Morgunblaðið - 20.10.2004, Page 12

Morgunblaðið - 20.10.2004, Page 12
12 MIÐVIKUDAGUR 20. OKTÓBER 2004 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR LYKILATRIÐIÐ í að ná fram jöfn- uði kynjanna, bæði hvað laun og stjórnunarstöður varðar, er að breyta viðhorfi fólks og þá ekki síst kvenna til sjálfra sín og þarf það að gerast bæði inni á heimilunum og í skólakerfinu. Þetta kom fram í máli Ingu Jónu Þórðardóttur, viðskipta- fræðings og fyrrverandi formanns Kvenréttindafélags Íslands, á há- degisverðarfundi um kynbundinn launamun og stöðu kvenna í atvinnu- lífinu sem Landssamband sjálfstæð- iskvenna boðaði til í Iðnó í gær. Auk Ingu Jónu tóku til máls Helga Guð- rún Jónasdóttir, formaður Lands- sambands sjálfstæðiskvenna, og Alda Sigurðardóttir, fræðslu- og kynningarstjóri VR, en fundarstjóri var Ásta Möller varaþingmaður. Í máli Ingu Jónu kom fram að hún skildi vel afstöðu ungra kvenna sem fyndist allt of lítið hafa miðað í jafn- réttisbaráttunni á umliðnum árum. Hins vegar væri hollt að líta til baka og hamra á því sem vel hefði gengið. Einnig væri mikilvægt að skilja for- söguna, ekki síst til að leita skýringa á því hvað ýtti undir jafnréttisþró- unina til þess að hægt væri að búa til hreyfiafl svo þróunin gæti gengið hraðar fyrir sig. Inga Jóna velti upp þeirri spurningu hvernig atvinnu- rekendum dytti yfir höfuð í hug semja við konur um lægri laun en karla. Hún sagði að svörin sem hún fengi væru að það kostaði ekkert að ganga framhjá konum meðan það kostaði vesen og uppsteyt að ganga framhjá körlum. Að mati Ingu Jónu þarf vinna að grundvallarviðhorfs- breytingu kynjanna strax frá bernsku og þurfi það að gerast bæði inni á heimilunum og í skólunum. „Það er staðreynd að stúlkur og konur virðast ekki hafa nægilegt sjálfstraust fyrir sína hönd til jafns við karla. Þess vegna dreg ég þá ályktun að uppeldið þurfi að miða að því að efla sjálfstraust stúlkna og ala þær upp í að vera gerendur. Í dag eru þær aldar upp í því að vera prúð- ar og stilltar, umburðarlyndar og til- litssamar.“ Hún taldi skólakerfið hafa brugðist hrapallega í þessu til- liti þar sem stúlkum væri haldið niðri á öllum stigum skólakerfisins, þó að ómeðvitað og ókerfisbundið væri. „Þarna liggur að mínu viti rík- asta ástæðan fyrir því að þróunin gengur svona hægt, þó að þetta sé ekki eina skýringin.“ Hjallastefnan merk leið Að mati Ingu Jónu er Hjallastefna Margrétar Pálu Ólafsdóttur ein merkasta leiðin sem fram hefur komið á síðustu árum til að tryggja jafnan rétt karla og kvenna. Í framsögu Helgu kom fram að hún telur þolinmæði kvenna gagn- vart kynbundna launamisréttinu vera að verða þrotna og hún myndi vilja sjá meiri árangur strax, ekki síst í ljósi þess að umræðan um jöfn laun kynjanna hefur nú staðið yfir áratugum saman. Helga tók fram að þó að hún vildi sjá árangur fljótt væri hún ekki fylgjandi því að gripið væri til handstýrðra aðgerða. Hún sagðist heldur ekki vilja lögbundna kynjakvóta þar sem þeir væru að hennar mati aðeins sýndarlausn. Alda fór yfir niðurstöður síðustu launakönnunar VR sem nýverið var birt. Að mati Öldu er hið árlega launaviðtal eitt besta tækið sem konur hafa til að leiðrétta kyn- bundna launamuninn því samkvæmt athugunum hafa launaviðtölin komið vel út fyrir konur og fengu 63% þeirra kvenna sem fóru í launaviðtöl í fyrra bætt kjör í einhvers konar formi. Fundur Landssambands sjálfstæðiskvenna um kynbundinn launamun og stöðu kvenna í atvinnulífinu Auka þarf sjálfs- traust kvenna Morgunblaðið/Golli Helga Guðrún Jónasdóttir, Alda Sigurðardóttir, Inga Jóna Þórðardóttir og Ásta Möller á hádegisverðarfundi Landssambands sjálfstæðiskvenna. HAFRANNSÓKNASTOFNUNIN leggur til að ekki verði leyfðar veiðar á innfjarða- rækju