Morgunblaðið - 29.04.2004, Qupperneq 48
ÍÞRÓTTIR
48 FIMMTUDAGUR 29. APRÍL 2004 MORGUNBLAÐIÐ
ÓLAFUR H. Kristjánsson hættir
sem aðstoðarþjálfari hjá danska úr-
valsdeildarliðinu AGF þegar samn-
ingur hans við félagið rennur út í
júlí. Ólafur hefur verið aðstoðar-
þjálfari liðsins undanfarin tvö og
hálft ár en þar áður var hann leik-
maður félagsins. Ástæða þess að
AGF vill ekki bjóða Ólafi nýjan
samning er sú að Svíinn Sören
Åkeby sem tók við liðinu síðastliðið
haust tók með sér landa sinn sem
aðstoðarmann og forsvarsmenn
AGF segjast ekki hafa ráð á því að
hafa tvo aðstoðarþjálfara í starfi.
„Ég átti alveg von á að þetta yrði
niðurstaðan. Åkeby vildi halda mér
en stjórnarformaður AGF sagði að
félagið hefði ekki efni á að vera
með tvo aðstoðarmenn, því hætti ég
störfum í lok júní,“ sagði Ólafur við
Morgunblaðið í gær.
Ólafur segist hafa mikinn hug á
að halda áfram þjálfarastörfum og
hann segir ýmislegt vera í spilun-
um. „Það hafa tvær óformlegar fyr-
irspurnir borist til mín frá liðum úr
dönsku 1. deildinni og nú sný ég
mér að því að ræða við þessi félög.
Þá hefur eitt sænskt 1. deildarlið
haft samband við mig, svo ég hef
eitthvað til að skoða næstu dagana.
Nú ef ekkert kemur upp sem ég get
sætt mig við þá er ekkert annað að
gera en að koma heim. Ég er búinn
að vera hjá AGF í sjö ár og þegar
öllu er á botninn hvolft þá hygg ég
að þessi niðurstaða sé bara ágæt,
enda tel ég vera kominn tíma til að
breyta til.“
Ólafur á förum frá
AGF í Danmörku
AXEL Stefánsson, fyrrverandi
markvörður KA, Vals og Stjörn-
unnar og nú aðstoðarþjálfari hjá
Þór Akureyri, er með tilboð undir
höndum frá karlaliði Elverum í
Noregi en félagið vill fá hann til að
taka við liðinu fyrir næstu leiktíð.
Forráðamenn félagsins hafa lengi
haft augastað á Axel. Þeir gerðu
honum tilboð síðastliðið sumar sem
hann hafnaði en nú ætla þeir að
gera aðra tilraun að fá Íslendinginn
til starfa.
Kemur vel til greina
„Ég er að skoða þetta og ég býst
við að svara þeim endanlega um
helgina. Ég er opnari fyrir því að
fara út núna heldur en í fyrra. Ég
hef mikinn áhuga á að starfa áfram
við þjálfun og það kemur vel til
greina að ég skelli mér til Noregs á
nýjan leik,“ sagði Axel við Morgun-
blaðið en hann er lauk námi í
íþróttafræðum við íþróttaháskól-
ann í Noregi fyrir nokkrum árum
þar sem hann var með handboltann
sem sérfag.
Elverum, sem leikur í 1. deild,
hefur góða reynslu af íslenskum
þjálfurum en Þórir Hergeirsson,
aðstoðarþjálfari norska kvenna-
landsliðsins, þjálfaði karlalið Elver-
um fyrir nokkrum árum með góð-
um árangri. „Axel hefur verið á
óskalista okkar í meira en eitt ár og
við vonum að hann taki við þjálfun
liðsins,“ segir Jon Refseth fram-
kvæmdastjóri Elverum í viðtali við
norska blaðið Östlendingen.
Axel efstur á óskalista
Elverum í Noregi
Annað sem við Ásgeir erumánægðir með er hvað strák-
arnir náðu að láta knöttinn ganga
vel á milli sín. Það var miklu betra
spil í leik liðsins en oftast áður.
Það sem við lögðum upp með gekk
upp. Óneitanlega hefðum við getað
skapað okkur fleiri tækifæri til að
setja knöttinn í netið hjá Lettum,“
sagði Logi Ólafsson landsliðsþjálf-
ari, sem lék við hvurn sinn fingur
eftir leikinn og sló á létta strengi.
„Við getum ekki annað en verið
ánægðir með það sem strákarnir
gerðu – þeir börðust hetjulega all-
an leikinn.“
Logi sagði að menn yrðu að
gera sér grein fyrir því að jafntefli
gegn Lettum í Ríga væru mjög
góð úrslit fyrir landslið Íslands.
