Morgunblaðið - 25.05.2004, Blaðsíða 48
FÓLK Í FRÉTTUM
48 ÞRIÐJUDAGUR 25. MAÍ 2004 MORGUNBLAÐIÐ
MIÐASALAN er opin á fame.is,
á þjónustuborði Smáralindar
og í síma 528 8008
Viðskiptavinir
Og Vodafone fá
20% afslátt á fyrstu
8 sýningarnar
Fim. 24. júní FRUMSÝNING kl. 19.30 - UPPSELT
Fös. 25. júní Sýning nr. 2 kl. 19.30 - UPPSELT
Mið. 30. júní Sýning nr. 3 kl. 19.30
Fim. 1. júlí Sýning nr. 4 kl. 19.30
Fös. 2. júlí Sýning nr. 5 kl. 19.30
Sun. 4. júlí Sýning nr. 6 kl. 17.00
Lau. 10. júlí Sýning nr. 7 kl. 16.30
Lau. 10. júlí Sýning nr. 8 kl. 19.30
JÓNSI
SVEPPI
Stóra svið Nýja svið og Litla svið
DON KÍKÓTI eftir Miguel de Cervantes
3. sýn fi 27/5 kl 20 - rauð kort
4. sýn fi 3/6 kl 20 - græn kort
5. sýn su 6/6 kl 20 - blá kort
Su 13/6 kl 20
CHICAGO eftir J. Kander, F. Ebb og B. Fosse
Fö 28/5 kl 20 - UPPSELT
Lau 29/5 kl 20,
Fö 4/6 kl 20,
Lau 5/6 kl 20,
Lau 12/6 kl 20,
Lau 19/6 kl 20
SÍÐUSTU SÝNINGAR
Ósóttar pantanir seldar daglega
DANSLEIKHÚSIÐ - 4 NÝ VERK
e. Irmu Gunnarsdóttur, Peter Anderson,
Maríu Gísladóttur og Jóhann Björgvinsson
Í kvöld kl 20
Miðasala: 568 8000
Nýr opnunartími: Mánudaga og þriðjudaga: 10:00 - 18:00
miðviku-, fimmtu- og föstudaga: 10:00 - 20:00
laugardaga og sunnudaga: 12:00 - 20:00
www.borgarleikhus.is midasala@borgarleikhus.is
NÝTT: Miðasala á netinu
www.borgarleikhus.is
BELGÍSKA KONGÓ eftir Braga Ólafsson
Su 6/6 kl 20, Su 13/6 kl 20
SEKT ER KENND e. Þorvald Þorsteinsson
Fi 3/6 kl 20,
Síðasta sýning
RÓMEÓ OG JÚLÍA e. Shakespeare
í samstarfi við VESTURPORT
Mi 26/5 kl 20
Fi 27/5 kl 20 - UPPSELT
Fö 28/5 kl 20 - UPPSELT
Mi 2/6 kl 20, Fi 3/5 kl 20, Fö 4/6 kl 20
THIS IS NOT MY BODY
Norræn gestaleiksýning
Lau 29/5 kl 20 - kr. 1.900
PÓLSTJÖRNUR - TÓNLEIKAR/TROMMUDANS
Grænland - Belgía - Ísland
Fi 27/5 kl 21 - kr 2.500
HUGSTOLINN - KAMMERÓPERA
Marta Hrafnsdóttir, Sigurður Halldórsson,
Daníel Þorsteinsson
Fö 28/5 kl 20 - kr 2.500
BRODSKY KVARTETTINN
Sjón, Ásgerður Júníusdóttir, Skólakór Kársness
Lau 29/5 kl 16 - Miðasala Listahátíðar
TANZ THEATER HEUTE - LJÓSMYNDASÝNING
í samvinnu við Goethe Zentrum - Í FORSAL
Á LISTAHÁTÍÐ:
UM hríð hafa þeir félagar í kvart-
ettnum Hljóð í skrokkinn kafað
djúpt í gamla söngdansa sem verið
hafa á efnisskrá djassleikara lung-
ann úr síðustu öld. Þeir héldu fyrir
skemmstu tónleika í Þorlákshöfn við
góðar undirtektir og nú var röðin
komin að Reykjavík. Þess má minn-
ast að fyrstu djasstónleikar í Þor-
lákshöfn voru haldnir fyrir um það
bil áratug er tríó sænska barýton-
saxófónleikarans Peter Gullins lék á
Duggunni. Það voru glettilega góðir
tónleikar og mikið leikið af söng-
dönsum. Peter kom hér í tvígang og
lék víða á Íslandi. Hann var sonur
eins mesta snillings Evrópudjassins,
Lars Gullins, og lést í fyrra aðeins 44
ára gamall eftir erfið veikindi.
Það var við hæfi hjá Ólafi og fé-
lögum að tileinka þessa tónleika
minningu Þorsteins Eiríkssonar
trommuleikara, sem lést 5. maí og
verður jarðsunginn í dag. Hann var
einn af helstu trommurum svingtím-
ans á Íslandi og lék mörg þessara
laga sem eru á efnisskrá kvartettsins
á Borginni á árum áður með Jan
Moravek og fleirum, en djassinn var
honum alla tíð ástríða. Það var held-
ur ekki ónýtt fyrir íslenskan tromm-
ara að fá viðurnefnið Krupa – en
Gene Krupa var dáðasti trommari
djassins er hann lék með Benny
Goodman og lengi eftir það. Ýmsar
djasshljóðritanir með Þorsteini frá
fyrri tíð hafa varðveist m.a. með
hljómsveit Árna Ísleifs og á elstu
tríóupptöku Guðmundar Ingólfsson-
ar sem varðveist hefur slær Steini
trommurnar, en á bassann er Frið-
rik Theodórsson.
