Morgunblaðið - 29.04.2004, Page 56
56 FIMMTUDAGUR 29. APRÍL 2004 MORGUNBLAÐIÐ
ÁLFABAKKI
Sýnd kl. 3.50, 5.40, 8 og 10.20. B.i.12 ára
FORSÝNING
KRINGLAN
Forsýnd kl. 8 og 10.10. B.i. 16 ára.
FORSÝNING
Með L i ndsay Lohan úr Freaky Friday
Frábær gamanmynd um Dramadrottninguna
Lolu sem er tilbúin að gera ALLT til að hitta
„idolið“ sitt!
Sýnd kl. 8 og 10.05. B.i. 16. Sýnd kl. 5.45.
Enginn trúir því að hann muni lifa af þetta villta og
seiðandi ferðalag.
i tr ir í i lif f tt illt
i i f r l .
Viggo Mortensen í magnaðri ævintýramynd
byggð á sannri sögu!
„Stórkostlegt
kvikmyndaverk“
HL. MBL
SV. MBL
Sýnd kl. 6 og 10..
Kvikmyndir.is
F r u m s ý n d e f t i r 8 d a g a
„Frábærar
reiðsenur,
slagsmálatriði,
geggjaðir
búningar og
vel útfærðar
tæknibrellur“
Fréttablaðið
i ,
l l i i,
j i
i
l f
i ll
l i
Fyrsta stórmynd sumarssins
VG. DV
ÓHT Rás 2
Sýnd kl. 8.
Sýnd kl. 5.45, 8 og 10.15
Í SNERTINGU VIÐ TÓMIÐ
Sýnd kl. 5.30 og 8. B.i. 12 ára.
Það er óralangt síðan ég
sá jafn skelfilega grípandi
mynd. Án efa ein besta
myndin í bíó í dag.
KD, Fréttablaðið SKONROKK
HJ MBL
Valin besta breska myndin á
BAFTA verÐlaunahátíÐinni
„Þetta er
stórkostlegt
meistaraverk“
ÓÖH, DV
Í KVÖLD, á Gauki á Stöng, verður þess minnst að tíu ár
eru liðin frá því að Kurt Cobain, fyrrum leiðtogi Nirvana,
féll fyrir eigin hendi. Það gerðist 5. apríl 1994 og var hann
þá 27 ára gamall.
Tónleikarnir verða órafmagnaðir í anda plötunnar MTV
unplugged in New York sem út kom haustið 1994 en þeir
sem sjá um leik og söng verða Kristófer „Kristó“ Jensson
(söngur, úr Friskó – Jeff Buckley Tribute), Franz Gunn-
arsson (gítar, úr Ensími), Guðni Finnsson (bassi, úr
Ensími), Karl Henry (gítar, úr Tenderfoot) og Grímsi
(trommur, úr Tenderfoot).
Einnig verður gestasöngvari.
Á undan tónleikunum mun Arnar Eggert Thoroddsen
tónlistarblaðamaður gera grein fyrir lífi Cobains og list.
Franz Gunnarsson segir áhrif Cobain á tónlistarsöguna
ótvíræð.
„Ég er sjálfur fæddur 1975 þannig að ég var á besta
aldri þegar Nirvana-æðið brast á. Þar á undan höfðu þessi
„hár-bönd“ verið áberandi, leiðindi eins og Poison, Warr-
ant og Ratt. Cobain og félagar ruddust inn á sjónarsviðið
og sópuðu þessari senu út af borðinu í heilu lagi. Cobain
var að fjalla um tilfinningar, eymd og volæði sem snerti
taug hjá mörgum unglingnum; miklu frekar en málning og
glansbúningar hárbandanna.“
Gruggsenan tröllreið öllu frá u.þ.b. ’91 til ’95. Franz rifj-
ar upp hlæjandi að sumir tónlistaráhugamenn hafi gengið
svo langt að pakka saman dótinu sínu og flytja til Seattle,
höfuborgar gruggsins.
„Svo fékk maður leið á þessu undir rest enda var maður
búinn að innbyrða ofskammt af þessu. Ég fór svo að hlusta
aftur á Nirvana um ’99 og þá á In Utero (síðari breiðskífan
bandsins, sem út kom 1993). Þetta gerði ég vegna þess að
Steve Albini, upptökustjóri plötunnar, var að koma til
landsins til að vinna með okkur í Ensími. Þá rifjaðist það
upp fyrir mér hversu mikið snilldarband þetta var.“
Franz segir téða plötu vera uppáhaldsplötuna sína og
lagið „Heart Shaped Box“ af henni sé uppáhaldslagið sitt.
Ástæða þess að órafmagnaða leiðin er farin í kvöld er
m.a. sú að kveikjan að tónleikunum er tíu ára ártíð Cobain.
„Þetta verður rólegt þar sem við erum að minnast kapp-
ans og heiðra hann. Ég vil líka nefna það að þegar hlustað
er á Unplugged plötuna þá er auðheyranlegt að lögin
standa vel í berstrípuðum útgáfum og það finnst mér bera
góðum lagasmiðum gott vitni.“
Kurt Cobain væri nýbúinn að fagna 37 ára afmælinu
hefði hann lifað.
