Morgunblaðið - 25.05.2004, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 25.05.2004, Blaðsíða 22
AUSTURLAND 22 ÞRIÐJUDAGUR 25. MAÍ 2004 MORGUNBLAÐIÐ Morgunblaðið/Kristín Sigurrós Tékkneski stórmeistarinn Tomas Oral tefldi fjöltefli við tuttugu og þrjá mótherja. Tékkneski stór- meistarinn mátaði 23 skákmenn Kristinssonar, fyrrverandi Íslands- og Evrópumeistara, sem búsettur er í sveitarfélaginu, en hann hafði ekki tök á að taka þátt í fjölteflinu að þessu sinni. Tomas kom til Hólmavíkur ásamt Mána Hrafnssyni frá skák- félaginu Hróknum. Kvaðst hann hafi komið þrisvar til fjórum sinn- um á ári til landsins síðustu fjögur árin og dvalið allt upp tvo til þrjá mánuði í einu, sem er lengri tími heldur en hann dvelur að jafnaði í heimalandi sínu. Að þessu sinni gerir hann víðreist og ferðast nokkur hundruð kílómetra milli staða. Eftir fjölteflið á Hólmavík var förinni heitið á Drangsnes og þaðan til Bíldudals. Hólmavík | Tékkneski stórmeist- arinn Tomas Oral heimsótti Hólmavík sl. sunnudag og tefldi fjöltefli við tuttugu og þrjá mót- herja, átján grunnskólanemendur og fimm fullorðna karlmenn. Segja má að þrjár kynslóðir hafi tekið þátt í keppninni, því meðal þeirra eldri var afi eins af yngstu kepp- endunum. Tomas vann allar skák- irnar, en þeir sem lengst dugðu léku rúma tuttugu leiki gegn hon- um. Það var Árni Daníelsson, einn af fulltrúum eldri borgara í fjöl- teflinu, sem tefldi lengst, en næst honum í leikjafjölda var Arna Mar- grét Ólafsdóttir, nemandi í 4. bekk Grunnskólans. Þess má geta að Arna Margrét er dótturdóttir Jóns LANDIÐ LEIGUÍBÚÐIR í Fjarðabyggð byggja húsin og eins og nafnið gefur til kynna verða í þeim leiguíbúðir, 104 talsins, en alls verða 26 íbúðir í hverju sjö hæða húsi. Menn eru almennt sammála um að húsin séu lagleg að ut- an og mæti brýnni þörf fyrir leiguhús- næði, en einhverjir eru smeykir um að þau beri lágreista byggðina ofurliði og séu ekki hentug á Reyðarfirði. Arkitekt, sem Morgunblaðið ræddi við og mikið hefur komið nálægt skipulagi á smærri stöðum, segir byggingu fjölbýlishúsanna á Reyðar- firði nánast vera umhverfisspjöll. „Húsin eru engan veginn í takt við byggðina sem fyrir“ segir arkitektinn, en vill ekki láta nafns síns getið vegna hagsmunatengsla austur um. „Þetta er smágerð, lágreist byggð og svo koma eins og skrattinn úr sauðar- leggnum fjögur sjö hæða há hús. Menn eru að yfirfæra tískufyrirbæri frá þéttbýli yfir í litla bæi. Ekki er þetta neitt ódýrara; ekki er landið dýrt þarna svo menn hefðu eins getað lagt þessar blokkir á hliðina og fengið sama fjölda af íbúðum. Þar sem lítið landrými er eftir og lóðir dýrar er skiljanlegt að menn byggi á þennan hátt, en á Reyðarfirði eru ekki slíkar forsendur.“ Viðmælandi Morgun- blaðsins bætir við að arkitektar séu al- mennt mjög undrandi á þessari hönn- un. Nútímaþróun að hanna stærri hús Annar arkitekt sem rætt var við segir að það sé ekkert sem banni mönnum að byggja upp í loftið og fólk megi ekki vera alltof púkalegt í hugs- un. „Ef hlutirnir fara eitthvað út fyrir hið venjubundna verða menn skelf- ingu lostnir og byrja endalaust arga- þras. Kannski hefðu blokkirnar ekki átt að vera alveg svona háar, hefðu mátt vera meira blandaðar, eitthvað lægri og fjölbreyttari. Þetta er samt nútíminn og þróunin sú að gera stærri hús.