Morgunblaðið - 25.05.2004, Blaðsíða 25

Morgunblaðið - 25.05.2004, Blaðsíða 25
LISTIR MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 25. MAÍ 2004 25 Sjálfstæ›isflokkurinn fagnar 75 ára afmæli í dag, flri›judaginn 25. maí. Af flví tilefni ver›ur efnt til afmælisveislu á Hótel Nordica, Su›urlandsbraut 2, Reykjavík, kl. 17-19 í dag flar sem sjálfstæ›ismenn munu gle›jast saman. Dagskrá hefst kl. 17.30. • Óperusöngvararnir Sigrún Hjálmt‡sdóttir og Bergflór Pálsson syngja vi› undirleik Jónasar Ingimundarsonar. • Forma›ur Sjálfstæ›isflokksins, Daví› Oddsson, forsætisrá›herra, flytur ávarp. • Veitingar í bo›i. Afmælisdagskráin ver›ur send út beint á heimasí›u Sjálfstæ›isflokksins, www.xd.is. Útsendingin hefst kl. 17.30. Allir velkomnir. Sjálfstæ›isflokkurinn Háaleitisbraut 1 105 Reykjavík sími 515 1700 www.xd.is Afmælisveisla fiér er bo›i›! Listasafn Íslands kl. 12.10– 12.40 Hádegisleiðsögn um sýn- inguna Í nærmynd/Close-up. Á sýningunni eru verk eftir alla helstu samtímalistamenn Banda- ríkjanna. Listamennirnir eru að fjalla um þann margvíslega veru- leika sem maðurinn lifir í og neytir. Norræna húsið kl. 20 Magdalena Olga Dubik, fiðla, Júlía Trausta- dóttir, fiðla, Mark Reedman, selló og Catherine María Stankiewicz, selló flytja Kvartett í d-moll, D-810, Dauðinn og stúlkan í fjórum þátt- um eftir Franz Schubert. Tónleik- arnir eru á vegum Tónlistarskólans í Reykjavík. Kaffi Reykjavík kl. 21 Skálda- spírukvöldin, sem Benedikt S. Lafleur og Gunnar Randversson skipuleggja, verða eftirleiðis á Kaffi Reykjavík. Í kvöld er 10. Skáldaspírukvöldið og munu skáld- in Einar Már Guðmundsson, Einar Kárason, Halldóra Thoroddsen, Birgitta Jónsdóttir, Sæbjörn Brynjarsson og Steinunn Gunn- laugsdóttir lesa úr verkum sínum. Sparisjóður Garðabæjar, Garða- torgi Eva Þ. Haraldsdóttir opnar myndlistasýningu, aðallega myndir unnar í olíu, krít og akrýl. Eva er fædd 30. apríl 1954 á Akureyri, en hefur búið í Reykjavík undanfarin 30 ár, hún er kennari í Seljaskóla. Eva hefur sótt ýmis námskeið í myndlist. Sýningin stendur fram eftir sumri. Í DAG Verkin tvö hanga gegnthvort öðru og ljósmynd-irnar 128 kallast á, það ereins og verkin spegli hvert annað en samt er alltaf ein- hver munur á þeim myndum sem speglast. Sýninguna kallar Roni Horn „Her, Her, Her and Her“ og myndefnið ætti að vera kunnuglegt þeim sem lagt hafa leið sína í Sund- höll Reykjavíkur, sem Guðjón Sam- úelsson hannaði á árunum 1929 til 1937. Ljósmyndirnar eru allar tekn- ar í búningsklefum laugarinnar, sem er afar sérstakt rými; þröngir gangar milli klefa þar sem gægju- gat er á hurðum og allt lagt hvítum flísum. Roni Horn, sem eytt hefur hluta ársins á Íslandi allar götur síðan snemma á áttunda áratugnum, og hefur sótt efnivið ótal verka til landsins, gat ekki verið við opnun sýninhgarinnar þar sem hún vinnur að uppsetningu á stóru verki í lista- safni Chicagoborgar. Hún hefur áð- ur unnið myndröð þar sem mynd- efnið er íslenskar sundlaugar og þá hefur hún fjallað sérstaklega um arkitektúr Guðjóns Samúelssonar, í myndum og texta. En þegar við ræddum saman í síma, þar sem hún var á göngu um götur Chicago, sagði hún Guðjón sem slíkan alls ekki vera hluta af viðfangsefninu, það væri einfaldlega margt við þennan arkitektúr sem hefði vakið athygli sína. „Sem Íslendingur veist þú að þarna er sundlaug en fólk sem sér þessi verk annars staðar hefur ekki hugmynd um að það er laug þarna nálægt,“ segir Roni. „Það er ekkert sem bendir á laugar, þú sérð bara búningsklefa, skápa; þetta gæti ver- ið geðveikrahæli. Verkið er um þennan arkitektúr, þetta völundarhús, kynferðislegar vísanir og furður þessa umhverfis. Þetta er verk um gægjur, það að gægjast.