Morgunblaðið - 21.12.2004, Qupperneq 35

Morgunblaðið - 21.12.2004, Qupperneq 35
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 21. DESEMBER 2004 35 UMRÆÐAN                                     Suðurveri • Glæsibæ • Húsgagnahöllinni • Mjódd Gómsætar kynningar alla daga fram að jólumFalleg hönnun fyrir dömur og herra Nýkomin mörg spennandi módel. Demantsskartgripir Handsmíðaðir gullskartgripir. í Mjódd • S: 557 9060 Jólavörurnar komnar Frábærir Ítalskir götuskór með dempun í hæl fyrir dömur og herra Ekta leður Skóbúðin Mjódd sími 557-1291 Mikið úrval af úrum frá FOSSIL verð frá 6.900.- í Mjódd S: 567 3550 BRÉF TIL BLAÐSINS Morgunblaðið, Kringlunni 1, 103 Reykjavík  Bréf til blaðsins | mbl.is JÆJA, nú á að fara fram önnur sorphirðutilraun hjá okkur Reyk- víkingum. Nú geta þeir sem eru með fáa í heimili fengið græna tunnu og borgað helmingi lægra verð. Það fyndna í þessu er að borgin læddi inn hækkun á sorp- hirðu frá 7.478 kr. í 9.700 kr. sem síðan er hægt að lækka um helming ef sú græna er tek- in. Fyrir um tveim- ur árum var svo- kölluðum álfa-álflipa smellt á ruslatunnuna hjá íbúum í sérvöldum hverfum með það að markmiði að minnka sorphirðu og hvetja til enn frekari flokkunar. Álfakerfið átti að virka þannig að þeg- ar tunnan þarfnaðist tæmingar átti að snúa álfaflipanum yfir þar sem á stóð að losunar væri þörf. Þannig tóku t.d. sorphirðumenn þessu álfaflipa-fyrirkomulagi full alvar- lega í upphafi, að sjálfsögðu með ströng fyrirmæli að ofan, því ef álfinum hafði ekki verið flippað yf- ir á tilsettum tíma og tunnan orðin full þá var tunnan samt ekki tæmd! Með tímanum missti álf- urinn merkingu sína og hefur flip- inn verið fjarlægður. Nú er komið að grænu tunnunum og svörtu tunnunum. Svörtu tunnurnar hafa frá upphafi verið ákaflega þægileg- ar og flestir notendur verið ánægð- ir, ekki hvað síst með að þær eru á hjólum og hægt er að loka þeim. Grænu tunnurnar eru eins, fyrir utan litinn, en fyrirkomulagið virk- ar svolítið skringilega á mig því í fyrsta lagi finnst mér þetta ekki bera vott um fjölskylduvæna að- ferð vegna þess að nú græða þeir sem þola hálfsmánaðar tæmingu. Í minni fjöl- skyldu (6 manna) var frá upphafi tekinn full- ur þáttur í flokkun, þ.e. allt sem hægt var að setja í aðgreinda gáma; batterí, mjólkurfernur, dagblöð, pizzukassar, öldósir, glerkrukkur og hvaðeina, var sett í þá, en við þurfum samt að fá tunnutæmingu á vikufresti. Þessi tilraun á eingöngu við einbýli, raðhús og parhús en ekki stærri fjölbýli. Við (fjölskyldan) viljum með þessari stuttu grein mótmæla mismunun á fjölskyldustærðum í sorphirðu- málum Reykvíkinga. P.s. Sagt er af þeim sem „sjá“ að flestir álfar séu fluttir úr Reykjavík, vonandi helst Reykja- víkurborg betur á okkur mönn- unum. EINAR BJARNASON, Tungubakka 12, 109 Reykjavík. Reykjavík og grænu tunnurnar Frá Einari Bjarnasyni ÞAÐ ER augalaus bylur í Svínadaln- um, Brattabrekka er ófær og hver sá sem lagði á Möðrudalsöræfi er áreið- anlega þar sem hann er niðurkominn með snjóveggi á báðar hliðar sem samsvara góðri þriggja hæða blokk í Reykjavík. Á Vesturlandi var ekkert að veðri þá lagt var af stað en gleggri menn vissu að Heydalurinn myndi ekki bregðast frekar en fyrri daginn en allt annað ótryggt. Á slíkum stundum er gott að geta treyst á Símann; að farsíminn sem þú keyptir fyrir 5–7 árum er með nægri inneign þannig að hægt er að láta vita af sér og ferðum sínum. Hversu oft hafa þessar leiðir ekki verið farnar áður og allt gengið þó tæpt hafi