Morgunblaðið - 29.04.2004, Síða 46
DAGBÓK
46 FIMMTUDAGUR 29. APRÍL 2004 MORGUNBLAÐIÐ
MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SÍM-
AR: Skiptiborð: 569 1100. Auglýsingar: 569 1111.
Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn: 569 1329,
fréttir 569 1181, íþróttir 569 1156, sérblöð 569 1222, aug-
lýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811, gjaldkeri 569 1115.
NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, / Áskriftargjald 2.100
kr. á mánuði innanlands. Í lausasölu 190 kr. eintakið.
Skipin
Reykjavíkurhöfn:
Coimbra kemur í dag.
Arnarfell fer í dag.
Hafnarfjarðarhöfn:
Bootes og Haanseeraq
koma í dag. Selfoss fer
í dag.
Mannamót
Aflagrandi 40. Kl. 9
vinnustofa, bað og
jóga, kl. 10 boccia, kl.
13 myndlist.
Árskógar 4. Kl. 9–12
handavinna, kl. 9–12.30
bókband, kl. 9.30
boccia, kl. 10.30–10.55
helgistund, kl. 11 leik-
fimi, kl. 13–16.30 smíð-
ar og handavinna, kl.
13.30 myndlist.
Bólstaðarhlíð 43. Kl.
8.30–14.30 bað, kl. 9–
9.45 leikfimi, kl. 9–12
myndlist, kl. 9–16
handavinna, kl. 13–16
bókband.
Félagsstarfið Dalbraut
27. Kl. 8–16 handa-
vinnustofan opin.
Félagsstarfið Dalbraut
18–20. Kl. 9 bað og
postulín, kl. 13 handa-
vinna.
Félagsstarfið, Hæð-
argarði 31. Aðstoð við
böðun og glerskurður,
kl. 9–16.30, leikfimi kl.
10–11, sönghópurinn
kl. 13.30, dans kl. 15.15.
Félagsstarfið, Löngu-
hlíð 3. Kl. 8 bað, kl. 13
föndur og handavinna.
Félagsstarf eldri borg-
ara Mosfellsbæ, Hlað-
hömrum, kl. 13–16
föndur og spil, kl.
12.30–15.30 tréskurð-
ur, kl. 13.30–14.30 les-
klúbbur, kór eldri
borgara Vorboðar, æf-
ing kl. 17–19.
Félagsstarf aldraðra
Garðabæ. Kl. 14.30
skemmtiatriði á vegum
leikskólabarna á Bæj-
arbóli og nema í Tón-
listarskóla Garða-
bæjar. Kaffisala á
vegum kirkjunnar kl.
14–17. Trésmíðahópur
með opið hús í kjallara
kl. 13.30–16.30. Karla-
leikfimi kl. 13.10. Lok-
að í Garðabergi vegna
vorsýningar sem er op-
in kl. 13–19.
Félag eldri borgara,
Hafnarfirði, Hraunseli.
Kl. 9 videókrókur, kl.
10–11.30 pútt, kl. 11.20
leikfimi, kl. 13 gler-
skurður.
Félag eldri borgara,
Reykjavík, Ásgarði.
Brids kl. 13, félagsvist
kl. 20.
Gerðuberg, fé-
lagsstarf. Kl. 10.30
helgistund, leiðsögn í
vinnustofu fellur niður
vegna uppsetningar
listsýningar. S.
575 7720.
Gjábakki, Fannborg 8.
Kl. 9–15 handavinna,
kl. 9.05 og 9.55 leikfimi,
kl. 9.30 glerlist og ker-
amik, kl. 10.50 róleg
leikfimi, kl. 13 gler- og
postulín, kl. 14 hörpu-
hátíð, kl. 20 gömlu
dansarnir, kl. 21 línu-
dans.
Gullsmári, Gullsmára
13. Kl. 9.15 postulíns-
málun, kl. 9.05 og kl.
9.55 leikfimi, kl. 9
myndlistahópur, kl. 10
ganga, kl. 13 brids, kl.
13–16 handa-
vinnustofan opin.
Hraunbær 105. Kl. 9
handavinna, perlu-
saumur, kortagerð og
hjúkrunarfræðingur á
staðnum, kl. 10 boccia,
kl. 11 leikfimi, kl. 14 fé-
lagsvist.
Hvassaleiti 56–58. Kl.
9–13 bútasaumur, kl.
10 boccia, kl. 13–16
hannyrðir, kl. 13.30–16
félagsvist.
Korpúlfar Grafarvogi.
