Morgunblaðið - 25.05.2004, Page 42
DAGBÓK
42 ÞRIÐJUDAGUR 25. MAÍ 2004 MORGUNBLAÐIÐ
MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík.
SÍMAR: Skiptiborð: 569 1100. Auglýsingar: 569 1111.
Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn: 569 1329,
fréttir 569 1181, íþróttir 569 1156, sérblöð 569 1222,
auglýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811, gjaldkeri 569
1115. NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, / Áskriftargjald
2.400 kr. á mánuði innanlands. Í lausasölu 220 kr. ein-
takið mánudaga til laugardaga. Sunnudaga 350 kr.
Skipin
Reykjavíkurhöfn:
Arnarfell og Trinket
koma í dag. Cathy Jo
og Alta Mar fara í dag.
Hafnarfjarðarhöfn:
Arklow Wave og
Green Frost koma í
dag.
Fréttir
Mæðrastyrksnefnd
Kópavogs, Fannborg
5. Fataúthlutun þriðju-
daga kl. 16–18.
Mannamót
Aflagrandi 40. Kl. 9
bað og vinnustofa, kl. 9
jóga, kl. 13 postulíns-
málun. Hársnyrting,
fótaaðgerð.
Árskógar 4. Kl. 9–12
bað og handavinna, kl.
9–12.30 bókband, kl. 9
leikfimi, kl. 9.30 dans,
kl. 9.45 boccia, kl. 13–
16.30 smíðar, kl. 20.30
línudans.
Bólstaðarhlíð 43. Kl.
8–13 hárgreiðsla, kl.
8.30–14.30 bað, kl. 9–
9.45 leikfimi, kl. 9–16
handavinna, kl. 9–17
fótaaðgerð, kl. 10–
11.30 sund, kl. 14–15
dans, kl. 15 boccia.
Sími 535 2760.
Félagsstarfið, Dal-
braut 18–20. Kl. 9–
16.45 hárgreiðslu-
stofan opin, kl. 9–14 að-
stoð við böðun, kl. 14
félagsvist, púttvöll-
urinn opinn.
Félagsstarfið Dalbraut
27. Kl. 8–16 handa-
vinnustofan opin og
vefnaður, kl. 13.30
myndband.
Félagsstarfið, Hæð-
argarði 31. Opin vinnu-
stofa 9–16.30, leikfimi
kl. 10–11, versl-
unarferð í Bónus kl.
12.40, bókabíllinn á
staðnum kl. 14.15–15.
Félagsstarfið, Löngu-
hlíð 3. Kl. 8 bað, kl. 10
hársnyrting, kl. 11 leik-
fimi, kl. 13 föndur og
handavinna.
Félagsstarf eldri borg-
ara Mosfellsbæ, Dval-
arheimilinu, Hlað-
hömrum. Kl. 13–16
föndur og spil, kl. 16–
17 leikfimi og jóga. Í
dag kl. 15 flytur
Friðrik G. Olgeirsson
sagnfræðingur, erindi
um byggðir og merki-
lega staði á Norð-
austurlandi og lífs-
baráttu fólks á
Melrakkasléttu og
Langanesi.
Félagsstarf aldraðra
Garðabæ. Karla-
leikfimi kl. 13. Lokað í
Garðabergi er kirkjan
er með opið hús í Safn-
aðarheimilinu.
Félag eldri borgara,
Hafnarfirði, Hraunseli.
Húsið opnað kl. 9, kl.
10 ganga, kl. 13 brids.
Félag eldri borgara,
Reykjavík, Ásgarði.
Skák kl. 13. Miðviku-
dagur: Göngu-Hrólfar
ganga frá Ásgarði
Glæisbæ kl. 10.
Gerðuberg, fé-
lagsstarf. Kl. 9–16.30
vinnustofur opnar, kl.
10 gönguferð, kl. 13
boccia.
Gjábakki, Fannborg 8.
Félagsstarfið fellur
niður vegna endur-
menntunar starfs-
manna eftir hádegi í
dag.
Gullsmári, Gullsmára
13. Félagsstarfið fellur
niður vegna endur-
menntunar starfs-
manna eftir hádegi í
dag.
Hraunbær 105. Kl. 9
postulín og gler-
skurður, kl. 10 boccia,
kl. 11 leikfimi, kl. 12.15
verslunarferð, kl. 13
myndlist, línudans og
hárgreiðsla. Kl. 15
línudans.
Hvassaleiti 56–58. Kl.
9.30 boccia, kl. 9–16.30
handavinna, kl. 13.30
helgistund. Fótaað-
gerðir virka daga, hár-
snyrting þriðju- til
föstudags.
