Morgunblaðið - 01.04.2005, Síða 28

Morgunblaðið - 01.04.2005, Síða 28
Þau manneldismarkmið, semsett hafa verið fram oggilda fyrir þorra alls heil-brigðs fólks, eiga ekki við um sjúklinga eða gamalmenni. Á meðan við beinum í vaxandi mæli fitu- og sykursnauðri fæðu að börn- um og unglingum, þurfum við ekki að taka fitu og sykur úr fæðunni fyrir eldra fólk. Það þarf að borða meiri fitu og meiri sykur til að halda í orkuna, segir Guðrún Þóra Hjalta- dóttir, sem starfar sem sjálfstæður næring- arráðgjafi og kennari við Hagaskóla og Námsflokka Reykja- víkur. Guðrún Þóra hefur m.a. tekið út fæðuþátt elli- og hjúkrunarheimila og segir hún að gjörólík viðmið þurfi að hafa í heiðri þegar matreitt er fyr- ir fólk sem komið er yfir 75 ára aldur en þegar matreitt er fyrir fullfrískt fólk á besta aldri, svo ekki sé nú talað um börn og unglinga. Kunnáttu- og þekkingarleysi ,,Kannanir hafa leitt það í ljós, meðal annars á Norðurlöndunum, í Hollandi og í Kanada, að gamalt fólk á elli- og hjúkrunarheimilum er van- nært og svo er einnig með marga, sem búa einir heima. Trúlega hefur þessi hópur gleymst í ofeldisumræð- unni. Ég held að þarna komi margir þættir inn í, eins og til dæmis kunn- áttu- og þekkingarleysi þeirra, sem ráða ferðinni í eldhúsunum, starfs- fólk í lágmarki auk þess sem mikið er af erlendu starfsfólki sem gerir tjá- skiptin erfið. Þetta er auðvitað mikil vanhugsun. Matreiðslumenn eru ráðnir inn á þessar stofnanir til þess að elda samkvæmt manneldismark- miðum. Manneldismarkmiðin segja að skerða beri fitu og hvítan sykur úr fæðunni. Það eru önnur gildi fyrir eldra fólk, sem oft er lystarlítið. Ég hef stuðst við nor- ræn manneldis- markmið, sem eru fyrir 75 ára og eldri í mínum út- reikningum og kemur fæðuhringurinn því til með að líta öðruvísi út hjá þessum aldurs- hópi. Orkuleysi hrjáir oft þetta fólk vegna þess að við leggjum allt okkar kapp á að taka fitu og sykur úr fæð- unni og gleymum því að þetta fólk borðaði öðruvísi mat en við erum að ráðleggja í dag. Við rýrnum með aldrinum. Vöðvarnir minnka, þorsta- og hungurtilfinningin minnkar, hreyfigetan verður minni og bragð- skynið getur breyst. Fólk á dvalar- og hjúkrunarheim- ilum hefur hinsvegar tilhneigingu til að grennast meira en góðu hófi gegn- ir. Ástæðurnar eru trúlega margar. Það verða margar breytingar hjá okkur almennt þegar við eldumst. Breyttar aðstæður eins og til dæmis flutningar, einmanaleiki, söknuður, þunglyndi, gleymska, lélegt ástand tanna, kyngingarerfiðleikar, öðruvísi matur, ýmsir sjúkdómar og fleira getur haft áhrif á hvað við borðum. Þó svo að lystin minnki, þurfum við öll næringarefni á borð við vítamín og steinefni. Þá þarf að kappkosta að hafa mikla næringarþéttni í til- tölulega smáum matarskömmt- um.Við fáum orku úr kolvetnum, fitu og próteinum og fitan gefur okkur einmitt hvað mestu orkuna. Þannig að þegar við þurfum að auka orkuna, er auðveldast að auka fituna. Það er mikilvægt að það líði um þrjár til fjórar klukkustundir á milli máltíða og að það séu ekki meira en ellefu klukkustundir frá kvöldhressingu að morgunverði,“ segir næringar- ráðgjafinn. Rjómabland og majónessalöt Þegar Guðrún Þóra er beðin um að gefa holl ráð varðandi mataræði gamals fólks, segir