Morgunblaðið - 25.05.2004, Page 32

Morgunblaðið - 25.05.2004, Page 32
MINNINGAR 32 ÞRIÐJUDAGUR 25. MAÍ 2004 MORGUNBLAÐIÐ Í samfélagi nútímans virð- ist stundum sem enginn nenni að lyfta litla fingri án þess að fá eitthvað fyr- ir sinn snúð. „Hvað fæ ég borgað?“ virðist oft vera við- kvæðið hjá fólki, jafnvel þegar það leitar sjálft eftir að taka þátt í starfi af ýmsum toga. Einmitt af þessum sökum var það svo skemmtileg upplifun að sitja þing Bandalags íslenskra leikfélaga sem fram fór í Svarf- aðardal um helgina. Þarna var samankomið áhugafólk alls staðar að af landinu sem hefur brenn- andi áhuga á leiklist og starfar að þessu áhuga- máli sínu án þess að fá neina borgun fyrir – aðra en ánægjuna af því að sjá verkið, sem unnið hefur verið, lifna á sviðinu, heyra viðbrögð áheyrenda og njóta félagsskapar við hitt fólkið í leikfélaginu. Aðild að Bandalagi íslenskra leikfélaga eiga 66 leikfélög sem starfa um allt land og eru fé- lagarnir um 4.500 talsins. Sum leikfélaganna eru starfrækt á svæðum þar sem íbúarnir eru ekki ýkja margir og er ótrúlegt að hugsa til þess hversu öflugt starf þessara félaga er miðað við íbúa- fjöldann. Áhugaleikfélög eru t.d. starfrækt á Suðureyri, Þórshöfn, í Búðardal, á Fáskrúðsfirði og Tálknafirði. Gott dæmi um hversu öflugt starfið getur verið á lands- byggðinni er Leikfélag Hörg- dæla, þar var leikritið Klerkar í klípu sett upp í vetur. Nú veit ég ekki hversu margir búa í Hörg- árdal en ég geri ráð fyrir að nokk- uð hátt hlutfall íbúa þar hafi kom- ið að sýningunni, því alls tók hátt á þriðja tug þátt í henni. Það má segja að vagga áhuga- leiklistarinnar sé á landsbyggð- inni þar sem færri afþreying- armöguleikar eru í boði en í höfuðborginni. Ef fólk vill fara í leikhús er víða eina leiðin fyrir íbúana að búa til leikhús sjálfir. Þeir sem flust hafa á mölina hafa síðan viljað halda áfram að daðra við leiklistargyðjuna og stofnað leikfélög á höfuðborgarsvæðinu, þannig er Leikfélagið Hugleikur, sem ég er félagi í, einmitt tilkomið en það varð 20 ára á dögunum. Áhugaleiklistin hefur skotið rót- um um allt land og dafnar sem aldrei fyrr, víða starfa leikfélögin á gömlum grunni, þau elstu eru orðin yfir aldargömul. Talað er um áhugaleikhús og atvinnuleikhús til að greina á milli hverjir hafa atvinnu af leiklistinni og hverjir sinna henni af áhug- anum einum saman. Yfirleitt eru atvinnumennirnir einnig mennt- aðir í faginu, þótt einstaka und- antekning finnist á því og hafa sumir sem starfa innan áhugaleik- hússins menntað sig í faginu þótt þeir hafi leiklistina ekki að ævi- starfi. Þá hefur Bandalag íslenskra leikfélaga starfrækt leiklist- arskóla að Húsabakka í Svarf- aðardal í átta ár þar sem áhuga- samir geta farið á sumarnámskeið í ýmsu sem tengist leiklistinni, eins og leik, leikstjórn og leik- ritun. Í áhugaleikfélögum eru nefnilega ekki bara leikarar held- ur þarf einnig fólk í að stýra ljós- um, smíða leikmynd, sauma bún- inga, farða leikara, selja aðgöngumiða, kynna leikritið og svo