Morgunblaðið - 29.04.2004, Qupperneq 23
NEYTENDUR
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 29. APRÍL 2004 23
Fann hann á mbl.is
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
M
O
R
23
44
5
04
/2
00
4
Verslunin Heilsuhornið á Glerártorgi áAkureyri hefur í nokkur ár boðið til sölulífrænar vörur, t.d. matvæli, og segir
eigandinn, Hermann H. Huijbens, eftirspurnina
aukast hægt og bítandi.
Verslunin er rúmlega 20 ára en 1. júní næst-
komandi verða 11 ár liðin frá því Hermann og
eiginkona hans, Þóra G. Ásgeirsdóttir, eign-
uðust Heilsuhornið. Síðan hefur mikið vatn
runnið til sjávar og nú er fjölbreytnin mikil. Alls
bjóða þau hjón upp á um eitt þúsund vöruteg-
undir í versluninni.
Fljótlega eftir að Hermann og Þóra tóku við
rekstrinum hófust þau handa við að flytja inn
lífræna vöru. „Við vorum fyrst í stað með tvöfalt
kerfi, bæði lífræna vöru og einnig ýmislegt ann-
að sem var í búðinni áður en við eignuðumst
hana. Markaðurinn var lítill og eftirspurnin
sáralítil en með því að fræða fólk komum við
vörunni á framfæri,“ segir Hermann við Morg-
unblaðið. „Við vorum til dæmis fyrst til að setja
íslenska miða á vöruna.“
Fyrst í stað flutti Heilsuhornið inn lífræna
ávexti og grænmeti með flugi, „en það var
óhemju dýrt og ekki forsvaranlegt að halda því
áfram, þótt það hafi verið gaman. Flutnings-
kostnaður var svo hár.“ Síðan hefur Hermann
flutt inn lífræna ávexti í samstarfi við m.a. Ban-
ana ehf. í Reykjavík. „Við erum því alltaf með
góða ávexti og grænmeti og höfum verið síðustu
sex ár, ávexti sem koma til dæmis frá Argentínu
og Nýja-Sjálandi á þessum árstíma. Á sumrin
seljum við íslenska framleiðslu en því miður eru
allt of fáir bændur ennþá sem hafa haft kjark til
þess að fara út í hreina lífræna ræktun. Svo er-
um við líka farin að selja lífrænt fæðubótarefni
frá Bandaríkjunum, sem við flytjum sjálf inn, og
alls kyns vítamín.“
Þóra fór í fjögurra ára nám í smáskammta-
lækningum fyrir skemmstu og starfar nú sem
hómópati samhliða verslunarrekstrinum. „Það
má segja að hún sinni aðallega öðrum hópi við-
skiptavina en ég. Aðstoðar fólk vegna óþols og
þess háttar; ég sé um matarhliðina, vítamínin og
reksturinn. Við viljum geta þjónað sem allra
flestum og höfum mjög gaman af þessu.“
Hermann segist þjóna viðskiptavinum víða
um land; segist raunar líta svo á að hann þjóni
landsbyggðinni allri. „Við fáum viðskiptavini frá
Vestmannaeyjum, Hólmavík, austan af Hér-
aði … En við sinnum aðallega Norðvesturlandi,
Norðausturlandi og Austurlandi.“
Fastir viðskiptavinir Hermanns eru margir,
ekki síst fólk sem hefur búið erlendis og vanist
lífrænum vörum.
Stöðug þróun
Hann segir mikið um að kennarar komi með
skólakrakka í heimsókn á vorin, svo og leik-
skólabörn. „Þau fá þá að smakka lífræna ávexti
og finna mikinn mun. Börn eru svo ótrúlega
næm, því þau eru óspillt eins og náttúran!“
Hermann segir stöðuga þróun á lífræna
markaðnum. „Fólk lítur þetta líka sífellt já-
kvæðari augum. Það er mjög gott að stórmark-
aðir eru farnir að bjóða upp á lífrænar vörur,
þannig kynnist fólk þeim og getur síðan prófað
þær enn frekar hjá okkur, þar sem úrvalið er
mun meira.“
Hann leggur áherslu á að litið sé á lífræn
matvæli í stóru samhengi. „Nú ætla Akureyr-
ingar í átak í umhverfismálum og lífrænu mat-
vælin eru einn angi af því. Fólk þarf að átta sig á
því að við sem búum núna á jörðinni eigum hana
ekki bara fyrir okkur. Fólk á meginlandi Evr-
ópu er komið mun lengra en við varðandi líf-
ræna ræktun; Evrópubúar fóru þá leið nauð-
beygðir og við ættum að læra af þeirra reynslu.“
Lífræn vara er nokkuð dýrari en hefðbundin,
enda ekki hægt að bera þær saman, segir Her-
mann. Lífræn ræktun tekur t.d. mun lengri
tíma.
„Vaxtarhraði lífrænna matvæla er mun hæg-
ari en annarra og það þarf meiri mannskap. Ég
segi stundum við fólk að við getum ekki bara al-
ið börnin okkar upp til þriggja ára aldurs heldur
verðum að gera það til tvítugs. Það er nákvæm-
lega eins með epli; vaxtarhraðinn verður að hafa
sinn gang ef fara á náttúrulega leið.“
Hermann telur mikilvægt að stjórnvöld setji
Íslendingum einhver markmið á þessu sviði.
„Það hefur ekki verið gert, því miður. Í Svíþjóð
minnir mig að markmiðið sé að árið 2006 verði
30% ræktaðra matvæla þar í landi lífræn. Það
væri mjög gott að setja sér markmið þannig að
menn geti ekki komist upp með bara hvað sem
er.“
MATUR | Hermann H. Huijbens og Þóra G. Ásgeirsdóttir í Heilsuhorninu á Akureyri
skapti@mbl.is
Bjóða upp á um
1.000 vörutegundir
Hermann H. Huijbens: Eigandi Heilsuhorns-
ins á Glerártorgi á Akureyri í versluninni.
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
Úr Heilsuhorninu á Glerártorgi: Lífræn matvæli einn angi umhverfismála, segir eigandinn.