Morgunblaðið - 29.04.2004, Qupperneq 21
LANDIÐ
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 29. APRÍL 2004 21
Stórkostleg borg í hjarta Evrópu, sem Íslendingum
býðst nú að kynnast í beinu flugi frá Íslandi. Budapest er nú orðinn einn aðal
áfangastaður Íslendinga, enda hefur
hún að bjóða einstakt mannlíf,
menningu og skemmtun. Á þessum
tíma er frábært veður og borgin skartar
sínu fegursta. Hér getur þú valið um
góð 3 og 4 stjörnu hótel í hjarta
Budapest og spennandi kynnisferðir
með fararstjórum Heimsferða.
Skógarhlíð 18, sími 595 1000.
www.heimsferdir.is
Verð kr. 29.950
Flugsæti til Budapest, 27. maí með
sköttum. Netverð. Símabókunargjald er
kr. 1.500 á mann.
Verð kr. 39.950
Helgarferð, 27. maí, gisting á hótel
Mercure Duna með morgunmat, m.v. 2 í
herbergi í 4 nætur. Flug, gisting, skattar.
M.v. að bókað er á netinu
www.heimsferdir.is
Símabókunargjald kr. 1.500 á mann.
Munið Mastercard
ferðaávísunina
Síðustu sætin
Hvítasunnuhelgi í
Budapest
27. maí í 4 nætur
frá kr. 29.950
lagið var stofnað gekkst það fyrir
könnun meðal félagsmanna um
hvernig námskeiði fólk vildi að félag-
ið gengist fyrir. Þá kom fram veru-
legur áhugi fyrir vinnu með hross-
hár og varð niðurstaðan sú að halda
námskeiðið í samvinnu við endur-
menntunardeild Hólaskóla.
Sólrún Harðardóttir endurmennt-
unarstjóri við Hólaskóla sagði að
þetta námskeið væri aðeins eitt af
Fljót | Háskólinn á Hólum í Hjalta-
dal og handverksfélagið Fléttan
gengust fyrir námskeiði á dögunum
þar sem verkefnið var vinna með
hrosshár. Leiðbeinandi var Lene
Zachariassen handverkskona úr
Svarfaðardal, en hún hefur unnið
með hrosshár í mörg ár og leiðbeint
fólki varðandi ýmiskonar úrvinnslu á
þessu hráefni. Sex þátttakendur
voru á námskeiðinu sem stóð í tvo
daga.
Lene sagði að námskeiðið hefði
verið allt verklegt og hefði hún verið
að láta þátttakendur vinna með tagl-
hár og var það notað í svokallaða
hnútavinnu. Þetta eru afar gömul
vinnubrögð sem eru upprunnin með-
al Indíána í Ameríku og einnig mun
samskonar vinna hafa fundist í Afr-
íku. Aðeins voru kennd handbrögðin
við að hnýta hrosshárið og sagði
Lene að þátttakendurnir ættu síðan
að nota eigið hugmyndaflug við að
finna út hvernig muni þeir vildu nýta
hrosshárið í. Þetta hefði í raun ekki
verið hefðbundið námskeið þar sem
yfirleitt er kennt að flétta gjarðir og
reipi og að spinna hrosshár.
Fléttan er áhugamannafélag í
austanverðum Skagafirði og eru
markmið félagsins að efla handverk
og listiðnað á svæðinu. Félagið var
stofnað 30. júní á síðasta ári og eru
félagar 46 talsins. Má segja að það
hafi orðið til uppúr verkefninu
Breytum byggð sem var í gangi á
þessu svæði um þriggja ára skeið og
lauk vorið 2003. Fljótlega eftir að fé-
mörgum sem skólinn gengist fyrir á
starfsárinu. Hún sagðist telja að
handverk og ferðaþjónusta tengdist
ágætlega saman og því væri þetta
námskeið fengur fyrir skólann. Sól-
rún sagði að skólinn gengist fyrir
fjölda námskeiða á hverjum vetri.
Flest væru þau í þeim greinum sem
skólinn leggur mesta áherslu á, þ.e.
fiskeldi, hrossarækt og ferðamálum
en einnig mætti nefna námskeið í
markaðsfræðum og einnig í mat-
reiðslu sem ber titilinn ,,Verum góð
við grænmetisætur“.
Þess má að lokum geta að Fram-
leiðnisjóður landbúnaðarins styrkir
íbúa og starfsmenn lögbýla til þátt-
töku í námskeiðum sem mennta-
stofnanir landbúnaðarins skipu-
leggja, en þær eru, auk Hólaskóla,
Landbúnaðarskólinn á Hvanneyri
og Garðyrkjuskóli ríkisins.
Ævagömul handbrögð í
hrosshársvinnu kennd á Hólum
Morgunblaðið/Örn Þórarinsson
Gamalt handbragð: Þátttakendur á námskeiðinu, f.v.: Anna Fía Emilsdóttir, Ásdís Kjartansdóttir, Ásdís Garð-
arsdóttir, Rán Sturludóttir, Ingibjörg Sigurðardótir, Rakel Sigursteinsdóttir og kennarinn Lene Zacharíassen.