framvegis. Og enginn fær neina borgun fyrir nema þegar leikfélög fá til sín utanaðkomandi leikstjóra, en það hefur reyndar færst í aukana að leikfélögin leik- stýri verkum sínum sjálf, einmitt í kjölfar námskeiða í leikstjórn sem haldin hafa verið að Húsabakka. Mér hefur alltaf fundist svolítið neikvæður blær yfir hinu annars fallega orði „amatör“ sem á er- lendum tungumálum er notað um áhugamenn. Orðið amatör kemur úr latínu og stendur einfaldlega fyrir „sá sem elskar“. Þegar orðið amatör er notað á íslensku hefur fólk gjarnan þá tilfinningu að sá hinn sami hljóti að vera fúskari og því geti ekkert gott frá honum komið. En það er einfaldlega ekki rétt. Mín sterkasta upplifun úr leik- húsi er einmitt af sýningu þar sem „tómir amatörar“ voru á ferðinni. Þau tóku sem sagt enga borgun fyrir það sem þau voru að gera, en léku af svo mikilli innlifun og virð- ingu fyrir listinni að unun var að horfa á. Þetta var rússneski hóp- urinn Studia Teatra Mannequin sem kemur frá iðnaðarborginni Chelyabinsk í Rússlandi. Ég sá sýningu þeirra á leiklistarhátíð áhugaleikfélaga í norðanverðri Evrópu í Svíþjóð fyrir tveimur ár- um þar sem Leikfélag Kópavogs var á ferðinni með sýningu á Grimms-ævintýrum sem hafði vakið mikla athygli og hefur síðan þá verið sett upp víðar. Í grein sem ég skrifaði í Lesbók Morgunblaðsins um þessa hátíð eftir að heim var komið sagði ég að það væri óskandi að einhver sæi sér fært að bjóða þessum hópi hingað til lands, svo að sem flestir fengju að berja þessa einstöku listamenn augum. Ég gladdist því mikið þegar ég heyrði í umræðum á þinginu sem vísað var til í upp- hafi að búið er að bjóða þessum hóp að sækja Ísland heim á næsta ári en þá mun áhugaleikhúshreyf- ingin í landinu standa fyrir al- þjóðlegri leiklistarhátíð. Fólk þarf þó ekki að bíða þar til á næsta ári hafi það áhuga á að kynna sér hvað áhugaleikarar eru að bauka. Þjóðleikhúsið hefur síð- ustu ár valið athyglisverðustu áhugaleikhússýningu ársins og boðið viðkomandi leikfélagi að sýna á stóra sviðinu. Sýningin sem varð fyrir valinu í ár og verð- ur sýnd 6. júní er leikritið Lands- mótið sem Umf. Efling setti á svið í Reykjadal síðastliðinn vetur. Þá bauð Borgarleikhúsið áhugaleikhúshreyfingunni húsa- kynni sín síðasta haust þar sem blásið var til einþáttungahátíðar og hefur leikhúsið tilkynnt að boð- ið standi næsta haust. Því ættu að gefast næg tækifæri til að kynn- ast því hvað áhugaleikhúsið hefur að bjóða á næstu misserum. Af einskær- um áhuga Það má segja að vagga áhugaleiklist- arinnar sé á landsbyggðinni þar sem færri afþreyingarmöguleikar eru í boði en í höfuðborginni. Ef fólk vill fara í leikhús er víða eina leiðin fyrir íbúana að búa til leikhús sjálfir. VIÐHORF Eftir Nínu Björk Jónsdóttur nina@mbl.is Í dag hefði Snjólaug Stefánsdóttir, vinkona mín og fyrrum mág- kona, orðið fimmtíu og þriggja ára ef harðskeyttur sjúkdómur hefði ekki lagt hana að velli. Minningabrot rúmlega þrjátíu ára vináttu streyma fram eins og ljósmyndir: Snjólaug aðeins nítján