„Við lékum hér án okkar hættuleg-
ustu sóknarleikmanna, sem þeir
Eiður Smári Guðjohnsen og Heið-
ar Helguson eru. Ég er þá ekki að
gera lítið úr þeim Marel og
Tryggva, sem léku virkilega vel í
fremstu sóknarlínu. Þeir vörðust
vel í þeirri stöðu að leika tveir
gegn fjórum varnarleikmönnum
Letta, sem eru ekki þekktir fyrir
að fara fram með sína bakverði.
Ég er sannfærður um að Eiður
Smári hefði náð sínu besta fram
gegn Letttum, eins og þeir léku.
Hann er mjög klókur að koma
snöggt fram og fá knöttinn á rétt-
um augnablikum. Við náðum að
skapa okkur margar sóknir en
herslumuninn vantaði þegar Indr-
iði og Þórður gáfu knöttinn fyrir
markið. Eiður Smári hefði eflaust
getað nýtt sér það,“ sagði Logi,
sem var ánægður með leikinn.
Það var ekki eins mikill æsingurog stress í leik liðsins eins og
í Albaníu. Við getum ekki annað en
verið sáttir við leik okkar nú,“
sagði Pétur Hafliði Marteinsson,
sem lék án efa einn sinn besta
landsleik gegn Lettlandi í Ríga.
Pétur Hafliði var mjög traustur í
vörninni, stöðvaði margar sóknar-
lotur Letta og var óhræddur að
bruna fram með knöttinn til að
byggja upp sóknarlotur.
Pétur sagði að það væri ekki
annað hægt en vera sáttur við nið-
urstöður leiksins. „Ég, Hermann
og Ívar vorum einmitt að ræða um
það hér í búningsklefanum hvað
okkur tókst vel upp, en við vorum í
fyrsta skipti að leika saman í þeim
hlutverkum sem við gerðum. Við
gerum okkur grein fyrir því að
stundum vorum við of langt hvor
frá öðrum í byrjun leiksins, en eftir
því sem leið á leikinn vorum við
búnir að finna réttan stíganda og
samvinna okkar varð alltaf betri og
betri,“ sagði Pétur og hann var
ánægður með hve góðum tökum
þeir þrír náðu á hinum fljóta Maris
Verpazkovskis, hinum hættulega
sóknarleikmanni Lettlands. „Við
vitum það að þegar við leikum
landsleiki þá þurfum við að glíma
við bestu sóknarleikmenn hverrar
þjóðar. Öll landslið hafa hættulega
leikmenn, hvort sem það er Alban-
ía, Lettland, Þýskaland eða Eng-
land. Landslið eru með góða leik-
menn í nánast hverri stöðu. Við
munum nú fara betur yfir leik okk-
ar og finna út hvernig best er að
bregðast við hættulegum leikmönn-
um,“ sagði Pétur, sem var ánægður
með leik liðsins.
„Við ræddum um það fyrir leik-
inn að við yrðum að þora að gera
meira ef við ætluðum að ná árangri
og hafa meiri trú á því sem við er-
um að gera. Það hefur oft hent ís-
lenska landsliðið þegar illa gengur
að við höfum fallið í það að spyrna
knettinum langt og hlaupa. Það
hefur aldrei neitt komið út úr þeim
fasa. Þess vegna ræddum við mikið
um það að vera þolinmóðir og hafa
trú á okkur – vilja hafa knöttinn og
láta hann ganga manna á milli.
Mér fannst það takast nokkuð vel.
Að vísu vorum við heppnir að Lett-
ar skoruðu ekki mark í byrjun. Það
hefði verið mikið kjaftshögg fyrir
okkur en það hefði kannski verið
skemmtilegt að sjá hvort við hefð-
um náð að rétta okkar hlut. En
Lettarnir náðu ekki að skora gegn
okkur, þannig að við fögnum
ákveðnum áfanga hér í Ríga,“
sagði Pétur Hafliði.
Morgunblaðið/Kristinn
Pétur Hafliði Marteinsson á landsliðsæfingu, einbeittur á svip í
glímu við knöttinn, en hann leikur með Hammarby í Svíþjóð.
Pétur Hafliði Marteinsson átti
stórgóðan leik gegn Lettum
Samstaða
okkar var
mikil
ÞAÐ var ljúft að ná jafntefli gegn Lettum á þeirra heimavelli, en við
hefðum viljað fagna sigri. Þegar maður gerir upp þessa viðureign
þá gerum við okkur ljóst að úrslitin eru ekki aðalatriðið. Við lögðum
upp með það að bæta leik okkar frá leiknum gegn Albaníu og okkur
tókst það. Það er ánægjulegt. Það var miklu meiri samstaða í hópn-
um nú en oft áður – meiri þolinmæði leikmanna sem þorðu að leika
knettinum meira.
