Morgunblaðið - 21.12.2004, Side 1
„Guð“ og
gítarhetjurnar
Crossroad-gítarhátíð Claptons
á mynddiskum | Menning 54
STOFNAÐ 1913 348. TBL. 92. ÁRG. ÞRIÐJUDAGUR 21. DESEMBER 2004 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS mbl.is
Íslensk framleiðsla skipar mikilvægan sess í þjóðlífinu
og mun í vaxandi mæli standa undir velferð þjóðarinnar.
Handverk
víkinganna
Óvenjuleg hönnun á boðstólum í
Bakarabrekkunni | Daglegt líf 27
Ronaldinho er kóngurinn
Ákvað að verða bestur í
heimi Ásthildur á réttri leið
EINN af leiðtogum ísraelskra landtöku-
manna á Gaza hefur hvatt þá til að rísa upp
og berjast gegn væntanlegum brottflutn-
ingi, jafnvel þótt það kunni að koma þeim í
fangelsi. Pinchas Wallerstein, fyrrverandi
leiðtogi Yesha-gyðingabyggðarinnar á
Gaza, hefur sent öðrum landtökumönnum
bréf þar sem hann skorar á þá að berjast
gegn væntanlegum brottflutningi og þeim
„glæp“ að uppræta byggðir Ísraela á Gaza.
Ætlaði stjórn Yesha-byggðarinnar að ræða
þessa tillögu í gær en almennt voru heldur
lítil viðbrögð við henni.
Samkvæmt lögunum sem Ísraelsþing
samþykkti um brottflutninginn frá Gaza
getur það varðað þriggja ára fangelsi að
berjast gegn honum.
Deilt um stöðu Peresar
Búist er við, að gengið verði frá myndun
samsteypustjórnar Likudflokks Ariels
Sharons forsætisráðherra og Verkamanna-
flokksins í vikunni eða þegar Verkamanna-
flokkurinn hefur ákveðið hvaða menn skuli
skipa ráðherraembættin átta, sem hann
fær. Raunar hefur staðið nokkur styr um
stöðu Shimons Peresar, leiðtoga Verka-
mannaflokksins, en samið var um, að hann
yrði aðstoðarforsætisráðherra. Ehud
Olmert, sem nú gegnir þeirri stöðu, hefur
hins vegar þráast við að gefa hana eftir.
Ekki er þó talið, að á því muni stranda.
Sharon segist ekki ætla að taka þátt í
ráðstefnu um Mið-Austurlönd, sem Tony
Blair, forsætisráðherra Bretlands, hefur
beitt sér fyrir og verður líklega haldin eftir
áramót. Röksemd Sharons er, að á ráð-
stefnunni megi aðeins ræða um umbætur í
stjórn- og efnahagsmálum Palestínumanna
en ekki deilur þeirra og Ísraela.
Boða andóf
landtöku-
manna
Jerúsalem. AP, AFP.
Drengur í rústum húss sem Ísraelar brutu
niður á Gaza til að hefna fyrir árásir Pal-
estínumanna á landtökumenn gyðinga.
Reuters
LÍFTÆKNIN mun á næstu árum
gera kleift að breyta gæludýrum, að
sögn vefsíðu danska blaðsins Jyl-
landsposten. Þegar er búið að klóna
kött en blaðið segir að nú sé ætlunin
að „lagfæra“ genamengið og bjóða
upp á kött sem ekki veldur umtals-
verðu ofnæmi hjá fólki.
Milljónir manna um allan heim
geta ekki verið innan um ketti sakir
ofnæmis, ekki síst fólk með astma.
Orsök ofnæmisins er sérstakt prótín
í húð og slefu kattanna. Simon Brod-
ie, forstjóri fyrirtækisins Allerca í
Kaliforníu, segir að í síðasta lagi ár-
ið 2007 muni verða hægt að „loka“
geninu sem veldur ofnæminu og
klóna síðan dýrið. Verður þá prót-
ínframleiðslan í kettinum svo lítil að
hún mun ekki angra fólk að ráði.
Búast má við að hægt verði að fá
breytt og endurbætt gæludýr af
ýmsu tagi á næstu áratugum. Þegar
er búið að föndra við gen í vinsælum
skrautfiski og er nú hægt að fá hann
sjálflýsandi.
Verða til kettir án ofnæmis?
Morgunblaðið/Þorkell
GEORGE W.
Bush Banda-
ríkjaforseti
varði í gær Don-
ald Rumsfeld
varnarmálaráð-
herra og sagði
hann hafa staðið
sig afar vel í
embættinu.
Sagðist forsetinn hafa orðið mjög
ánægður þegar Rumsfeld sam-
þykkti að halda áfram í embætti
eftir að Bush var endurkjörinn.
