Morgunblaðið - 25.05.2004, Síða 8
FRÉTTIR
8 ÞRIÐJUDAGUR 25. MAÍ 2004 MORGUNBLAÐIÐ
Hérna, Nonni minn, taktu það áður en þú geispar, það verður víst orðið að hafa
krítarkortið með, góði.
Opinn fyrirlestur um ferðir Williams Morris
Áhrif Íslands
á verk Morris
Sigríður Björk Jóns-dóttir, sagn- og list-fræðingur, heldur
fyrirlestur sem nefnist Ís-
land augum litið í Snorra-
stofu í Reykholti kl. 20:30 í
kvöld. Í fyrirlestrinum ætl-
ar Sigríður að fjalla um
ferðir breska ljóðskáldsins
og hönnuðarins Williams
Morris til Íslands 1871 og
1873. Reynt verður að
greina hvaða áhrif ferðalög
hans til eyjarinnar í norðri
höfðu á verk hans og kenn-
ingar um listina en ekki
síst hugmyndir hans um
fyrirmyndarríkið eða útóp-
íuna.
Fyrirlesturinn er að
hluta til byggður á MA-rit-
gerð Sigríðar sem fjallar
um ferðir Williams Morris
til Íslands, samskipti hans við
heimamenn og persónulega upp-
lifun á því samfélagi sem mætti
honum á ofanverðri 19. öld.
Í fyrirlestrinum verður einnig
komið inn á frásagnir erlendra
ferðamanna úr Borgarfirðinum og
þá einkum úr Reykholti, sem var
og er einn helsti viðkomustaður
þeirra sem áhuga hafa á norræn-
um fræðum.
Hvert er tilefni fyrirlestrarins?
„Í fyrirlestrinum mun ég fjalla
sérstaklega um ferðir Williams
Morris til Íslands en hingað kom
hann tvisvar, í fyrra skiptið 1871
og hið síðara 1873. Fyrirlestur
þessi er hluti af fyrirlestraröð
Snorrastofu sem nefnist Fyrir-
lestrar í héraði, og eru öllum opn-
ir. Í ár er lögð áhersla á ferðasög-
ur, fyrr og nú. Byrjað var með
fyrirlestri Gests Þorgrímssonar,
sem fór á slóðir Íslendingasagna í
Noregi, og nú er komið að því að
skoða frásagnir erlendra ferða-
manna af söguslóðum í Borgar-
firðinum.“
Hver var William Morris?
„William Morris fæddist í Eng-
landi árið 1834 og er líklega best
þekktur sem hönnuður og skáld.
Upphaflega ætlaði hann sér að
verða arkitekt og byrjaði í því
námi en færði sig fljótt yfir á önn-
ur svið. Hann stofnaði ásamt
nokkrum félögum sínum fyrirtæki
sem framleiddi handgerðar vörur
úr gæðaefnum, og var allt gert til
þess að vanda sem mest til verks-
ins. Fyrirtækið framleiddi fyrst og
fremst húsbúnað, veggfóður, vefn-
að, húsgögn og fleira, en einnig
fékkst Morris við framleiðslu á
glergluggum og flísum og bókaút-
gáfu. Hann var hatrammur and-
stæðingur vélvæðingar og lagði
mikla áherslu á gæði handverks-
ins og mikilvægi þess fyrir sam-
félagið og ekki síst handverks-
manninn sjálfan. Morris vann
einnig að þýðingum á Íslendinga-
sögunum í samvinnu við Eirík
Magnússon í Cambridge og urðu
þær honum ótæmandi uppspretta
og yrkisefni í eigin skáldskap. Í
heimalandi sínu Englandi var
Morris þó ekki síður þekktur fyrir
þátttöku sína í stjórn-
málum og var hann
einn af stofnendum fyr-
irrennara breska
Verkamannaflokks-
ins.“
Hvernig tengist hann Íslandi?
„Áhugi Williams Morris á Ís-
landi var fyrst og fremst tilkominn
vegna áhuga hans á Íslend-
ingasögunum, eins og raunin var
um marga á þessum tíma og er
vissulega enn. Hann var farinn að
lesa sér til um norræn fræði á há-
skólaárum sínum í Oxford og
komst árið 1868 í kynni við fyrr-
nefndan Eirík Magnússon, sem
var síðar bókavörður í Cambridge.
