Morgunblaðið - 17.02.2005, Page 25
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 17. FEBRÚAR 2005 25
MINNSTAÐUR
ERTU Á LEIÐ Í LEIFSSTÖÐ?
Alltaf
25% ódýrari
gleraugu
og linsur
í stað 19,68% vsk. áður
w w w . o p t i c a l s t u d i o . i s
Djúpivogur | Þorrablót hafa verið
haldin víða um land að undan-
förnu.
Börnin á leikskólanum Bjark-
artúni á Djúpavogi héldu sitt
þorrablót á Hótel Framtíð. Ekki
var annað að sjá en að börnin
kynnu vel að meta kræsingarnar
og voru þau ófeimin við að
smakka harðfisk, hákarl og hangi-
kjöt.
Eftir borðhald voru svo sungin
þorralög af mikilli innlifun og að
lokum dansað fram eftir degi.
Börn blóta
þorra
Morgunblaðið/Sólný Pálsdóttir
Kátir krakkar á þorra Börnin á leikskólanum Bjarkartúni á Djúpavogi gerðu þorranum góð skil.
Bilun hjá hitaveitu | Á mánudag
bilaði mótor við meginborholu Hita-
veitu Egilsstaða og Fella við Urr-
iðavatn, með þeim afleiðingum að
talsverð röskun varð á vatnsmiðlun
á þjónustusvæði Hitaveitunnar. M.a.
þurfti um tíma að skammta heitt
vatn til íbúa og stærri notendur eins
og sundlaugin á Egilsstöðum fengu
ekkert heitt vatn á mánudag. Mót-
orbilunin varð við holu 8 þaðan sem
um 90% af heitu vatni þjón-
ustusvæðisins er dælt upp. Viðgerð
stendur yfir en á meðan er notast við
varamótor.
Stækkun íþróttahúss | Nýverið
var lokið við stækkun íþróttahússins
í Brúarási í Jökulsárhlíð. Breytingin
eykur notkunarmöguleika hússins
verulega og er góð viðbót við fjöl-
breytta íþróttaaðstöðu á Fljótsdals-
héraði.
Í Íþróttahúsinu eru m.a. þrír
badmintonvellir, löglegur æfinga-
völlur í körfubolta (12 x 28 m) og
fullgildur blakvöllur. Magnús Sæ-
mundsson, skólastjóri Brúarásskóla,
er umsjónarmaður íþróttahússins.
Njarðvík | Bæjarstjórn Reykja-
nesbæjar hefur samþykkt, að lok-
inni grenndarkynningu, að Atl-
antsolía geti komið upp bensínstöð
með sjálfsafgreiðslufyrirkomulagi
við Hólagötu í Njarðvík. Stöðin
verður í nágrenni við Biðskýlið
þar sem rekinn er söluturn.
Bæjarstjórn bauð Atlantsolíu
lóðina á sínum tíma. Bygging
bensínstöðvar þar þurfti að fara í
grenndarkynningu.
Umhverfis- og skipulagsráð
bæjarins taldi ekki að framkomnar
athugasemdir hefðu áhrif á erindið
og samþykkti áform fyrirtækisins.
Var sú afgreiðsla staðfest af
meirihluta bæjarfulltrúa á bæj-
arstjórnarfundi í fyrrakvöld. Einn
bæjarfulltrúi Samfylkingarinnar
greiddi atkvæði gegn staðfestingu
málsins og annar sat hjá. Guð-
brandur Einarsson, sem greiddi
atkvæði á móti, lét bóka þá af-
stöðu sína að svæðið væri við-
kvæmt vegna fjölda gangandi veg-
farenda, á leið í skóla og
íþróttamannvirki.
Umferð aukist og hætta sam-
fara því. Taldi hann að eðlilegra
hefði verið að finna stöðinni aðra
lóð.
Bensínstöð Atlantsolíu í Njarð-
vík verður væntanlega fyrsta al-
menna bensínstöð fyrirtækisins á
Suðurnesjum.
Tilboð í innisundlaug | Keflavík-
urverktakar áttu lægsta tilboð í
byggingu 50 metra innisundlaugar
við Sundmiðstöð Keflavíkur og
vatnagarð. Eignarhaldsfélagið
Fasteign ehf. hyggst byggja mann-
virkið fyrir Reykjanesbæ.
Verkið felst í að reisa nýbygg-
ingu fyrir 50 metra langa innisund-
laug við Sundmiðstöðina auk laug-
arkers og sundlaugarkerfis. Tilboð
Keflavíkurverktaka var um 10%
undir kostnaðaráætlun, að því er
fram kemur á vef Reykjanesbæjar.
Tilboð Hjalta Guðmundssonar ehf.
var einnig undir kostnaðaráætlun
en Íslenskir aðalverktakar buðu
hærra.
Áætlað er að verkinu ljúki eigi
síðar en 23. mars á næsta ári.
Sparkaupaverslun | Kaupfélag
Héraðsbúa, sem rekur Sparkaup í
Neskaupstað, ætlar innan skamms
að ráðast í framkvæmdir við nýtt
verslunarhúsnæði. Verslunarhúsið
verður við Hafnarbraut og byggt af
Viðhaldi fasteigna í Fjarðabyggð.
Reiknað er með að verkinu verði lok-
ið í sumarbyrjun. Verið er að athuga
hvort Sparkaupsverslunin getur
verið í núverandi húsnæði uns nýja
húsið er tilbúið, en Kaupfélag Hér-
aðsbúa hefur selt húsnæðið og átti
að flytja út fyrir 1. mars nk.