Morgunblaðið - 29.06.2004, Page 33
MENNING
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 29. JÚNÍ 2004 33
Hinir sönnu listamenn geraekki hlé á list sinni á millisýninga. Líf þeirra er list-
in sjálf. Þeir eru „í hlutverki“ 24
tíma á sólarhring, sjö daga vik-
unnar, allan ársins hring. Hlutverk
þeirra er að
skapa hughrif
hjá fólki. List-
in snýst um
að leika á til-
finningar annarra. Viðbrögð fólks
eru hluti listarinnar og áhorfand-
inn er listamaðurinn sjálfur.
Hinn sanni listamaður hefur
ekki áhyggjur af því hvort einhver
skilur list hans. Hann er eini
áhorfandinn og hann hlær einn.
Hann spilar á hinar margslungnu
órökstuddu kenndir mannskepn-
unnar, eins og hræðsluna við nekt
og kynlíf; ríkjandi siðalögmál sem
erfitt er að rökstyðja með góðu
móti. Hann ræðst á viðtekin við-
horf í margbrotnu sjónarspili, þar
sem mannorð hans sjálfs er lagt í
rúst. Honum er sama, því hann er
áhorfandinn og fólkið er hluti af
listaverkinu.
Við Íslendingar höfum áttnokkra listamenn af þessu
tagi, sanna listamenn, sem ánafnað
hafa líf sitt listagyðjunni. Af ein-
hverjum völdum hefur hátt hlutfall
þeirra boðið sig fram til embættis
forseta Íslands. Þar fer, auðvitað,
fremstur meðal jafningja, Ástþór
nokkur Magnússon. Uppátæki
hans hafa vakið tilfinningar meðal
þjóðarinnar. Það er nokkuð vel af
sér vikið. Þjóðin hefur orðið reið,
henni hefur verið misboðið, hún
hefur hlegið og hana hefur gripið
samúð. Listaverk Ástþórs er full-
komið.
Ástþór kærir sig auðvitað koll-
óttan um álit almennings. Hann
makar á sig tómatsósu í dómsal, á
í æsispennandi bílaeltingaleik með
Ólafi Ragnari Grímssyni, labbar
borgina á enda með skilti og svo
má áfram telja. „X-Ástþór er
öruggasta leiðin sem þú getur tek-
ið til að stuðla að friði í heim-
inum,“ segir hann hikstalaust.
Þannig notar hann listaverk sitt í
leiðinni til að koma boðskap á
framfæri. Ástþór vill koma á friði í
heiminum, hvernig svo sem hann
hugsar sér að koma því í kring.
Þannig er líka hin sanna list, aðblanda einlægninni við fárán-
leikann, þannig að fólk viti ekki
hvaðan á sig stendur veðrið. Ef
listamaður er bara fáránlegur hef-
ur hann ekki trúverðugleika. Ef
fólk skynjar einhvers konar sann-
an þráð í listamanninum, ein-
hverjar tilfinningar sem það getur
átt sammerkt með honum, á það
erfiðara með að afgreiða hann
sem grínista. Hin sanna list er
nefnilega ekki bara gamanmál,
hún hefur boðskap, hvort sem við
erum sammála honum eða ekki.
’Ástþór er leikari semákvað fyrir níu árum að
nota framboð til forseta
sem vettvang til að leika
á tilfinningar fólks.‘AF LISTUM Ívar Páll Jónsson
ivarpall@mbl.is
Hin sanna list
Á ÞRIÐJU tónleikum Skál-
holtshátíðarinnar á laugardaginn
kom fram nýbakaður kammerkór,
Carmina að nafni, og var honum
stjórnað af Árna Heimi Ingólfssyni.
Reyndar voru engir nýgræðingar á
ferðinni því nánast allir kórfélagar
eru meðlimir í Schola cantorum. Á
efnisskránni voru eingöngu verk
eftir eitt fremsta tónskáld end-
urreisnarinnar, Josquin Desprez,
fyrst Ave Maria, þá Inviolata,
Missa Pange lingua og loks Nymp-
hes des bois.
Óþarfi er að fjölyrða um tónlist
Desprez, sem gerð voru ýtarleg skil
í lærðri grein eftir Árna Heimi í
Morgunblaðinu um helgina. Nægir
að nefna að öll atriði tónleikanna,
sem voru sungin án undirleiks, eru
með fegurstu perlum tónbók-
menntanna.
Tónlist Desprez er afar erfið í
flutningi; hún
verður að vera
sungin af gríð-
arlegri ná-
kvæmni og fág-
un, styrkleika-
brigði eiga að
vera vel mótuð
og hinar mörgu
raddir sem vefj-
ast hver um aðra
þurfa ávallt að
vera skýrar. Almennt stóðst söngur
Carmina þessar kröfur, þótt vissu-
lega hafi verið nokkuð um hnökra,
sérstaklega hjá karlmönnunum.
