Morgunblaðið - 01.04.2005, Qupperneq 47

Morgunblaðið - 01.04.2005, Qupperneq 47
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 1. APRÍL 2005 47 MINNINGAR ✝ Hulda SigríðurGuðmundsdóttir Norðdahl fæddist á Geithálsi í Mosfells- sveit 27. nóvember 1913. Hún lést á Hrafnistu í Hafnar- firði mánudaginn 21. mars síðastliðinn. Foreldrar hennar voru Guðmundur Norðdahl, bóndi í Elliðakoti og síðar á Geithálsi í Mosfells- sveit, f. 14. desember 1842, d. 19. febrúar 1929, og kona hans Margrét Sigurðardóttir Norð- dahl, f. 23. júní 1876, d. 14. júlí 1968. Alsystkini Huldu voru Ás- kell, f. 5. október 1903, d. 7. apríl 1981, Kjartan, f. 5. júlí 1905, d. 5. ágúst 2000, Ragna Sigurbjörg, f. 7. maí 1908, Magnús, f. 8. október 1909, d. 2. júlí 1981, Valur, f. 1. október 1911, d. 18. ágúst 1967, og Sigurður, f. 7. nóvember 1914, d. 11. janúar 1974. Hulda giftist 26. febrúar 1938 Páli Halldórssyni, kennara og organ- leikara, f. 14. janúar 1902. d. 30. júní 1988. Börn Huldu og Páls eru: 1) Margrét, f. 14. apríl 1943, gift Haraldi Magnússyni, f. 11. mars 1941. Börn þeirra eru: A) Hulda Patricia, f. 11. maí 1970. Dætur hennar eru Auður Margrét Hafsteins- dóttir, f. 19. febrúar 1997, og Þorbjörg Signý Hafsteinsdótt- ir, f. 30. nóvember 1998. B) Páll, f. 19. september 1972, í sambúð með Ingibjörgu Eddu Halldórsdóttur, f. 5. maí 1965. C) Magnús Sigurð- ur, f. 14. janúar 1976. D) Halldór Gunnar, f. 26. maí 1978. 2) Hall- dór, f. 15. júní 1946. Börn hans eru Sigríður, f. 10. ágúst 1971, og Páll, f. 14. júlí 1984. Hulda verður jarðsungin frá Fossvogskirkju í dag og hefst at- höfnin klukkan 13. Látin er tengdamóðir mín Hulda Sigríður Norðdahl á Hrafnistu í Hafnarfirði. Hún var fædd 27. nóv- ember 1913 að Geithálsi í Mosfells- sveit, dóttir Guðmundar Norðdahl og seinni konu hans Margrétar Sigurð- ardóttur Norðdahl. Alsystkinin, börn Guðmundar og Margrétar, voru sjö. Áður en Hulda var af barnsaldri flutti fjölskyldan til Hafnarfjarðar og sett- ist að undir Hamrinum við Lækinn í húsi sem þau nefndu einnig Geitháls. Í Hafnarfirði ólst hún upp og gekk í skóla. Hún fór einnig í húsmæðra- skóla í Danmörku, sem varð henni gott veganesti. Hún vann að vísu utan heimilis áður en okkar kynni hófust en í mínum huga var hún fyrst og fremst hin góða heimavinnandi hús- móðir sem lét sér annt um börn og bú og bjó sér og eiginmanni sínum, Páli Halldórssyni, kennara og organista, vistlegt og fallegt heimili þar sem bækur og tónlist voru í fyrirrúmi og þar sem Margrét móðir hennar átti gott skjól síðustu æviárin. Hulda batt inn bækur og lagði stund á hannyrðir og margt liggur eftir hana sem ber handlagni hennar fagurt vitni. Einnig var Páli margt til lista lagt og fékkst mikið við nótna- skrift eins og sjá má af miklum fjölda nótnahefta, sem eftir hann liggur, eft- ir ýmsa höfunda og reyndar hann sjálfan líka. Mér stendur það skýrt fyrir hug- skotssjónum er ég hitti hana fyrst. Ég var í heimsókn hjá dóttur hennar en Hulda var ekki heima við. Þegar leið á kvöldið kom Hulda heim, falleg og glæsileg, og tók mér ljúfmannlega eins og ævinlega. Síðan er margs góðs að minnast frá heimilinu í Drápuhlíð 10 bæði hversdags og á hátíðum. Hulda hafði yndi af tónlist og fórum við oft á tónleika saman. Stundum var ég þeim innan handar með ýmiss kon- ar viðhald því Hulda vildi alltaf hafa snyrtilegt og röð