Morgunblaðið - 25.05.2004, Blaðsíða 2
FRÉTTIR
2 ÞRIÐJUDAGUR 25. MAÍ 2004 MORGUNBLAÐIÐ
FJÖLMIÐLALÖG Í GEGN
Frumvarp um eignarhald á fjöl-
miðlum var samþykkt á Alþingi í
gær. Nefnd sem vinnur að skýrslu
um hringamyndun og samþjöppun í
atvinnulífinu mun skila niðurstöðu í
september.
Ný ályktun hjá SÞ
Bandaríkjamenn lögðu í gær fram
drög að nýrri ályktun í öryggisráði
Sameinuðu þjóðanna um málefni
Íraks. Er þar kveðið á um að bráða-
birgðastjórn Íraka taki við völdum
30. júní en jafnframt gert ráð fyrir
að erlent herliðið verði áfram í Írak
frá valdaskiptunum í a.m.k. ár.
Íbúðaverð hækkar ört
Fasteignaverð hefur hækkað um
13,4% á síðustu tólf mánuðum og
tvöfaldast á undanförnum sjö árum.
Þá hefur vísitala neysluverðs hækk-
að um 30% á sama tíma en launa-
vísitala um 65%.
Friðargæsluliði féll
Norskur friðargæsluliði lét lífið og
annar særðist á sunnudagskvöld
þegar gerð var árás á bílalest við
Kabúl í Afganistan. Bílarnir voru á
fjölförnum vegi en árásarmennirnir
komust samt í sex kílómetra fjar-
lægð frá lestinni sem þykir með ólík-
indum vegna þess að mikil örygg-
isgæsla er á þessum slóðum.
Sprenging í Rúmeníu
Mikil sprenging varð í farmi flutn-
ingabíls í Rúmeníu í gær og létu 16
manns lífið. Bíllinn var hlaðinn um
20 tonnum af ammoníum-nítrat-
áburði en hryðjuverkamenn nota
efnið oft í sprengjur. Eldur kom upp
í bílnum og sprakk hann er slökkvi-
lið var komið á vettvang. Tíu metra
djúpur gígur myndaðist á staðnum.
Y f i r l i t
Í dag
Sigmund 8 Forystugrein 28
Úr verinu 11 Viðhorf 32
Viðskipti 12 Minningar 32/36
Erlent 14/16 Bréf 40
Minn staður 18 Dagbók 42/43
Höfuðborgin 19 Kirkjustarf 43
Akureyri 20 Staksteinar 42
Suðurnes 21 Íþróttir 44/47
Austurland 22 Kvikmyndir 48
Landið 22 Fólk 50/53
Daglegt líf 23 Bíó 50/53
Listir 24/25 Ljósvakar 54
Umræðan 26/27 Veður 55
* * *
Kynningar – Morgunblaðinu í dag
fylgir auglýsingablaðið Háskóli og
atvinnulíf.
Morgunblaðið Kringlunni 1, 103 Reykjavík. Sími 5691100 Innlendar fréttir frett@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson, aðstoðarfréttaritstjóri, aij@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, aðstoðarfréttaritstjóri, sisi@mbl.is Erlendar fréttir Ásgeir Sverrisson, fréttastjóri,
asv@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is Ólafur Stephensen, aðstoðarritstjóri, olafur@mbl.is Úr verinu Hjörtur Gíslason, fréttastjóri, hjgi@mbl.is Daglegt líf Guðbjörg Guðmundsdóttir, gudbjorg@mbl.is Listir menning@mbl.is Orri Páll Ormarsson, ritstjórnarfulltrúi,
orri@mbl.is Umræðan|Bréf til blaðsins Magnús Finnsson, fulltrúi ritstjóra, magnus@mbl.is Hallur Þorsteinsson, hallur@mbl.is Minningar minning@mbl.is Hilmar P. Þormóðsson, Stefán Ólafsson Dagbók|Kirkjustarf Ellý H. Gunnarsdóttir, elly@mbl.is Íþróttir
sport@mbl.is Sigmundur Ó. Steinarsson, fréttastjóri, sos@mbl.is Fólk í fréttum Skarphéðinn Guðmundsson, skarpi@mbl.is Útvarp|Sjónvarp Andrea Guðmundsdóttir, andrea@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is
DAVÍÐ Á. Gunnarsson,
ráðuneytisstjóri í heil-
brigðis- og trygginga-
málaráðuneytinu, var í
gærmorgun kosinn for-
maður framkvæmda-
stjórnar Alþjóðaheilbrigð-
ismálastofnunarinnar
(WHO). Davíð er fyrsti Ís-
lendingurinn sem gegnir
þessu starfi en fjórir ára-
tugir eru síðan Norður-
landabúi var síðast kosinn
til að sitja í forsæti fram-
kvæmdastjórnar stofnun-
arinnar. Framkvæmda-
stjórnin er skipuð 32
fulltrúum 192 aðildarríkja
WHO.
