Morgunblaðið - 29.04.2004, Qupperneq 55
Hinn heimsfrægi flamenco-dansariJoaquín Cortés verður með sýn-ingu í Laugardalshöll í kvöld. Cort-és kemur ekki einsamall heldur er
34 manna teymi með honum. Þar af eru 14 tón-
listarmenn en afgangurinn samanstendur af
ýmiss konar tæknifólki og einnig þarf að sjá um
búningana og fleira. Hópurinn flaug hingað frá
Madríd í gegnum London og Cortés var bara
nýlentur þegar Morgunblaðið ræddi við hann.
Cortés þarf vart að kynna nánar en hann
hefur vakið heimsathygli fyrir danssýningar
sínar, sem þykja eftirminnilegar mjög. Einnig
hefur borið á honum í skemmtanalífinu þar
sem hann laðar til sín allar fegurstu konurnar.
Hann kemur alveg sérstaklega vel fyrir og er
almennilegur. Hann er klæddur á afslappaðan
hátt þótt fötin séu frá flottum hönnuðum. Bol-
urinn og gallabuxurnar eru frá D Squared og
við buxurnar notar hann skrautlegt belti frá
Marokkó. Á nefinu ber hann sólgleraugu Yves
Saint Laurent og á fótum eru upphá reimuð
Prada-stígvél sem hann ætlar að skipta út sem
fyrst fyrir eitthvað léttara. Hann segist hafa
búist við öllu verra veðri hér á landi og sól-
skinið kemur honum skemmtilega á óvart.
Cortés, sem ólst upp í Andalúsíu á Spáni,
hefur aldrei komið hingað áður en er ánægður
með þetta tækifæri. „Ég hef alltaf haft áhuga á
að kynnast þessu landi og er ánægður með að
vera loksins kominn hingað. Það er alltaf
spennandi að fara til nýs lands og ég hlakka
alltaf til. Ég ferðast mikið og það er frábært að
komast á stað eins og þennan sem ég ætti ekki
von á að komast til öðruvísi.“
– Hverju má fólk búast við í kvöld?
„Fólk má búast við því að þetta verði sönn
tónlist með sönnum dönsum og það er einkenn-
andi fyrir það sem ég geri. Ég dansa flamenco
og það er það sem ég er þekktastur fyrir. Engu
að síður er þetta mjög persónulegt og ég hef
þróað listformið áfram.“
– Er öðruvísi að koma fram fyrir áhorfendur
á norðlægum slóðum en suðlægum?
„Alls ekki. Ég ferðast mikið og alls staðar
eru áhorfendur og hjörtu mannanna eins,“ seg-
ir hann og bætir við að það gildi ekki þessi
kenning um að hjörtu mannanna séu kaldari á
sama hátt og loftslagið þegar norðar í heiminn
er komið.“
Hinn heimsþekkti hönnuður Giorgio Armani
hannar búningana fyrir Cortés í þessari sýn-
ingu og hefur gert svo lengi. „Ég hef átt mjög
gott samstarf við Giorgio Armani undanfarin
sjö til átta ár,“ segir Cortés.
Hann segir heildarmyndina í sýningunni
skipta miklu máli. „Ég legg mikla áherslu á
hina ólíku þætti í sýningunni; hvort sem það er
lýsing, búningar, dansinn eða tónlistin þá helst
þetta allt í hendur. Það er sérstök ánægja að
geta stofnað til sambands við mann á heims-
mælikvarða eins og Armani og geta unnið með
honum. Búningarnir eru ekki endilega það
mikilvægasta í sýningunni heldur þykir mér
mikilvægast að vinna með þeim bestu.“
– Stjórnar dansarinn tónlistinni eða tónlistin
dansinum í flamenco?
„Vissulega dansar dansarinn eftir tónlistinni
eins og í hefðbundnum dansi en hins vegar býð-
ur flamenco upp á mun meiri spuna og sköpun í
dansinum. Stundum verður til eitthvað á staðn-
um.“
– Er einhver einn staður í líkamanum um-
fram aðra sem er uppspretta dansins?
„Það er ekki hægt að benda á neinn einn
stað. Dansinn er í öllum líkamanum, hvort sem
það eru fæturnir, hendurnar eða hjartað. Þetta
er spurning um lífsstíl, þetta er allt ein heild.“
Það er í þessum sama anda sem hann nær til
fólksins þegar hann dansar á sviði. „Dansinn er
heildrænn og er lífssýn og lífsstíll. Ég tileinka
mér ákveðinn lífsstíl sem dansari. Á sviðinu
koma fram tilfinningar mínar og líf mitt end-
urspeglast oft í því sem ég geri. Ég hugsa um
líf mitt og æskuna og hvernig mér líður. Ég
reyni að túlka og tjá það sem ég hef upplifað.