Einnig voru ýmsar persónuleg-
ar ástæður fyrir því að hann lagði
upp í ferðalag til Íslands, en Morr-
is var ekki kominn til þess að klífa
fjöll eða skjóta fugla heldur að
ferðast um fornar slóðir. Í gegnum
Eirík komst Morris í kynni við
ýmsa Íslendinga, þar á meðal Jón
Sigurðsson, en þeir urðu samferða
á skipi í annað skiptið sem hann
kom hingað til lands. Ísland og ís-
lensk menning og þjóðfélag var
Morris mikill innblástur og fullyrti
hann sjálfur að hann fyndi til mik-
illar samkenndar með Íslending-
um.“
Hvaða áhrif höfðu ferðalög hans
til Íslands á verk hans?
„Áhrifin á skáldskap hans eru
augljós, en efni margra ljóða sinna
byggði hann á efni Íslendinga-
sagna. Það sem var meira spenn-
andi að skoða voru hugsanleg áhrif
á hönnun hans, en þau eru ekki
áberandi, ef einhver. Á ferðum
sínum um landið safnaði Morris þó
að sér íslensku handverki og
keypti hann íslenskan búning og
gripi handa konu sinni og dætrum.
Hann flutti meira að segja með sér
íslenskan hest heim til Englands.
Það sem hafði mest áhrif á hann
að mínu mati var að horfa upp á fá-
tæka bændaþjóð sem átti ekki
neitt en þar sem handverkið var
enn metið mikils. Á ferðum sínum
um landið sá hann fátæk en ham-
ingjusöm og frjáls börn að leik og í
hrörlegum húskofum
var að finna listgripi.
Þetta fátæka fólk var
ekki rænt þeirri
ánægju sem fólst í að
vinna með höndunum
eins og í Bretlandi. Í raun og veru
var það íslenskt 19. aldar bænda-
samfélag sem hafði áhrif á hug-
myndir hans um heilbrigt og gott
samfélag. Þetta samfélag sem
mætti honum hér var vissulega
andstæða hins iðnvædda verk-
smiðjusamfélags Viktoríutímans
þar sem ójöfnuður var mikill og
verkafólk vann einhæfa vinnu við
hræðilega aðstæður.“
Sigríður Björk Jónsdóttir
Sigríður Björk Jónsdóttir
fæddist í Hafnarfirði árið 1972.
Hún lauk BA-prófi í sagnfræði
frá Háskóla Íslands 1995 og MA-
prófi í byggingarlistasögu frá
háskólanum í Essex í Bretlandi
2001. Hún lýkur MBA-prófi frá
Háskólanum í Reykjavík nú í
júní. Sigríður hefur m.a. starfað
á Borgarskjalasafni og sem
stundakennari á Bifröst. Nú
starfar hún sem stundakennari
við Listaháskóla Íslands og sem
starfsmaður á Snorrastofu. Hún
er gift Magnúsi Árna Magnús-
syni, aðstoðarrektor á Bifröst, og
á tvo syni.
Byggði ljóð
á Íslendinga-
sögunum
LANDSSAMBAND sjálfstæðis-
kvenna opnaði á sunnudaginn nýj-
an vef, www.kvennanet.is. Vef-
urinn var opnaður við hátíðlega
athöfn á veitingastaðnum Apóteki
og opnaði Ásdís Halla Bragadóttir,
bæjarstjóri í Garðabæ, vefinn form-
lega.
Á Kvennanet.is munu reglulega
birtast pistlar um þjóðmál en vef-
urinn er einnig hugsaður sem upp-
lýsingavefur um atburði á vegum
Landssambandsins og vettvangur
fyrir konur innan flokksins.
Landssamband sjálfstæðiskvenna
var stofnað fyrir rúmu ári. María
Hilmarsdóttir er framkvæmda-
stjóri sambandsins og situr einnig í
ritstjórn vefsisns. Hún segir að þótt
Kvennanet.is sé haldið úti af konum
innan Sjálfstæðisflokksins sé vef-
urinn opinn öllum flokksmönnum,
af báðum kynjum og á öllum aldri,
og vefurinn gangi þannig þvert á
innri félagaskiptingu flokksins.
„Á vefnum má finna ýmiss konar
upplýsingar um sambandið, þing-
konur flokksins og konur sem sitja í
sveitarstjórnum fyrir hönd Sjálf-
stæðisflokksins. Ég vona að vef-
urinn verði lifandi og hvet sem
flesta til að nýta sér hann,“ segir
María.
Sjálfstæðiskonur opna kvennanet.is
Morgunblaðið/ÞÖK
Þær María Sigrún Hilmarsdóttir og Ásdís Halla Bragadóttir opna nýjan
vef Landssambands sjálfstæðiskvenna á sunnudag. Sólveig Pétursdóttir
þingkona fylgist með ásamt öðrum gestum.
TENGLAR
.....................................................
www.kvennanet.is