„Og ég bað hann um að vera
áfram af því að ég veit hvers konar
starf þetta er … og ég tel að hann
hafi staðið sig virkilega vel í því,“
sagði Bush á fréttamannafundi í
Washington. Rumsfeld hefur verið
gagnrýndur harkalega, þar á með-
al af áhrifamiklum repúblikönum,
fyrir að hafa gert afdrifarík mistök
varðandi skipulagningu Íraks-
stríðsins og vegna eftirmála þess.
„Ég þekki hjartalag Rums-
felds,“ sagði Bush. „Ég veit að
hann getur kannski stundum virst
óheflaður en innst inni er þessi
óheflaði og jarðbundni maður væn
manneskja sem lætur sér annt um
herinn og tekur mjög nærri sér þá
sorg sem stríð veldur.“
Hrósar
Rumsfeld
Washington. AP, AFP.
George W. Bush
Farið að/20
Í GÆRKVÖLDI komu Norðfirð-
ingar saman til að minnast þess að
þá voru 30 ár liðin síðan tólf
manns létust í hörmulegum snjó-
flóðum í þorpinu 20. desember
1974.
Kyrrðarstund var haldin í lysti-
garðinum, við minnismerki um þá
sem létust í snjóflóðunum. Þar var
kveikt á tólf kyndlum, einum fyrir
hvern þann sem fórst í flóðunum.
Að kyrrðarstundinni lokinni var
haldið til kirkju þar sem séra Sig-
urður Rúnar Ragnarsson færði
Norðfirðingum kveðjur frá séra
Svavari Stefánssyni, fyrrverandi
sóknarpresti í Neskaupstað, og
þeim er höfðu verið við bænastund
í Fella- og Hólakirkju í Reykjavík
fyrr um daginn. Minnst var þeirra
tólf er létust í snjóflóðunum og
beðið fyrir þeim og ættingjum
þeirra sem eiga um sárt að binda
sérstaklega á þessum árstíma.
Morgunblaðið/Kristín Ágústsdóttir
Snjóflóða í Neskaupstað minnst
Neskaupstað. Morgunblaðið.
ÞRÁTT fyrir viðvaranir heilbrigðisyfirvalda
hefur notkun þunglyndislyfsins Paroxetín farið
vaxandi meðal ungmenna yngri en 19 ára að
undanförnu.
Athugun Tryggingastofnunar ríkisins (TR) á
kostnaði vegna þunglyndislyfja leiðir í ljós að
notkun á lyfjaflokki þunglyndislyfja fyrir börn
og unglinga sem varað hefur verið við jókst á
tímabilinu janúar til nóvember á þessu ári frá
sama tíma í fyrra. Útgjöld Tryggingastofnunar
vegna þessa lyfjaflokks jukust um 15% á tíma-
bilinu. Notkun á öðrum þunglyndislyfjum í ald-
urshópnum 19 ára og yngri minnkaði hins veg-
ar á sama tíma.
an. Notkun í aldurshópnum 5–9 ára minnkaði
en engin breyting varð í aldurshópunum 10–14
og 1–4 ára.
8% aukin útgjöld vegna þunglyndislyfja
Útgjöld TR vegna þunglyndislyfja hér á
landi hafa aukist verulega á árinu. Á tímabilinu
frá janúar til nóvember í ár jukust útgjöld TR
vegna þessara lyfja um 8% frá sama tímabili í
fyrra. Skv. upplýsingum Tryggingastofnunar
stafar útgjaldaaukningin aðallega af aukinni
notkun lyfja í tveimur flokkum en ekki er um
verðhækkanir að ræða nema í einum lyfja-
flokki.
Sett hefur verið upp viðvörun á heimasíðu
Lyfjastofnunar um notkun lyfsins Paroxetíns
en það lyf tilheyrir lyfjaflokki fyrir börn og
unglinga með sjálfsvígshugsanir.
Landlæknisembættið og Lyfjastofnun sendu
sl. sumar dreifibréf til lækna vegna mikillar
umræðu víða um heim um mögulega hættu við
notkun þessa lyfjaflokks hjá börnum og ung-
lingum.
Í ljósi þessa bar TR saman notkun þung-
lyndislyfja á milli áranna 2003 og 2004 eftir
aldursbili. Í ljós kom að notkun lyfjanna í ald-
urshópnum 15 til 19 ára fyrstu ellefu mánuði
ársins jókst miðað við sama tímabil árið á und-
Notkun á varasömu lyfi
eykst meðal ungmenna
Varað við mögulegri hættu af þunglyndislyfinu Paroxetín
Íþróttir í dag