Hin síðari ár var Steini áberandi í
djasslífinu og lék þá mest með kvart-
etti Ómars Axelssonar og oft með
Ólafi Stolzenwald. Meira að segja er
til upptaka hjá Ríkisútvarpinu þar-
sem Óskar Guðjónsson, þá kornung-
ur, blæs söngdansa með Steina,
Stolzenwald og Jóhanni Kristinssyni
píanista.
Það voru ellefu söngdansar á efn-
isskrá kvartettsins á Borginni og
margir hverjir perlur sem alltof
sjaldan heyrast. Það var ekki ónýtt
að hlusta á „Prisoners of love“ í frá-
bærri túlkun Óskars. Þetta lag er
m.a. til á plötum með Lester Young
og Teddy Wilson og Coleman Hawk-
ins og Ben Websters. Óskari hefur
tekist að skapa sér mjög persónu-
legan stíl ofinn úr mörgum þráðum
og þarna var hann mun nær Hawk-
ins en Lester. Það var helst í laglínu-
blæstrinum í Billie Holliday söngv-
unum sem lesterisminn skaut upp
kollinum: „I wished on the moon“,
„I’ll never be the same“ og „She’s
funny that way“. Svo blæs Óskar
alltaf einn ópus í karnívalstíl Rollins
þegar hann er í sveifluhamnum. Að
þessu sinni„Just you, just me“ með
með stakkatói og öllum herlegheit-
unum. Ómar Guðjónsson er ótrúlega
næmur á djassklassíkina og sólóar
hans melódískir og vel uppbyggðir.
Tónninn dálítið hvellur einsog hjá
fyrstu boppurunum og hann sönglar
gjarnan með þótt lítt heyrist. Ólafur
átti nokkra góða sólóa, ljóðfagra, og í
„Three little words“ var göngubass-
inn allsráðandi. Qvick notaði bursta
mikið þetta kvöld, en í „I found a new
baby“, sem var elsta lagið á efnis-
skránni, samið af Spencer Williams
1921, lék hann langan sóló með kjuð-
um í anda Steina Krúpu. Þetta var
glæsilega gert hjá Erik og hefði
Steini haft gaman af að heyra þá
pilta glíma við gömlu söngdansana af
þeirri virðingu sem hann sýndi þeim
ætíð sjálfur.
Megi Hljóð í skrokkinn halda
áfram á sömu braut því þótt á stund-
um hafi samleikurinn verið eilítið
sundurlaus voru þau augnablik fleiri
þar sem allt small saman.
Tónlist
Í minningu Steina Krúpu
Djass
Múlinn á Hótel Borg
Hljóð í skrokkinn
Óskar Guðjónsson tenórsaxófón, Ómar
Guðjónsson gítar, Ólafur Stolzenwald
bassa og Erik Qvick trommur.
Sunnudagskvöldið 16.5. 2004.
Vernharður Linnet
ÖNNUR myndin um hið góðlátlega
græna tröll Skrekk (Shrek 2) fékk
gríðarlega góða aðsókn um helgina
í bandarískum kvikmyndahúsum.
Myndin sló jafnframt aðsóknarmet
hvað teiknimyndir varðar en hún
halaði inn 104,3 milljónum dala, eða
rúma 7,6 milljarða króna, yfir
frumsýningarhelgina. Fyrra metið
átti Leitin að Nemo með 70,6 millj-
ónir dala, eða um fimm milljarða
króna, í nóvember 2001. Tekjur
myndarinnar eru jafnframt aðrar
mestu helgartekjur af einni kvik-
mynd í sögunni. Aðeins Köngulóar-
maðurinn hefur fengið meiri að-
sókn en tekjur á fyrstu sýningar-
helgi þeirrar myndar námu 114,8
milljónum dala. Skrekkur 2, sem
sýnd var í metfjölda kvikmynda-
húsa eða 4163, sló einnig met hvað
varðar mesta aðsókn á einum degi
en á laugardeginum komu 44,8
milljónir dala í kassann. Þá hefur
engin mynd farið betur af stað á
þessu ári, þar með talin Píslarsaga
Krists.
Kvikmyndin Trója, sem skartar
Brad Pitt í aðalhlutverki, féll niður
í annað sætið og námu tekjur af
sýningu myndarinnar 23,8 millj-
ónum dala. Hin ófrýnilegu skrímsli
í Van Helsing urðu einnig að víkja
fyrir Skrekk og féll myndin niður í
þriðja sæti listans.
Skrekkur 2 fjallar um heimsókn
Skrekks og brúður hans, prinsess-
unnar Fíónu, til foreldra hennar í
konungsríkinu Langt í burtu. Með
þeim í för er hinn eftirminnilegi
Asni.
Skrekkur setti met á met ofan
Framhaldsmyndin um Skrekk hlaut frábærar viðtökur kvikmyndahúsagesta í Bandaríkjunum.
!
"#
$
%
&'
'(
'
)'*
'+
'(
'+
'
'
'
+'
(+'(
'
)&',
)*'
*'
+
'
'+
)
',
'*
FASTEIGNIR mbl.is