Korpúlfar Grafarvogi.
Á morgun, miðviku-
dag, fundur Miðgarði
kl. 10.
Norðurbrún 1. Kl. 9–
16.45 opin vinnustofa,
kl. 9 hárgreiðsla, kl.
10–11 boccia, kl. 14
leikfimi.
Vesturgata 7. Kl. 9–16
fótaaðgerð og hár-
greiðsla, kl. 9.15–12
skinnasaumur, kl.
9.15–15.30 handavinna,
kl. 9.15–16 postulín, kl.
10.15–11.45 enska, 13–
16 spilað og bútasaum-
ur.
Vitatorg. Kl. 8.45
smíði, kl. 9 hárgreiðsla,
kl. 9.30 glerskurður og
morgunstund, kl. 10
fótaaðgerðir og leik-
fimi, kl. 13 handmennt,
og postulín, kl. 14 fé-
lagsvist.
Þjónustumiðstöðin
Sléttuvegi 11. Kl. 10–
12 verslunin opin, kl.
13–16 keramik, tau-
málun, almennt fönd-
ur, kl. 15 bókabíllinn.
Félag eldri borgara í
Gjábakka. Spilað brids
kl. 19 þriðjud. og kl.
13.15 föstud. Ath. síð-
asti spiladagur er
þriðjudaginn 8. júní, en
eftir það er spilað alla
föstudaga.
Öldungaráð Hauka,
síðasti fundur vetr-
arins á morgun, mið-
vikudag, kl. 20 á Ás-
völlum. Skráning í
sumarferðina.
Í dag er þriðjudagur 25. maí,
146. dagur ársins 2004, Úrbanus-
messa. Orð dagsins: Ég hef gjört
þig dýrlegan á jörðu með því að
fullkomna það verk, sem þú
fékkst mér að vinna.
(Jh. 17, 4.)
Brynjólfur Stefánssonleggur í pistli á
Deiglunni út frá nýrri
skoðanakönnun Frétta-
blaðsins, sem sýndi að
einungis þriðjungur
þjóðarinnar styddi rík-
isstjórnina og að ef
gengið yrði til kosninga
nú fengi Sjálfstæð-
isflokkurinn einungis um
25% fylgi. Brynjólfur
segir stjórnarandstöðuna
varla geta eignað sér
heiðurinn af minnkandi
stuðningi við stjórnina,
því svo virtist sem for-
ystumenn stjórnarflokk-
anna legðu sig fram um
að taka af þeim ómakið
með hverju slæmu þing-
málinu á fætur öðru og
umdeildum ummælum í
fjölmiðlum. „Nú eru blik-
ur á lofti um að ekki ein-
ungis gangi hratt á
stuðning óákveðinna
kjósenda Sjálfstæð-
isflokksins heldur hafi
nú einnig verið gengið
fram af hluta kjarna-
fylgis. Að kjósendur sem
hingað til hafa verið
taldir tryggir stuðnings-
menn séu ekki lengur
vissir í sinni sök,“ segir
Brynjólfur.
Þeir sem tilheyra óákveðnu fylgi, eru
hægra megin í stjórn-
málum en vilja ekki
binda trúss sitt við einn
ákveðinn stjórn-
málaflokk, hafa hingað
til valið þann kost sem
er næst þeirra hug-
sjónum þ.e. Sjálfstæð-
isflokkinn. Hafa kannski
ekki alltaf verið sam-
mála forystunni en fylgt
meginhugsjónum og trú-
að því að þingflokkurinn
fari eftir því. Jafnframt
hafa ungir sjálfstæð-
ismenn styrkt þennan
hóp í trúnni með álykt-
unum um aukið frelsi og
minni ríkisafskipti. Mál
eins og fjölmiðla-
frumvarpið, loforð um
ríkisábyrgð, aukið eft-
irlit með útlendingum
o.fl. hafa brotið þessar
meginhugsjónir – fækk-
að valkostum þessa hóps
um einn og skilið hann
eftir frammi fyrir frekar
fátæklegu vali. Von um
að ungir frjálshyggju-
menn, sem hafa undan-
farin ár talað fyrir
auknu frelsi og settust
nýverið á þing, standi
vörð um þessar megin-
hugsjónir hafa farið fyr-
ir lítið, sem sýnir sig
best í skilyrðislausum
stuðningi þeirra við fjöl-
miðlafrumvarpið.“
Brynjólfur segir margasem talist hafi til
kjarnafylgis Sjálfstæð-
isflokksins hafa átt erfitt
með að verja gjörðir rík-
isstjórnarinnar und-
anfarið, og þegar for-
ystan fari á svig við
hugmyndagrundvöll
flokksins megi búast við
að fækki einnig í þeim
hópi. „Ef Sjálfstæð-
isflokkurinn ætlar að
halda sínum dyggustu
stuðningsmönnum er
ljóst að mikið þarf að
vinna í innra starfi og
líta þarf í eigin barm,“
segir Brynjólfur og bæt-
ir við að ella megi vænta
þess að skoðanakönnun
Fréttablaðsins sé vísir að
því sem koma skal.
