Morgunblaðið - 05.10.2004, Page 39
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 5. OKTÓBER 2004 39
DAGBÓK
Félag íslenskra háskólakvenna hefur umárabil staðið fyrir fjölda námskeiða, m.a. íviðskiptaensku, um Netið, verðbréf, mál-verkaskoðun og dulhyggju í listum. Þá
hefur félagið staðið fyrir námskeiðinu „Að njóta leik-
listar“ sem fagnar nú tíu ára afmæli, en fá námskeið
hafa notið eins mikillar hylli. Í dag hefur námskeiðið
göngu sína með Úlfhamssögu í samvinnu við leik-
félag Maríu Ellingsen, Annað svið, en Úlfhamssaga
er sett upp í Hafnarfjarðarleikhúsinu Hermóði og
Háðvöru.
„Úlfhamssaga er fornaldarsaga, líklega frá fjór-
tándu öld, en varðveitt í rímum sem eru í handriti frá
sextándu öld,“ segir Geirlaug Þorvaldsdóttir, for-
maður Félags íslenskra háskólakvenna, og bætir við
að doktor Aðalheiður Guðmundsdóttir hafi unnið
doktorsritgerð sína um Úlfhamssögu og gaf Árna-
stofnun hana út árið 2001.
Leikstjóri Úlfhamssögu er María Ellingsen leik-
kona, en hún vann leikgerðina ásamt Snorra Frey
Hilmarssyni leikmyndahönnuði, Grétu Maríu Bergs-
dóttur dramatúrg og Andra Snæ Magnasyni rithöf-
undi ásamt öllum leikhópnum, sem samanstendur af
bæði reyndum og ungum og upprennandi leikurum.
„Þar má nefna Álfrúnu Helgu Örnólfsdóttur, Ragn-
heiði Steindórsdóttur og Kristján Franklín,“ segir
Geirlaug. „Eyvör Pálsdóttir semur tónlistina í leik-
verkinu og er hluti af leikhópnum í sýningunni.“
Hvernig er námskeiðinu háttað?
„Við hefjum námskeiðið á fyrirlestrum í kvöld og
næsta þriðjudagskvöld klukkan átta til tíu í Þing-
holti á Hótel Holti, sem er fyrirtaks funda-, ráð-
stefnu- og veislusalur. Fyrra kvöldið talar Að-
alheiður Guðmundsdóttur um verkið en seinna
kvöldið tala nokkrir af listrænum stjórnendum um
vinnuna við að gera Úlfhamssögu að leikverki. Þá
verður einnig farið á æfingu í þessari viku, en föstu-
dagskvöldið fimmtánda október mun hópurinn fara
saman á sýninguna. Þá verða pallborðsumræður eft-
ir leikritið. Diskur með rímunum, sem Aðalheiður
hefur sett á nútímamál og Steindór Andersen kveð-
ur fylgir með námskeiðinu.
Hvað fær fólk út úr þessu námskeiði?
„Það er skemmtilegra að fara á leiksýningu og
viss dýpri ánægja sem það fær út úr þessu. Fólk er
leitt inn í sýninguna með ákveðnum pakka af fróð-
leik. Fólk nýtur þess öðruvísi. Þegar maður er búinn
að sjá sýningu finnst mér maður oft vera kominn í
hálfleik. Þá er eftir að ræða sýninguna og skoða
hana ofan í kjölinn með fagfólki og líka með næsta
manni. Það er svo félagslegt að fara í leikhús og hafa
einhvern til að tala við um sýninguna á eftir.“
Þess skal að lokum getið að öll námskeið og fyr-
irlestrar á vegum félagsins eru opin öllum almenn-
ingi. Skráning er hjá formanni félagsins í tölvu-
pósti: geirlaugth@yahoo.com.
Leiklist | Námskeið Félags íslenskra háskólakvenna um Úlfhamssögu
„Félagslegt að fara í leikhús“
Geirlaug Þorvalds-
dóttir er fædd í Reykja-
vík árið 1939. Hún lauk
stúdentsprófi frá MR
og prófi í latínu frá HÍ.
Þá lauk Geirlaug einnig
prófi frá Leiklistarskóla
Þjóðleikhússins.
Geirlaug hefur um ára-
bil starfað sem kennari
við Menntaskólann við
Hamrahlíð og einnig
gegnt embætti formanns Félags íslenskra há-
skólakvenna, sem stofnað var 1928. Hún á tvö
uppkomin börn, Þorvald og Ingibjörgu.
Hvernig farið er með kettina
ÉG er búsett í Njarðvíkum og er ein
af kattareigendum á Suðurnesjum.
Það er bæjarstjóra og bæjaryf-
irvöldum ekki talið til tekna hvernig
er farið með kettina í bænum. Þeir
eru fangaðir í búr og guð má vita
hversu lengi aumingja dýrin eru lát-
in dúsa þar. Nú fer veturinn að
skella á með frosti og snjó. Hvernig
ætli verði tekið á því þá? Ég skamm-
ast mín fyrir þá aðila sem standa að
slíkum vinnubrögðum, einungis svo
að eigendur kattanna borgi meiri
peninga til bæjarins því bæjarsjóður
er víst tómur og það munar um
hverja krónu þar á bæ.
Jæja, ef við sem höfum kosninga-
rétt látum bjóða dýrunum okkar upp
á þvílíka meðferð þá erum við ekki
fær um að eiga dýr.
Það verður örugglega harður
slagur í næstu bæjarstjórnarkosn-
ingum og það styttist alltaf í þann
slag og ég skora á bæjarstjóra að
hætta þessum aðgerðum og það
strax. Það er ekki víst að stuðningur
liggi á lausu ef þessi aðferð verður
viðhöfð öllu lengur.
Kveðja,
Ingigerður Guðmundsdóttir.