Á morgun sundleikfimi
í Grafarvogslaug kl.
9.30.
Norðurbrún 1. Kl. 9–
16.45 opin vinnustofa,
kl. 10–11 sam-
verustund og leir.
Vesturgata. Kl. 9.15–
12 bað, kl. 9.15–15.30,
handavinna, kl. 9–10
boccia, kl. 10.15–11.45
enska, kl. 13–14 leik-
fimi, kl. 13–16 kóræf-
ing.
Vitatorg. Kl. 8.45
smíði, kl. 9.30 gler-
skurður, perlusaumur
og morgunstund, kl. 10
boccia, kl. 13 hand-
mennt og bridge.
Þjónustumiðstöðin
Sléttuvegi 11. Opið kl.
9–14. Kl. 9.15 leikfimi,
kl. 10–12 verslunin.
Þórðarsveigur 1–5
Grafarholti. Kl. 13.30
opið hús.
Gullsmárabrids.
Bridsdeild FEBK Gull-
smára spilar í félags-
heimilinu að Gullsmára
13 mánu- og fimmtu-
daga. Skráning kl.
12.45. Spil hefst kl. 13.
Félag áhugamanna
um íþróttir aldraðra.
Leikfimi í Ásgarði,
Glæsibæ, kl. 11.
Kiwanisklúbburinn
Geysir, Mosfellsbæ.
Spilakvöld í Kiw-
anishúsinu kvöld kl.
20.30.
Kristniboðsfélag
kvenna, Fundur kl. 17 í
umsjá Þóreyjar Ingv-
arsdóttur.
Sjálfsbjörg, Hátúni 12.
Kl. 20 aðalfundur.
Venjuleg aðalfund-
arstörf, lagabreyt-
ingar, önnur mál.
Í dag er fimmtudagur 29. apríl, 120.
dagur ársins 2004. Orð dagsins: Vak-
ið því og verið þess minnugir, að ég
áminnti stöðugt sérhvern yðar með
tárum dag og nótt í þrjú ár.
(Post. 20, 31.)
Úr Vefþjóðviljanum:„Bregðast skólar
hins opinbera með já-
kvæðum hætti við sam-
keppni frá einkaskólum
þegar valfrelsi er aukið í
skólamálum með ávís-
anakerfi? Batnar árang-
ur nemenda þegar þeir
fara í einkaskóla? Fá
einkaskólar til sín betri
nemendur en opinberir
skólar? Að sögn Caroline
M. Hoxby, prófessors við
Harvard-háskóla, eru
þetta meðal algengustu
spurninga um valfrelsi í
skólamálum og um þær
fjallar hún í nýlegri grein
í Sænska hagfræðiritinu,
Swedish Economic Policy
Review. Með ávísanakerfi
er átt við að hið opinbera
greiðir fyrir menntun
nemenda, en nemendur
þurfa ekki að fara í op-
inberan skóla, heldur
geta þeir valið sér skóla,
hvort sem er í opinberum
rekstri eða einkarekstri.
Talsverð reynsla er kom-
in á slíkt kerfi í Banda-
ríkjunum og á því byggir
Hoxby rannsóknir sínar.
Fyrstu spurningunni
svarar Hoxby játandi; op-
inberir skólar batni þeg-
ar þeir standi frammi
fyrir þeirri samkeppni
sem verði til við að taka
upp ávísanakerfi. Hún
segir að samkvæmt kenn-
ingu stuðningsmanna val-
frelsis í skólamálum muni
þeir skólar sem ekki
standa sig missa nem-
endur til hinna með
þeirri afleiðingu ann-
aðhvort að verri skól-
arnir hverfi eða að þeir
batni. Gögn sýni, að gæði
opinberu skólanna að
teknu tilliti til fjármagns,
geti aukist um 50% til
69%. Óhætt er að segja
að þessar tölur gefi til-
efni til bjartsýni um að
árangur megi auka veru-
lega án aukinna útgjalda,
ef frelsi og samkeppni fá
að njóta sín á þessu sviði.
Önnur spurningin, þaðer að segja um það
hvort árangur batni hjá
nemendum sem fari í
einkaskóla, segir Hoxby
að sé óheppileg af að
minnsta kosti tveimur
ástæðum. Annars vegar
vegna þess að ekki eigi
að spyrja um árangur án
tillits til fjármagns sem
sett sé í námið og hins
vegar vegna þess að
gögnin sýni að valfrelsi í
skólamálum bæti þá op-
inberu skóla sem verði að
keppa við einkaskóla
undir ávísanakerfi. En
þrátt fyrir að spurningin
sé gölluð kýs Hoxby að
svara henni og hún segir
að gögnin sýni að árang-
ur hins almenna nem-
anda batni við að fara í
einkaskóla.
