Morgunblaðið - 25.05.2004, Síða 39
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 25. MAÍ 2004 39
Toyota Corolla XLI station árg.
1996. Samlæsingar, rafm. í rúð-
um, dráttarkúla, ný dekk, smur-
bók frá upphafi. Ek. 153 þús. Sk.
'05. Verð aðeins 390 þús.
Upplýsingar í síma 699 3181.
Peugeot 205 GL árg. 1992
Ek. 116 þús. km. Er gangfær en
þarfnast smá viðgerðar. Gott
verð. Upplýsingar í síma 862 7910
Dodge árg. '47. Einstakt tæki-
færi. Dodge 1947 vörubíll, þarfn-
ast uppgerðar frá grunni, hefur
staðið inni síðan '87. Verð 250
þús. staðgr. S. 898 8829. Til sölu Ford Explorer árg. '92.
31" dekk, álfelgur, topplúga, nýjar
bemsur, upptekin vél, þarfnast
lagfæringar fyrir skoðun, selst
ódýrt. Uppl. í síma 662 5232.
Ford Explorer XLT 4.0 Executive.
Mjög vel með farinn og fallegur
bíll. Ásett verð er 1.090 þ. Tilboð
930 þ. Uppl. 856 7333.
Partasala, varahlutir. Mazda,
Mitsubishi, Nissan.
Bílaviðgerðir. Sími 587 8040,
892 5849 og 897 6897.
Jeppapartasala Þórðar, Tangar-
höfða 2, sími 587 5058. Sérhæfum
okkur með varahluti í jeppa og
Subaru. Nýrifnir: Patrol '95,
Impreza '97, Pajero V6 '92, Patrol
'92, Legasy '92, og Vitara '91-'97
Ökukennsla
Ökukennsla, endurhæfing,
akstursmat og vistakstur.
Upplýsingar í símum 892 1422 og
557 6722, Guðbrandur Bogason.
Ökukennsla Reykjavíkur ehf.
Ökukennsla akstursmat.
Sverrir Björnsson
Wolksvagen Passat,
892 4449/557 2940.
Vagn Gunnarsson
Mersedes Benz,
894 5200/565 2877.
Ævar Friðriksson
Toyota Avensis '02,
863 7493/557 2493.
Gylfi Guðjónsson
Subaru Impreza,
696 0042/566 6442.
Gylfi K. Sigurðsson
Nissan Almera,
892 0002/568 9898.
Snorri Bjarnason
Toyota Avensis, bifhjólak.
892 1451/557 4975.
Bifhjóla og ökukennsla
Eggert Valur, ökukennari.
Ökukennsla/skóli/mat.
Nýr M. Benz. Uppl. í símum
893 4744/565 3808/853 4744.
Til sölu Esterel Top Volume
árg. 2001, er með fortjaldi, ísskáp,
hitara og sólarrafhlöðu. Uppl. í
síma 847 2446.
Óska eftir vel með förnum 4ra
manna tjaldvagni.
Upplýsingar í síma 896 3109.
Combi Camp (Panda) 4ra ára,
4 manna, vel með farinn, án for-
tjalds. Staðgr. 340 þús. Uppl. í
síma 895 9844.
Suzuki DR650 '03. Til sölu vel
með farið Enduro-hjól. Gott í
ferðalög. Mikið af fylgihlutum, t.d.
dekk. Götuskráð. Upplýsingar í
síma 892 1373.
Stórglæsilegt Suzuki Gsx 1400
07/05 "03 ekið aðeins 700 km.106
hö., 25 þús á mán á bréfi á 1085
þús. sem nýtt Upplýsingar í síma
896 3677.
Speglar fyrir fellihýsi og
tjaldvagna. Verð kr. 1.650 kr.
GS varahlutir,
Bíldshöfða, sími 567 6744.
Spíssar ehf.
Hverfisgötu 108
101 Reykjavík
Losum stíflur,
hreinsum holr
æsi,
nýlagnir, rotþ
rær, smúlum
bílaplön o.fl.
Stíflulosun
Bíll og 2 menn
13.500 kr. klst. m. vsk í dagvinnu.
(10 km innif.) 35 kr. umfram km.
Nonni 891 7233
Hjörtur 891 7230
Áratuga reynsla NÝTTStíflulosun og röramyndun
Ásgeirs sf.
Skolphreinsun
Losa stíflur úr salernum, vöskum,
baðkörum og niðurföllum.
Röramyndavél til að staðsetja
skemmdir í lögnum.
s. 892 7260 og 567 0530, f. 587 6030
FJARLÆGJUM STÍFLUR
VALUR HELGASON ehf.
Sími 896 1100 - 568 8806
Röramyndavél til að skoða og
staðsetja skemmdir í frárennslislögnum
DÆLUBÍLL
úr vöskum, wc-lagnir, baðkerum og
niðurföllum – Við notum ný og fullkomin tæki
Athafnafólk ath.
Gríðarlegir möguleikar fyrir alla
sem vilja auka tekjurnar. Skoðið
www.Markmid.com og/eða
www.Samskipti.com eða sendið
fyrirspurn á Info@markmid.com.
www.midlarinn.is
Til sölu Grásleppu og Skötuselsn-
et, þorskanetaúthald, netaspil.
Einnig vantar á skrá, DNG rúllur
og STK tækið. Sími 892 0808
midlarinn@midlarinn.is
Landsins mesta úrval af bátum,
utanborðsmótorum og bátavör-
um. Sumaropnun í verslun - opið
frá kl. 08.00 til 18.00.
Vélasalan ehf., Ánanaustum 1,
S. 580-5300 www.velasalan.is
Til sölu 9 lesta fiskibátur árg.
