Morgunblaðið - 21.12.2004, Síða 45
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 21. DESEMBER 2004 45
FRÉTTIR
Munið að slökkva
á kertunum
❄
❄
Setjið aldrei servíettu
utan á kerti.
❄
❄
❄
❄
Slökkvilið
Höfuðborgarsvæðisins
❄
❄
❄
❄
❄
KB BANKI hélt hið árlega jóla-
skákmót bankans í aðalútibúinu, við
Austurstræti í Reykjavík, sl. laug-
ardag. Mótið var hraðskákmót,
tímamörkin 5 mín. + einnar sek-
úndu viðbót við hvern leik. Þátttak-
endur í mótinu voru 16 og að vanda
voru flestir úr hópi sterkustu skák-
manna landsins þar á meðal. Átta
stórmeistarar tefldu á mótinu, en að
þessu sinni tóku Friðrik Ólafsson,
Guðmundur Sigurjónsson og Mar-
geir Pétursson ekki þátt.
Í hópi keppenda voru tveir starfs-
menn KB banka, Björn Þorfinnsson
og Guðmundur Halldórsson, en
segja má, að það sé í samræmi við
hefðir, því að forveri KB banka,
Búnaðarbanki Íslands, var um ára-
tuga skeið í forystusveit skákmála á
Íslandi. Margir sterkir skákmeist-
arar unnu í bankanum og sigur-
ganga skáksveita bankans var löng
og glæsileg. Skákstjóri var einnig
úr röðum starfsmanna bankans,
Gunnar Björnsson, alþjóðlegur
skákdómari.
Skákir mótsins voru sýndar á
risaskjá í útibúinu, auk þess sem
einni skák í hverri umferð var varp-
að fram á skjá úti á götu.
Jón Emil Magnússon, útibús-
stjóri aðalútibús bankans, setti mót-
ið og lék fyrsta leikinn í skák Björns
Þorfinnssonar, starfsmanns bank-
ans, og Stefáns Kristjánssonar.
Mótið var æsispennandi frá upp-
hafi til loka og voru stórmeistararn-
ir, Jóhann Hjartarson og Henrik
Danielsen, frá Danmörku, í forystu-
liðinu allt mótið, en Helgi Áss Grét-
arsson, stórmeistari, og alþjóðlegu
meistararnir Stefán Kristjánsson
og Jón Viktor Gunnarsson blönduðu
sér í baráttuna, þegar leið á mótið.
Jóhann byrjaði af krafti og vann
fimm fyrstu skákirnar. Í sjöttu um-
ferð stöðvaði Helgi Áss sigurgöngu
hans, en Helgi hafði aðeins 2 vinn-
inga, fyrir þá skák. Áfram hélt bar-
áttan og 4–5 þátttakendur áttu
möguleika á að krækja í fyrstu
verðlaun. Fyrir síðustu umferð voru
Jóhann og Helgi Áss jafnir í efsta
sætinu, Jóhann komst ekkert áleið-
is, gegn Jóni Viktori, og varð að
sætta sig við jafntefli. Þá beindust
allra augu að Helga Áss, sem tefldi
flókna og erfiða stöðu við Jón L.
Árnason, hinn gamalreynda stór-
meistara. Jón sýndi gamla takta og
vann skákina og þar með varð Jó-
hann efstur, en Helgi Áss hafnaði í
öðru sæti.
Jóhann er stigahæsti skákmaður
Íslendinga og teflir í samræmi við
það. Hann endurtók nú leikinn frá
síðasta sunnudegi, er hann vann
Friðriksmótið í Landsbanka. Helgi
Áss byrjaði mjög illa, en eftir að
hann vann Jóhann í sjöttu umferð
héldu honum engin bönd, þar til Jón
L. stöðvaði sigurgöngu hans í síð-
ustu umferð.
Danski stórmeistarinn, Henrik
Danielsen, setti skemmtilegan svip
á mótið. Hann vann Jóhann, en töp
gegn keppendum, neðar í töflunni,
komu í veg fyrir sigur hans á
mótinu. Jón Viktor og Stefán tefldu
vel, að vanda, enda í fremstu röð
hér á landi í hraðskák. Um önnur
úrslit vísast til mótstöflu.
Skákveislunni lauk með verð-
launaafhendingu, en að henni lok-
inni bauð bankinn til veglegrar mót-
töku í bankanum fyrir skák-
meistarana og velunnara skák-
listarinnar.
Eftirfarandi staða kom upp í skák
tveggja efstu manna, Helga Áss
Grétarssonar og Jóhanns Hjartar-
sonar, í 6. umferð:
Sjá stöðumynd 1.
Helgi Áss – Jóhann
24. – g5!? 25. Rce2 Rf8 26. Rf5
Bxf5 27. gxf5 Rfd7 28. f4! g4!?
Djarfur leikur. Einfaldara er að
leika 28. ...gxf4, t.d. 29. Rxf4 (til
greina kemur 29. Dxf4 Re5 30. Rc1
a4) 29. – De7 30. Bc1 Rf6 31. Dxh4
Rfxe4 32. Dxe7 Hxe7, með nokkuð
jöfnu tafli.
29. Bd4?! –
Hvítur hefði betur drepið peðið á
g4, því að í framhaldinu hefði peðið
á g3 getað reynst honum erfitt.