í Arnarfirði og Ísafjarðardjúpi að svo stöddu. Þetta kemur fram í niðurstöðum haustkönnunar stofnunarinnar á rækjumið- unum á Vestfjörðum. Rækja fannst á mjög takmörkuðu svæði norðan Langaness í Arnarfirði og var heild- arstofnvísitala og vísitala kvendýra langt undir meðaltali. Stærð rækju var einnig undir meðallagi miðað við haustkönnun 2003. Mjög mikið var af þorski, ýsu og lýsu í öllum firðinum að undanskildu svæði norð- an Langaness þar sem rækjan hélt sig. Rækjan var því mjög aðþrengd vegna þorsks í næsta nágrenni. Talið er að jafnvel takmarkaðar rækjuveiðar kunni að auka verulega líkur á hruni stofnsins, t.d. með því að dreifa rækjunni og gera hana þannig aðgengilegri fyrir þorsk og annan fisk. Haf- rannsóknastofnunin hefur því lagt til að rækjuveiðar verði ekki leyfðar í Arnarfirði að svo stöddu. Aldrei jafnlítið af rækju í Ísafjarðardjúpi Nánast engin rækja fannst í Ísafjarðar- djúpi. Frá því kannanir hófust í Ísafjarð- ardjúpi hefur aldrei fengist jafnlítið af rækju. Hins vegar var þorskur, ýsa og lýsa um allt Djúpið. Undanfarna þrjá vetur hef- ur verið mikið af þorski og ýsu í Djúpinu og voru engar rækjuveiðar leyfðar þar vet- urinn 2003–2004. Vonir stóðu til að með lok- uninni tækist rækjustofninum að halda velli þrátt fyrir mikinn fjölda afræningja. Nú er hins vegar ljóst að þessi mikla fiskgengd hefur að líkindum leitt til hruns rækju- stofnsins í Ísafjarðardjúpi. Hafrannsóknastofnunin hefur lagt til að rækjuveiðar verði ekki leyfðar í Ísafjarð- ardjúpi veturinn 2004–2005. Lítið af rækju fyrir vestan Öll mið lokuð Innfjarðarækjuveiði verður ekki stunduð á neinum miðum í vetur, verði til- laga Hafrannsóknastofnunarinnar um veiðibann í Arnarfirði samþykkt. ALÞJÓÐA hafrannsóknaráðið (ICES) mælir með því að mjög verði dregið úr veiði á þorski og öðrum fiskitegundum í Norðursjó og þorskveiðum verði jafnvel hætt til að gefa stofnunum tóm til að ná sér. „Enn sem komið er sjást engin merki um að þorskstofnar í Norðursjó, Írska hafi og vestur af Skotlandi séu að ná sér. Það virðist sem enn sé veitt of mikið úr þessum stofnum,“ sagði David Griffith, framkvæmdastjóri ICES eftir fund ráðs- ins í Björgvin í Noregi. Evrópusambandið hefur þegar takmarkað nokkuð þorskveiðar því bannað er að veiða tíma- bundið á ákveðnum svæðum meðan á hrygning- artíma stendur og veiðikvótar hafa verið skornir mikið niður. Í yfirlýsingu ICES eru ítrekuð tilmæli um að þorskveiðar í Norðursjó, Írska hafi og vestur af Skotlandi, verði bannaðar. Segir ICES að þorskstofninn sé í verulegri hættu og mælist aðeins um 46 þúsund tonn en hættumörk eru miðuð við 150 þúsund tonn. Í yfirlýsingu ICES segir einnig, að ýsustofninn í Norðursjó hafi mælst um 460 þúsund lestir og hafi ekki verið stærri í þrjá áratugi. Hins vegar benti ráðið á að þorskur væri oft meðafli á ýsuveiðum og sjávarútvegurinn þyrfti að finna leiðir til að draga úr slíku. ICES mælti einnig með því að lýsingur yrði ekki veiddur í suðurhluta Biskæjaflóa vegna ofveiði. Þá mælir ICES með því að kolakvóti í Norðursjó verði minnkaður um 55% og sandsílakvóti um 40%. ICES gefur út ráðleggingar tvisvar á ári. Í ráðinu sitja um 1600 vísindamenn frá Íslandi, Belgíu, Danmörku, Kanada, Eistlandi, Danmörku, Finnlandi, Frakklandi, Þýskalandi, Írlandi, Lett- landi, Hollandi, Noregi, Póllandi, Rússlandi, Spáni, Svíþjóð, Bretlandi og Bandaríkjunum. Vilja enn draga úr veiði í Norðursjó ALLS hafa níu bátar haft leyfi til inn- fjarðarækjuveiða í Arnarfirði. Einn þeirra er Ýmir BA og segir útgerðarmaðurinn, Sindri Már Björnsson, að veiðibann þýði rot- högg fyrir margar útgerðir. „Rækjuveiðarnar eru lifibrauð okkar á veturna, fæstir hafa í annað að hverfa. Það koma reyndar til bætur til útgerðanna en þær koma ekki fyrr en á næsta ári. Það kann að vera of seint, því afkoman í rækju- iðnaðinum hefur verið afar slök og ég er ekki viss um að allir hafi bolmagn til að bíða í heilt ár. Þetta getur því verið algjört rot- högg fyrir marga.