Morgunblaðið - 05.10.2004, Síða 8

Morgunblaðið - 05.10.2004, Síða 8
8 ÞRIÐJUDAGUR 5. OKTÓBER 2004 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Hún segir að það sé bara tímasóun að þrasa, þú eigir hann, hún er með DNA upp á það. Þjóðhagslegur kostn-aður við hvertbanaslys í umferð- inni er 60 milljónir króna og skiptir miklu að fækka slíkum slysum að mati Gunnars H. Gunnarsson- ar, deildarverkfræðings á umferðardeild borgar- verkfræðings. Hann hefur skorað á ríkisstjórnina að gera vandaða áætlun um fækkun alvarlega slasaðra og látinna í umferðarslys- um. Gunnar krefst þess að áætlunin innihaldi fjár- hags- og framkvæmda- áætlun og verði sambæri- leg við þær bestu á þessu sviði á Norðurlöndum og í V-Evrópu. Unnið verði eftir áætluninni á ár- unum 2005–2008 og miðist hún við að látnir í umferðinni verði 30% færri árið 2008 en meðaltal áranna 2001–2003. Í greinargerð Gunnars kemur fram að á vegum dómsmálaráðu- neytisins hafi verið í gildi áætlun um 20% fækkun alvarlega slas- aðra og látinna fyrir aldamót 2000. Það takmark hafi ekki náðst að fullu vegna þess að sú áætlun fól ekki í sér neina fjárhags- og fram- kvæmdaáætlun. Með nágranna- löndin og Reykjavíkurborg sem fyrirmynd ætti ríkisvaldið að gera áætlun af þessu tagi og vinna eftir henni, enda yrði það mjög þjóð- hagslega arðbært, fyrir utan að hún myndi fækka verulega þeim mannlegu harmleikjum sem um- ferðarslys valda. Munurinn mikill milli borgar og landsbyggðar Samkvæmt útreikningum Gunnars er gríðarlegur munur milli Reykjavíkur og landsbyggð- arinnar varðandi árangur í fækk- un banaslysa á undanförnum ár- um. Ef skoðuð eru tvö tímabil, 1996–1999 og 2000–2003 sést að banaslysum hefur fækkað um 40% í Reykjavík milli þessara tímabila en fjölgað um rúm 70% utan Reykjavíkur. Þjóðhagslegur kostnaður vegna umferðarslysa hérlendis, að frátöldu eignatjóni, á árunum 2000–2003 var 13,6 millj- arðar króna árlega. Í Reykjavík lækkaði kostnaður milli fyrr- greindra tveggja tímabila (’96–’99 og ’00–’03) um 34% en aðeins um 0,9% utan hennar. Ástæðan fyrir þessu er sú að mati Gunnars að Reykjavíkurborg hefur unnið skipulega að þessu málum og sett 200 milljónir kr. árlega í umferð- aröryggismál, en ríkið hefur ekki unnið skipulega að þessu málum og veitt lítið fé í þau að sögn Gunn- ars. Þessu mótmælir Sturla Böðv- arsson samgönguráðherra harð- lega og segir ríkið hafa stóraukið framlög til vegamála í þágu um- ferðaröryggis. Nefna megi mislæg gatnamót sem byggð hafi verið við Mjóddina, Stekkjabakka, Víkur- veg/Vesturlandsveg og í Hafnar- firði. Einnig megi nefna breikkun Vesturlandsvegar og Reykjanes- brautar í gegnum Reykjavík, Kópavog, Garðabæ og Hafnar- fjörð. Þá hafi verið gerð mörg und- irgöng í Hafnarfirði og Reykja- nesbrautin tvöfölduð. Á heimasíðu IRTAD sem er al- þjóðlegur gagnagrunnur fyrir um- ferðarslys í OECD-ríkjum kemur fram að í langflestum ríkjum hefur á undanförnum árum og áratugum tekist að fækka dauðaslysum markvisst. Ísland er í heildina á hinn bóginn í sömu stöðu og það var árið 1970 eftir nokkrar sveifl- ur. Best standa Bretland, Holland og Svíþjóð í 1.