24 stundir - 15.12.2007, Síða 51
24stundir LAUGARDAGUR 15. DESEMBER 2007 51
Eftir Hildi Eddu Einarsdóttur
hilduredda@24stundir.is
„Þetta er í fyrsta skipti sem tónlist
eftir mig er gefin út síðan ég var í
MR og samdi árshátíðarlag sem
kom út á diski,“ segir Una Svein-
bjarnardóttir fiðluleikari hlæjandi,
en hún var að gefa út diskinn
Fyrramál með tónlist úr ýmsum
áttum. Fyrsta lagið er hennar eigin
tónsmíð, etýðan More Links, og í
kjölfarið kemur lagið Hvert ör-
stutt spor eftir Jón Nordal í henn-
ar eigin útsetningu. „Ég útsetti
lagið og spilaði á opnun Nor-
rænnar hátíðar í Greifswald í
Þýskalandi árið 2003, þar sem
Ólafur Ragnar hélt opnunarræð-
una. Það vantaði tónlistaratriði en
ekkert píanó var á staðnum þann-
ig að niðurstaðan var sú að ég var
fengin til þess að spila eitthvað ís-
lenskt. Jón Nordal hefur sjálfur
heyrt lagið og var mjög ánægður
með mína útsetningu og það
gladdi mig mikið,“ segir Una. Í
kjölfarið koma nokkur lög frá bar-
okk- og rómantíska tímabilinu.
„Ég hef tekið svona æði fyrir mis-
munandi tímabilum og það elsta
er held ég rómantíska æðið sem
hefur staðið yfir í mörg ár. Svo
fyrir svona fimm árum tók ég bar-
okk-æði og því fannst mér kjörið
að spreyta mig á hvoru tveggja á
þessum diski.“
Persónuleg upptaka
Nýi diskurinn var tekinn upp á
pínulitlu viðarklæddu stofulofti í
Mosfellsbænum, enda lagði Una
mikla áherslu á að hann hefði á
sér svokallaðan stofutónlistarblæ.
„Mörg af þessum verkum, eins og
barokk- og rómantísku verkin,
voru á sínum tíma samin sér-
staklega fyrir stofutónleika. Ég
vildi því ekki taka diskinn upp í
risastóru rými enda vildi ég hafa
flutninginn persónulegan og í
formi eins konar díalógs við hlust-
andann,“ útskýrir hún. Af svipaðri
ástæðu valdi hún að spila verk úr
ólíkum áttum og frá ólíkum tím-
um. „Þegar fiðluleikarar spila sóló
á tónleikum þurfa þeir yfirleitt að
geta sýnt fram á fjölbreytni, bæði
sögulega og tæknilega.“
Snúin heim
Una hefur komið víða við frá
því að hún byrjaði feril sinn 17
ára gömul í hljómsveitinni Skár-
r’en ekkert og Sinfóníuhljómsveit
Íslands. Hún bjó á sínum tíma í
Köln í tvö og hálft ár og Berlín í
sjö ár við nám og störf, en þess á
milli túraði hún um heiminn með
Björk í tilefni af útkomu plöt-
unnar Homogenic. Nú er hún
hins vegar flutt aftur heim til Ís-
lands og unir hag sínum vel. „Að
vísu held ég ennþá tengslum við
Þýskaland og vinn ennþá töluvert
þar, enda ótrúlega margt spenn-
andi í gangi þar,“ segir hún.
En það er líka nóg að gerast á
Íslandi, enda undirbýr Una þessa
dagana frumflutning á nýjum ís-
lenskum fiðlukonsert eftir Svein
Lúðvík Björnsson á Myrkum
músíkdögum ásamt því sem hún
kennir nokkrum nemendum í
Tónlistarskólanum í Reykjavík og
Nýja tónlistarskólanum og semur
sína eigin tónlist. „Vonandi mun
ég geta samið sem mest á næst-
unni og gefið meira út,“ segir
hún.
Una spilaði í Kaffi Hljómalind í
gær í tilefni af útkomu disksins en
segist ætla að bíða með að halda
eiginlega útgáfutónleika þar til eft-
ir jól. „Ég fékk diskinn bara í
hendurnar í fyrsta skipti í gær og
það var auðvitað smá spennufall
sem fylgdi því. En eftir nokkra
daga fer ég til Ísafjarðar þar sem
ég ætla að halda upp á jólin. Þegar
ég bjó úti lofaði ég sjálfri mér að
ég myndi vera dugleg að ferðast
um Ísland þegar ég flytti heim. Ég
fór til Vestfjarða í fyrsta skipti í
júní síðastliðnum og líkaði svo vel
að ég verð að skella mér aftur,“
segir hún að lokum.
Una Sveinbjarnardóttir fiðluleikari hefur gefið út sinn fyrsta disk
Tónlistin sem sam-
tal við hlustanda
Una Sveinbjarnardóttir
hefur gefið út diskinn
Fyrramál, en diskinn
prýðir ljóð eftir Hauk Má
Helgason og myndir eftir
Höllu Kristínu Einars-
dóttur. Tónlistin er úr
ýmsum áttum.
Una með fiðluna
Heimasíða hennar er
myspace.com/unaviolin.
24stundir/Ómar
Vallý s.510 3728
Böddi s.510 3726
ÐI
Ð
AL
B
U
N
NI
VTA
atvinna@24stundir.is
PANTIÐ
GOTT
PLÁSS
Í TÍMA
PAPPÍR HF BÝÐUR TIL HINNAR ÁRLEGU
LAGERSÖLU Á PAPPÍRSBURÐARPOKUM
VERÐ FRÁ 50-250 KR.
OPIÐ LAUGARDADAGINN 15. DES.
FRÁ KL. 12:00 - 18:00
JÓLA- OG GJAFAPOKAR Í MIKLU ÚRVALI
Kaplahrauni 13 • 220 Hfj.• S: 565 2217 • pappir@pappir.is • www.pappir.is
A
R
T-
A
D
.IS