Morgunblaðið - 21.12.2004, Side 54

Morgunblaðið - 21.12.2004, Side 54
54 ÞRIÐJUDAGUR 21. DESEMBER 2004 MORGUNBLAÐIÐ F imir fingur fara um Fendera og Gibsona af öllum mögulegum stærðum og gerðum og margvísleg sérsmíðuð skrípi hljóta að fanga athygli allra þeirra sem smitast hafa af gítarbakt- eríunni illskeyttu. Gítarhátíð Erics Claptons stendur undir nafni þó svo að sönnu séu þau atriði sem þar eru boðin fram mis- jafnlega spenn- andi. DVD-útgáfa þessi hýsir tvo mynd- diska sem geyma upptökur frá Cross- roads-gítarhátíðinni í Texas í Banda- ríkjunum í sumar. Fyrir henni stóð Eric Clapton en ágóðinn rann til Crossroads, meðferðarstöðvar fyrir drykkju- og eiturlyfjasjúklinga sem hann hefur rekið frá árinu 1997 á eyj- unni Antigua í Karíbahafi. Sjálfur segir Clapton að hann hafi einfald- lega haft samband við alla þá sem hann langaði til að hlusta á spila á gít- ar og þeir hafi allir reynst reiðubúnir að styðja málstaðinn. Og þarna er að sönnu að finna margar gítarhetjur auk Claptons. Nefna má BB King, Jimmy Vaughan, Larry Carlton, Robert Cray, J.J. Cale, Buddy Guy, John McLaughlin, Carlos Santana, Joe Walsh, David Hidalgo og þarna er einnig að finna aldurhnigna blúsmenn á borð við David „Honeyboy“ Edwards og Hu- bert Sumlin. Flestir eru gítaristar þessir orðnir löglega miðaldra og sumir rúmlega það en yngri menn á borð við John Mayer láta einnig ljós sitt skína. Almennt verður þó að ætla að þessi upptaka höfði frekar til eldri áhugamanna um gítarleik þó svo vit- anlega megi ekki útiloka að einhverjir hinna yngri búi yfir þroska og smekk til að meta og virða þessar gömlu hetjur! Auðvitað vantar hér marga. Fyrst- ur upp í hugann kemur Jeff Beck, sem enn slær alla út með rothöggi á góðum degi. Raunar er hermt að Beck hafi tekið eitt lag á Crossroads- hátíðinni (Cause We Ended As Lov- ers) og er með öllu óskiljanlegt að því hafi verið sleppt þegar gengið var frá þessari útgáfu. Beck er öldungis ein- stakur gítaristi og listamaður. En eins og sjá má af þátttökulist- anum hér að ofan, sem er ekki tæm- andi, hýsa diskar þessir fjölbreytilega tónlist en öll eiga lögin það sameig- inlegt að vera borin uppi af gítarleik. Í upphafi eru óæfð blúsdjömm áber- andi og eru þau heldur óspennandi. Menn á borð við BB King og Jimmy Vaughan reynast ekki hafa mikið fram að færa. Santana veldur von- brigðum þótt ávallt sé hljómur hans sérstakur og heillandi. Sjálfur er Clapton í fínu formi og skilar traustum útgáfum af m.a. I Shot the Sheriff og Have You Ever Loved A Woman? Vald hans yfir því sem hann er að gera er sem fyrr al- gjört. En til eru mun betri og skemmtilegri tónleikaupptökur á DVD með Clapton. Áhugasömum skal bent á Live in Hyde Park (1997). Trylltustu aðdáendur Claptons nefndu hann gjarnan „guð“ á sjöunda áratugnum. Aldrei stóð hann nú und- ir því sæmdarheiti blessaður en gít- arleikur hans er einstakur og afar gaman er jafnan að horfa á hann spila ekki síst með tilliti til þeirrar tækni sem hann hefur þróað fram. Sá mikli höfuðsnillingur J. J. Cale leikur með Clapton í tveimur lögum. Sá síðarnefndi gerði hinn fyrrnefnda frægan (og ríkan) með því að hljóð- rita eftir hann lög á borð við After Midnight og Cocaine sem þarna eru tekin. Cale telst seint til ofurmenna á gítar en einfaldur stíll hans er áhuga- verður og nálgunin svöl. Stúdíó- upptökur hans eru þó mun athyglis- verðari en það sem hann býður upp á hér. Gítarleikur á plötum hans er jafnan í háum smekk- og gæðaflokki. John McLaughlin hrífur viðstadda með sínum undarlega samsettu, flóknu (og löngu) gítarskölum sem hann galdrar fram áreynslulítið við undirleik tveggja bumbuleikara. Larry Carlton flytur fágaða útgáfu af Steely Dan-laginu Josie. Hann brúkar afar fallegan Gibson ES-335 sem gæti á augabragði breytt sér- hverjum ráðsettum gítarlúða í glæpa- mann. Gítarhetjan Steve Vai á hér magn- aðan performans og sýnir enn á ný að þegar tækni er annars vegar standast fáir honum snúning. Skemmtana- gildið er ótvírætt, tryllingurinn al- gjör; um innlifun og smekk er þýðing- arlaust að deila. Ný lönd