Morgunblaðið - 25.05.2004, Blaðsíða 14
ERLENT
14 ÞRIÐJUDAGUR 25. MAÍ 2004 MORGUNBLAÐIÐ
RANNSÓKN hófst í gær á til-
drögum slyssins á Charles de Gaulle-
flugvelli á sunnudag er fjórir menn
týndu lífi þegar þak einnar álmu
flugstöðvar hrundi. Þessi hluti flug-
stöðvarinnar var á ný rýmdur í gær
þegar brestir tóku að heyrast í þak-
inu. Hugsanlegt er að byggingin
verði rifin.
Pierre Graff, forstjóri Aeroports
de Paris, ríkisfyrirtækis sem rekur
flugvelli Parísarborgar, sagði í gær
að verið væri að rannsaka hvort
byggingin öll gæti talist ógnun við
öryggi farþega.
Tvær meginflugstöðvar eru á
Charles de Gaulle-flugvelli. Flugstöð
2 skiptist upp í sex byggingar og varð
slysið í byggingu 2E. Tvær langar
álmur úr steinsteypu, gleri og járni
liggja úr byggingu 2E og þaðan er
farið um landganga út í flugvélarnar.
Þak annarrar álmunnar hrundi á um
30 metra kafla. Í fyrstu var sagt að
sex manns hefðu týnt lífi en í gær
varð ljóst að fjórir menn fórust í slys-
inu sem varð um klukkan fimm að ís-
lenskum tíma að morgni sunnudags.
Vitað er að tveir kínverskir ferða-
menn biðu bana í slysinu.
Engin áhætta tekin
Pierre Graff sagði fyrir liggja að
engin áhætta yrði tekin. Leiddi rann-
sóknin í ljós að þessi hluti flugstöðv-
arinnar stæðist ekki öryggiskröfur
væri ljóst að rífa þyrfti bygginguna.
Rannsóknin beinist m.a. að því hvort
um meiri háttar hönnunargalla hafi
verið að ræða.
Arkitekt byggingarinnar, Paul
Andreu, hélt í gær til Parísar frá
Peking í Kína þar sem hann var við
störf. Andreu, sem er heimsþekktur
arkitekt, sagðist vera „þrumu lost-
inn“ yfir slysinu. Sagði hann hönn-
unina vissulega djarfa en því færi
fjarri að hún gæti talist bylting-
arkennd.
Þessi hluti flugstöðvarinnar var
tekinn í notkun í júní í fyrra. Kostn-
aðurinn við bygginguna var rúmir 65
milljarðar króna. Litið var á fram-
kvæmdina sem merkt framlag til
byggingarlistar en með þessu móti
hugðust yfirvöld í París treysta stöðu
Charles de Gaulle og færa hann á ný
í hóp mikilvægustu flugvalla Evrópu.
Þykir slysið á sunnudag mikið áfall
fyrir þær áætlanir allar.
Skömmu eftir að tilkynnt var um
að rannsókn væri hafin heyrðust
brestir á ný í þaki álmunnar. Var
álman því rýmd á ný en þar voru að
störfum sérfræðingar og björg-
unarlið. Brestir heyrðust einnig í
þakinu á sunnudag skömmu áður en
það hrundi.
Slysið á Charles de Gaulle-flugvelli í París
Byggingin verður
hugsanlega rifin
Brestir heyrðust
á ný í þaki bygg-
ingarinnar í gær
!" # !$% & ' & ( &)*# "
+" " !' " % (& %% + () %,
-
'.
'/
!
"#
0123
45
66
$
%
&
'
(
)(
*
+
,
+
-
.'
" París. AFP.
SEXTÁN manns létu lífið og sjö
brenndust illa í gærmorgun þegar
flutningabíll með áburðarfarm
sem oltið hafði skammt frá Búk-
arest, höfuðborg Rúmeníu,
sprakk í loft upp.
Bíllinn valt við þorpið Mihail-
esti um 70 kílómetra norðaustur
af Búkarest. Eldur kom upp í
bílnum þegar hann valt um
klukkan fjögur að íslenskum tíma
aðfaranótt mánudagsins. Voru
slökkviliðsmenn að berjast við
eldinn þegar bifreiðin sprakk
skyndilega í loft upp. Flutn-
ingabíllinn sundraðist í frum-
eindir og braki og líkamshlutum
rigndi niður í nágrenninu. Tíu
metra djúpur gígur myndaðist og
um 20 hús skemmdust í spreng-
ingunni sem heyrðist í 35 kíló-
metra fjarlægð.
Í sprengingunni fórust sex
slökkviðliðsmenn, tveir sjónvarps-
fréttamenn og átta menn til við-
bótar sem áttu leið hjá og höfðu
farið út úr ökutækjum sínum til
að fylgjast með. Eins manns var
enn saknað síðdegis í gær. Óttast
var að tala látinn ætti eftir að
hækka. Tveir slökkviliðsbílar og
sex bifreiðar til viðbótar eyði-
lögðust í sprengingunni.
Í bílnum voru um 20 tonn af
ammoníumnítrat-áburði en það
efni er einnig notað í sprengiefni.