hún í fyrsta lagi að maturinn þurfi að vera næring- arþéttur. ,,Maturinn þarf að vera girnilegur á að líta. Þá eru ávextir og grænmeti fæðutegundir, sem gefa ekki mikla orku, en þegar gamla fólkið er búið að fylla sig af þeim, er ekkert pláss orðið eftir í maganum fyrir orkumeiri fæðu. Ég mæli með því að gamalt fólk noti ekki mikið af nýjum ávöxt- um og grænmeti, en þó það græn- meti, sem það þekkir, svo sem rófur, gulrætur og soðið kál. Niðursoðnir ávextir eða þurrkaðir eru kjörnir í ávaxtagrauta með rjómablandi. Brauðsneiðar eiga að vera þunnar og smurðar með þykku lagi af viðbiti og nota skal vel af áleggi. Nota skal lítið af kartöflum, hrísgrjónum og pasta, en nota oftar kartöflumús með rjóma, smjöri og eggjum eða grat- íneraðar kartöflur með rjóma og osti. Bjóða skal mjólkurvörur og ost með háu fituhlutfalli eða 45+ og þykkar sneiðar. Rjóma eða sýrðan rjóma er gott að nota í eftirrétti og sósur og rifinn ost í súpur og yfir heita rétti. Kæfan er best með fitu og ekki þarf að draga neitt úr majónessalötum. Hafragrautur og slátur með rjóma- blandi er kjarngóður morgunmatur. Gott úrval af brauðum er nauðsyn- legt en þau eiga að vera trefjarík en ekki of gróf. Þeyttur rjómi með kök- um er kjörin búbót á sunnudögum. Þá er æskilegt að taka fjölvítamín daglega,“ segir Guðrún Þóra. Fúlsað við pastaréttum Sú kynslóð, sem nú er inni á dval- ar- og hjúkrunarheimilum og telst því til elstu núlifandi kynslóða, er alin upp á allt öðru fæði en nútíma kyn- slóðir eru að tileinka sér. „Við erum í raun að fást við þrjá mismunandi þjóðfélagshópa og þurfum því að beina ráðleggingum okkar í þrjár mismunandi áttir. Í fyrsta lagi er það yngsta kynslóðin, sem nú er að vaxa úr grasi og er alin upp á skyndibita- fæði og hreyfingarleysi. Í öðru lagi er það kynslóðin, sem nú er á miðjum aldri, og svo elsta núlifandi kyn- slóðin, sem alist hefur upp á stað- góðum íslenskum mat. Það þýðir ekkert að bjóða því upp á framandi hrísgrjóna- og pastarétti, sem eru vinsælir meðal ungs fólks í dag. Sú kynslóð vill áfram fá sinn íslenska mat, sem hún hefur alist upp við, eins og lambakjöt, slátur, fisk og kleinur. Það er mjög erfitt að ætla sér að breyta mataræði fólks, sér í lagi eldra fólks og kannski engin ástæða til. Lélegt næringarástand getur haft alvarlega fylgikvilla fyrir eldri borg- ara, meðal annars minni hreyfigetu og minnistap auk þess sem sterkt samband er á milli lífsvilja, lífsgæða og næringar. Eldra fólk, sem fær góða næringu, er heilsubetra og býr almennt við betri lífsgæði,“ segir Guðrún Þóra Hjaltadóttir að lokum.  HEILSA Hátt fituinnihald í kjöti og ostum, sykur í mat og drykki, rjómabland út á grauta og skyr og þeyttur rjómi með kökum á sunnu- dögum er meðal þess sem næringarráðgjaf- inn Guðrún Þóra Hjaltadóttir sagði Jóhönnu Ingvarsdóttur að gamalt fólk ætti að njóta. Sterkt samband er á milli lífsvilja, lífs- gæða og næringar. Morgunblaðið/Þorkell „Þorsta- og hungurtilfinningin minnkar, hreyfigetan verður minni og bragðskynið getur breyst,“ segir Guðrún Þóra Hjaltadóttir sem bendir á að gamalt fólk eigi ekki að borða fitusnautt og sykurskert eins og unga fólkið. Gamalt fólk þarf bæði fitu og sykur join@mbl.is 28 FÖSTUDAGUR 1. APRÍL 2005 MORGUNBLAÐIÐ DAGLEGT