Morgunblaðið - 01.04.2005, Qupperneq 59
Sýnd kl. 4 Ísl. tal. ATH! verð kr. 500.
Nýr og betriHverfisgötu ☎ 551 9000
553 2075
- BARA LÚXUS
☎
Sýnd kl. 8 og 10.10
SV mbl
Will Smith er
Sýnd kl. 5.30 ,8 og 10.30
S.V. Mbl.
K&F X-FM
ÓÖH DV
Sýnd kl. 4 m. íslensku tali
400 kr. í bíó!*
Kvikmyndir.is.
R E E S E W I T H E R S P O O N
Stjarnan úr Legally Blonde
og Sweet Home Alabama
í yndislegri mynd.
VANITY
THE SUMPTUOUS NEW FILM FROM MIRA NAIR
S.V. MBL
ÓÖH DV
Kl. 4 og 6 með íslensku tali
K&F X-FM
Sýnd kl. 5.45 8 og 10.30
Frábær grínmynd
fyrir alla fjölskylduna
r r rí
f rir l fj lsk l
S.V. MBL.
K&F X-FM
Sýnd kl. 8 og 10.30 B.i. 16 ára.
Frábær grínmynd fyrir alla fjölskyldunar r rí f rir ll fj l l
Eileen Atkins, Jim Broadbent, Gabriel Byrne,
Romola Garai, Bob Hoskins, Rhys Ifans, James
Purefoy, Jonathan Rhys Meyers
Ó.H.T Rás 2
Ó.H.T Rás 2
400 kr. í bíó!* * Gildir á allar sýningarmerktar með rauðu
Sýnd kl. 6 m.ísl. tali
FRAMHALDIÐ AF GET SHORTY
ÓÖH DV
SK DV
Sýnd kl. 5.30, 8 og 10.30 B.i. 14 ára.Sýnd kl. 5.40, 8 og 10.20 B.i. 16 ára.
HÆTTULEGASTA
GAMANMYND ÁRSINS
J.H.H. kvikmyndir.com
HÖRKU SPENNUMYND FRÁ
SÖMU OG GERÐU LÉON OG LA
FEMME NIKITA
Hann var alinn upp sem
skepna og þjálfaður til að
berjast. Nú þarf hann
að berjast fyrir lífi sínu!
JET LI MORGAN FREEMAN BOB HOSKINS
A FILM BY LOIS LETERRIER
HÖRKU SPENNUMYND FRÁ
SÖMU OG GERÐU LÉON OG
LA FEMME NIKITA
Hann var alinn upp sem
skepna og þjálfaður til að
berjast. Nú þarf hann
að berjast fyrir lífi sínu!
JET LI MORGAN FREEMAN BOB HOSKINS
A FILM BY LOIS LETERRIER
Sýnd kl. 5.45 8 og 10.10 B.I 16 ÁRA
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 1. APRÍL 2005 59
ÓLAFUR S. Bjarnleifsson, fyrrver-
andi bryti og leiðsögumaður, kom
auga á torkennilegt hvítt fyrirbæri í
fjörunni við Ægisíðu, er hann var
þar í sinni árlegu gönguferð í gær-
kvöldi. Ólafur, sem er 84 ára og
skildi nýlega við eiginkonu sína til
36 ára, Rannveigu Angantýsdóttur
húsfreyju, tók samstundis lykkju á
leið sína og kannaði betur hvað væri
þarna á ferðinni. Þegar nær kom sá
hann að um var að ræða stóran
kassa með árituninni „Shampoo –
for chemically treated hair“.
Ólafur, sem segist vera til-
tölulega slappur í engilsaxnesku,
áttaði sig ekki alveg á þýðingu
þessa fundar, þótt við nánari skoð-
un kæmi í ljós að kassarnir væru
miklu fleiri. „Ég taldi eina 6.000
svona kassa þarna í fjörunni, mér til
mikillar furðu. Mér þykir líklegt að
gámur hafi runnið í sjóinn af ein-
hverju flutningaskipinu, opnast og
þessi varningur flotið út. Haf-
straumar hafa líklega verið hag-
stæðir og afhent okkur þennan
varning á silfurbakka,“ segir hann.
„Smám saman rann upp fyrir mér
að þarna væri hársápa á ferðinni.
