Morgunblaðið - 05.10.2004, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 05.10.2004, Blaðsíða 16
Akureyri | Suðurnes | Austurland | Landið Minnstaður Höfuðborgarsvæðið Brjánn Jónasson, brjann@mbl.is, sími 569-1100. Suðurnes Helgi Bjarnason, helgi@mbl.is, sími 569-1310 og 669-1310. Akureyri Skapti Hallgrímsson, skap- ti@mbl.is, Margrét Þóra Þórsdóttir, maggath@mbl.is og Kristján Kristjánson, krkr@mbl.is, sími 461-1600. Vesturland Ásdís Haraldsdóttir, asdish@mbl.is, sími 898- 5258. Austurland Steinunn Ásmundsdóttir, austurland@mbl.is, sími 669-1115. Árborg- arsvæðið og Landið Guðrún Aðalsteinsdóttir, frett@mbl.is, sími 569-1290. Mínstund frett@mbl.is Orlofsferð húsmæðra í Norður- Þingeyjarsýslu stendur fyrir dyrum en leikhúsferð til Akureyrar varð að þessu sinni fyrir valinu. Þessar orlofsferðir eru gamall siður og fyrr á árum voru slíkar ferðir jafnvel eina tækifæri húsmæðra til að fá tilbreytingu eða skemmtiferð en flestar voru þá heimavinnandi. Fyrr á árum voru engar barnabætur frá hinu opinbera og ef- laust ekki mikill afgangur af tekjum heim- ilisins til persónulegra nota húsmóð- urinnar, sem gjarnan setti sínar þarfir og langanir aftast í forgangsröðina – og þótti jafnvel mikil dyggð á þeim tíma. Tekjur orlofsnefnda eru í formi nefskatts frá sveitarfélögum, samkvæmt lögum frá Alþingi, og var um 60 kr. á hvern íbúa sveit- arfélags hér í ár. Kvenfélagasamband Ís- lands skiptir landinu í orlofssvæði og starf- ar nefnd fyrir hvert svæði en Norður-Þingeyjarsýsla er eitt svæði. Or- lofsnefndir hafa ákveðnar vinnureglur, sem eflaust hafa verið endurskoðaðar í takt við breytta tíma en í einni grein segir að „starf orlofsnefndar sé þjónustustarf, sem vinna þarf af kostgæfni, þolinmæði og ánægju og mikilvægt að samvinna sé innan nefnd- arinnar“.    Nú eru breyttir tímar – húsmæður eru ennþá húsmæður en þeim er ekki jafn- þröngur stakkur sniðinn eins og kynsystr- um þeirra nokkrum áratugum fyrr. Enn í dag eru ferðirnar kærkomið tækifæri fyrir eldri húsmæður, sem í sumum tilfellum eru jafnvel orðnar einar, til að lyfta sér upp og fara í menningarlega „stelpuferð“ en héðan úr N-Þing. fara konur á öllum aldri, allt frá þrítugu upp í áttrætt og verður væntanlega mikill sómi sýndur þegar þær fjölmenna á Hótel KEA á Akureyri um næstu helgi.    Verkfall grunnskólakennara setur svip sinn á bæjarlífið hér á Þórshöfn líkt og ann- ars staðar á landinu. Stundakennarar og skólastjóri sinna kennslu 9. og 10. bekkjar og kenna aðeins það sem þeir að öllu jöfnu gera samkvæmt stundaskránni en ganga ekki í störf annarra. Það er von allra að vinnudeilan leysist sem fyrst en rótleysi er meðal nemenda og búast má við að átak verði fyrir marga þeirra að koma svefn- venjum á rétt ról þegar skóli hefst á ný. Úr bæjar- lífinu ÞÓRSHÖFN EFTIR LÍNEYJU SIGURÐARDÓTTUR FRÉTTARITARA Skógræktarfélögin áhöfuðborgarsvæð-inu standa fyrir opnu húsi í kvöld klukk- an 20. Samkoman verður í sal Ferðafélags Íslands í Mörkinni 6 í Reykjavík. Í upphafi mun skáldið Sjón (Sigurjón B. Sig- urðsson) flytja brot úr verkum sínum. Fyrirles- ari kvöldsins er Hörður Kristinsson sem mun fjalla um íslenskan fléttugróður og skóg- arfléttur. Þetta er fyrsti fundur vetrarins í fræðslu- samstarfi skógrækt- arfélaganna og KB- banka, að því er fram kemur í frétt á vef Skóg- ræktarfélags Íslands, skog.is. Það er Skóg- ræktarfélag Mosfells- bæjar sem sér um fund- inn. Allir eru velkomnir og er aðgangur endur- gjaldslaus. Opið hús Nemendur tíunda bekkjar í grunnskólum Fjarða-byggðar hafa ýmislegt fyrir stafni í verfallinu.