“ – Þú ljósmyndar gægjugötin. „Gægjugötin eru Guðjóns. En hver sem horfir á þennan arki- tektúr hlýtur að velta því fyrir sér hvað þessi gægjugöt eru að gera þarna. Ég hef ekki fundið neinn sem hefur getað gefið mér svar sem dregur úr forvitni minni. Gægjugötin eru lykill að því að mig langaði til að gera þetta verk. Og aug- ljóslega eiginleiki völ- undarhússins, tilfinn- ingin fyrir nánast stærðfræðilegum hreinleika rým- isins. Samruni vísinda og kynferð- islegra vísana er mjög áhugaverður í þessu rými. Þá er hálfgerður felu- leikur í því hvernig rýmið er ljós- myndað. Ég var með myndavélina og fylgdist með afar hægri umferð- inni. Aðeins lítill hluti myndanna sýnir fólk sem ég þekki. Á mynd- unum er einfaldlega það sem gerð- ist þar sem ég fylgdist með ferðum fólks um rýmið.“ – Þegar ljósmyndirnar renna svona saman les fólk þær á allt ann- an hátt en þegar einhverjar þeirra sáust fyrst stakar, sem verk á bak- síðu Lesbókar Morgunblaðsins fyrir nokkrum misserum. „Þá var verkið ekki til. Ég var bara að nota filmurnar. Þó þetta sé sama efnið er ekkert beint samband þar á milli. Þetta er einfaldlega hrá- efni sem ég á í fórum mínum og hef verið að vinna úr. Ég dái þetta rými augljóslega, og Lesbókin var gott tækifæri fyrir mig til að koma því á framfæri opinberlega. Á einu sviði er verk- ið homage til rýmisins, en á öðru sviði hefur þetta ekkert með það að gera. Fyrir áhorf- anda sem þekkir rým- ið ekki í raun, er inni- haldið allt annað.“ – Þetta er svo furðu- legt rými, eins og það birtist samansett í verkinu, að ein- hverjum kann að koma í hug að það sé byggt sérstaklega fyrir myndatökuna. „Já, það er athygl- isvert. En fyrir þann sem þekkir það, er verkið eins og hugsun um skipulagið í rýminu eins og það er í raun. Það er ekki bókstafleg end- urgerð en hugsunin er til staðar. Maður fær líka á tilfinninguna, án þess að ég hafi haft hugmynd um hvort svo hafi verið, að Guðjón hafi verið skákmaður. Það er þessháttar kerfishugsun sem virðist hafa farið í hönnun rýmisins. Ég veit ekki alveg hvers vegna, en þetta er eins og birtingarmynd margs þess besta sem ég sé við Ísland. Það kynferð- islega, skákvísunin, og áþreifanleg gæði þessa umhverfis.“ – Þegar horft er á gægjugötin á sumum myndanna, er eins og horft sé ofan á peð á skákborði. „Það má horfa á þetta þannig, en ég var meira að hugsa um mann- ganginn og síðan hvernig maður fer um þetta rými. Ég setti það síðan saman með tilvísun í skákborð.“ – En hvað ertu að gera í Chicago? „Ég er að setja upp stóra sýningu hérna, í The Art Institute of Chicago. Hún opnar 25. maí. Þetta er mjög stór innsetning sem fer um sali með verkum í eigu safnsins, þar sem hanga aðallega evrópsk mál- verk. Þetta er útgáfa af myndröð- inni „Some Thames“, sem ég vann í London fyrir nokkrum árum, en önnur útgáfa verksins er í Háskól- annum á Akureyri. Þetta hefur ver- uð áhugaverð vinna hér, en á sama tíma og mitt verk fer upp er verið að setja upp verk eftir Pollock, Mor- andi, Picasso…það gengur mikið á.“ Verk um gægjur Verkin minna á tvö skákborð en í hvoru eru 64 ljósmyndir teknar í búningsklefum Sundhallarinnar í Reykjavík. Á sýningu Roni Horn, sem er hluti af Listahátíð og var opnuð á Kjarvalsstöðum í liðinni viku, notar listakonan enn og aftur íslenskan efnivið í verk, sem hún sagði Einari Fal Ingólfssyni að hefðu kynferðislegar tilvísanir en hylltu einnig arkitektinn. efi@mbl.is Roni Horn
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.