stundum verið á því. Þú ert staddur í Svínadalnum og rokurnar sem gerir á ákveðnum stöðum slá yfir 30 metra á sekúndu. Veðurhæðin og ofankoman er orðin slík að þú veist varla lengur hvað er best að gera í stöðunni; jafnvel kyrr- stæður bíllinn er við það að fara á hliðina. En Guði sé lof fyrir tæknina og enn meir fyrir Símann sem er í bull- andi samkeppni sem samsvarar einu prósenti við önnur fyrirtæki á mark- aðnum; einokun á markaði löngu af- létt. Er ekki rétt að láta einhvern vita af sér og þessum vindstreng skammt frá Gilsfjarðarbrúnni? Til hvers er farsími ef ekki til að nota hann. Þú tekur upp GSM-farsímann, frelsissímann, en það næst ekki í nokkurn mann og ekki heldur í þau númer sem alltaf hefur þó verið hægt að ná í til að eiga næga inn- stæðu fyrir símtölunum og/eða leggja inn á númerið. Hvað ertu með í höndunum, eitthvert tæknirusl sem ekkert er treystandi á, varla bregst Síminn, þetta einstaka öryggisnet sem umlykur okkur alla daga í náð- arfaðmi sínum. Það er ekki þér að þakka að svipti- byljir þagna um stund og það svart- hol sem þú varst lentur í er skyndi- lega að baki. Eftir að komið er heim er farið að athuga málið. Þá kemur í ljós að það sem þú í barnaskap þínum hafðir sett traust þitt á var ekki túskildings virði og því miður öryggið ekki frek- ar því Síminn hafði í millitíðinni út- hlutað öðrum númerinu og á þeirri forsendu að meira en ár sé liðið frá því þú talaðir síðast úr þessum síma og sá næsti sem þú talar við segir þér að númer séu afhent öðrum ef meira en ár er liðið frá áfyllingu. Þetta er það sem kalla mætti GSM- farsími í frjálsu falli. Það er ekki ef það er ekki! Monsúnrigningar af gylliboðum og þjónustu Símans duga ekki til þess að kynna þetta fyrir við- skiptavinum með óyggjandi hætti. Hver lætur sér til hugar koma að farsími sem skráður er í bók allra landsmanna, símaskránni, skuli af- hentur öðrum þegjandi og hljóða- laust með öllum þeim ófyrirséðu af- leiðingum sem það kann að hafa í för með sér? Vita menn ekki á Símanum að það er búið að finna upp papp- írinn og unnt að gera mönnum við- vart í stað þess að hirða númer og inneign? Er þetta þjónustan sem tal- að er um í pappírsregni Símans á vörum og þjónustu? Hvað hefur svo Persónuvernd eða Neytenda- samtökin um vinnubrögð af þessu tagi að segja? Sagt er að sumir hlutir gerist aldr- ei og þá geta menn yfirleitt verið vissir um að þeir muni gerast. Ég leit í Morgunblaðið, sem jafn- an hefur staðið hjarta mínu næst, stoð og stytta í hverri raun. Á for- síðu er frétt af manni sem slæmt hafði svo til óvart exi í höfuð ömmu sinni vegna þess að hún vildi ekki lána honum jafnvirði 10 dollara til kaupa á eldvatni. Segir jafnframt í frétt þessari að maðurinn hafi það eitt sagt er hann var handtekinn: „Er það amma eða er það ekki amma?“ Útlit hennar hafði breyst lítillega við axarhöggið. Engin deili eru sögð á þeim er þetta verk framdi en eigi nokkur rafmagnsstólinn skil- ið þá er það þessi náungi. Þú lítur í DV þar sem sagnir herma að til skamms tíma hafi jafnvel Satan ver- ið innanbúðar. Þú þarft ekki að lesa lengi, því þú ert að lesa þitt eigið nafn og farsímanúmer sem talið er að meiningin hafi verið að setja sprengju af stað með í miðri Reykja- vík. Nú kemur sér vel símaleyndin – en hvort verður þér trúað sem ert skráður fyrir símanúmerinu eða símaskránni? GUÐNI BJÖRGÓLFSSON, Háengi 2, 3A, 800 Selfossi. Síminn og axarmorðinginn Frá Guðna Björgólfssyni

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.