LÍF „SVARTFUGLINN á Bautanum er hrein snilld og villibráðarsósan er engu öðru lík. Við urðum allt í einu eitthvað svo svangir og fórum að ræða um þennan svartfuglsrétt. Við fengum fljótlega vatn í munninn yfir þessari umræðu svo við ákváðum bara allt í einu að brenna til Akureyr- ar í svartfuglinn,“ segja æskufélag- arnir Ingvar Þór Kale, Jónas Ingi Jónasson og Pétur Þorgeirsson, sem allir eru Kópavogsbúar, en voru staddir í fríi á Blönduósi páskahelg- ina þegar hungurtilfinningin gerði svona rækilega vart við sig með þeim afleiðingum að þeir lögðu á sig rúm- lega eins og hálfs tíma ökuferð til að kitla bragðlaukana. Daglegt líf hafði samband við Há- kon Sæmundsson, yfirmatreiðslu- mann á veitingastaðnum Bautanum, sem staðsettur er í hjarta Akureyrar, á horni Hafnarstrætis og Kaupangs- strætis, í einu elsta og fallegasta húsi bæjarins. Og það var auðvitað sjálf- sagt mál að fá uppskrift af þessum ómótstæðilegu svartfuglsbringum, sem eru léttsteiktar og bornar fram með steiktu grænmeti, sykurbrún- uðum kartöflum, týtuberjasultu og títtnefndri villibráðarsósu. Veitinga- staðurinn Bautinn á sér orðið 34 ára sögu. Hákon segir matseðilinn vera fjölbreyttan og því ættu allir að finna á honum eitthvað við sitt hæfi. Auk fisk- og kjötrétta er boðið upp á ham- borgara, samlokur, pitsur og pastarétti. Tvenns konar súpur eru í boði á degi hverjum auk salatbars. Eigendur Bautans eru Akureyringarnir Guð- mundur Karl Tryggvason og Hallgrímur Arason. „Ég myndi segja að svart- fuglsrétturinn okkar sé frekar vinsæll og hafa gestir okkar verið mjög ánægðir með hann. Rétturinn er þó vinsælli yfir sumartímann en yf- ir vetrartímann og hafa útlendingar jafnt sem Íslendingar gert honum góð skil,“ segir Hákon. Aðal svart- fuglsveiðitíminn fer að ganga í garð, en hann er á vorin, og geta þá svart- fuglsveiðimenn spreytt sig á upp- skriftinni, sem hér fylgir úr smiðju Bautamanna. Léttsteiktar svartfuglsbringur (fyrir fjóra) 8 svartfuglsbringur 500 ml villibráðar- eða nautasoð 3 dl rjómi 3–4 msk. týtuberjasulta 1 tsk. villibráðarkrydd salt og pipar Sjóðið upp á soðinu, en einnig er hægt að kaupa tilbúið soðþykkni í stórmörkuðum. Setjið villibráð- arkryddið og sultuna saman við. Leyfið að sjóða í nokkrar mínútur og þykkið lítillega með maisena- sósujafnara eða smjörbollu. Hitið pönnu vel á meðan soðið er þykkt. Þegar pannan er orðin heit, eru bringur brúnaðar beggja vegna og kryddað með salti og pipar. Tilbúinni sósunni er svo hellt yfir bringurnar á pönnunni og þessu leyft að sjóða í 3–5 mínútur. Rjóma bætt út í og smakkað til með salti og pipar. Bringurnar eiga að vera vel rauðar, en passa þarf að þær nái samt að hlaupa í gegn.  MATARKISTAN | Keyrðu frá Blönduósi til Akureyrar til að fá sér svartfugl á Bautanum Morgunblaðið/Kristján Hákon Sæmundsson á Bautanum matreiðir svartfugl í eldhúsi staðarins. Morgunblaðið/Kristján Svartfuglsréttur með villi- bráðarsósu að hætti Bautans. Morgunblaðið/ÞÖK Svartfuglsaðdáendurnir, frá vinstri: Ingvar Þór Kale, Jónas Ingi Jónasson og Pétur Þorgeirsson. TENGLAR ..................................................... www.bautinn.is join@mbl.is „Villibráðarsósan er engu öðru lík“

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.