24 stundir - 15.12.2007, Qupperneq 35
24stundir LAUGARDAGUR 15. DESEMBER 2007 35
Bjórframleiðendur í Skotlandi
vara við því að verðið á bjór-
kollunni gæti hækkað upp í
500 krónur á næsta ári. Kenna
þeir hækkandi heimsmark-
aðsverði á byggi og humlum
um.
Kráareigendur óttast að
hækkanir muni fá fleiri til að
kneyfa ölið heima hjá sér af
sparnaðarástæðum. Nú þegar
finni þeir fyrir þrýstingi vegna
lægra verðs hjá stórmörk-
uðum, en þetta geti riðið
margri kránni að fullu. aij
Samkeppniseftirlitið ákvað á
fimmtudag að aðhafast ekki
frekar vegna samruna Innness
og Select.
Í niðurstöðu eftirlitsins kem-
ur fram að engin atriði hafi
komið í ljós sem bendi til þess
að innlend samkeppni raskist.
Við kaupin væri Innness að
auka þjónustu sína og fara inn
á markað sem fyrirtækið hefði
að takmörkuðu leyti starfað á
áður.
Að mati Samkeppniseftirlits-
ins fellur samruninn undir
samrunaeftirlit 17. gr. laganna
þar sem veltuskilyrði ákvæð-
isins eru uppfyllt. mbl.is
Icelandic Group hf. og Finn-
bogi A. Baldvinsson hafa
komist að samkomulagi um
að afturkalla viljayfirlýsingu
um sölu á 81% eignarhlut í
Icelandic Holding Germany,
til Pickenpack Gelmer SAS í
Frakklandi. Í tilkynningu frá
Icelandic segir, að ástæðuna
fyrir afturkölluninni megi
fyrst og fremst rekja til skil-
yrða á alþjóðlegum fjármála-
málamörkuðum, sem hafi ver-
ið sérlega óhagstæð frá því að
skrifað var undir viljayfirlýs-
inguna.
mbl.is
Skotland
Bjórsopinn
verður dýrari
Samkeppniseftirlitið
Samruni sagð-
ur vera í lagi
Icelandic Group hf.
Hætta við sölu
á Icelandic
Hluthafafundur FL Group samþykkti í gær-
morgun að veita stjórn félagsins heimild til að
hækka hlutafé félagsins um allt að 3,6 milljarða
að nafnverði. Þetta verður gert með útáfu nýrra
hluta í félaginu á genginu 14,7. Tilefni hlutafjár-
aukningarinnar er fjármögnun á samningi fé-
lagsins við Baug Group og félög tengd Baugi um
kaup FL Group á hlutum í fasteignarfélögum og
-sjóðum. Hlutirnir verði afhentir Baugi Group
sem greiðsla fyrir þá hluti.
Tilgangur félagsins að ávaxta fé hluthafa
Samþykktum félagsins var einnig breytt á
fundinum. Nú er kveðið á um það að tilgangur
félagsins sé sá að ávaxta fé sem hluthafar hafa
bundið í starfsemi þess með fjárfestingum. Þær
fjárfestingar geti verið ýmsar en meðal annars í
dóttur- og hlutdeildarfélögum FL Group.
Þá var kosið í stjórn félagsins og voru að-
almenn kjörnir Gunnar S. Sigurðsson, Hannes
Smárason, Jón Ásgeir Jóhannesson, Kristín Ed-
wald, Pálmi Haraldsson, Þórður Már Jóhann-
esson og Þorsteinn M. Jónsson.
Engin ný tíðindi á fundinum
Að sögn Halldórs Kristmannssonar, fjöl-
miðlafulltrúa FL Group, voru allar tillögur sem
lágu fyrir fundinum samþykktar samhljóða.
„Það var svo sem ekkert nýtt sem þarna kom
fram, í raun og veru var bara verið að fara yfir
það sem hafði verið kynnt áður. Hluthafafundur
þarf auðvitað að samþykkja þær breytingar sem
boðaðar höfðu verið. Það verða engar stórar
breytingar á rekstri félagsins. Það stendur sterkt
og við erum að skoða ýmis fjárfestingartækifæri
á markaðinum.“ freyr@24stundir.is
Samþykkt að auka hlutafé í FL Group um 3,6 milljarða á hluthafafundi í gærmorgun
Aukningin fer í að borga Baugi Group
24stundir/Ómar
Breytingar Baugur hefur þeg-
ar sett mark sitt á FL Group.