Nóg komið af verkfalli
ÉG er komin með nóg af verkfallinu.
Ég ætla að kvarta. Ég vil ekki þetta
verkfall. Sveitarfélögin eru leiðinleg
við börn af því að þau létu kennara
fara í verkfall. Ég legg til að sveit-
arfélögin gefi kennurum hærri laun
– annars kvarta ég aftur og aftur og
aftur og aftur. Ég hata verkfall. Ég
vil komast í skólann minn strax.
Karen Eik Þórsdóttir, 8 ára.
Gleraugu í óskilum
GLERAUGU með blárri umgjörð
fundust á tískusýningu hjá Prjóna-
blaðinu Ýri á Hótel Sögu sl. mið-
vikudagskvöld. Uppl. hjá Prjóna-
blaðinu Ýri í síma 565 4610.
Úr í óskilum
ÚR fannst í biðskýli á Nýbýlavegi sl.
fimmtudag. Upplýsingar í síma
696 2193 eða 564 2554.
Regatta-úlpa tekin
í misgripum
FÖSTUDAGINN 1. október tók ég
rangan jakka (of lítinn) líklegast við
opnun Ostadaganna í Smáralind. Sú
sem er með of stóra, ljósa Regatta-
úlpu með ljósbláu fóðri vinsamlegast
hafi samband við Önnu í s. 692 5055.
Velvakandi
Svarað í síma 5691100 frá 10–12
og 13–15 | velvakandi@mbl.is
Opnunartími:
Mán.-fös. kl. 11-18, lau. kl. 11-14
Hverafold 1-3 • Torgið Grafarvogi • Sími 577 4949
Skipagötu 5 • Akureyri • Sími 466 3939
Hauttilboð
Nýir bolir
Nýjar skyrtur
Tvö verð
1.500
&
1.900 kr.
SNÆDÍS ANNA
HAFSTEINSDÓTTIR
hefur hafið störf á húðmeðferðar- og
snyrtistofunni casa decor í Kringlunni.
Gamlir og nýir
viðskiptavinir velkomnir.
Kringlunni 4-12 • 3. hæð • Sími 588 0909
Tímapantanir í síma 588 0909
1. e4 g6 2. d4 Rf6 3. e5 Rh5 4. g4 Rg7 5.
Bg2 d5 6. h3 e6 7. Rf3 c5 8. dxc5 Bxc5 9.
c3 Bd7 10. 0-0 Bb5 11. He1 0-0 12. a4
Bc6 13. Rbd2 a6 14. Rb3 Bb6 15. Bg5
Dc7 16. Dd2 Rd7 17. Rbd4 Rc5 18. Bf6
Re4
Staðan kom upp á Norðurlandamóti
taflfélaga á Netinu sem lauk fyrir
skömmu. Roar Elseth (2.349) hafði hvítt
gegn Thomas Christensen (2.247). 19.
Hxe4! dxe4 20. Dh6 Re8 21. Rg5 Rxf6
22. exf6 Bxd4 23. Dg7#. Taflfélagið
Hellir bar sigur úr býtum í keppninni en
lokastaðan varð þessi: 1.–2. Taflfélagið
Hellir og Asker Schakklubb 20½ vinn-
ingur af 30 mögulegum 3. Skakklubben
af 1968 19 v. 4. Schackklubben Rocka-
den 16 v. 5. Matinkylan Shakkierhon 8
v. 6. Klaksvíkar Talvfelag 6 v.
SKÁK
Helgi Áss Grétarsson | dagbok@mbl.is
Hvítur á leik.
Í KVÖLD munu tangótónar óma um
sali Iðnó, en komið er að tangókvöldi
í boði Tangósveitar lýðveldisins, sem
hefur nú staðið fyrir mánaðarlegum
tangókvöldum í Iðnó í rúmt ár við sí-
vaxandi vinsældir.
Nú geta tangóþyrstir dansarar,
leikir og lærðir, í senn notið leið-
sagnar dansara og tónlistar Tangó-
sveitarinnar.
Húsið er opnað klukkan átta og
verður fyrsta klukkutímann boðið
upp á leiðsögn, en klukkan níu stíg-
ur Tangósveit lýðveldisins á stokk
og leikur til kl. 23:00. Sveitin er skip-
uð þeim Hjörleifi Valssyni fiðluleik-
ara, Tatu Kantomaa bandoneonleik-
ara, Ástvaldi Traustasyni
harmónikuleikara, Vigni Þór Stef-
ánssyni píanóleikara og Gunnlaugi
T. Stefánssyni kontrabassaleikara.
Hjörleifur segir metnað Tangó-
sveitarinnar að geta boðið borg-
arbúum upp á lifandi tangótónlist af
sem fjölbreyttustu tagi. „Það er
mjög mikilvægt fyrir okkur að geta
alltaf boðið upp á þennan valkost í
menningarflórunni,“ segir Hjörleif-
ur. „Það er gaman að sjá að vinsæld-
ir tangókvöldanna fara ört vaxandi.
Tangó og Íslendingar eiga nátt-
úrulega samleið, það er ekki spurn-
ing. Svo er þetta líka dálítið óvenju-
legt að á þriðjudagskvöldi sé lifandi
tangósveit að spila í miðborginni.
Það er nokkuð sem ekki hefur verið
áður. Við Íslendingar erum mikið
öldurhúsa- og næturlífsfólk, þannig
að þetta er eins og allt annar heim-
ur. Fólk verður allt miklu siðmennt-
aðra en engu að síður ólgandi af
ástríðu og funa.“
Tangótónar í kvöld
Tangósveit lýðveldisins heldur annað tangókvöld vetrarins í Iðnó í kvöld.
Morgunblaðið/Golli
Fáðu úrslitin
send í símann þinn