Þeir hafa meðal annars tekið að sér að hreinsa fjörur við Eskifjörð. Hér eru nokkrir nemendur úr grunnskólanum á Eskifirði að sinna því verkefni og gera það með bros á vör. Morgunblaðið/Helgi Garðarsson Grunnskólanemar hreinsa fjörur Í könnun um hverjirtækju slátur í haustkom fram að það væru oft sveitamenn, óskólagengnir, láglauna- fólk og framsóknarmenn. Ólafur Stefánsson orti af því tilefni: Það þjóðlega verja þeir vaskir enn, þótt veki með öðrum hlátur, að helst eru fákænir framsóknarmenn, sem fást til að gera slátur. Kristján Eiríksson svar- aði því að Stephan G. hefði ekki sett samasemmerki milli óskólagenginna manna og fákænsku, en nefnt ómenntaða mennta- menn á einum stað „andleg ígulker ótal skólabóka“. Kristján yrkir: Siður forn í sveitum hér síst mér vekur hlátur þó að andleg ígulker ekki taki slátur. Erlingur Sigtryggsson yrkir: Uggur í mörgum er sagt að sé, sumir þó reki upp hlátur. Þingmönnum lógar, flokki og fé Framsókn – og tekur slátur. Ólíkur lífsstíll pebl@mbl.is Blönduós| Kylfingarnir Ari, Lúðvík og Fanney létu vindinn ekki aftra sér frá því að leika golf á Vatnahverfisvelli við Blönduós. Sjálfvirkur vind- hraðamælir rétt austan Blöndu- ós, mælir sem ekki er fjarri golf- vellinum, sýndi á bilinu 17–20 metra á sekúndu meðan þau léku holurnar 9 en hitinn var um 10 gráður. Skorið var viðunandi hjá þriðjungi leikmanna. Morgunblaðið/Jón Sigurðsson Gefast ekki upp þótt á móti blási Golf Landeyjar | Samið verður á næstunni við verktaka um byggingu nýrrar flugstöðvar á Bakkaflugvelli við Landeyjasand. Fram- kvæmdir hefjast fljótlega og á að ljúka fyrir næsta sumar. Völlurinn þjónar flugi til og frá Vestmannaeyjum. Ríkiskaup buðu út fyrir hönd Flugmála- stjórnar hönnun og byggingu fullbúinnar flugstöðvar á Bakka. Í byggingunni, sem verður um 240 fermetrar að stærð, er gert ráð fyrir aðstöðu til að veita flugfarþegum þjónustu og vélageymslu fyrir slökkvibíl. Tilboð voru opnuð í ágúst og reyndust þá öll tilboð yfir kostnaðaráætlun. Lægst var tilboð SG-húsa hf., tæplega 36 milljónir kr., en kostnaðaráætlun verkkaupa hljóðaði upp á 33,6 milljónir. Fjögur önnur tilboð bárust og voru þau á bilinu 44 til 57 milljónir kr. Samkvæmt upplýsingum sem fengust hjá Ríkiskaupum var óskað eftir því við verk- takana að gildistími tilboða yrði framlengd- ur til 12. október. Heildarkostnaður við verkið er áætlaður 44 milljónir kr. og er þar innifalinn kostn- aður við flutning brautarljósa. Gengið verð- ur til samninga við verktaka þegar staðfest- ing hefur borist frá samgönguráðuneytinu um að aukafjárveiting hefði fengist en bréf þess efnis mun vera á leiðinni, samkvæmt upplýsingum Flugmálastjórnar. Framkvæmd- ir gætu hafist fljótlega Ný flugstöð reist á Bakkaflugvelli Kelduhverfi | Bleikjueldi er að hefjast hjá laxeldisstöðinni Rifósi hf. í Lónum í Keldu- hverfi. Umhverfisstofnun hefur heimilað eldi á allt að 200 tonnum af bleikju í lón- unum. Á vef Kelduneshrepps kemur fram að þegar hafa verið keypt um 100 þúsund bleikjuseiði frá Hólalaxi í Hjaltadal og eru þau komin í hús hjá Rifósi. Þau eru blend- ingar af stofni úr Ölfusvatni á Skaga og Grenlækjarstofni. Þá er búið að panta 20 lítra af augnhrognum frá kynbótastöðinni á Hólum, en úr því klaki ættu að fást um 160 til 200 þúsund seiði sem fara úti í lónin vorið 2006. Ef allt gengur eftir áætlun verður farið að slátra bleikju síðla árs 2005. Eldi á bleikju hefst hjá Rifósi ♦♦♦

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.