Morgunblaðið - 25.05.2004, Blaðsíða 45
ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 25. MAÍ 2004 45
Knattspyrnu-
samband Evrópu,
UEFA, hefur falið
danska dómaranum
Kim Milton Nielsen
að dæma úrslitaleik
Meistaradeildar
Evrópu sem fram
fer á miðvikudag í
Gelsenkirchen í
Þýskalandi. Þar
mætast Mónakó og
Porto frá Portúgal.
Jens Larsen og
Jørgen Jepsen verða
aðstoðardómarar og
Knud Erik Fisker
verður varadómari.
„Ég er glaður og
stoltur því að þessi
leikur er einn af
stærstu viðburðum
ársins,“ segir Niel-
sen við danska rík-
isútvarpið.
Dæmt 44 leiki
Nielsen hefur
dæmt 44 leiki í
Meistaradeildinni á
síðustu árum, en
hefur aldrei áður
dæmt úrslitaleik
keppninnar.
Nielsen, Larsen
og Jepsen verða all-
ir í eldlínunni í sum-
ar er úrslitakeppni
Evrópumóts lands-
liða í knattspyrnu,
fer fram í Portúgal
12. júní til 4. júlí.
Garnett skoraði 24 stig og tók 11fráköst í leiknum en aðalleik-
stjórnandi liðsins, Sam Cassell, fór af
velli meiddur í upphafi leiks og kom
ekki inn á eftir það. Darrick Martin,
bakvörður Timberwolves, tók við
keflinu af Cassell og skoraði alls 15
stig. Martin lék í CBA-deildinni í vet-
ur en samdi við Timberwolves í lok
síðasta árs, en hann hefur undanfar-
in níu ár reynt að sanna sig fyrir
NBA-liðum og komið víða við á ferli
sínum. „Þetta var stórkostlegt tæki-
færi fyrir mig en við vitum það að
liðsheildin þarf að vera til staðar ætl-
um við okkur að leggja Lakers að
velli. Ég hugsaði um það eitt að gera
engin mistök og það tókst að þessu
sinni,“ sagði Martin eftir leikinn.
Latrell Sprewell skoraði 17 stig
fyrir heimamenn og Wally Szchis-
erbiak var með 16 stig.
„Hershöfðinginn okkar gat ekki
leikið vegna meiðsla, og við vissum
að það var undir okkur komið að
setja upp sóknirnar og sjá til þess að
leikkerfin gengju upp,“ sagði Gar-
nett.
Lakers hefur aðeins einu sinni áð-
ur skorað 71 stig í úrslitakeppninni,
sem er það minnsta sem liðið hefur
skorað. Kobe Bryant var atkvæða-
mestur í liði Lakers með 27 stig,
Shaquille O’Neal hitti afar illa að
þessu sinni, skoraði 14 stig og tók 14
fráköst.
Karl Malone náði sér engan veg-
inn á strik og skoraði aðeins 5 stig en
honum var vísað af leikvelli í upphafi
fjórða og síðasta leikhluta. Þar átti
Malone í útistöðum við Gary Trent.
Varamenn Timberwolves skoruðu
41 stig gegn 14 stigum varamanna
Lakers.
ENGLENDINGAR hafa sett stefn-
una á að fá að halda lokakeppni
heimsmeistaramótsins í knatt-
spyrnu árið 2018. Þá kemur
keppnin til Evrópu á nýjan leik, en
næst verður hún haldin í Þýska-
landi 2006, þá í Suður-Afríku
2010, og væntanlega í Suður-
Ameríku 2014.
„Við höfum ákveðið að óska eft-
ir keppninni þetta ár, en það ger-
ist hins vegar ekki meira í þessu
máli fyrr en fyrir liggur í sumar
hvort við fáum til okkar Ólympíu-
leikana árið 2012,“ sagði Richard
Caborn, íþróttamálaráðherra Eng-
lands.
Englendingar héldu heimsmeist-
arakeppnina árið 1966 og sigruðu
þá Vestur-Þjóðverja, 4:2, í sögu-
legum úrslitaleik á Wembley.
England
stefnir á
HM 2018
RUDI Völler, landsliðsþjálfari
Þýskalands í knattspyrnu, tilkynnti
í gær 22 manna hóp fyrir loka-
keppni Evrópumótsins í Portúgal í
sumar. Hann skildi eftir eitt sæti og
mun tilkynna 23. leikmanninn í
næstu viku.
Hópurinn er þannig skipaður:
Markverðir: Oliver Kahn (Bayern
München), Jens Lehmann (Arsen-
al), Timo Hildebrand (Stuttgart).
Varnarmenn: Frank Baumann
(Werder Bremen), Arne Friedrich
(Hertha Berlín), Andreas Hinkel
(Stuttgart), Philipp Lahm (Stutt-
gart), Jens Nowotny (Leverkusen),
Christian Wörns (Dortmund),
Christian Rahn (Hamburger SV).