Sérfræðingar líta til Íslands
Í samtali við Morgunblaðið sagði
Davíð að kjörið væri viðurkenning
fyrir íslenska heilbrigðisþjónustu og
sýndi að litið væri til okkar á því sviði.
„Erlendir sérfræðingar sem þekkja
til heilbrigðismála á Íslandi eru mjög
hrifnir af þeirri heilbrigðisþjónustu
sem við höfum byggt upp,“ sagði Dav-
íð.
Aðspurður um
hvort kosningin hafi
persónulega þýðingu
fyrir sig sagði hann
það vissulega vera
gaman að hafa hlotið
kosningu í embættið
en kosning hans væri
hins vegar fyrst og
fremst viðurkenning
á því góða starfi sem
Ísland hefur unnið á
sviði heilbrigðismála
og þeim málflutningi
sem Íslendingar hafa
haft uppi í stjórninni.
Davíð tók sæti í
framkvæmdastjórn-
inni í fyrra og mun sitja í þrjú ár en
formaður framkvæmdastjórnarinnar
er kosinn til eins árs í senn. Davíð
segir að hann hafi frá því að hann tók
sæti í stjórninni fyrir hönd Íslands
einkum lagt áherslu á þrjú mál; mál-
efni kvenna og barna, heilbrigða lífs-
hætti og málefni fatlaðra.
Starf formanns hefur í för með sér
talsverða vinnu en að sögn Davíðs
þarf formaðurinn ekki að vera búsett-
ur í Genf og hann mun því gegna
stöðu ráðuneytisstjóra í heilbrigðis-
ráðuneytinu áfram. Alþjóðaheilbrigð-
isstofnunin hefur þó fjölmarga fast-
ráðna starfsmenn á sínum snærum.
Æðsti maður stofnunarinnar er for-
stjóri hennar en Kóreumaðurinn Lee
Jong-wook tók við því starfi í fyrra af
Gro Harlem Brundtland, fyrrverandi
forsætisráðherra Noregs.
Öflugt eftirlit og uppbygging
Að sögn Davíðs er starf Alþjóða-
heilbrigðisstofnunarinnar fjölþætt.
„Stofnunin starfar á vegum Samein-
uðu þjóðanna og er ein af stærstu
undirstofnunum samtakanna. Það
sem almenningur tekur mest eftir er
það eftirlit sem stofnunin sér um í
tengslum við hættulega smitsjúk-
dóma, á borð við HABL og fuglaflens-
una, og að koma í veg fyrir útbreiðslu
slíkra sjúkdóma.
Stofnunin beitir sér auðvitað einnig
á öðrum sviðum og rekur skrifstofur í
mörgum af fátækari löndum heimsins
sem aðstoða löndin við að koma sér
upp heilbrigðiskerfum og takast
þannig á við þá sjúkdóma sem eru
landlægir í mörgum þessara landa,“
sagði Davíð að lokum.
Davíð Á. Gunnarsson formaður framkvæmdastjórnar WHO
Davíð Á. Gunnarsson
Íslensk heilbrigðis-
þjónusta viðurkennd ÁRNI Bragason, forstöðumaður
náttúruverndarsviðs Umhverfis-
stofnunar, vísar á bug þeim um-
mælum Ögmundar Jónassonar
þingmanns í eldhúsdagsumræðum
Alþingis í gærkvöld, að land-
vörðum, sem í fyrrasumar hörm-
uðu Kárahnjúkavirkjun með því að
draga fána í hálfa stöng, hafi verið
neitað um vinnu í sumar vegna
þess. „Þarna var um að ræða
fimm sumarstarfsmenn. Tveir
þeirra fá störf á öðrum stöðum,
einn fær ekki starf en tveir sóttu
ekki um,“ segir Árni og bætir við
að breytingar hafi verið gerðar á
ráðningarferlinu. „Við höfum fært
val á starfsmönnum út í hérað til
þjóðgarðsvarða.“
Árni segir yfirlandvörð, sem var
einn af starfsmönnunum fimm,
hafa ítrekað óhlýðnast fyrir-
mælum sínum og m.a. skrifað
harðorða skýrslu um framkomu og
meintan umhverfissóðaskap
Ferðafélags Akureyrar (FFA),
sem á aðstöðu á svæðinu þar sem
landverðirnir starfa. „Það er dap-
urleg framkoma þegar fólk er með
dylgjum og leiðindum að reyna að
eyðileggja farsælt samstarf sem
við höfum átt með FFA í yfir
þrjátíu ár,“ segir Árni og lýsir um
leið furðu sinni yfir að Ögmundur
slái öðru eins fram án þess að
leita sér upplýsinga.