STAKSTEINAR
Blikur á lofti
Víkverji skrifar...
Vorið er komið og grundirnar gróa,eins og þar stendur. Það þýðir
aðeins eitt, garðurinn lifnar við. Vík-
verji er raunar ekki í hópi fremstu
garðyrkjumanna landsins en situr
námsfús við fótskör meistara síns –
eiginkonunnar. Hún er með grænan
lit á hverjum fingri.
Hér áður hafði Víkverji yfir litlum
garði að ráða. Kloflengstu menn
gátu með góðu móti stigið þar milli
enda. Hann kom lítið þar að málum
enda rúmuðust varla fleiri en einn
við störf í garðinum í einu. Og Vík-
verji fylgdist opinmynntur með konu
sinni breyta þessu frímerki í mikinn
lystigarð, svo eftir var tekið í hverf-
inu.
Fyrir hálfu öðru ári fluttu þau
Víkverja-hjón búferlum og eign-
uðust við það mun stærri garð. Þá
fyrst var komið að Víkverja að
bretta upp ermar. Mikið hekk um-
lykur garðinn og í fyrravor tók Vík-
verji þann kostinn vænstan að fá
fagmann til að snyrta hekkið, en það
ku vera bráðnauðsynlegt. Fagmað-
urinn mætti til leiks með sög mikla,
sullaði á hana bensíni og klauf svo
hekkið í herðar niður. Það rýrnaði
um helming. Víkverja stóð ekki á
sama, stöðvaði fagmanninn sem
snöggvast og spurði hvort hann væri
ekki með öllum mjalla. „Jú, bless-
aður vertu. Því meira sem maður
tekur af þessu, þeim mun betra,“
sagði hann og brá söginni á loft svo
heilu greinaflokkarnir flugu í allar
áttir.
Og fagmaðurinn hafði lög að
mæla. Þvílík spretta um sumarið.
Víkverji réð ekki neitt við neitt með
gömlu garðklippunum.
Nú í vor taldi Víkverji sig full-
numa í þessum fræðum. Leigði sér
rafknúnar hekkklippur – rómað orð
hekkklippur, ekki á hverjum degi að
þrjú k standa saman á prenti – og
réðst til atlögu. Sú glíma fór vel fram
og ekki er annað að sjá, nú er hlýnar
í veðri, en hekkið sé við góða heilsu.
x x x
Nokkur tré eru í garðinum og Vík-verji hefur komist að því að þau
eru misjafnlega vel gefin. Þannig
kallaði eiginkonan á hann eitt kvöld-
ið og benti á birkitréð fyrir framan
eldhúsgluggann. „Hvað?“ spurði
Víkverji spenntur. „Það er ekki farið
að laufgast,“ útskýrði eiginkonan.
Víkverji leit þá í kringum sig og sá
lauf á öðrum trjám, sem alltof langt
mál er að nafngreina hér, í garð-
inum. „Hvernig stendur á þessu?“
spurði Víkverji undrandi. Og ekki
stóð á svari: „Birkitréð veit að það á
eftir að koma kuldakast. Það lætur
ekki tíðarfarið gabba sig.“
Þetta er stórmerkilegt. Birkitré
eru með öðrum orðum betur gefin en
önnur tré. Láta ekki gabba sig út úr
híðinu. Nú er það aftur á móti farið
að laufgast, þannig að það má með
sanni segja að sumarið sé komið.
Gleðilegt sumar!
Morgunblaðið/Jim Smart
Verðlaunagarður í Kópavogi.
Kannski fær Víkverji einhvern tíma
verðlaun fyrir garðinn sinn.
MAÐURINN minn er at-
vinnulaus og ég er öryrki.
Við erum með fjögur börn
á heimilinu á aldrinum 11–
17 ára. Ég var að tala við
konu hjá Atvinnuleysis-
tryggingarsjóði og hún
sagði mér að skattleysis-
mörkin í dag væru 68
þúsund. Bæturnar eru
komnar í 88 þúsund. Sú
hækkun sem kom núna –
hún fer beint aftur til rík-
isins. Það kemur okkur
best að hækka skattleysis-
mörkin.