Svo virðist sem slökkviliðsmenn
hafi ekki vitað hver farmur bíls-
ins var en upphaflega var talið að
skordýraeitur væri í honum. Tal-
ið er að ökumaðurinn hafi sofnað
við stýrið en hann mun hafa lifað
slysið af.Reuters
16 farast í sprengingu í Rúmeníu
SAMTÖK flutningastarfs-
manna í Noregi náðu í gær
samkomulagi við atvinnurek-
endur eftir nær fimm vikna
langt verkfall og stóð til að
byrja akstur með mat og aðrar
vörur í nótt, að sögn frétta-
vefjar Aftenposten. Verkfallið
hafði mikil áhrif á daglegt líf
vegna þess að nauðsynjavörur
af mörgu tagi voru fljótt upp-
urnar í verslunum að kaup-
félagsbúðum undanskildum.
Samið var um almenna
launahækkun er nemur 3,5%
og sérstaka aukagreiðslu, 2000
norskar krónur, á hvern starfs-
mann. Eiga atvinnurekendur
og launþegar í hverju fyrirtæki
að ákveða í sameiningu hvern-
ig því fé verði deilt niður.
Per Østvold, leiðtogi starfs-
mannasambandsins, sagði að
vissulega væri það nokkur
ósigur að ekki hefði fengist í
gegn krafa um sérstaka yfir-
greiðslu til starfsmanna sem
væru í sambandinu. „En okkur
tókst að koma vandanum
vegna þeirra sem ferðast frítt
með okkur á dagskrána,“ sagði
Østvold.
Talið er að líða muni nokkr-
ar vikur áður en ástandið í
verslunum verður komið í samt
lag.
Flutn-
ingaverk-
falli lokið
Noregur
NORSKUR friðargæsluliði um þrí-
tugt lést og annar særðist þegar
árás var gerð á bílalest norska hers-
ins við borgina Kabúl um níuleytið á
sunnudagskvöld.
Boðað var til blaðamannafundar í
gærmorgun í höfuðstöðvum NATO í
Kabúl þar sem herforingjar norska
hersins vottuðu aðstandendum og
samstarfsmönnum hins látna samúð
sína.
Að sögn talsmanns NATO í Kab-
úl, Ritu Le Page, voru fjórir norskir
herbílar að koma úr reglubundinni
eftirlitsferð um borgina þegar árás
var gerð á bílana, rétt fyrir utan hlið
norsku herstöðvarinnar við Jalalab-
ad-veg. Vegurinn er einn af fjölförn-
ustu vegunum út úr borginni í aust-
urátt og þar er að finna bækistöðvar
friðargæsluliða NATO.
Þremur sprengjum var skotið að
bílunum og ein sprengjan hæfði
fyrsta bílinn. Mennirnir í bílnum
voru samstundis fluttir í sjúkrahús í
þýskri herstöð skammt frá en einn
mannanna lést skömmu síðar. Sam-
stundis fóru þyrlur í loftið og mátti
heyra í þeim fram eftir kvöldi,
sennilega í leit að árásarmönnunum.
Að sögn La Page var sprengj-
unum skotið einungis um sex kíló-
metra frá Jalalabad-vegi, en veg-
urinn er fjölfarinn og þar er mikil
umferð yfir daginn. Skriðdrekar og
herbílar á vegum NATO eru mjög
áberandi á þessu svæði og örygg-
isgæsla er mikil. Það þykir því með
ólíkindum að árásarmennirnir hafi
komist svo nálægt mikilvægum
hernaðarlegum skotmörkum án
þess að hafa náðst.
Önnur árásin á Norðmenn
Í samtali við lögregluyfirvöld kom
fram ótti um að árásarmennirnir
væru að færa sig upp á skaftið en
einungis tvær vikur eru frá því árás
var gerð á herstöðvar NATO við
flugvöllinn með þeim afleiðingum að
einn maður særðist.
Þetta er önnur árásin sem gerð er
á norska hermenn frá því þeir komu
til Afganistans. Dauði norska frið-
argæsluliðans þykir alvarlegt áfall
fyrir norska herinn sem og friðar-
gæslu NATO í landinu.
Einn Íslendingur er í Kabúl á
vegum íslensku friðargæslunnar,
Ólafur R. Ólafsson, en hann býr í
norsku bækistöðinni. Ólafur undir-
býr komu Íslendinganna sem eiga
að taka við stjórn flugumferðar á
Kabúl-flugvelli sem er skammt frá
herstöðvum NATO og Jalalabad-
vegi.
Norðmaður drep-
inn í Afganistan
Kabúl. Morgunblaðið.
AÐ minnsta kosti 60 manns týndu
lífi í Bangladesh eftir að fjórum
ferjum hvolfdi í óveðri sem gekk
yfir suðurhluta landsins í fyrradag.
Talið var í gær að nokkur fleiri lík
kynnu að finnast í ferjunum.
Bátarnir fjórir voru allir á
Meghma-ánni í Chandpur-héraði
um 40 km frá höfuðborginni
Dhaka. Í fyrstu var talið að allt að
200 manns væri saknað en margir
þeirra náðu sjálfir að komast í
land og lögregla bjargaði um 50
manns. Ferjunum fjórum og sex
flutningaskipum hvolfdi öllum á
þriggja klukkustunda tímabili í
fyrradag. Að minnsta kosti 3.000
manns hafa farist í meira en 260
ferjuslysum í landinu frá því árið
1977.
Minnst 60 látnir
eftir ferjuslys
Chandpur. AFP.