ára gömul hugsjónakona. Óvenju fullorðinsleg með þroskaðar skoðanir sem hún á SNJÓLAUG STEFÁNSDÓTTIR ✝ Snjólaug GuðrúnStefánsdóttir, Fagrahvammi 2b í Hafnarfirði, fæddist í Reykjavík 25. maí 1951. Hún lést á líkn- ardeild Landspítal- ans í Kópavogi 21. apríl síðastliðinn og var útför hennar gerð frá Hafnar- fjarðarkirkju 27. apríl. auðvelt með að rök- styðja. Rétt komin af unglingsaldri sjálf en ber þegar fyrir brjósti velferð ungs fólks sem lent hefur í erfiðleikum. Það er auðvelt að dást að þessari ungu, fallegu og hvatvísu konu sem lætur hvorki þá sem eldri eru né neina aðra segja sér fyrir verkum. Hún er opin og hefur hjartað á réttum stað. Þess vegna er auðvelt að kynnast henni, verða vinur hennar og leita til hennar með hugðarefni sín. Hún er aldrei spör á tíma né góð ráð. Á næstu mynd er Snjólaug nokkr- um árum eldri í djúpum samræðum við ungan frænda sinn, Fróða. Þau eru væntanlega að rökræða um lífið, tilveruna og ungt fólk sem þau bæði þekkja. Erfiðleika þess eða sæta sigra. Fróða finnst óskaplega gaman að tala við frænku sína, hún er svo ung í anda og talar við hann sem jafningja. Þessi vinátta þeirra hefur mikil og þroskandi áhrif á hann. Þriðja myndin er af Snjólaugu með ljúflingnum og skákmeistaran- um Dan Gunnari, sem hún varð ást- fangin af á námsárunum í Svíþjóð. Á myndinni eru líka Brynja og Líney, dæturnar sem þau Danni ferðuðust um hálfan hnöttinn til að geta eign- ast og eru stolt fjölskyldunnar. Fjórða myndin er líka ógleyman- leg. Árlegt jólaboð hjá Margréti, móður Snjólaugar. Margt um mann- inn og stjórnmál líðandi stundar efst á baugi. Snjólaug fremst í flokki kvenna og lætur ekki kveða sig í kút- inn frekar en fyrri daginn. Hún notar líka tækifærið til að mennta bræður sína og aðra gesti um réttindamál unglinga, kvenna og útlendinga á Ís- landi. Fimmta og síðasta myndin er ljós- lifandi, enda nýjust og reyndar sú síðasta. Það er miður janúar og nokkrar konur úr tveim fjölskyldum eiga óvenjulega kvöldstund saman. Snjólaug hefur barist við krabba- mein í rúm tvö ár, en það er hvergi ✝ Stefán Sigurðs-son kennari fæddist á Reyðará í Lóni í Austur- Skaftafellssýslu 14. mars 1901. Hann lést á hjúkrunarheim- ilinu Ljósheimum á Selfossi 20. maí síð- astliðinn. Foreldrar hans voru Sigurður Jónsson, f. 6.6. 1868, d. 1.3. 1917, bóndi á Reyðará í Lóni, og k.h. Jórunn Anna Lúðvíksdóttir Schou (Anna Hlöðversdótt- ir), f. 29.9. 1876, d. 14.4. 1953, hús- móðir og kennari. Bræður Stefáns eru: Geir, bóndi á Reyðará, Ás- mundur, kennari, alþingismaður og bankastarfsmaður, Hlöðver, skólastjóri á Siglufirði, Þórhallur, trésmiður, og Hróðmar kennari, síðast í Hveragerði. Stefán kvæntist 25.6. 1940 Vil- borgu Ingimarsdóttur frá Efri- Reykjum í Biskupstungum, f. 22.11. 1902, d. 22.8. 