Fljót | Fiskiðjan Skagfirðingur
fékk viðurkenninguna Skagfirskt
framtak árið 2004. Ástæðan er
kaup fyrirtækisins á Skagstrend-
ingi hf. fyrr á þessu ári. Þetta var
kunngert á aðalfundi Kaupfélags
Skagfirðinga fyrir skömmu og
fyrirtækinu afhent listaverk gert af
Jóni Snorra Sigurðssyni gullsmið
við það tækifæri.
Það var Stefán Guðmundsson,
formaður stjórnar Kaupfélagsins,
sem afhenti viðurkenninguna.
Hann sagði við það tækifæri að með
kaupunum á Skagstrendingi væri
Fiskiðjan komin í hóp öflugustu
fyrirtækja landsins í sjávarútvegi.
Miklar vonir væru bundnar við að
þessi stóru viðskipti myndu styrkja
útgerð og fiskvinnslu bæði á Sauð-
árkróki og Skagaströnd.
Jón E. Friðriksson framkvæmda-
stjóri veitti viðurkenningunni við-
töku og að vonandi leiddu þessi
kaup til þess að gott fyrirtæki yrði
enn betra. Rekstur Skagfirðings
gekk vel í fyrra, hagnaður var lið-
lega 400 milljónir.
Morgunblaðið/Örn Þórarinsson
Stefán Guðmundsson afhenti Jóni
E. Friðrikssyni, framkvæmdastjóra
Fiskiðjunnar, viðurkenningu.
Skagfirðingur fékk
viðurkenninguna
Skagfirskt framtak
Grímsey | Árshátíð Kíwanis er há-
punktur Grímsfélaga í vetrarstarf-
inu og ekkert til sparað að gera þá
hátíð sem best úr garði. Árshátíð-
arskemmtinefndina þetta árið skip-
uðu þeir Sæmundur Ólason formað-
ur, Dónald Jóhannesson, Garðar
Ólason , Gunnar Ásgrímsson og
Óttar Jóhannsson. Félagarnir
ákváðu að þessu sinni að fá héraðs-
lækninn Pétur sem aðalskemmti-
kraft hátíðarkvöldsins, en þrír
læknar hjá Heislugæslu Akureyrar
skipta á milli sín að huga að heilsu-
fari Grímseyinga, þriðju hverja
viku. Þeir eru Hilmir Jóhannsson,
Kristinn Eyjólfsson og Pétur Pét-
ursson.
Pétur læknir, sem er landfrægur
hagyrðingur með hárfínan húmor
fyrir spaugilegum hliðum tilver-
unnar sló til og ekki nóg með það
heldur sló hann líka tvær flugur í
einu höggi því hann afgreiddi mán-
aðarlegu læknaskylduna við eyjar-
búa fyrri hluta dagsins. Pétur fékk
með sér frænda sinn, Reyni Hjart-
arson, kennara, hestamann og úr-
vals vísna- og sögumann. Þetta var
fyrsta heimsókn Reynis á heim-
skautsbauginn. Þeir frændur fóru
gjörsamlega á kostum við enda-
lausan hlátur og innilegt klapp
Grímseyinga. Maturinn sem boðið
var upp á var algjört lostæti enda
matbúinn af veisluþjónustunni
Lostæti á Akureyri. Undir borðum
stýrði Dónald Jóhannesson fjölda-
söng og Grímsfélagarnir Sæmund-
ur Ólason og Alfreð Garðarsson
komu fram og sungu gamanvísur
sem „Tvær úr Fjörðunum“ og
vöktu mikla kátínu. Að þessu öllu
loknu var tekið til við dansinn sem
dunaði dátt við tóna Gunnars
Tryggvasonar og söng Herdísar
Ármannsdóttur í Cantabile rúm-
lega fram á miðja nótt.
Pétur bæði
læknaði og
skemmti
Morgunblaðið/Helga Mattína
Fóru á kostum: Reynir Hjartarson, Gunnar Tryggvason, Herdís Ármanns-
dóttir og Pétur Pétursson í flugstöðinni í Grímsey.
BYRJAÐ er að setja fyllingu
undir veginn að Almannaskarði
þar sem jarðgöngin koma að
vestan. Búið er að gera plön fyr-
ir vinnubúðir og aðstöðu vinnu-
véla. Verið er að hreinsa jarðveg
frá og af klöppinni þar sem byrj-
að verður að bora fyrir göng-
unum.
Hreinsa þarf burt allan jarð-
veg til að hægt verði að byrja að
sprengja og það er nokkuð mikið
magn, segir Reynir Gunnarsson
hjá Vegagerðinni í samtali á
hornafjörður.is
Efnið úr göngunum verður
notað í uppfyllingu á veginum
sem verður fjórtán metra hár
þar sem hæst verður. Vinnubúð-
ir fyrir starfsfólk verða settar
upp í byrjun maí og um mán-
aðamót verður byrjað að
sprengja.
Reynir segir að mannskap og
tækjum fjölgi þarna á svæðinu
þegar líður á næsta mánuð.
Framkvæmdir hafnar við Almannaskarð