og reglu. Á heimili þeirra voru tíðir gestir systkin og tengdafólk Páls og Huldu en þau voru mjög ættrækin og samheldni mikil í þeirra fjölskyldum. Eftir að Páll lést sviplega af slys- förum bjó Hulda ein í Drápuhlíð 10 í nokkur ár þar til hún fór á Hrafnistu í Hafnarfirði. Þá fór að þjá hana illvíg- ur hrörnunarsjúkdómur sem undir það síðasta varð henni mjög erfiður. Síðustu árin var Ragna systir hennar einnig á Hrafnistu. Ragna sýndi henni mikla umhyggju og var allt til hinstu stundar vakin og sofin í um- hyggju sinni fyrir litlu systur. Síðasta ferð Huldu af bæ var þegar hún kom til okkar á aðfangadags- kvöld fyrir tveimur árum. Þá var eins og fögnuður og gleði jólanna veitti henni aukinn kraft og er gott að eiga þá stund í minningunni. Einnig naut hún sín vel á 90 ára afmælinu, sem haldið var uppá á Hrafnistu, en jafnt og þétt dró af henni bæði andlega og líkamlega og að lokum var ekkert eft- ir nema góðmennskan og hjartahlýj- an. Ég þakka Huldu fyrir samfylgd- ina. Blessuð sé minning hennar. Haraldur Magnússon. HULDA NORÐDAHL Frá félagi eldri borgara í Hafnarfirði Þriðjudaginn 29. mars var spilað á 9 borðum og var meðalskor 216. Úr- slit urðu þessi. N/S Bragi Björnsson – Auðunn Guðmundss. 273 Bjarnar Ingimarss – Friðrik Hermannss. 234 Jón Pálmason – Sverrir Jónsson 230 A/V Jón Sævaldsson – Sigurberg Elentínuss. 260 Jón Gunnarsson – Sigurður Jóhannsson 258 Bragi V. Björnsson – Guðrún Gestsdóttir 256 Bridsfélag Hafnarfjarðar Síðasta kvöldið fyrir páska var tekin eins kvölds tvímenningur með þátttöku 10 para. Lokastaðan varð þessi: Sigfús Þórðarson - Kristján Snorrason 16 Skúli Bjarnason - Eiríkur Hjaltason 13 Guðlaugur Bessason - Sverrir Jónsson 10 Mánudaginn 4. apríl byrjar þriggja kvölda hraðsveitakeppni. Framundan er ferð upp á Skaga, og er því tilvalið að koma sér í æfingu, auk þess sem raðað verður niður á borð eftir árangri í þessari keppni. Muna eftir að mæta tímanlega eða hringja í Eirík, s. 8-620-690. Frá Bridsdeild FEBK Gjábakka Þriðjudaginn 22. mars var spilað- ur tvímenningur á 7 borðum. Með- alskor var 168. Úrslit urðu þessi: N/S Elín Guðmundsd. - Jóhanna Gunnlaugsd.210 Eysteinn Einarsson - Jón Stefánsson 190 Guðjón Kristjánss. - Magnús Oddsson 178 A/V Ólafur Ingvarss. - Þorsteinn Sveinsson 199 Sigtryggur Ellertss. - Þorsteinn Laufdal 185 Ragnar Ásmundsson - Þórarinn Árnason173 Þriðjudaginn 29. mars var spilað- ur tvímenningur á 5 borðum. Með- alskor var 120. Úrslit urðu þessi: N/S Eysteinn Einarss. - Jón Stefánsson 138 Lilja Kristjánsd. - Unnar Á. Guðmss. 121 Elín Guðmundsd. - Jóhanna Gunnlaugsd.111 A/V Einar Einarsson - Sigtryggur Ellertsson 129 Guðjón Kristjánsson - Magnús Oddsson 121 Ólafur Ingvarsson - Þorsteinn Sveinsson 119 BRIDS Umsjón Arnór G. Ragnarsson Bjarni Rafnar fyrrv. yfirlæknir er horfinn frá okkur. Sá þriðji úr hópi MA-stúdenta 1940, sem kveður á nokkrum mánuðum. Stöðugt fækkar í hópnum, við vorum 38 í upphafi. Tengslin hafa verið óvenjugóð, við höfum komið saman árlega frá upp- hafi og notið þess að hittast. Margar minningar koma í hugann er litið er yfir farinn veg. Bræðurnir Jónas og Bjarni voru saman í bekk, þó að Bjarni væri aðeins yngri, en hann var yngstur í bekknum. Báðir góðir drengir og góðir félagar. Við Bjarni kynntumst vel í skóla, vorum sessunautar tvö síðustu árin. Bjarni var glaður og reifur í samskiptum