“ Leigumarkaður í Fjarðabyggð er orðinn mjög erfiður og eins og einhver sagði, er varla hægt að fá þar leigt tjaldstæði nú til dags, svo mikil er ásóknin í húsnæði. Reiknað er með mikilli fólksfjölgun í sveitarfélaginu næstu misseri og jafnvel talað um að allt að 400 hundruð íbúðir skorti til að mæta þeirri þörf sem mun skapast í kjölfar byggingar álvers. Um 300 íbúðir í Fjarðabyggð eru þegar á teikniborðinu eða í byggingu. Nútímabyggingarlist eða umhverfisspjöll? Byrjað er að reisa fyrsta fjölbýlishúsið af fjórum sem skipulögð hafa verið á Oddnýjarhæð á Reyðarfirði. Skiptar skoðanir eru um þessar byggingar, einkum þó hæð þeirra og staðsetningu, ekki síst eftir að byrjað var að byggja lágreist hús á lóðum í kring. Ljóst er að svipmót þorpsins breytist varanlega og sitt sýnist hverjum í þeim efnum. kvæða ímynd af staðnum út á við og þeirri uppbyggingu sem þarna á sér stað. Fjölbýlishús eru í sjálfu sér ekki neikvæð, en út frá skipu- lagslegum sjónarmiðum er eins- leitni í þessu punkthúsaformi. Ekki er tekið tillit til húsanna í grennd- inni, sem er mjög miður og þetta er ekki í neinu samræmi við það sem fyrir er. Í stað þess að byggja lágreistar blokkir sem mynda rými, fallega götumynd, skapa skjól og gefa þannig möguleika á útivist, þá eru þetta blokkir sem rísa upp úr bílastæðum, af þeim varpast miklir skuggar, þær mynda sterka vind- strengi og erfitt er að ná fram fal- legri götumynd við svona hús.“ Aðalheiður segir að alltaf þurfi að hafa tvær eða fleiri mismunandi tillögur, til að yfirvöld og almenn- ingur geti gert sér grein fyrir hvaða möguleikar séu í boði. „Það er næsta auðvelt að kynna hvað sem er, sýna frá bestu sjón- arhornum og láta það líta nokkuð vel út á blaði. Enda eru þessi hús alls ekki ljót sem slík og íbúðirnar örugglega ágætar og með góðu út- sýni. Almenningur á að mínu mati hins vegar rétt á tveimur tillögum til að vega og meta möguleikana. Þarna eru það tíminn og hraðinn sem vinna ekki með skipulaginu. Hraðinn er hættulegur í skipulagi því allar tillögur þurfa að þroskast. Ég hefði að sjálfsögðu viljað sjá aðra útfærslu á þessari byggð. Það mætti reyna að bjarga einhverju með því að lækka austustu blokk- irnar og byggja þriggja, fimm og sjö hæða hús, þannig að þau myndi ekki þennan mikla vegg sem húsin koma bersýnilega til með að gera.“ Vantaði fleiri möguleika til viðmiðunar „BÆJARYFIRVÖLDUM og íbúum í Fjarðabyggð voru ekki sýndar aðrar tillögur og höfðu því ekk- ert viðmið“ segir Aðalheiður E. Kristjánsdóttir, landslags- arkitekt, en hún er ein örfárra sem hafa opinberlega mótmælt byggingu fjölbýlishúsanna á Reyðarfirði. Aðalheiður er innfæddur Reyð- firðingur og hefur unnið við skipulag og hönnun sl. 12 ár. „Ég er hrædd um að við séum að fá þarna neikvæða ásýnd á lít- ið samfélag og að blokkirnar verði kennileiti sem gefi nei- „Mér finnast blokkirnar of háar og fjórar hæðir hefðu verið nóg, eða að byggja þessi háhýsi ann- ars staðar í bænum,“ seg- ir Bryndís Steinþórs- dóttir á Reyðarfirði. Reyðfirðingurinn Guð- mundur Frímann Guð- mundsson segist ekki hafa tekið sérstaka afstöðu til blokkanna. „Þær mættu þó vera annars staðar.