„Náðum markmiðinu
sem við settum okkur“
„VIÐ getum ekki annað en verið ánægðir með strákana. Við náðum
þeim markmiðum sem við settum okkur – að halda markinu hreinu.
Árni Gautur var hetjan okkar – hann varði tvisvar mjög vel í leiknum,
eftir að við sofnuðum á verðinum í byrjun leiks og í upphafi seinni
hálfleiksins. Þá fengu Lettar sín bestu tækifæri til að skora,“ sagði
Logi Ólafsson landsliðsþjálfari eftir leikinn.
FABIEN Barthez er búinn að
skrifa undir tveggja ára samning við
franska knattspyrnuliðið Marseille
en hann hefur verið í láni hjá félag-
inu frá Manchester United megnið
af leiktíðinni.
BARTHEZ missti stöðu sína í liði
United þegar Bandaríkjamaðurinn
Tim Howard gekk í raðir United á
síðasta sumri og þegar Roy Caroll
var síðan tekinn fram yfir Barthez
sem markvörður númer tvö var ljóst
að Barthez ætti ekki lengur framtíð
á Old Trafford.
BARTHEZ, sem lék samtals 139
leiki fyrir Manchester United og
varð í tvígang meistari með liðinu,
2001 og 2003, hefur átt góðu gengi að
fagna með liði Marseille. „Hann hef-
ur sýnt og sannað að hann er einn
besti markvörður heims og við erum
afar glaðir að hafa tryggt okkur
hann,“ segir Christophe Bouchet,
forseti Marseille.
CHELSEA ætlar að eyða 100
milljónum punda í leikmannakaup í
sumar ef marka má heimildir breska
blaðsins Mirror. Blaðið greinir frá
því að Roman Abramovich, eigandi
félagsins, ætli að freista þess að
kaupa David Beckham og Ronaldo
frá Real Madrid og Francesco Totti
frá Roma.
ABRAMOVICH hefur keypt leik-
menn til Chelsea fyrir 130 milljónir
punda frá því hann eignaðist félagið í
fyrra en í þeim hópi eru leikmenn á
borð við Hernan Crespo, Adrian
Mutu, Damien Duff, Claude Makel-
ele og Juan Sebastian Veron.
JOSE Mourinho, þjálfari Porto,
tekur við liði Chelsea í sumar, ef
marka má frétt í The Sun í gær. Þar
var fullyrt að Chelsea og Porto
hefðu þegar komist að samkomulagi
um vistaskipti hans og Chelsea
myndi greiða Porto bætur. Nuno
Pinto da Costa, forseti Porto, lýsti
því hins vegar yfir í viðtali við Daily
Star að Mourinho færi ekki frá fé-
laginu baráttulaust og hann myndi
leita fulltingis UEFA og FIFA ef
með þyrfti. „Hugarfar Rússans er
það versta sem ég hef kynnst í knatt-
spyrnunni. Hann heldur að hann geti
komist upp með allt eftir að hann
keypti Chelsea og farið fram hjá öll-
um reglum,“ er haft eftir forsetan-
um.
ARSENAL gekk í gær frá kaupum
á Robin van Pierse tvítugum fram-
herja frá Feyenoord. Talið er að
Englandsmeistararnir greiði 3 millj-
ónir punda fyrir leikmanninn en hon-
um er ætlað að fylla skarð landa síns,
Dennis Bergkamps, þegar hann
hverfur frá Highbury eftir næsta
tímabil. Pierse hefur verið í herbúð-
um Feyenoord frá árinu 2001. Í 27
leikjum þessari í á leiktíðinni hefur
hann skorað 6 mörk en mörg félög
voru á höttunum eftir honum.
FÓLK
ÞAÐ hefur margt farið úrskeiðis
í uppbyggingu íþróttamannvirkja
í Grikklandi fyrir Ólympíuleikana
sem hefjast 13. ágúst í sumar en
skipuleggjendur leikanna sögðu í
gær við BBC að glerþakið yfir
aðalleikvanginn í Aþenu yrði
tilbúið í byrjun júní.
Í upphaflegum áætlunum var
gert ráð fyrir að hið flókna
mannvirki yrði tilbúið nk. föstu-
dag en svo verður ekki. Fani
Palli-Petralia, talsmaður skipu-
leggjenda í Grikklandi, sagði í
gær að nú þegar væri búið að
ljúka við um 80% af framkvæmd-
unum við Ólympíuleikvanginn
sjálfan og IOC þyrfti ekki að hafa
áhyggjur af gangi mála við aðal-
leikvanginn.
Grikkir eru
enn í vanda