Morgunblaðið - 06.07.2004, Blaðsíða 32
32 ÞRIÐJUDAGUR 6. JÚLÍ 2004 MORGUNBLAÐIÐ
Grettir
Grettir
Smáfólk
Lalli lánlausi
©LE LOMBARD
GÓÐAN DAGINN
GRETTIR
BÍDDU! ÉG MAN EKKI EFTIR ÞVÍ
AÐ HAFA SETT SOKKANA Á
HENDURNAR Á MER!
Æ NEI! ÉG ER Í NÆRBUXUNUM
YFIR GALLABUXURNAR!
ÉG HELD AÐ ÉG HALDI
MIG LANGT Í BURTU
ÉG ER AÐ HUNSA ÞIG!
ERTU AÐ
HUNSA MIG?
OG ÞÚ ÞURFTIR AÐ SEGJA
MÉR FRÁ ÞVÍ!
VIÐVANINGUR!
FLJÓTUR
KALLI,
DRÍFÐU ÞIG...
ÞJÁLFARI NEW YORK
YANKIES ER VIÐ HURÐINA OG
VILL FÁ RÁÐ FRÁ ÞÉR
VARÐANDI HAFNABOLTA HA HA HA
FYRSTI APRÍL!!
ÞAÐ GÆTI
ALVEG GERST
FÍNT! VIÐ SKULUM BYRJA Á ÞVÍ AÐ LESA NÝTT
LJÓÐ EFTIR FRANSKA LJÓÐSKÁLDIÐ JEAN DE LA
FONTAINE SEM HEITIR “HRAFNINN OG REFURINN”
EINU SINNI VAR
HRAFN Á GREIN,
SEM VAR MEÐ
GOGG ÚR OSTI.
REFURINN FANN
GÓÐAN KEIM
OG HÉLT ÞVÍ
FYRIR HANN
RÆÐU
ROP!!
GOTT,
HANN NÁÐI
AÐ ROPA!
ÞETTA VAR NÚ
GOTT HJÁ ÞÉR
MÓBERG MINN!
MJÖG G0TT!
FÍNT! ÉG SKIL!
ÉG SKRIFA ÞÁ
BARA LJÓÐIÐ Á
TÖFLUNA OG ÞIÐ
ENDURSKRIFIÐ
ÞAÐ...
OG ÉG VIL
EKKI HEYRA
MÚKK FRÁ
YKKUR Á
MEÐAN!
ÁÁÁ!!
EN HVAÐ HANN ER
DUGLEGUR. HANN GETUR
STAÐIÐ ALVEG SJÁLFUR
ÞÚ! ÞÚ!
HEYRÐU! MÓBERG HEFUR ALVEG RÉTT
Á ÞVÍ AÐ TEYGJA SIG EF HANN VILL.
ÞÚ ERT ALLTAF AÐ ERGJA ÞIG Á
EINHVERJUM SMÁMUNUM
EKKI SNERTA
ÞETTA
DÚLLAN MÍN
ÞÚ MÁTT EKKI
SKEMMA KRÍTARNAR
HANS LÚÐVÍKS.
VONDUR STRÁKUR!
NÚNA SKULUM VIÐ
TAKA UPP
MÁLFRÆÐINA OG
BYRJA Á DÆMUM
13- 4659!
OG ÉG VIL
HAFA HLJÓÐ Á
MEÐAN!!
framhald ...
Dagbók
Í dag er þriðjudagur 6. júlí, 188. dagur ársins 2004
Eitt af olíufélögumlandsins gengst í
sumar fyrir leik fyrir
börn, þar sem þau fá í
hendur vegabréf sem
stimplað er í þegar
verslað er við stöðvar
félagsins. Þau safna
þessum stimplum og
fá glaðning þegar
vegabréfið er full-
stimplað og eiga auk-
inheldur möguleika á
því að hreppa veglega
vinninga síðar.
Tvö af börnum Vík-
verja, átta og tíu ára
gömul, taka þátt í
þessum leik af miklum metnaði og
safna stimplum í hvert sinn sem
keypt er bensín eða annar varn-
ingur. Allt gekk þetta að óskum þar
til fyrir nokkrum dögum. Eiginkona
Víkverja var þá að kaupa eldsneyti
á einni bensínstöðinni. Börnin hlupu
vitaskuld sem fætur toguðu inn til
að fá stimpilinn sinn. Glöð í bragði.
Annað upplit var þó á þeim er þau
sneru aftur. Öðru var brugðið og
hitt grátandi.
Hvað hafði gerst? Jú, starfs-
maður bensínstöðvarinnar hafði að-
eins stimplað í vegabréf annars
barnsins. Harðneitaði að stimpla í
hitt, þar sem aðeins væri til siðs að
gefa einn stimpil
hverju sinni. Hvurs-
lags eiginlega er
þetta? Óteljandi ferðir
hefur Víkverji farið
með börnin á þessar
stöðvar og aldrei hef-
ur neinn talið það eftir
sér að stimpla í bæði
vegabréfin. Enda
systkini á ferð.
Eiginkonu Víkverja
mislíkaði þetta og vatt
sér inn til viðræðna
við afgreiðslumann-
inn, eldri mann, sem
bar snúðugur við
ofangreindum rökum.
Eiginkonan gaf sig hins vegar ekki
og neitaði að fara út fyrr en búið
væri að gefa báðum börnunum
stimpil. Á endanum gaf af-
greiðslumaðurinn sig og stimplaði í
hitt vegabréfið með semingi og lét
skýrt í ljós að gjörningurinn væri
þvert gegn sínum vilja.
Aumingja börnunum var verulega
brugðið eftir þessa upplifun og tala
um þetta við alla sem heyra vilja.
Víkverji tekur fram að hér er um
einsdæmi að ræða. Í heildina eru af-
greiðslumenn félagsins elskulegir.
En það er ekki ofsögum sagt að
sumir séu á rangri hillu í lífinu. Af-
greiðslustörf henta ekki öllum.
Víkverji skrifar...
Söngleikur | Þeir sem setja vilja upp alvöru sumarsöngleik þurfa sannarlega
í mörg horn að líta. Nýbakaður Grímuverðlaunahafi, Björn Thors, lætur sér
ekki nægja að framleiða sýninguna heldur valdi Rúnar Freyr Gíslason leik-
stjóri hann til að fara með eitt af helstu hlutverkum í sýningunni. Það er því
nóg að gera hjá Birni. Á föstudaginn kom framkvæmdastjórinn t.a.m. að
framkvæmdum í Austurbæ þegar gömul og verðmæt Bjalla – sjaldgæft
hálfrar aldar gamalt eintak í sinni upprunalegu mynd – var hífð með krana
upp á skýlið á gamla góða Austurbæ, þar sem hún mun standa í kynning-
arskyni fyrir söngleikinn meðan á sýningum stendur en þessi sívinsæli söng-
leikur verður frumsýndur með tilþrifum næsta föstudag.
Morgunblaðið/ÞÖK
Hárið rís í Austurbæ
MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SÍMAR: Skiptiborð: 569 1100. Aug-
lýsingar: 569 1111. Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn: 569 1329, fréttir 569
1181, íþróttir 569 1156, sérblöð 569 1222, auglýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811,
gjaldkeri 569 1115. NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, / Áskriftargjald 2.400 kr. á mánuði
innanlands. Í lausasölu 220 kr. eintakið mánudaga til laugardaga. Sunnudaga 350 kr.
Orð dagsins: Ég er ljós í heiminn komið, svo að enginn, sem á mig
trúir, sé áfram í myrkri. (Jh. 12, 46).