“ Sindri Már segir bátana almennt mann- aða heimamönnum á Bíldudal og því ljóst að veiðibann mun hafa slæm áhrif á atvinnulíf byggðarinnar. „En við höfum svo sem ekki gefið upp alla von, nú erum við bara að bíða. Okkur er sagt að veiðar verði ekki leyfðar að svo stöddu. Hvað það þýðir verður síðan að koma í ljós.“ Arnarfjörður var eina veiðisvæðið þar sem heimilaðar voru innfjarðarækjuveiðar á síðasta ári og segir Sindri Már að þá hafi verið ágætis aflabrögð en þá hafi reyndar verið veiði á tiltölulega takmörkuðu svæði. Hann segir að ástand rækjustofnsins í Arn- arfirði hafi aldrei verið jafn slæmt og nú, að minnsta kosti ekki frá því að rannsóknir hófust. „Fiskifræðingarnir segja okkur að þetta sé vistfræðileg breyting, hlýnun sjáv- arins veldur því að fiskurinn flæðir yfir allt. Menn hafa séð nákvæmlega sömu þróun á öllum innfjarðarækjumiðunum, rækjan þjappast saman og hverfur síðan.“ Rothögg ÚR VERINU ENN er langt í land að einn sameig- inlegur norrænn fjarskiptamarkaður myndist. Mun dýrara er að hringja milli norrænu landanna en innan ein- stakra landa. Þetta hefur meðal ann- ars áhrif á ákvarðanir íbúa um að starfa hjá annari Norðurlandaþjóð og dregur úr samþættingu landanna. Þetta er meðal þess sem kemur fram í skýrslu norrænna samkeppn- isyfirvalda, „Competition in the Nordic Telecommunications Sectors“ og kom út í fyrradag. Norræna ráð- herranefndin styrkti verkefnið og lögðu samkeppnisyfirvöld í Dan- mörku, Finnlandi, Íslandi, Noregi og Svíþjóð hönd á plóginn við vinnslu þess. Í skýrslunni er lögð áhersla á að fylgjast þurfi náið með fjarskipta- mörkuðum. Nauðsynlegt sé að grípa strax til aðgerða vegna misnotkunar á markaðsráðandi stöðu til þess að tryggja virka samkeppni. Fjarskipta- mörkuðum Norðurlanda er lýst og þeir bornir saman. Samanburðurinn sýnir að innanlandssímtöl, bæði í tal- síma og farsíma, eru nokkuð ódýrari hér á landi en annars staðar á Norð- urlöndum. Símtöl til útlanda eru nokkuð dýr hér á landi samanborið við aðrar Norðurlandaþjóðir. Sú framtíðarsýn er sett fram í skýrslunni að mynda samnorrænan fjarskiptamarkað þar sem ekki verð- ur merkjanlegur munur á því að hringja innanlands eða til annarra Norðurlanda. Nauðsynlegt þykir að fjarlægja ýmsar hindranir á fjar- skiptamörkuðum til að ná því mark- miði. Ætla samkeppnisstofnanir Norðurlandanna að efla samstarf sín í milli og eins gagnvart fjarskiptastofn- unum í þessu skyni. Skýrsla norrænna samkeppnisyfir- valda um fjarskiptamarkaðinn Ódýrast að hringja innan- lands á Íslandi ENGINN hafði í gærkvöldi boðið í tvær íslenskar fálkaorður sem hafa verið til sölu á uppboðsvefnum ebay.com í um eina viku. Af hálfu seljanda er gerð krafa um lág- marksboð að upphæð 100.000 krón- ur fyrir þá eldri en um 70.000 krón- ur fyrir þá yngri. Seljandinn er myntsafnarabúð í Vancouver í Kan- ada og er fullyrt á uppboðssíðunni að orðurnar séu ekta. Að sögn Vigdísar Bjarnadóttur, deildarstjóra hjá forsetaembættinu, er um að ræða riddarakross hinnar íslensku fálkaorðu og hins vegar stórriddarakross. Riddarakrossinn var veittur fyrir stofnun lýðveldisins og er á honum kóróna og ártalið 1918. Á stórridd- arakrossinum er engin kóróna og ártalið 1944. Ártölin eru þó einungis táknræn og segja ekki til um hve- nær orðurnar voru veittar, að öðru leyti en því að sú eldri var veitt fyr- ir 1944 en sú yngri eftir stofnun lýð- veldis. Lítill áhugi á íslenskum fálkaorðum á Netinu

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.