„Ákveðin frelsun“
Minningartónleikar um Kurt Cobain á Gauknum í kvöld
Húsið opnað klukkan 21.00 en tónleikarnir hefjast
klukkan 23. Aðgangseyrir er 500 krónur og aldurs-
takmark 20 ár.
Í eltingarleik við flygla
Eftir tónleikana í Grímsey verður
haldið til Hríseyjar og svo verða
tónleikar í Dalvíkurkirkju líka.
„Ég er að elta flyglana,“ segir
Jón og kímir. „Og þeir eru oft í
Guðshúsi. Þann sextánda maí fá svo
borgarbúar sitt en þá verð ég með
tónleika í Salnum, Kópavogi. Þá
verður líka lítil hljósmveit með mér.
Lagið „Sunnudagsmorgunn“ er
nú komið í spilun á Rás 2, lag sem
Jón lýsir sem afbragðs vorlagi.
„Þetta er pottþétt ryksugulag og
gott að taka til með því,“ segir
hann.
Angurvær útgáfa Jóns á laginu
„Flugvélar“, sem er að finna á af-
mælisplötu Nýdanskrar, Freist-
ingar (’02), vakti verðskuldaða at-
hygli á sínum tíma og hafði lúmsk
áhrif á sólóplötuna. Þar er Jón einn
HINN þjóðkunni tónlistarmaður
Jón Ólafsson mun gefa út fyrstu
sólóplötuna sína á þriðjudaginn. Út-
gáfutónleikarnir verða í Grímsey
sama kvöld en í kvöld mun Jón hins
vegar leika á Ísafirði, í tónlistar-
skólanum þar.
„Mér fannst tilvalið að halda út-
gáfutónleikana á svona exótískum
stað eins og Grímsey er,“ segir Jón.
„Auk þess hefur mig lengi langað
að heimsækja Grímsey og ákvað því
að slá tvær flugur í einu höggi.“
Fyrstu tónleikarnir verða hins
vegar í kvöld, á Ísafirði eins og áður
segir.
„Og þetta verða fyrstu tónleik-
arnir á ferli mínum sem eru undir
eigin nafni! Ég bíð með hjartað í
buxunum eftir því hvernig þetta
muni þróast. Þegar maður er í
hljómsveit þá peppa félagarnir hver
annan upp í kvíða og mótbyr en því
er ekki að heilsa núna. En ég sá í
hendi mér að ég yrði bara að láta
slag standa með þetta.“
Efnisskráin verður byggð upp til
hálfs á plötunni nýju en einnig
hyggst Jón sækja í gömul lög.
„Lög þá sem fólk veit jafnvel ekki
að ég hef samið,“ útskýrir Jón. „Og
svo eitthvað af þessum Nýdönsku
lögum sem ég var með puttana í.
Ætli ég verði ekki líka með ein-
hverjar sögur í kringum þetta líka.
Svo getur vel verið að allt breytist
er á líður.“
Með Jóni í för verður Stefán
Magnússon, Geirfugl með meiru.
„Hann kemur aðallega með af því
að ég nenni ekki að ferðast einn,“
segir Jón og hlær. „Það er bónus að
ferðafélaginn kann á hljóðfæri.
Stefán er einstakur hæfi-
leikamaður og mun hann spila á
kassabassa og -gítar með mér.“
við píanóið og breytir melódísku
stuðlagi í tregaskotna perlu.
„Vinsældir útgáfunnar komu mér
óvart,“ viðurkennir Jón. „En um
leið stöppuðu þær í mig stálinu og
hvöttu mig áfram í sólóplötupæling-
unum. Ég ákvað svo að vinna hana
með mönnum sem ég þekki gjörla.
Ég vil ríða á vaðið af öryggi og plat-
an er „ég“ í sem tærastri mynd. En
svo getur vel verið að annað verði
upp á teningnum næst.“
Platan er samnefnd Jóni og er
hann höfundur allra laga en þau
voru samin á síðustu tveimur árum
eða þar um bil.
Textana eiga Hallgrímur Helga-
son, Ólafur Haukur Símonarson og
Kristján Hreinsson, Steinn Steinarr
auk þess sem Jón sjálfur á einn
texta. Aðstoðarmenn Jóns á plöt-
unni eru Guðmundur Pétursson,
Stefán Hjörleifsson, Ólafur Hólm,
Jóhann Hjörleifsson, Haraldur Þor-
steinsson, Róbert Þórhallsson og
Friðrik Sturluson.
Útgáfutónleikar í Grímsey
Jón Ólafsson: „Pottþétt ryksugu-
lag,“ segir hann um lagið sitt
„Sunnudagsmorgun“, sem er nýfar-
ið í spilun í útvarpi.
Fyrsta sólóplata Jóns Ólafssonar kemur út 4. maí
www.jon.is
arnart@mbl.is