Miðjumenn eru þeir Michael
Ballack (Bayern München), Fabian
Ernst (Werder Bremen), Paul
Freier (Bochum), Torsten Frings
(Dortmund), Dietmar Hamann (Liv-
erpool), Jens Jeremies (Bayern
München), Sebastian Kehl (Dort-
mund), Bernd Schneider (Lever-
kusen).
Þeir leikmenn sem eiga að sjá um
að hrella markverði eru Fredi
Bobic (Hertha Berlín), Thomas
Brdaric (Hannover), Kevin Kuranyi
(Stuttgart), Miroslav Klose (Kais-
erslautern).
Rudi Völler valdi 22 leik-
menn fyrir EM í Portúgal
BRENDAN McMahon, 24 ára
knattspyrnumaður frá Skotlandi, er
genginn til liðs við 2. deildar lið ÍR.
MAGNÚS Lárusson, kylfingur úr
Kili í Mosfellsbæ, náði ekki að fylgja
eftir góðri byrjun á Opna skoska
höggleiksmótinu sem fram fór um
síðustu helgi í Skotlandi. Magnús lék
á 66 höggum á fyrsta keppnisdegi en
hann bætti við 16 höggum á síðari
deginum og lék þá á 82 höggum.
Fjórir íslenskir kylfingar tóku þátt
og komust ekki í gegnum niður-
skurðinn.
PÉTUR Óskar Sigurðsson, GR,
lék best íslensku kylfinganna, en
hann lék báða hringina á 74 höggum.
Sigmundur Einar Másson GKG, lék
á 76 og 74 höggum en Ottó Sigurðs-
son GKG lék á 77 og 81.
FJÓRAR íslenskar stúlkur tóku
þátt í Swedbank mótinu í Svíþjóð.
María Ósk Jónsdóttir úr GA komst í
gegnum niðurskurðinn með því að
leika á 76 og 79 höggum. En á þriðja
og síðasta keppnisdeginum lék hún á
85 höggum.
TINNA Jóhannsdóttir, GK, Arna
Rún Oddsdóttir GH og Sunna Sæv-
arsdóttir GA komust ekki í gegnum
niðurskurðinn á mótinu í Svíþjóð.
FRANK Sinclair hefur verið leyst-
ur undan samningi sínum við enska
knattspyrnufélagið Leicester.
Sinclair var einn þriggja leikmanna
liðsins sem voru handteknir og
ákærðir fyrir kynferðislega árás á
þrjár þýskar konur á La Manga á
Spáni í vetur. Ákærurnar voru síðan
felldar niður þegar DNA-rannsókn
leiddi sakleysi þeirra í ljós.
SINCLAIR sagði við BBC í gær að
hann óttaðist að þeirra félaganna
yrði alltaf minnst sem leikmannanna
sem voru ákærðir, ekki leikmann-
anna sem voru ranglega ásakaðir.
Auk hans sátu Paul Dickov og Keith
Gillespie í fangelsi á Spáni í eina
viku.
FÓLK
Nielsen dæmir úrslita-
leikinn í Gelsenkirchen
Kim Milton Nielsen
Reuters
Kevin Garnett, leikmaður Minnesota Timberwolves, sækir að körfu Los Angeles Lakers,
þar sem Karl Malone (11) er til varnar. Staða liðanna í úrslitum vesturdeildar er 1:1.
Úlfarnir jöfnuðu
gegn LA Lakers
KEVIN Garnett lét mikið að sér kveða í sigri Minnesota Timber-
wolves gegn Los Angeles Lakers í öðrum leik liðanna í úrslitum
vesturdeildar NBA í körfuknattleik í fyrrinótt. Minnesota skoraði 89
stig gegn 71 og er staðan jöfn, 1:1, í einvígi liðanna.
Í DAG verður dregið í riðla í Evrópu-
keppni 18 ára landsliða í handknatt-
leik pilta í höfuðstöðvum handknatt-
leikssambands Evrópu, EHF, í
Vínarborg, en mótið fer fram í Serb-
íu/Svartfjallalandi 23. júlí til 1. ágúst
í sumar. Íslenska piltalandsliðið
tryggði sér keppnisrétt á mótinu um
liðna helgi í undankeppni sem fram
fór í Makedóníu. Ásamt íslenska lið-
inu hafa Þjóðverjar, Hvít-Rússar,
Frakkar, Svisslendingar, Búlgarar,
Króatar, Slóvenar, Danir, Eistlend-
ingar, Svíar, Rúmenar, Ungverjar,
Rússar og Slóvakar tryggt sér
keppnisrétt auk landsliðs heima-
manna. Gangi einhverjar þjóðir úr
skaftinu eru Tékkar, Spánverjar og
Norðmenn viðbúnir að taka sæti í
mótinu.
Dregið á EM
18 ára í Vín
Aðalfundur
Breiðabliks 2004
Aðalfundur Breiðabliks verður haldinn í
Smáranum þriðjudaginn 25. maí 2004 kl. 18.00
DAGSKRÁ:
Venjuleg aðalfundarstörf
Lagabreytingar
Heiðursveitingar
Önnur mál
Stjórnin.