1988 (plast). Veiðarfæri og leyfi
geta fylgt.
Uppl. í síma 696 2265.
Vandaðar tifsagir í handverkið.
Þær bera af.
Gylfi Sigurlinnason ehf.,
gylfi@gylfi.com, sími 555 1212.
AÐALFUNDUR Thorvaldsensfélagsins var
haldinn nýverið og kom fram í skýrslu stjórnar
að á síðasta starfsári gaf félagið tæplega 13
milljónir króna til góðgerðar- og líknarmála.
Stærsta framlagið var 10 milljóna króna
stofnfé til Thorvaldsenssjóðsins, sem er
styrktarsjóður til málefna sykursjúkra barna
og unglinga. Þá var gefin ein milljón til lands-
söfnunar Sjónarhóls og um það bil 2 milljónir
til ýmissa annarra líknarmála.
Thorvalsdensfélagið var stofnað árið 1875
og er því eitt elsta líknarfélag landsins. Félag-
ið hefur rekið verslunina Thorvaldsensbazar í
Austurstræti 4 síðan árið 1901.
Auk þessa hefur verið aflað fjár með sölu
jólamerkja frá árinu 1913 og hafa margir lista-
menn gefið myndir sem prýða merkin.
Á aðalfundinum lét Guðlaug Jónína Að-
alsteinsdóttir af störfum sem formaður félags-
ins eftir 6 ára farsæla formennsku. Nýkjörinn
formaður er Sigríður Sigurbergsdóttir. Aðrar í
stjórn eru Jónína Bryndís Sigurðardóttir vara-
formaður, Ása Jónsdóttir gjaldkeri, Helga
Kristinsdóttir ritari og meðstjórnrndur Dagný
Gísladóttir, Guðrún Jónsdóttir og Álfheiður
Sylvia Briem.
Gaf 13 milljónir
til góðgerðarmála
ÁSTÞÓR Magnússon, einn af
þremur frambjóðendum sem sækj-
ast eftir embætti forseta Íslands,
segir dómsmálaráðuneytið hafa
hafnað því að alþjóðlegir eftirlits-
menn Öryggis- og samvinnustofn-
unar Evrópu (ÖSE) fái leyfi til að
fylgjast með forsetakosningunum.
Segir hann þá höfnun ráðuneytis-
ins á réttmætri kröfu frambjóð-
anda um heiðarlegar kosningar
skipa Íslandi í flokk „bananalýð-
velda“ og þeirra ríkja sem stjórnað
sé af „illræmdum einræðisstjórn-
um“.
Í fréttatilkynningu frá Friði
2000 segir m.a. að haft hafi verið
samband við erlenda samstarfs-
aðila samtakanna, sem muni á
næstu dögum beina kastljósi er-
lendra fjölmiðla að því sem Ástþór
kallar ólögmætar kosningar. Einn-
ig hyggist forsetaframboðið höfða
mál til ógildingar kosningunum fái
framboðið ekki eðlilegan og jafnan
aðgang að helstu fjölmiðlum lands-
ins.
Ástþór segir stjórnvöld einnig
hafa brugðist í leiðbeinandahlut-
verki sínu þegar dómsmálaráðu-
neytið vísaði ekki á utanríkisráðu-
neytið vegna óska hans um að
leggja fram kröfu um eftirlits-
menn. Þá vísar hann á bug þeim
fullyrðingum Péturs Blöndals, for-
manns fastanefndar Íslands hjá
ÖSE, að það sé hneisa fyrir ríki að
fá eftirlitsmenn í landið. Þetta sé
hugsunarháttur sem þurfi að upp-
ræta, enda sé það frekar hneisa ef
vafi sé á að heiðarlega hafi verið
staðið að kosningum.
Ástþór Magnússon
forsetaframbjóðandi
Segir íslensk yfirvöld
hafa eitthvað að fela
MORGUNBLAÐINU hefur
borist eftirfarandi frá utanrík-
isráðuneytinu:
„Í tilefni af ítrekuðum yfirlýs-
ingum Ástþórs Magnússonar,
frambjóðanda í kjöri til embætt-
is forseta Íslands 26. júní 2004,
vill utanríkisráðuneytið koma
eftirfarandi leiðréttingu á fram-
færi.
Fastanefnd Íslands hjá Ör-
yggis- og samvinnustofnun Evr-
ópu tilkynnti yfirmanni Lýðræð-
is- og mannréttindastofnunar
ÖSE með erindi dags. 12. maí sl.
um væntanlegar forsetakosning-
ar á Íslandi og bauð stofnuninni,
í samræmi við samþykkt stofn-
unarinnar varðandi þau mál frá
29. júní 1990, að skoða þörfina á
að senda eftirlitsnefnd til Ís-
lands til að fylgjast með fram-
kvæmd kosninganna.
Fastanefnd Íslands tilkynnti
síðan á ráðsfundi Öryggis- og
samvinnustofnunar Evrópu 13.
maí sl. að forsetakosningar yrði
haldnar á Íslandi 26. júní 2004
og að Lýðræðis- og mannrétt-
indastofnuninni hefði verið sent
boð um að skoða þörf á eftirliti
með kosningunum. Jafnframt
var þeim aðildarríkjum ÖSE,
sem þess óskuðu, boðið að senda
fulltrúa til eftirlits.
Það er hins vegar alfarið
sjálfstæð ákvörðun Lýðræðis-
og mannréttindastofnunar ÖSE
hvort slíkt eftirlit er tekið upp
með kosningum í aðildarríki
ÖSE og þá einnig með hvaða
hætti.“
Sjálfstæð ákvörðun
hjá ÖSE hvort ástæða
þyki til eftirlits
FRÉTTIR