Benoný kom að samningsgerð í
viðræðum Starfsgreinasambandsins
og Samtaka atvinnulífsins í vor.
Hann tekur undir að kjaraviðræður
hafi gjörbreyst á þeim tíma sem
hann hefur verið viðloðandi þær –
sem betur fer, að eigin sögn.
„Í dag er allt reiknað upp á punkt
og prik hvað laun megi hækka án
þess að allt fari af stað. Ég vil líka
bæta við að það hefur alltaf verið
mjög gott milli atvinnurekenda í
Grindavík og verkalýðsfélagsins.
Þeir hafa verið miklir skilamenn við
félagið okkar og við aldrei þurft að
standa í málaferlum eða þvíumlíku
til að rukka inn félagsgjöld. Þetta
hafa verið mjög ábyggilegir menn
sem maður hefur átt samskipti við í
gegnum árin.“
Stærstu atvinnurekendurnir í
Grindavík eru Þorbjörn Fiskanes,
Vísir, Samherji, Þróttur og Stakka-
vík og ber Benóný þeim öllum vel
söguna. „Þetta eru allt saman góð og
öflug fyrirtæki.“
55 ára fyrst í ræðustól
Hann segist horfa björtum augum
fram á veginn og meðan heilsan sé í
lagi muni hann sinna félagsmálum
hjá Verkalýðsfélaginu.
„Ég byrjaði seint á þessu. Ég hafði
aldrei í ræðustól komið fyrr en ég
var 55 ára svo að ég var „sein-
þroska“. Ég er bara barnaskóla-
genginn og mesta skólaganga mín
hefur verið sú að vera formaður
þessa félags í þetta langan tíma,“
segir Benoný Benediktsson, formað-
ur Verkalýðsfélags Grindavíkur.
Framundan er baráttudagur
verkalýðsins og munu konur úr
stjórn félagsins sjá um kaffiveitingar
1. maí líkt og undanfarin ár.
Benoný Benediktsson, formaður Verkalýðsfélagsins í 20 ár
„Mesta skólaganga mín að
vera formaður þessa félags“
Morgunblaðið/Garðar
Benoný Benediktsson, formaður
Verkalýðsfélags Grindavíkur. Njarðvík | Heilbrigðiseftirlit Suður-
nesja áformar að veita eiganda
grjótflutningapramma í Njarðvíkur-
höfn áminningu og lokafrest til að
farga umræddum pramma sem legið
hefur í niðurníðslu í höfninni í nokk-
ur ár og er að mati stofnunarinnar
mikil slysagildra.
Að sögn Bergs Sigurðssonar, heil-
brigðis- og umhverfisfulltrúa, hjá
Heilbrigðiseftirliti Suðurnesja, er
málið tvíþætt: annars vegar sæki
æðarfugl í prammann, sennilega í
ætisleit, en verði innlyksa í vatns-
fylltum hólfum hans og dæmi séu um
að fuglar hafi drepist þar en öðrum
verið bjargað. Þá séu dæmi þess að
krakkar hafi verið að leik í pramm-
anum en engin slys hafi sem betur
fer orðið á fólki fram að þessu.
Göt víða á skrokknum
Að sögn Bergs er pramminn mjög
ótraustur á að líta og mikið tærður
og göt komin á skrokkinn. Hann hafi
legið þar óhreyfður í a.m.k. 3 ár.
Heilbrigðiseftirlitið sendi eigandan-
um bréf í febrúar síðastliðnum þar
sem hann var krafinn um að pramm-
anum skyldi fargað fyrir 15. mars sl.
Fjöldi kvartana hafði borist vegna
hans og lögregla m.a. verið kölluð á
vettvang til að bjarga fugli þaðan og
fjarlægja dauðan fugl.
Þess má geta að skv lögum nr. 64/
1994 um vernd, friðun og veiðar á
villtum fuglum og villtum spendýr-
um eru æðarkollur friðaðar. Hefur
Umhverfisstofnu verið gert viðvart
vegna þessa.
Að sögn Bergs brást eigandinn
ekki við tilmælum stofnunarinnar en
hefur lýst því yfir að hann hafi í
hyggju að selja prammann. Heil-
brigðisstofnunin hefur með bréfi 20.
apríl sl.ákveðið að taka til meðferðar
að veita eigandanum á minningu og
lokafrest til að ljúka verkinu.
Málið verður tekið fyrir á fundi
heilbrigðisnefndar 5. maí nk.
Grjótflutningaprammi í niðurníðslu
Slysagildra fyrir æð-
arfugl og börn að leik