“ „Þetta eru alltof há hús í þessu hverfi. Það er samt allt í lagi að búa í blokk,“ segir Hákon Seljan Jó- hannsson um fjölbýlis- húsin. Leigumark- aðurinn þarfn- ast stórrar innspýtingar „Ég er alveg hlutlaus,“ segir Kristján Lúðvíksson á Reyðarfirði. „Við höfum þó mikið og gott bygging- arland, svo ekki þarf blokkirnar þess vegna.“ „ÉG held að menn verði alltaf að horfa á heildarmyndina. Þetta er stór framkvæmd og aldrei þannig að menn séu allir sammála um slíkt,“ segir Franz Jezorski, fasteignasali og stjórnarformaður Leiguíbúða í Fjarðabyggð, sem reisa fjölbýlis- húsin á Reyðarfirði. „Þrjú þúsund manns búa í Fjarða- byggð og það komu inn fjögur mót- mæli við skipulaginu eftir mjög ít- arlega kynningu á byggingunum. Við höfum fundið mjög mikinn með- byr með verkefninu. Í Fjarðabyggð er gríðarleg húsnæðisþörf núna og leiguíbúðaformið hentar afar vel til að leysa hana. Maður getur sett sig í spor þess fólks sem er að flytja á Reyðarfjörð og þekkir staðinn ekki neitt. Það þarf ekki endilega að kaupa fasteign heldur getur leigt sér íbúð í ákveðinn tíma meðan það athugar hvernig því líkar við stað- inn og getur svo í framhaldinu keypt ef því líst á sig. Þetta leiguíbúða- form er ekki hægt að koma með nema í fjölbýlishúsaformi. Það leigir enginn raðhús eða einbýlishús, það bara stendur ekki undir sér. Menn hafa sagt að það sé sjald- gæft að úti á landi séu byggð svona há hús, en þau eru bara ekki há. Í borginni eru tólf hæða há hús, en húsin á Reyðarfirði verða kjallari og sex hæðir. Fyrir nú utan að það er búið að byggja nákvæmlega sams konar hús á Egilsstöðum. Af hverju er hægt að byggja svona hús á Egils- stöðum en ekki á Reyðafirði? Af hverju breytir það bæjarímyndinni á Reyðarfirði en ekki á Egilsstöðum? Leigumarkaðurinn í Fjarðabyggð hefur margfaldast á undanförnum mánuðum og ef ekki kemur innspýt- ing inn í hann núna með alvöru framboð á markaðinn verður skelfi- legt ástand á leigumarkaði í sveitar- félaginu,“ segir Franz. „ÞAÐ er búið að leyfa byggingu þessara húsa eftir ítarlega kynn- ingu, borgarafund og samþykkt í öllum nefndum og bæjarstjórn. Það eru allir sammála um þessi hús,“ Menn vildu hafa þau enn hærri segir Guðmundur H. Sigfússon, for- stöðumaður umhverfismálasviðs Fjarðabyggðar. „Ég leyfi mér stórlega að efast um að margir Reyðfirðingar séu mótfallnir þessu og hef ekki heyrt þær raddir. Búið er að ganga frá byggingarleyfi fyrir fyrsta húsið og byrjað að byggja. Auðvitað hafa margir misjafnar skoðanir á þessum framkvæmdum, en húsin standa á góðum stað og fara vel þarna. Menn voru sammála um þetta í umhverf- isnefnd og í bæjarstjórn greiddi enginn atkvæði á móti, en tveir sátu hjá. Ég man heldur ekki til þess að neinar athugasemdir hafi borist varðandi deiliskipulag eða annað. Auðvitað voru mörg sjónarmið á lofti á kynningarfundinum, en það var enginn sem mótmælti bygging- unni og menn voru frekar á því að hafa ætti fjölbýlishúsin enn hærri.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.