Þau eiga ekki að vera 68
þúsund, heldur að minnsta
kosti 100 þúsund áður en
það er farið að taka skatt af
okkur.
Laufey Elsa Sólveigar-
dóttir.
Eru gyðingar aríar?
LANGFLESTIR gyðingar
í Evrópu og Bandaríkjun-
um geta rakið uppruna
sinn til þjóðar sem kemur
frá Kákasus, vöggu hins
aríska kynstofns. Þeir
nefndust Khazarar og tóku
gyðingatrú árið 740.
Fjandmenn þeirra, arabar,
lýsa þeim þannig: Þeir eru
ljósir á hörund og bláeygð-
ir. Ljósrautt hár þeirra er
mikið og villt. Þeir eru
stórvaxnir og kaldlyndir.
Allt fas þeirra er villimann-
legt. Af þessu fólki eru
Askinasígyðingar komnir
en þeir eru um 70% af gyð-
ingum heimsins. Hið víð-
lenda keisaradæmi Khaz-
ara féll á tíundu öld fyrir
Garðaríki, sem náði frá Ís-
landi lengst í norðri til
Svartahafs. Khazarar flýja
í vestur einnig til Póllands
og Þýskalands. Að sögn
voru sex milljónir gyðinga
myrtir í Þýskalandi á dög-
um nasismans. Hvað eiga
slæmir sagnfræðingar
stóran hlut í þessum morð-
um? Hefðu kynþáttafor-
dómar komið upp ef há-
skólakennarar hefðu gert
skyldu sína? Þýskir og
pólskir gyðingar komu
ekki frá Júdeu. Þeir koma
frá Kákasus, vöggu hins
aríska kynstofns.
Gunnar Dal.
Dýrahald
Svartur köttur týndist
KISINN okkar, Jáum,
týndist frá Selási í Árbæ
hinn 15. mars sl. og er sárt
saknað. Hann er svartur og
eyrnamerktur R0015. Lík-
legast er að hann haldi sig í
Árbæ eða Breiðholti. Trú-
lega hefur sést til hans í
Vesturberginu í Efra-
Breiðholti. Allar ábending-
ar vel þegnar í síma
587 1966 eða 866 0701 hve-
nær sólarhrings sem er.
Kettlingar fást gefins
FIMM fallegir átta vikna
kettlingar fást gefins á góð
heimili. Um er að ræða 2
hvítar læður og 3 svart-
bröndótt fress. Kettirnir
eru fjörugir og kassavanir
og reiðubúnir til þess að yf-
irgefa móður sína. Upplýs-
ingar í síma 554 2090 og
692 6746.
Tapað/fundið
Gleraugnahulstur
tekið í misgripum
BRÚNT gleraugnahulstur
með gleraugum í var tekið í
misgripum í leigubifreið
hinn 14. maí sl. Upplýsing-
ar í síma 865 5590.
VELVAKANDI
Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15 Netfang velvakandi@mbl.is
Þetta gengur
ekki svona lengur
LÁRÉTT
1 syrgja, 4 stafla, 7 ungi
lundinn, 8 skræfa, 9
bekkur, 11 hása, 13
grenja, 14 skjót, 15
skikkja, 17 kvenfugl, 20
óhljóð, 22 auðan, 23
frumeindar, 24 reiði,
25 fiskar.
LÓÐRÉTT
1 handsamar, 2 stórum
ám, 3 beitu, 4 mögulegt, 5
getur gert, 6 heimting,
10 deilur, 12 kraftur, 13
beina að, 15 gleðjum, 16
fátið, 18 sæti, 19 svarar,
20 flanar, 21 vegur.
LAUSN SÍÐUSTU KROSSGÁTU
Lárétt: 1 karlselur, 8 ungar, 9 iðnum, 10 inn, 11 tíðar, 13
norpa, 15 húsin, 18 ósönn, 21 arf, 22 skötu, 23 ullin, 24
ógætilegt.
Lóðrétt: 2 augað, 3 lærir, 4 efinn, 5 unnir, 6 lugt, 7
amma, 12 asi, 14 oks, 15 hest, 16 spöng, 17 naust, 18
ófull, 19 öflug, 20 nánd.
Krossgáta
Hægt er að kaupa 10 krossgátur á 600 kr. á mbl.is. Slóðin er: http://www.mbl.is/mm/folk/krossgata/index.html