brotin Senunni stela þó tveir menn. Fyrstan skal nefna ungan mann Ro- bert Randolph sem leikur á 13 strengja fetil-stál-gítar (tilraun til þýðingar á „pedal-steel-guitar“). Þarna er á ferðinni mikill listamaður sem sýnilega vinnur að því að brjóta ný lönd undir þetta merka hljóðfæri. Bylting hans felst ef til vill ekki síst í því að þetta heldur hógværa hljóð- færi er í algjöru lykilhlutverki hjá Randolph og hljómsveit hans. Hann leikur á fetil-gítarinn rafmagnaða tónlist auk þess sem hann hefur hefð- bundna kántrítakta gjörsamlega á valdi sínu. Niðurstaðan verður afar áheyrileg blanda. Randolph hikar ekki við að beita „overdrive“ og „eff- ektum“ og útfærir viðtekna rokk-, blús- og kántrígítarskala á afar áhugaverðan hátt. Glæsilegust hljóta þó tilþrif kántrí- gítarleikarans Vince Gill að teljast. Gill er stjarna vestra en hætt er við að fáir þekki hann í Evrópu. Í laginu Oklahoma Borderline tekur hann magnað gítarsóló sem ætti á fá hárin að rísa á höfði allra þeirra sem minnstu tilfinningu hafa fyrir þessu hjóðfæri. (Myndatakan í þessum kafla lagsins er því miður afleit.) Magnaðari „flat-picker“ er vandfund- inn, hraðinn lyginni líkastur, tæknin fullkomin og Telecasterinn, talar, syngur og hlær. Þetta er geysilega öflugur gítarleikari. Annar sem athygli vekur er Doyle Bramhall II. Þetta er örvhentur gítaristi sem leikur á örvhentan Stratocaster og snýr strengjunum öfugt. Það er upplifun að horfa á þennan mann leika á gítar, allt er öf- ugsnúið og engu líkara en hann spili bókstaflega aftur á bak! Sá sem þetta ritar þekkir ekki til Bramhalls. Hann sýnir ekki mikið í þeim lögum þar sem hann leikur og verður því ekki dæmdur af þessari frammistöðu. En það ber vott um járnvilja og mikla tónlistargáfu að geta leikið á gítar með þessum hætti. Efnið á mynddiskunum var tekið upp á þremur dögum. Miklu er því sleppt. Niðurröðunin er undarleg og ekki í réttri tímaröð. Atriði eru klippt í sundur og fyrir vikið verður efnið æði sundurlaust. Á milli laga er gjarnan skotið stuttum umsögnum þeirra sem við sögu koma og er það ekki til teljanlegs ama. Efni frá tónleikunum sjálfum sýn- ist vera rúmir þrír klukkutímar. Við- bótarefni geymir viðtöl og frábær kostur er það að geta farið beint í sólókafla í hverju lagi. Hermt er að hátíðin verði ekki end- urtekin og teljast tónleikar þessir því sögulegir. Ekki skal því haldið fram að þessi DVD-útgáfa sé ómissandi í safnið. Það er hún engan veginn. Sumir þeirra sem þátt taka standa tæpast undir nafni þótt vissulega geti verið gaman og jafnvel sögulegt að sjá margar gamlar hetjur saman á sviði. En sérhvert gítarfrík getur gleymt sér yfir þessum tónleikum og hrifist aftur og aftur af snilli hinna bestu sem fara höndum um þetta undur- samlega hljóðfæri. Tónlist | Crossroads – þriggja daga gítarhátíð sem Eric Clapton stóð fyrir er komin á mynddisk „Guð“ og hinar gítar- hetjurnar Eric Clapton efndi til mikillar gítarhátíðar í Bandaríkjunum í sumar sem nú má nálgast á mynddiski. Ásgeir Sverrisson segir frá því sem fyrir augu og eyru ber. Eric Clapton átti veg og vanda af Crossroads-gítarhátíðinni í Texas. asv@mbl.is * EINI THX LÚXUSSALUR LANDSINSwww.borgarbio.is Sýnd kl. 6 og 8.. Miðasala opnar kl. 15.30 Jólaklúður Kranks Jólamynd fjölskyldunnar Sýnd kl. 6, 8 og 10. B.i. 16 ára. Sýnd kl. 5.45, 8 og 10.15. B.i. 14 ára. VINCE VAUGHNBEN STILLER Sýnd kl. 3.40, 5.45, 8 og 10.15. PoppTíví  Sýnd kl. 6, 8 og 10. B.i. 16 ára. Sýnd kl. 4. Hann er á toppnum... og allir á eftir honum Framleidd af Mel Gibson Pottþéttur spennutryllir... ... DodgeBallÓ.Ö.H. DV Sýnd kl. 4, 6, 8 og 10. B.i. 14 ára. Sýnd kl. 10. kl. 4, 6, 8 og 10. Jólaklúður Kranks Jólamynd fjölskyldunnar SVAKALEGA ÖFLUG BARDAGAMYND Í ANDA BRUCE-LEE EIN ÓHUGNALEGASTA MYND SEINNI ÁRA HVERSU LANGT MYNDIR ÞÚ GANGA TIL AÐ HALDA LÍFI CARY ELWES DANNY GLOVER MONICA POTTER „Balli Popptíví“  á allar erlendar myndir í dag, ef greitt er með Námukorti Landsbankans á allar erlendar myndir í dag, ef greitt er með Námukorti Landsbankans

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.