24 stundir - 15.12.2007, Side 2
2 LAUGARDAGUR 15. DESEMBER 2007 24stundir
METSÖLUHÖFUNDUR MEÐ NÝJA BÓK
Á meðan blóðugar fréttir berast yfir Erma-
sundið af byltingunni í Frakklandi takast
börnin Jem og Maggý á við breytingar í
eigin lífi. Skáldið og róttæklingurinn William
Blake er nágranni þeirra og börnin blása
honum í brjóst söngva um sakleysi æsk-
unnar. Einstæð mynd af horfnum heimi.
J E N T A S www.jentas.com
NEISTAFLUG - LUNDÚNIR 1792
Meistaraverkið um
þjónustu stúlkuna Griet
og hollenska málarann
Johannes Vermeer nú
fáanleg í kilju.
STÚLKA MEÐ PERLUEYRNALOKK
er bandarísk og bús ett í
Lundúnum. Hún var gestur
bókmenntahátíðar í september.
„Þetta er bók sem ætti
að lesast af öllum...“
Mbl.
Tracy
Chevalier
Fæst í helstu skartgripaverslunum um land allt
WWW.EBK.DK
Danskir gæðasumarbústaðir
(heilsársbústaðir)
Hafðu samband við okkur fyrir frekari
upplýsingar: Anders Ingemann Jensen
farsími nr. +45 40 20 32 38
netfang: aj@ebk.dk
Ert þú í byggingarhugleiðingum?
VÍÐA UM HEIM
Algarve 17
Amsterdam 5
Ankara 3
Barcelona 12
Berlín 3
Chicago -3
Dublin 9
Frankfurt 1
Glasgow 8
Halifax -4
Hamborg 3
Helsinki -3
Kaupmannahöfn 4
London 4
Madrid 10
Mílanó 7
Montreal -11
München 1
New York 2
Nuuk __
Orlando 19
Osló -8
Palma 22
París 0
Prag -1
Stokkhólmur -1
Þórshöfn 10
Sunnan 13-18 m/s og dálítil slydda eða snjó-
koma við vesturströndina, en annars mun
hægari og bjart. Kólnar og frystir sums staðar
norðaustanlands.
VEÐRIÐ Í DAG
5
4
3 4
3
Slydda eða snjókoma
Suðaustan og síðar sunnan 15-20 m/s, en allt
að 25 m/s vestast á landinu. Slydda eða rign-
ing, einkum sunnan- og vestanlands. Hiti 0 til
7 stig.
VEÐRIÐ Á MORGUN
6
4
4 4
4
Allt að 25 m/s vestast
Jólalegasti jólaglugginn í mið-
bænum verður verðlaunaður í dag
en það er verslunin 38 þrep á
Laugavegi sem hefur jólalegasta
gluggann að mati dómnefndar.
Oddný Sturludóttir, formaður
Miðborgar Reykjavíkur, veitir við-
urkenninguna klukkan þrjú í dag.
Matthildur Leifsdóttir, eigandi í
38 þrepum, segir útstillinguna ekki
hefðbundna gluggaútstillingu. „En
henni var ætlað að vera skírskotun
í gamla tímann og ylja manni um
hjartarætur.“
Matthildur segir það ekki rétt
sem oft sé haldið fram að allt sé
eyðilagt í miðbænum. „Það sem er
fallegt er látið í friði, ef það er gert
af alúð.“ Það sé helst veðrið sem
hefur áhrif á skreytingarnar auk
þess að hafa svolítil áhrif á verslun.
Aðrar búðir sem þóttu skara
fram úr voru Blómálfurinn, Kisan,
Max Mara, Sjáðu og Steinunn. aak
Jólalegasti jólaglugginn í miðbænum er hjá 38 þrepum
Það fallega er látið í friði
Til skoðunar er hjá fangelsis-
málayfirvöldum að taka upp raf-
rænt eftirlit með föngum. Myndi
slíkt eftirlit einkum nýtast í þeim
tillfellum þar sem um stutta dóma
væri að ræða eða í þeim tillfellum
þegar föngum væri veitt reynslu-
lausn. Í Danmörku og Svíþjóð er
slíku eftirliti þegar beitt. Norð-
menn stefna að því að taka upp
sams konar kerfi og sömu sögu er
að segja um Finna.