1974, kennara nám í Kiel í Þýskalandi vorið 1929. Stefán var skólastjóri heimavist- arskóla í Reykholti í Biskupstung- um 1929–1946 og kennari við Melaskólann í Reykjavík 1946– 1968. Stefán var formaður Ung- mennafélags Biskupstungna í nokkur ár og heiðursfélagi þess frá 1968. Hann var formaður Sjúkrasamlags Biskupstungna frá stofnun, 1941–46. Hann sat í stjórn Kennarafélags Árnessýslu í nokk- ur ár, í stjórn Byggingafélags barnakennara um árabil frá 1951. Hann sat í stjórn Esperantista- félagsins Auroro í Reykjavík um skeið, tók þátt í fimmtán alþjóða- þingum Esperantosambandsins og var heiðursfélagi Íslenska esper- antosambandsins. Stefán fékkst töluvert við þýð- ingar og má þar m.a. nefna sautján bækur eftir norska höf- undinn Anne-Cath. Vestly, en auk þess þýddi hann nokkuð úr esper- anto á íslensku og úr íslensku á esperanto. Íslensk ljóð sem hann þýddi úr esperanto voru gefin út í sambandi við níræðisafmæli hans. Auk þess samdi hann fjölda söng- laga við ljóð eftir ýmsa höfunda. Útför Stefáns verður gerð frá Hveragerðiskirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 13.30. á Húsavík. Dætur Stefáns og Vilborgar eru Þóra Ingibjörg, f. 12.6. 1941, píanókenn- ari og félagsráðgjafi, búsett í Svíþjóð, og Anna Jórunn Stefáns- dóttir, f. 21.12. 1942, tónmenntakennari og talmeinafræðingur, búsett í Hveragerði, gift Þórhalli Hróð- marssyni, kennara. Þeirra börn eru: 1) Stefán Ingimar, f. 30.4. 1974, kennari og tónlistarmaður, bú- settur á Selfossi, kvæntur Kristínu Örnu Hauksdóttur, íslenskufræð- ingi. Þeirra sonur er Pétur Nói, f. 1.7. 2003. 2) Vilborg Una, f. 17.9. 1976, röntgentæknir og geislunar- fræðingur, búsett í Boston, gift Matthew Vilglas, trésmið. Stefán tók kennarapróf 1923 og var síðan farkennari í átthögum sínum í fimm vetur. Hann stundaði nám í Gymnastikhöjskolen í Ollerup í Danmörku og dvaldi við Látinn er í hárri elli Stefán Sig- urðsson, afabróðir okkar, og með andláti hans er lokið langri og far- sælli ævi merkismanns. Hann fæddist á Reyðará í Lóni í A-Skaftafellssýslu, næstelstur sex sona þeirra hjóna Sigurðar Jóns- sonar bónda þar og konu hans Jór- unnar Önnu Hlöðversdóttur. Anna móðir hans var kennari um áratuga skeið, meðal annars í Lóni í Suð- ursveit og Álftafirði. Eins og vant var um unga drengi á þessum árum lærði Stefán fljótt að taka til hend- inni og vinna þau margbreytilegu störf sem til féllu í sveitinni. Eftir að hafa tekið að sér kennslu í Lóni í nokkur ár flutti Stefán til Reykja- víkur og hóf nám við Kennaraskól- ann og lauk þaðan kennaraprófi 1923. Hann stundaði einnig nám við Gymnastik-Höjskolen í Ollerup á Fjóni og fór í námsdvöl til Þýska- lands 1929. Það sama ár var Stefán ráðinn skólastjóri í Reykholti í Biskupstungum og gegndi því starfi til ársins 1946. Á þessum ár- um stjórnaðist félagsstarf mikið til frá skólanum og skólastjórinn varð oft miðdepill alls félagslífs í sveit- inni. Stefán gerðist formaður ung- mennafélags Biskupstungna og var gerður að heiðursfélaga þess árið 1968. Hann kvæntist konu sinni Vilborgu Ingimarsdóttur kennara árið 1940 og eignuðust þau tvær dætur, þær: Þóru Ingibjörgu, tón- listarkennara og félagsráðgjafa, og Önnu Jórunni, sérkennslufulltrúa. Eftir að þau hjón fluttust til Reykjavíkur