Sjálfur nota ég ekki slíka sápu, en
þarna bar að konu sem var greini-
lega öllum hnútum kunnug í snyrti-
vöruheiminum. Hún bar kennsl á
varninginn og þýddi áletrunina fyr-
ir mig. Að sjálfsögðu kippti hún ein-
um kassa með sér heim.“
Ólafur vill hvetja alla sem vett-
lingi geta valdið til að hópast í
Ægisíðuna og tryggja sér hlut í
þessum góða feng. „Ég veit að það
eru margir þarna úti sem hafa látið
lita á sér hárið, eða jafnvel misst
kemísk efni ofan í hársvörðinn.
Þetta er ómissandi tækifæri og um
leið kjarabót fyrir almenning í land-
inu. Hvers vegna að borga fyrir hár-
sápu sem annars fæst gefins? Það er
nóg fyrir alla.“
Aprílgabb | Ársbirgðir af sjampói við Ægisíðuna
„Nóg fyrir alla“
Morgunblaðið/Árni Torfason
Eins og hér má sjá er Ægisíðan „löðrandi“ í sjampóbrúsum. Fyrstir
koma, fyrstir fá! ivarpall@mbl.is
Í dag er 1. apríl og svo skemmtilega vill til að
300 tonn af sjampói hefur rekið upp í fjöru við
Ægisíðu. Ívar Páll Jónsson sér um aprílgabb
Morgunblaðsins í ár.
LÖGFRÆÐINGUR
stjarnanna, hinn
bandaríski Johnnie
Cochran, lést á heimili
sínu á þriðjudag 67
ára gamall. Banamein
hans var heilaæxli.
Cochran er frægur
fyrir að hafa varið
þekkt fólk fyrir rétti
en þeirra á meðal eru
O.J. Simpson, Michael
Jackson og Sean „P.
Diddy“ Combs.
Cohran varð frægur
árið 1995 þegar honum
tókst að fá Simpson
sýknaðan af af ákæru
um að hafa myrt eig-
inkonu sína, Nicole
Brown Simpson.
„Ferils Johnnie
verður vissulega
minnst fyrir fræg mál
og fræga skjólstæð-
inga. En hann og fjöl-
skylda hans voru
stoltust af þeirri vinnu
sem hann innti af
hendi fyrir sam-
félagið,“ sagði fjöl-
skylda hans í yfirlýs-
ingu en Cochran
barðist m.a. gegn of-
beldi lögreglumanna.
„Fólk á eftir að
minnast Johnnie fyrir
niðurstöðu réttarhalds
míns en ég á eftir að
minnast hans sem
guðrækins fjölskyldumanns,“ sagði
Simpson í yfirlýsingu. Á meðan á
réttarhöldum Simpsons stóð, en
þeim var sjónvarpað í beinni út-
sendingu um Bandaríkin, sagði
Cochran og lið hans að það væri
verið að ráðast gegn Simpsons
vegna hörundslitar hans.
Eftir þessi réttarhöld varð
Cochran að ákveðnu tákni í popp-
menningu og var oft hent gaman
að honum í sjónvarpsþáttum á borð
við Seinfeld og minnst á hann í
kvikmyndum.
Jackson minnist lögfræðingsins
af mörgu góðu. „Johnnie Cochran
var mikill mannvinur. Ég elskaði
hann og á eftir að sakna hans. Ég
er stoltur af því að hafa getað kall-
að hann vin minn.“
Fólk | Stjörnulögfræðingurinn Johnnie Cochran látinn
Banameinið heilaæxli
Johnnie Cochran í rétt-
arsalnum með O.J.
Simpson sér við hlið.
MIÐASALA á tónleika
skosku rokksveitarinnar
Franz Ferdinand hefst á
morgun. Salan fer fram í
verslunum Skífunnar á
Laugavegi, í Kringlunni
og í Smáralind og í versl-
un 12 Tóna við Skóla-
vörðustíg.
Einnig verða seldir
miðar í verslunum BT á
Akureyri og Selfossi.
Miðaverð er 4.750
krónur. Alls verða 2.500
miðar seldir á tón-
leikana, sem fram fara í
Kaplakrika í Hafnarfirði
föstudaginn 27. maí.
Enn hefur ekki verið ákveðið hverjir hita upp fyrir Franz Ferdinand. Að því
er fram kemur í tilkynningu er þó ljóst að upphitunarbandið verður úr röðum
íslenskra tónlistarmanna.
Tónlist | Franz Ferdinand í Kaplakrika
Miðasala á tónleika Franz Ferdinand í Kapla-
krika 27. maí hefst á morgun.
Miðasala hefst á morgun