Valdhroki ferðafélags
Dagný Bergþóra Indriðadóttir
landvörður segir að gengið hafi
verið fram hjá sér í ár, þrátt fyrir
fjögurra sumra reynslu. „Til þess
að þurfa ekki að ráða mig var
meðal annars ráðið réttindalaust
fólk. Ég fór á fund með Árna
Bragasyni, þar sem ég spurði
hvort einhver óánægja væri með
mín störf. Hann fullvissaði mig um
að svo væri ekki og gat ekki gefið
neina útskýringu á því hvers
vegna ég fékk ekki vinnu,“ segir
Dagný og bætir við að Árni hafi
sagt sér að gert hafi verið sam-
komulag við FFA eftir síðasta
sumar um að ráða engan aftur
sem hefði starfað áður í Öskju og
Herðubreiðarlindum.
Dagný segir samskiptin við
FFA hafa einkennst af valdhroka.
„Mér er spurn hvaða tangarhald
FFA hefur á Umhverfisstofnun.
Af hverju ráða þeir hverjir eru
ráðnir hjá ríkisstofnun?“
Landverðir
deildu við
Ferðafélag
Akureyrar
LÖGREGLAN í Kópavogi
handtók mann um tvítugt rétt
fyrir kl. 6 í gærmorgun, eftir að
hann hafði brotist inn í söluturn
Atlantsolíu vestast á Kópa-
vogsbraut.
Innbrotsþjófurinn skarst
þegar hann braut rúðu til að
komast inn í verslunina, og
tókst lögreglu að rekja blóðslóð
mannsins frá vettvanginum til
að hafa uppi á honum.
Brotist var inn í verslunina
um kl. 4 um morguninn og ein-
hverju smávægilegu stolið, að
sögn lögreglunnar í Kópavogi.
Maðurinn játaði á sig innbrotið
við yfirheyrslur eftir að honum
var boðið að láta bera blóð sitt
saman við blóðið á vettvangi, og
var honum sleppt að því loknu.
Röktu
blóðslóð
þjófsins
TALIÐ er að um 300 manns hafi
komið saman við skrifstofu forseta
Íslands við Sóleyjargötu í Reykjavík
í gærkvöldi til að leggja áherslu á
kröfu um að Ólafur Ragnar Gríms-
son, forseti Íslands, staðfesti ekki
lög um fjölmiðla, sem samþykkt
voru á Alþingi í gær. Hans Kristján
Árnason, Ólafur Hannibalsson og
Örn Bárður Jónsson stóðu fyrir að-
gerðunum.
Að sögn Róberts Marshalls, for-
manns Blaðamannafélags Íslands,
höfðu í gærkvöldi 29.300 manns
skrifað undir samskonar áskorun í
undirskriftasöfnun sem Fjölmiðla-
sambandið hefur staðið fyrir að und-
anförnu bæði á Netinu og með hefð-
bundnum undirskriftalistum. Stefnt
er að því að afhenda forseta Íslands
tölvudiskling með undirskriftunum í
dag. Róbert segir að eins og í öðrum
undirskriftasöfnunum treysti menn
á heiðarleika manna, en tekur fram
að farið hafi verið yfir listana og
m.a. verið fjarlægðar rúmlega þús-
und undirskriftir fólks undir 18 ára
aldri sem ekki hafi kosningarétt.
Um 300 manns á mótmælafundi
Morgunblaðið/Júlíus
Mótmæli fyrir utan Staðastað, skrifstofu forseta Íslands. Samkvæmt upplýsingum lögreglu er talið að um 300
manns hafi verið á staðnum til að leggja áherslu á þá kröfu að forsetinn undirriti ekki lög um fjölmiðla.