gerðist Stefán kennari við Melaskólann í Reykjavík og kenndi þar til starfsloka 1966. Við bræður kynntumst Stefáni fyrst veturinn 1975–76. Stefán var þá orðinn ekkill og bjó einn í þriggja herbergja íbúð í Vestur- brún 14 í Reykjavík. Við bræður vorum þá á fyrsta og öðru ári í Menntaskólanum við Sund og þurftum á húsnæði að halda. Okkur mætti tiltölulega hár maður og grannur, hægur og vinalegur í fasi og traustur. Næstu tíu árin skipt- umst við bræður á að dvelja hjá Stefáni bæði vetur og sumur. Þetta var okkur báðum lærdómsríkur tími. Stefán var mikill áhuga- og kunnáttumaður um íslenska tungu og móðurmálið honum kært hugð- arefni. Hann var á allan hátt mjög nákvæmur hvað varðar íslenska tungu og um það bera þýðingar hans á bókum Anne-Cath Vestly glöggt vitni, sem og hinar ýmsu smásögur sem Stefán þýddi úr esperantó yfir á íslensku og hafa margar þeirra verið birtar í blöð- um. Tónlistin skipaði stóran sess í lífi Stefáns. Hann átti bæði píanó og orgel sem prýddu stofuna hans á Vesturbrúninni og á þessi hljóðfæri spilaði hann sjálfur íslensk alþýðu- lög. Og hann söng með. Svo mikil voru áhrif hans á okkur bræður að hann fékk okkur til að standa við hlið sér og taka lagið við undirleik hans. Mörg af þessum lögum voru okkur ókunnug og tók það því ákveðinn tíma áður en tónarnir hjá okkur fylgdu laglínunni. En Stefán hafði mikla þolinmæði með okkur og nutum við þessara samveru- stunda. Hann var hins vegar ekki hrifinn af tónlistarsmekk okkar. Stefán var snillingur við að binda inn bækur og taldi ekki eftir sér að kenna okkur bræðrum það einnig. Hann átti gríðarlegt safn bóka og naut þess að auðga anda sinn við lestur þeirra. Hann aflaði sér það víðfeðmrar þekkingar að ekki voru margir honum fremri. Hann ferð- aðist og vítt um heim, til landa sem mörgum Íslendingum eru enn þann dag í dag alveg ókunn. Stefáni var ævinlega umhugað um heilsurækt og hollustuhætti. Öll þau ár sem við dvöldum hjá honum sótti hann Laugardalslaugina og synti sína 200 m á hverjum degi og eftir að hann flutti til Önnu dóttur sinnar og tengdasonar í Hvera- gerði hélt hann uppteknum hætti kominn hátt á tíræðisaldurinn. Öll þau ár sem við dvöldum hjá Stefáni vorum við einnig hjá honum í fæði. Okkur er ennþá minnisstæð- ur allur hinn ágæti íslenski matur sem hann framreiddi sjálfur, og þá sérstaklega heimabökuðu brauðin hans góðu; flatbrauð og rúgbrauð, eða þá kæfan sem hann bjó til. Við lærðum virkilega að meta staðgóð- an og hollan íslenskan mat, eins og lifrarpylsu og blóðmör, kjötsúpu, lúðu og lúðusúpu og ýmislegt fleira. Það fór ekki framhjá okkur bræðrum að Stefán var við góða heilsu, þótt aldurinn væri farinn að færast yfir hann. Við urðum þess oft áskynja og við ólíkar kringum- stæður. Eitt af því sem við gerðum okkur til skemmtunar var að fara í bíó, öðru hverju. Eins og oft vill verða urðum við stundum seinir fyrir, meðal annars vegna þess að ákvörðunin um bíóferð var tekin STEFÁN SIGURÐSSON

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.