Valtýr Sigurðsson fangelsismála-
stjóri segir að eftirlit af þessu tagi
gæti sparað á bilinu 10-20 fangels-
ispláss. „Lengd dóma hefur aukist
mikið á síðustu árum. Það vantar
fangelsispláss nú þegar og svona
eftirlit gæti verið einn hluti af
lausninni. Það breytir ekki nauð-
syn þess að byggja nýtt fangelsi.“ fr
Eftirlit með föngum utan fangelsa mögulegt
Fangelsismálastjóri
vill rafrænt eftirlit
Fjögur félög deildu með sér sjö
milljóna króna styrk frá Góða
hirðinum, nytjamarkaði Sorpu
og líknarfélaga, sem veittur var í
gær. Lagt var upp með að styrkja
fólk til sjálfshjálpar. Stykhafarnir
eru Átak, Systkinasmiðjan, Félag
einstæðra foreldra vegna starfs-
menntasjóðs og Bandalag kvenna
vegna starfsmenntasjóðs. gag
7 milljónir frá Góða hirðinum
Eftir Auði Alfífu Ketilsdóttur
fifa@24stundir.is
„Fólk spyr mig oft hvers vegna ég
hafi valið Ísland og ég segi því að
það sé aðallega vegna þess að hér er
gott veður og ódýr bjór,“ segir Lu-
ciano Domingues Dutra frá Brasilíu
en hann er einn þeirra tíu sem
fengu íslenskan íslenskan ríkisborg-
ararétt með lögum frá Alþingi í gær.
Alþingi veitir tvisvar á ári undan-
þágu frá reglum um ríkisborgara-
rétt.
„Svona án gríns þá er mjög gott
að búa á Íslandi og mjög skemmti-
legt fólk,“ segir Luciano. „Ég er al-
veg hættur að hugsa um að flytja til
baka.“
Að hans sögn voru það tungu-
málið og bókmenntirnar sem drógu
hann til Íslands. Luciano lærði ís-
lensku fyrir útlendinga í Háskóla Ís-
lands en hann vinnur núna í Al-
þjóðahúsi auk þess að vera sjálfstætt
starfandi túlkur og þýðandi.
Hann segist ekki hafa orðið fyrir
fordómum. „Ég verð að segja að ef
ég hef lent í fordómum þá er það
bara á jákvæðan hátt því þegar ég
segi fólki að ég sé frá Brasilíu þá er
það mjög jákvætt. Ég vil bara þakka
fyrir tækifærið að fá að vera hérna.“
Áfram sama manneskjan
Liliam Yisel Gutierrez Ortega
flutti til Íslands frá Kólumbíu árið
1999 en frænka hennar bjó hér á
landi. „Ég ætlaði fyrst bara að vera í
ár eftir menntaskóla en svo ákvað ég
bara að vera áfram,“ segir hún en
játar að hún sakni heimalandsins
svolítið. Henni líður þó vel á Íslandi
og er himinlifandi með að vera
komin með ríkisborgararétt. „Það
breytir samt ekki mjög miklu fyrir
mig, ég verð áfram sama manneskj-
an,“ segir Liliam en bætir við að
mun auðveldara verði fyrir sig að
ferðast nú en áður. Hún stefnir að
því að klára listnámsbraut í Iðn-
skólanum í vetur og langar í fram-
tíðinni að læra innanhúsarkitektúr.
„Það er eitt sem ég vil að sé alveg
á hreinu og það er að Ísland er stað-
ur þar sem maður fær mjög mikil
tækifæri sem útlendingur,“ segir
Liliam og bætir við: „Eins og Íslend-
ingar segja stundum, Ísland best í
heimi.“
Mörg tækifæri
fyrir útlendinga
Tíu nýir ríkisborgarar í gær Kom frá Kólumbíu til að læra ís-
lensku Gott veður og ódýr bjór heillaði Luciano frá Brasilíu
Luciano Kom til Íslands út af
góðu veðri og ódýrum bjór.
➤ Samkvæmt 6. grein laga umíslenskan ríkisborgararétt
getur Alþingi veitt ríkisborg-
ararétt með lögum.
➤ Börn fá íslenskan ríkisborg-ararétt við fæðingu eigi þau
íslenska móður eða föður
sem býr með móðurinni.
➤ Um veitingu ríkisborg-araréttar með stjórnvalds-
aðgerð gilda strangar reglur.
RÍKISBORGARARÉTTUR
STUTT
● Fíkniefni Lögreglan fann 200
grömm af hassi og lítilræði af
amfetamíni í húsleit í miðborg-
inni í fyrrakvöld. Karl og tvær
konur á miðjum aldri voru
handtekin.
● Handteknir Lögreglan
handtók þrjá 17-19 ára pilta
og grunaði um fíkniefnamis-
ferli. Til þeirra náðist á hafn-
arsvæði borgarinnar.
● Byssa Karl á þrítugsaldri var
handtekinn í Bankastræti með
fíkniefni og riffil í bíl sínum.
Dómur Héraðsdómur Suður-
lands dæmdi karlmann í mán-
aðar fangelsi fyrir innbrot í
sumarbústaði og fleiri afbrot.
Leiðrétt
Ritstjórn 24 stunda vill leiðrétta hvaðeina,
sem kann að vera missagt í blaðinu.
Leiðréttingar birtast að jafnaði á síðu 2.