Þriðja spurningin teng-
ist spurningu númer tvö
og snýst um það hvort að
einkaskólar fái til sín
betri nemendur en hinir
skólarnir, og þar með
hvort að það skýri ef til
vill betri árangur. Hoxby
segir að raunin sé sú að
einkaskólarnir laði ekki
til sín betri nemendurna.
Ef eitthvað sé fái þessir
skólar hlutfallslega mikið
af nemendum sem séu
álitnir síður eftirsókn-
arverðir eða eigi í erf-
iðleikum í námi.“
STAKSTEINAR
Ávísanakerfi
Víkverji skrifar...
Víkverja finnst gott að koma við ákaffihúsum og fá sér mjólk-
urkaffi í „göngumáli“ eins og plast-
glösin með lokinu hafa verið nefnd.
Þetta hefur Víkverji gert lengi og
notið þess að drekka kaffið á leið-
inni í vinnuna. Þetta kaffistand á
Víkverja á sér hins vegar slæma
hliðarverkun, en það er kostnaður-
inn og hin endalausa umbúðanotk-
un. Ætli Víkverji drekki ekki að
meðaltali 4 bolla frá kaffihúsunum
á viku og þar höfum við það: um 200
plastglös á ári falla til vegna þess-
arar nautnar eins manns. Ætli sé
ekki best að láta kostnaðinn fylgja
með í leiðinni: 50 þúsund kall kost-
ar kaffihúsadekur Víkverja á ári.
Víkverja langaði af þessu tilefni til
að draga aðeins úr óhófinu og fór að
skoða málið. Eitt af því fyrsta sem
hann uppgötvaði var að aðal-
aðdráttarafl plastkaffisins fólst
ekki í kaffigæðunum sjálfum, held-
ur þeirri athöfn að drekka það í
bílnum. Næst áttaði Víkverji sig á
því að unnt er að kaupa úrvalskaffi
á kaffihúsunum og hella bara upp á
heima hjá sér. Ekki leið á löngu uns
Víkverji fór að safna nokkrum not-
uðum kaffiglösum og afgreiddi
sjálfan sig í eldhúsinu með ná-
kvæmlega eins drykki og hann
hafði verið að borga 250–300 kall
fyrir. Sparnaðurinn skilaði sér
fljótt í bíóferð fyrir tvo auk þess
sem kaffi Víkverja er ágætt á
bragðið.
Víkverji tekur samt fram að hann
hefur alls ekki hætt öllum við-
skiptum við kaffihúsin, heldur
dregið töluvert úr óhófinu. 50 þús-
und kall bara fyrir kaffibolla er
talsverður peningur og ef Víkverja
tekst að lækka þennan kostnað um
helming, mætti kaupa gönguskó af
vönduðustu gerð fyrir mismuninn.
En auðvitað lifir Víkverji bara í
blekkingu. Hvaða máli skiptir það í
raun hvort peningunum er eytt í
bíó, kaffi eða föt? Allt er þetta sóun
í neyslu og aftur neyslu.
x x x
Víkverji, sem borðar skyr á hverj-um einasta degi, frétti af manni
einum sem tók mataræði sitt í gegn
og fór að borða skyr í annað hvert
mál. Þarna var um að ræða ein-
stakling sem vildi fá fitulitla fæðu
með góðum prótínum til að byggja
upp vöðva og losna við spik. Þetta
heilsuátak gekk líkast til of langt
þegar kona mannsins var farinn að
finna skyrlok út um alla íbúð, sér til
nokkurrar armæðu. Þetta voru hin-
ir ólíklegustu staðir, undir sófa,
inni í skápum og jafnvel inni á baði.
Engu var líkara en maðurinn væri
að troða í sig skyri í leyni. En stein-
inn tók víst úr þegar skyrlokin fóru
að gægjast undan koddanum. Það
var bara heppni að það var skyr en
ekki einhver önnur hollustufæða
sem viðkomandi féll fyrir. Ímyndið
ykkur ef þetta hefði allt saman ver-
ið sardínudósir.