Þannig kem ég fram sem ég sjálfur. Hvort sem
það er út frá listinni eða ekki, þá er ég að túlka
líf mitt,“ segir hann.
„Ég er búinn að vera að dansa stöðugt í 23 ár
og þetta er það sem ég hef gert. Allt sem ég hef
gert kemur fram í þessum dansi. Ég eldist og
þroskast og dansinn um leið,“ segir Cortés en
dansferillinn er langur miðað við að hann er
einungis 35 ára.
Enn er tækifæri til að sjá þennan frábæra
listamann á sviði í Laugardalshöllinni í kvöld.
Ósóttar pantanir og miðar í laus sæti verða til
sölu í Og Vodafone í Kringlunni í dag og frá
klukkan 16 í Höllinni. Húsið verður síðan opnað
klukkan 18 en sýningin hefst kl. 20. Fyrir þá
sem mæta snemma verður viðeigandi stemning
á staðnum, veitingar og tónlist í anddyrinu.
Joaquín Cortés með sýningu í Laugardalshöll í kvöld
Dansinn er í
öllum líkamanum
Hann hefur heillað marga upp úr skónum með tilfinn-
ingaríkum dansi sínum og ómótstæðilegu útliti. Inga
Rún Sigurðardóttir ræddi við Joaquín Cortés þegar
hann kom til landsins í gær en flamenco-stórsýning
hans verður í Laugardalshöllinni í kvöld.
Morgunblaðið/Brynjar Gauti
„Á sviðinu koma fram tilfinningar mínar
og líf mitt endurspeglast oft í því sem ég
geri. Ég hugsa um líf mitt og æskuna og
hvernig mér líður. Ég reyni að túlka og tjá
það sem ég hef upplifað,“ segir Joaquín
Cortés m.a. í viðtalinu.
ingarun@mbl.is
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 29. APRÍL 2004 55
Nýr og betriHverfisgötu 551 9000
www .regnboginn.is
Sýnd kl. 5.45, 8 og 10.15.
(Píslarsaga Krists)
HP. Kvikmyndir.com
Kvikmyndir.is
Skonrokk
Ein umtalaðasta og
aðsóknarmesta mynd
allra tíma
Til að tryggja réttan dóm
En það var einn sem sá við þeim...
Eftir metsölubók John Grisham
Með stórleikurunum John Cusack,
Gene Hackman, Dustin Hoffman
og Rachel Weisz
Sýnd kl. 5.30, 8 og 10.30.
Sýnd kl. 5.30, 8 og 10.30. B.i. 16.
Jimmy the Tulip er mættur aftur í
hættulega fyndinni grínmynd!
Kvikmyndir.is
Sýnd kl. 5.10, 8 og 10.50. B.i. 16.
Blóðbaðið nær hámarki.
HP
Kvikmyndir.com
„Gargandi snilld“
ÞÞ FBL
„Öllum líkindum besta
skemmtun ársins“
HL MBL
„Algjört Kill Brill“
ÓÖH DV
Skonrokk
SV MBL
www.laugarasbio.is
„Frábær skemmtun fyrir
alla fjölskylduna“
Þ.Þ. Fbl.
Sýnd kl. 6. Íslenskt tal.Sýnd kl. 8 og 10.10.
Jimmy the Tulip er mættur aftur í
hættulega fyndinni grínmynd!
Blóðbaðið nær hámarki.
Sýnd kl. 5.30, 8 og 10.30. B.i. 16
Sýnd kl. 6, 8 og 10.10.
„Gargandi snilld“
ÞÞ FBL
„Öllum líkindum besta
skemmtun ársins“
HL MBL
„Algjört Kill Brill“
ÓÖH DV
HP
Kvikmyndir.com
Skonrokk
800 7000 - siminn.is
Aðeins
hjá Símanum
Ef þú hefur VIT valmynd hefur þú aðgang
að öllu því sem skiptir máli um bíó.
Þetta er einfalt, þú ferð bara inn í VIT valmyndina,
velur þér flokka og færð sent SMS skeyti um hæl.
Ef þú hefur ekki valmyndina, þá sendir þú SMS:
vit kvik 1, á númerið 1848.
Flokkarnir eru:
Nýtt í bíó
Kvikmyndahús
Sýningartímar
Gagnrýni
Topplistar
Væntanlegtí símann
Fáðu sent
allt um
bíó
þinn
Hvert SMS skeyti kostar 19 kr.