Morgunblaðið - 06.07.2004, Blaðsíða 17

Morgunblaðið - 06.07.2004, Blaðsíða 17
BARN var skírt í kirkjunni á Múla á Skálmarnesi í Austur-Barðastrand- arsýslu í árlegri sumarmessu sem þar var haldin. Ekki hefur verið skírt í kirkjunni í yfir fjörutíu ár en síðasti bærinn í þessari sveit fór í eyði á árinu 1975. Bragi Benedikts- son, sóknarprestur á Reykhólum, messaði en um fimmtíu manns mættu. Barnið sem skírt var er af- komandi Óskars heitins Þórðarsonar og Kristínar Þorsteinsdóttur sem bjuggu í Firði. Kristín var viðstödd skírnina en hún er lengst til vinstri á myndinni, þá Bragi prestur með ný- skírða Diljá Sjöfn, móðirin Jónína Haraldsdóttir með Harald Kristin og loks faðirinn, Aron Óskarsson, sem er sonarsonur Kristínar og Óskars frá Firði. Á hinni myndinni sjást kirkjugestir eftir messu. Fyrsta skírnin í Múlakirkju í yfir 40 ár MINN STAÐUR MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 6. JÚLÍ 2004 17 Hellnar | „Það vantar snjó og styttist í að við þurfum að hætta,“ segir Tryggvi Konráðsson hjá Snjófelli á Arnarstapa. Hann er með snjó- sleða- og snjótroðaraferðir á Snæfellsjökul. „Ég hef aldrei gert neitt sérstakt þennan dag,“ segir Tryggvi um 1. júlí en þann dag í ár voru liðin 250 ár frá því Eggert Ólafsson og Bjarni Pálsson gengu á Snæfellsjökul. Frétta- ritari brá sér í ferð á jökulinn með Tryggva og fleira fólki af þessu tilefni. Ferðin var farin að kvöldi. Þrátt fyrir þoku- slæðing í kringum bækistöðvarnar við rætur jökulsins drifu menn sig af stað, enda stutt upp í bjartara veður nokkur hundruð metrum ofar. Flestir farþegar Tryggva þetta kvöld voru Svisslendingar í hópi með Stephen Genand, en hann var í sinni sextándu ferð til Íslands og fastagestur í ferðum á Snæfellsjökul. Hann sagði stoltur á toppi jökulsins að Sviss væri heimaland sitt en Ísland ætti hjarta hans. Í för var einnig David Simmons, prófessor í ferða- fræðum við Lincoln-háskóla í Christchurch á Nýja-Sjálandi, en hann var hér á landi meðal annars til að kynna sér Green Globe-verkefnið á Snæfellsnesi. David ferðast ávallt með litla mörgæsarbrúðu sem honum var gefin fyrir mörgum árum þegar hann vann að rannsókn- arverkefni við mörgæsir í heimalandi sínu. Tryggvi segir að reytingur hafi verið að gera það sem af er sumri. Hann hefur meiri áhyggjur af því að snjórinn á jöklinum endist ekki svo hætta verði ferðum á jökulinn í byrj- un ágúst. „Það snjóaði sáralítið í vetur og rigndi jafnóðum niður. Það vantar sennilega mánaðar snjó,“ segir Tryggvi. Síðan hefur sumarið verið hlýtt og mikil bráðnun. Nú er svo komið að stutt er niður á klakann og það er áhyggjuefni fyrir ferðaþjónustufólk. Veður var yndislegt á jöklinum þetta kvöld, logn og hlýindi, enda mátti heyra ísinn bráðna með tilheyrandi rennslis- og brakhljóðum. Voru ferðalangarnir sammála um að ferða- mátinn hefði verulega breyst frá því Eggert og Bjarni voru þarna á ferð. Vantar meiri snjó á jökulinn Morgunblaðið/Guðrún Bergmann Tryggvi Konráðsson, eigandi Snjófells, með dóttur sinni Guðrúnu Helgu, sem hann kallar jökladrottninguna enda hafa fá fimm ára börn farið jafn oft á Snæfellsjökul og hún. Útlit fyrir endasleppa ferðatíð á Snæfellsjökli í sumar LANDIÐ

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.