Morgunblaðið/Eggert
LÁRÉTT
1 kústum, 4 tré, 7 blítt, 8
lélegrar skepnu, 9 traust,
11 skordýr, 13 úrgangur,
14 skerandi hljóð, 15 úr-
þvætti, 17 streita, 20
kona, 22 skolli, 23 bítur,
24 ílátið, 24 ákvarða.
LÓÐRÉTT
1 sjávardýrum, 2 kurt-
eisu, 3 södd, 4 ódrukkinn,
5 hnífar, 6 rödd, 10 verk-
færi, 12 auðug, 13 ósoðin,
15 hyggin, 16 erfingjar,
18 skrökvar, 19 grúinn,
20 ró, 21 þyngdareining.
LAUSN SÍÐUSTU KROSSGÁTU
Lárétt: 1 afslöppun, 8 fornt, 9 niðið, 10 ann, 11 akkur, 13
arðan, 15 úthaf, 18 áfátt, 21 úlf, 22 nafns, 23 aftan, 24
hagnýting.
Lóðrétt: 2 fersk, 3 litar, 4 pinna, 5 urðað, 6 efla, 7 áðan,
12 uxa, 14 rif, 15 úfna, 16 hafna, 17 fúsan, 18 áfast, 19
ástin, 20 tonn.
Krossgáta
Hægt er að kaupa 10 krossgátur á 600 kr. á mbl.is. Slóðin er: http://www.mbl.is/mm/folk/krossgata/index.html
Skemmtileg sýning
ÉG fór, ásamt fimm öðr-
um, að sjá Saumastofuna
sem Leiklistarfélag Sel-
tjarnarness sýnir. Verkið
var sýnt í Félagsheimili
Seltjarnarness.
Mig langaði að koma því
á framfæri að þetta var
rosalega skemmtilegt og
vel gert hjá þeim. Helm-
ingurinn af okkur hafði séð
þetta í Iðnó en þessi sýning
var ekki síðri, vel gert hjá
þeim og var hin besta
skemmtun. Óska þeim til
hamingju með þetta.
Ánægður áhorfandi.
Brottfall úr skólum
er foreldravandamál
VEGNA frétta í Sjónvarp-
inu (RÚV), föstudags-
kvöldið 23. apríl sl. um
brottfall úr skólum, vil ég
lýsa undrun minni á skiln-
ingsleysi þeirra sem þar
lýstu skoðun sinni á mál-
inu.
Ekki var minnst einu
orði á meginorsök þess að
unga fólkið hættir í skól-
anum. En hún er fátækt.
Unga fólkið sem engan á
að eða á engan sem styður
við bakið á því. Unga fólkið
sem stendur efst í systk-
inahópi margskilinna for-
eldra sem ekki muna leng-
ur eftir upphafinu, og ekki
hefur nein tök á að sjá öll-
um farborða. Eða þau sem
hafa verið látin skrifa upp á
fjárhagsskuldbindingar
fyrir foreldra sína.
Þau hafa síðan orðið að
hverfa úr skóla til þess að
vinna fyrir lánunum sem
svokallaðir foreldrar hafa
eytt og síðan látið falla á
unga fólkið.
Eins mætti minnast á að
aðstoð frá félagsmálageir-
anum til unglinga sem eiga
foreldra sem eru öryrkjar,
þarf að sækja í gegn um
slíkt nálarauga að til þarf
helst löglærðan mann í
fullu starfi.
Þessar ástæður og aðrar
þeim tengdar álít ég að séu
stór þáttur í því hve margir
hætta í skólanum í miðju
námi.
Áslaug Kjartansdóttir,
Vík.
Verð á nikótín-
tyggjói
LESANDI tekur undir orð
vinar Víkverja nú á dög-
unum, um hátt verð á
nikótíntyggjói.
„Ég hef reykt í 20 ár og
lengi vel hátt í tvo pakka á
dag. Ég hef nú verið reyk-
laus í fjóra mánuði, án
Nicotinell hefði ég aldrei
getað hætt. Mér hins vegar
blöskrar verðið, ég borga
fyrir 84 stk um 2500 kr. Ég
legg til að þeir sem málið
varðar endurskoði verðið.
Það þarf að vera meiri fjár-
hagslegur ávinningur af
því að hætta.“
Tapað/fundið
Kort
týndust
NOKKUR kort saman í
plasti týndust, líklega á
planinu hjá Glæsibæ, vest-
anverðu, sl. þriðjudag. Eig-
andinn þarf mjög á þessum
kortum að halda. Skilvís
finnandi hafi samband í
síma 557 1692 og 820 1692.
VELVAKANDI
Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15 Netfang velvakandi@mbl.is