29. – g3 30. Df3 Dh6 31. Rc3 Kf8
Önnur leið er 31. ...Bf6 og þá
gengur ekki að leika 32. e5? dxe5
33. fxe5 Rxe5 34. Hxe5 Bxe5 35.
Bxc5 Bxc3 36. Hxd8 Hxd8 37. Dxc3
Hd1+ 38. Bg1 Df4 39. Df3 Dc1 40.
Dg4+ Kf8 og svartur vinnur.
32. He2 He7?
Þessi áætlun leiðir til taps. Eftir
32. ...Bxd4 33. Hxd4 Rf6 34. Hed2
Dh5 35. Dxh5 (35. e5? Dxf5! 36.
exf6? He1+ 37. Bf1 Re6 38. H4d3
Rxf4 39. Kg1 Rxh3+ 40. Kg2 Rf4+
41. Kg1 h3 á svartur vinningsstöðu)
35. – Rxh5 36. Re2 Hd7 37. Bf3 Rf6
38. Rc3 Hde7 39. He2 og svartur á
þægilegra tafl.
33. Hed2 Hde8 34. Bxg7+ Dxg7
35. Hxd6 Rxe4 36. Rxe4 Hxe4 37.
Hxd7 He1+ 38. Bf1 Db2 39. H7d2
Df6 40. Kg2 H1e3 41. Dg4 H3e4 42.
Dg5 Dxg5 43. fxg5
og svartur gafst upp.
Hvítt: Jóhann Hjartarson
Svart: Guðmundur Halldórsson
Hollensk vörn
1. d4 f5 2. Rf3 Rf6 3. g3 g6 4. Bg2
Bg7 5. 0–0 0–0 6. c4 d6 7. d5 De8 8.
Rc3 Ra6 9. Rd4 Bd7 10. Hb1 c6 11.
b3 c5?
Eftir þennan leik lendir svartur í
klemmu, sem hann sleppur ekki úr.
Nauðsynlegt var að leika 11. ...Rc7,
áður en hann leikur c6-c5.
12. Rdb5 –
Nú á svarti riddarinn á a6 engan
góðan reit, því að hann á enga fram-
tíð á b4. Auk þess verður hrókurinn
á a8 bundinn við að valda peðið á a7.
12. – h6 13. f4 Kh7 14. Bb2 g5?!
Vafasöm veiking á svörtu stöð-
unni, þótt svartur verði í þrenging-
um, eftir 14. ...Rg4 15. Dd2 o.s.frv.
15. e4 –
Sjá stöðumynd 2.
15. ...fxe4?
Nauðsynlegt var að leika 15.
...Rg4 16. Bc1 gxf4 17. Bxf4 Dg6, t.d.
18. Dd2 Rb4 19. a3 Ra6 20. Hbe1
Re5 21. h3 Hg8 22. exf5 Bxf5 23.
Be4 Bxe4 24. Rxe4 Dh5 25. Dc2 Dg6
26. Kh2 og svartur getur barist
áfram.
16. fxg5 hxg5 17. Rxe4 Dg6 18.
De2 Kg8?
Betra var 18. ...Hae8, þótt hvítur
eigi gott peð yfir, eftir 19. Dd3 Kh6
20. a3 Rg4 21. Rxa7 o.s.frv.
19. Rxf6+ Bxf6 20. Bxf6 Hxf6
Eða 20. ...exf6 21. Rxd6 o.s.frv.
21. Dxe7 Bf5 22. Hbe1 Rb4
Eftir 22. – Haf8 23. Rxd6 Hxd6
24. g4 vinnur hvítur manninn til
baka með betri stöðu. Reyndar hefði
g3-g4 gefið hvíti einfaldan vinning í
tveimur næstu leikjum.
Sjá stöðumynd 3.
23. Rxd6 Hxd6 24. Hxf5! –
Það er ekki nóg með, að hvítur
vinni peð með þessari leikfléttu,
heldur verður svarti kóngurinn
varnarlaus á eftir.
24. – Dxf5 25. Dxd6
og svartur gafst upp.
Hugsanlegt framhald væri 25. –
Hf8 26. Hf1 Dc8 27. Dg6+ Kh8 28.
Hxf8+ Dxf8 29. d6! og svartur getur
ekki stöðvað frípeð hvíts á d-línunni.
Jóhann Hjartarson sigraði
á Jólaskákmóti KB banka
Stöðumynd 2. Stöðumynd 3.Stöðumynd 1.
SKÁK
Jólaskákmót.
KB banka
18. desember 2004
Bragi Kristjánsson
THORVALDSENSFÉLAGIÐ færði
börnum Shri Ramawati kr. 250.000
kr. að gjöf, 11. nóvember sl. og var
gjöfin afhent á Thorvaldsensbazarn-
um, verslun félagsins í Austurstræti
4, í Reykjavík. Gjöfin er fjármögnuð
af ágóða verslunarinnar en í henni
starfa félagskonur í sjálfboðavinnu.
Systir Shri, Mardiana Nana, tók
við gjöfinni úr hendi Ásu Jónsdóttur,
gjaldkera Thorvaldsensfélagsins, en
Mardiana hefur tekið að sér börn
systur sinnar heitinnar.
Thorvaldsens-
félagið styrkir
börn Sri
Rahmawati
Fréttasíminn
904 1100