Innkomur voru stundum klaufaleg-
ar og einstöku sinnum ekki alveg
hreinar; tenórarnir voru líka heldur
mjóróma í byrjun. Er á leið lagaðist
þetta þó og undir miðbik efnis-
skrárinnar, í Agnus dei-kaflanum,
var söngurinn orðinn þéttur og fal-
legur.
Margt var hrífandi í meðförum
kórsins og má ég til með að nefna
samsöng Guðrúnar Eddu Gunn-
arsdóttur og Elfu Margrétar Ingva-
dóttur, en hann var einstaklega fal-
legur. Fleira mætti tína til, en því
miður er ekki pláss til þess hér.
Árni Heimir sýndi að hann hafði
næman skilning á viðfangsefni sínu;
túlkun hans einkenndist af há-
stemmdri yfirvegun sem var einkar
viðeigandi. Ég saknaði þess samt
að heyra ekki ríkulegri styrk-
leikabrigði hér og þar; sumir kafl-
arnir hefðu mátt vera betur byggð-
ir upp til að skapa meiri andstæður,
þar á meðal Credóþátturinn. Að
öðru leyti var túlkunin sannfærandi
og komst hin mikla mýkt er ein-
kennir tónlistina vel til skila.
Auðheyrt er að Carmina er efni-
legur kór og Árni Heimir efnilegur
stjórnandi; spennandi verður að
fylgjast með framhaldinu.
Hástemmd yfirvegun
TÓNLIST
Skálholtskirkja
Kammerkórinn Carmina undir stjórn Árna
Heimis Ingólfssonar. Tónlist eftir Josquin
Desprez. Laugardagur 26. júní.
KÓRTÓNLEIKAR
Jónas Sen
Árni Heimir
Ingólfsson
FJÓRIR nemendur útskrifuðust úr
Tónskóla Þjóðkirkjunnar á þessu
vori, þar af einn með einleikspróf í
orgelleik, Sigrún Magna Þórsteins-
dóttir. Þrír nemendur útskrifuðust
með kantorspróf, Ágúst Ármann
Þorláksson, Dagný Björgvinsdóttir
og Stefán Helgi Kristinsson. Í
haust munu útskrifast með kant-
orspróf þeir Jónas Þórir Þórisson
og Torvald Gjerde. Þetta eru
ákveðin tímamót í sögu skólans þar
sem síðustu kantorarnir útskrifast
nú samkvæmt eldri námskrá, og
um leið útskrifast fyrsti nemand-
inn, Arngerður María Árnadóttir,
með 1. áfanga kirkjuorganistaprófs
samkvæmt nýrri námskrá skólans.
Auk þess luku þrír nemendur mið-
prófi í orgelleik, þrír fyrsta áfanga
í litúrgískum orgelleik og þrír luku
prófi á fyrsta og öðru ári kórstjórn-
arnáms. Sjö nemendur luku prófi í
Gregorfræðum, fjórir í Reykjavík
og þrír á Austurlandi, en próf var
tekið á báðum stöðum. Einnig luku
sjö nemendur prófi í kirkjutónlist-
arsögu.
Organistar útskrifaðir
Fréttasíminn
904 1100
OPIÐ HÚS - Túnbrekka 2 - Kóp.
Sölufulltrúi:
Þorbjörn Pálsson
gsm 898 1233,
thorbjorn@fasteignakaup.is
Sölufulltrúi:
Sigríður Sigmundsdóttir
gsm 848 6071
sigridur@fasteignakaup.is
Ármúla 15 • sími 515 0500 • fax 515 0509
www.fasteignakaup.is • fasteignakaup@fasteignakaup.is
Erna Valsdóttir, lögg. fast.-, skipa- og fyrirtækjasali.
Sölufulltrúar Sigríður 848 6071,
Þorbjörn 898 1233.
Frábær og ákaflega mikið endur-
nýjuð 4ra-5 herb. 138 fm íbúð á
3ju hæð með suðursvölum ásamt
28 fm bílskúr í þessu vinsæla
hverfi. Stór ræktaður garður með
háum trjágróðri. Verð kr. 22,9 m.
Opið hús þriðjudag
frá kl. 18 til 20.
ÚTSALAN
HEFST Á MORGUN KL.10:00
LOKAÐ Í DAG
laugavegi 91 s.562 0625
DKNY
DKNY JEANS
IKKS
GERARD DAREL
CUSTO
VENT COUVERT
PAUL & JOE
NICOLE FARHI
SELLER