–3. sæti með um 6 látna einstaklinga á hverja 100 þúsund íbúa, en á Íslandi er sam- svarandi tala tíu, miðað við tölur frá 2002. Er Ísland í 12. til 13. sæti á 30 ríkja lista og hefur aldrei ver- ið eins aftarlega að sögn Gunnars. Að hans mati þarf að bæta við 3– 400 milljónum króna árlega í þennan málaflokk til að komast í fremstu röð á ný. Aðgerðir ríkis hafa haft áhrif Sturla Böðvarsson segir alveg ljóst að dregið hafi úr slysum á höfuðborgarsvæðinu, en það sé m.a. vegna aðgerða ríkisins til úr- bóta. Sturla bendir líka á að fjár- veitingar Umferðarstofu sam- kvæmt fjárlögum séu nú komnar upp í 430 milljónir króna og því til viðbótar sé kominn nýr liður á fjárlögum til umferðaröryggis- mála upp á 50 milljónir kr. Enn fremur fái Rannsóknarnefnd um- ferðarslysa 5 milljónir króna. Aukin löggæsla og aukin fræðsla er lykillinn að fækkun banaslysa að mati Óla H. Þórðar- sonar, formanns Umferðarráðs. Það skjóti skökku við að ökumenn hafi ekki tekið upp betra aksturs- lag eftir því sem vegakerfið hafi batnað, því nú aki menn einfald- lega hraðar á betri vegum með slæmum afleiðingum. Að hans mati var ákvörðun um að hækka hámarkshraða upp í 90 km/klst á þjóðvegum landsins ógæfuspor. Þeir sem starfi að umferðarörygg- ismálum séu afar daprir yfir þróun síðustu ára hérlendis þar sem góð- ur árangur hafi náðst á miðjum tí- unda áratugnum, en hann tapast niður um aldamótin. Allir sem vinni að umferðaröryggismálum vilji hins vegar gera betur og koma Íslandi aftur í röð þeirra landa þar sem slysatíðnin er minnst. Fréttaskýring |Umferðaröryggismál ríkis og borgar Banaslysum verði fækkað Skiptar skoðanir um frammistöðu stjórnvalda í umferðaröryggismálum Áherslan er á fjármagn, fræðslu og gæslu. Ísland í sömu stöðu og árið 1970 en aðrir bæta sig  Menn eru ekki á eitt sáttir um frammistöðu ríkisvaldsins í um- ferðaröryggismálum. Sam- gönguráðherra heldur því fram að ríkið eigi sinn þátt í fækkun umferðarslysa á höfuðborg- arsvæðinu, en Gunnar H. Gunn- arsson verkfræðingur telur ríkið hafa dregist langt aftur úr borg á þessu sviði. Hefur hann skorað á ríkið að bæta úr og fylgja for- dæmi Reykjavíkurborgar í þess- um efnum. orsi@mbl.is Fáðu fréttirnar sendar í símann þinn SPÁSTEFNA D A G S K R Á Kl. 8.30: Skráning og afhending gagna. Kl. 9.00: Spástefnan sett. Geir Haarde fjármálaráðherra: Árið 2005 - Fjárlögin og fyrirtækin. Róbert Wessman, forstjóri Actavis: Útrás Actavis og aðstæður næsta árs. Benedikt Jóhannesson, framkvæmdastjóri Heims: Árið 2005 - Væntingar og örvæntingar. Kl. 10.00: Kaffihlé í 30 mín. Arnór Sighvatsson, aðalhagfræðingur Seðlabankans: Aðstæður í þjóðarbúskapnum á næstu árum; spár Seðlabankans í ljósi könnunar ParX á meðal forstjóra stærstu fyrirtækja landsins. Þröstur Sigurðsson, fjármálaráðgjafi hjá ParX: Virðisauki til hluthafa í stærstu fyrirtækjunum. Verðfall hlutabréfa á næsta ári? Jón G. Hauksson, ritstjóri Frjálsrar verslunar: Listinn 300 stærstu - og líklegar sameiningar á árinu 2005. Fyrirspurnir í 15 mínútur. Lokaorð leynigests: Þekktur rithöfundur spáir í spéspegil viðskiptalífsins. Kl. 12.00: Létt hlaðborð - pinnamatur - í hádeginu í lok spástefnunnar. Spástefnustjóri: Ingimundur Sigurpálsson, formaður Samtaka atvinnulífsins. Dagurinn er útgáfudagur bókar Frjálsrar verslunar, 300 STÆRSTU. Verð hennar er 2.500 krónur og fá gestir spástefnunnar bókina að gjöf. Verð á spástefnuna er 7.500 krónur á mann. Skráning er í síma 580 4300, hjá Kristjönu Vilhelmsdóttur. Skráning á Netinu: www.parx.is ParX VIÐSKIPTARÁÐGJÖF OG FRJÁLS VERSLUN HALDA SPÁSTEFNU Á NORDICA HÓTELI FIMMTUDAGINN 7. OKTÓBER NK. Geir Haarde Ingimundur Sigurpálsson Róbert Wessman Benedikt Jóhannesson Arnór Sighvatsson Þröstur Sigurðsson Jón G. Hauksson ? Leynigestur Ómissandi fyrir áætlanagerð ÁRIÐ 2005 N E T L A U N A S E ‹ L A R Í Ö L L U M N E T B Ö N K U M 8. TBL. 2004 – VERÐ 2.495,- M/VSK ISSN 1017-3544

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.