öll- um. Þessu glataði hann ekki er árin liðu. Glettni og gamansemi ein- kenndu hann jafnan. Hann las lækn- isfræði og varð læknir og sér- fræðingur í kvensjúkdómum og varð brátt vinsæll fyrir störf sín. Lengi starfaði hann á Akureyri og varð vin- sæll mjög. Samskipti hans við sjúk- linga voru svo mannleg en um leið vinsamleg og glaðleg. Marga sjúklinga hans hitti ég sem dásömuðu framkomu hans við þá. Við urðum fyrr að ná bata af því að hann kunni lag á því að hressa okkur með gamansemi sinni. Það var ekki langt á milli okkar meðan hann var á Akureyri og sam- bandið stöðugt og gott. Hann kvænt- ist ágætri konu, Bergljótu Haralds- dóttur. Hún bjó honum fallegt og gott heimili, þangað var notalegt að koma og einnig var ánægjulegt að fá þau í heimsókn. Bjarni hafði góða frásagnargáfu og naut þess að segja frá ýmsu. Gam- ansamur var hann og kunni skil á því sem gladdi. Enda hafði hann ekki BJARNI RAFNAR ✝ Bjarni JónassonRafnar fæddist á Akureyri 26. janúar 1922. Hann lést á hjúkrunarheimilinu Eir 6. mars síðastlið- inn og var útför hans gerð frá Bústaða- kirkju 15. mars. langt að sækja það. Faðir hans Jónas yfir- læknir á Kristnesi, kunni ágætlega að segja frá. Jónas og Bjarni buðu stundum nokkrum skólabræðr- um heim í Kristnes. Það voru góðar stundir. Þá sagði Jónas faðir þeirra margar skemmtilega sögur og gerði þar af snilld. Hann sagði gjarna frá sérkennilegum mönn- um sem hann hafði kynnst. Einnig má minnast á afa þeirra bræðra séra Jónas á Hrafnagili, sem tók saman þá merku bók Íslenska þjóðhætti. Ég minnist þess er afi minn sem þekkti séra Jónas vel sagði frá honum og taldi hann mikinn mannkostamann og skemmtilegan mjög. Þegar Bjarni sagði sögur var þar aldrei neinn broddur sem gæti sært eða lítilsvirt, heldur græskulaust gaman, en hið sérkennilega kom vel fram. Margar stundir man ég er hann sagði frá og skemmti okkur með frásögum sínum Bjarni var tón- elskur maður og naut þess að leika á hljóðfæri og syngja. Þannig leið ævin. Sambandið gott og við nutum þess að hittast og spjalla. Bjarni flutti til Reykjavíkur er kom að starfslokum og naut þess að starfa þar í nokkur ár. – Alltaf mætti Bjarni á bekkjarsamkomur okkar og gladdist með okkur. Sextíu og fimm ár eru síðan við brautskráðumst úr MA, það er lang- ur tími en vináttuböndin hafa reynst sterk og hópurinn verið samheldinn. Ég vil fyrir hönd bekkjarbræðra þakka Bjarna samfylgdina og vináttu góða. Við minnumst hans með hlýhug og sendum börnum hans og fjöl- skyldum þeirra samúðarkveðjur og blessunaróskir. Við Aðalbjörg kveðjum í þökk fyrir samverustundirnar mörgu og góðu. Guð blessi minninguna um góðan dreng. Sigurður Guðmundsson. Bernskuárin björt og hrein, basl ei nokkurn mæddi. Sterk er fallin eikin ein, sem áður Drangsnes fæddi. Sárt þín vinir sakna um sinn, og sólskins daga heima. Enn sem fyrr mun andi þinn, yfir Drangsnes sveima. Enn er svo í dauðans dökku hrinum, að sorgin djúp hún sækir okkur heim. Eiginkonu ættingjum og vinum, alla mína samúð sendi þeim. Sigurgeir í Hamravík, Drangsnesi. FRIÐRIK ANDRÉS- SON ✝ Friðrik Andrésson fæddist áDrangsnesi við Steingríms- fjörð í Kaldrananeshreppi á Ströndum 9. mars 1934. Hann lést á LSH við Hringbraut 17. febrúar síðastliðinn og fór útför hans fram frá Hallgrímskirkju í Reykjavík 25. febrúar.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.