Morgunblaðið - 21.08.2005, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 21.08.2005, Blaðsíða 12
12 SUNNUDAGUR 21. ÁGÚST 2005 MORGUNBLAÐIÐ L ög um erfðaefnisskrá lögreglu voru sett vorið 2001, en gagnagrunnurinn hefur enn ekki litið dagsins ljós. Reglu- gerð, sem byggist á lögunum, mun þó vera í burðarliðnum og unnið er að því að fá hug- búnað til að vinna gagna- grunninn. Hugbúnaðurinn er fenginn frá bandarísku alríkislögreglunni, FBI, og nefnist CODIS. FBI nýtir hugbúnaðinn m.a. til að tengja saman gagnagrunna lögreglu víða um Bandaríkin. Íslenski grunnurinn verður hins vegar vistaður í einni tölvu hjá embætti rík- islögreglustjóra. Sú tölva verður ekki tengd neinni annarri tölvu, til að tryggja öryggi upp- lýsinganna sem best. Í lögum 88/2001 um erfðaefnisskrá lög- reglu, sem Alþingi samþykkti 20. maí 2001, er kveðið á um að ríkislögreglustjóri skuli halda rafræna skrá með upplýsingum um erfðaefni einstaklinga. Tilgangur skrárinnar er að lög- regla geti nýtt hana við rannsókn sakamála og til að bera kennsl á ákveðna menn. Skráin skiptist í kennslaskrá og sporaskrá. Í kennsla- skrá er að finna upplýsingar um erfðaefni sem kennsl hafa verið borin á og vitað er frá hverj- um stafa. Sporaskrá inniheldur upplýsingar um þau líffræðilegu spor sem skilin hafa verið eftir á brotavettvangi án þess að vitað sé hverjum þau tilheyra. Í athugasemdum með frumvarpi til laga um erfðaefnisskrá lögreglu, sem þáverandi dóms- málaráðherra, Sólveig Pétursdóttir, mælti fyrir 5. apríl 2001 sagði að tilgangur erfðaefn- isskrárinnar væri að auðvelda lögreglu rann- sókn alvarlegra sakamála, svo sem mann- dráps, nauðgunar, líkamsárásar og mis- notkunar gegn börnum, en í slíkum málum skilja brotamenn oft eftir sig líffræðileg spor sem innihalda erfðaefni, tæk til rannsókna. Þá sagði: „Kostir slíkrar skrár eru margvíslegir. Ber þar fyrst að nefna að með aðgengilegum upplýsingum aukast möguleikar rannsóknar- aðila til samanburðarrannsókna. Bera má sýni sem finnst á brotavettvangi saman við skrá- settar upplýsingar og getur það leitt til þess að maður sem sakfelldur hefur verið fyrir til- tekið brot verður fyrr tengdur nýju broti, eða fyrr hreinsaður af grun um brotið. Mikilvægi slíkra samanburðarrannsókna er ekki síst fólgið í því að hreinsa saklausa menn af grun um afbrot. Þá ber að nefna að með saman- burðarrannsóknum sem þessum kann að kom- ast upp um eldra brot, áður óupplýst, við sam- anburð sýnis af þeim brotavettvangi og sýnis frá manni sem tekið er í þágu rannsóknar nýs brots. Sömuleiðis hefur verið nefnt að aðgang- ur að skrá um erfðaefni geri lögreglu kleift að bera saman sýni af fleiri en einum brotavett- vangi og fá þannig upplýsingar um að brotin séu framin af einum og sama manni, þótt kennsl hafi enn ekki verið borin á hann. Þrátt fyrir að brotamaðurinn sé ókunnur geta slíkar upplýsingar haft mikilvæga þýðingu fyrir áframhaldandi rannsókn málsins. Að lokum ber að nefna að skráning upplýsinga um erfðaefni getur haft sérstök varnaðaráhrif. Brotamaður sem veit að upplýsingar um erfðaefni hans eru skráðar kann að halda sig frá afbrotum sem hann hefði annars framið, af ótta við að upp um hann komist.“ Aðeins þeir sem dæmdir eru Samkvæmt lögunum er eingöngu heimilt að skrá upplýsingar um erfðaefni manna sem hafa verið fundnir sekir um brot með dómi eða dæmdir ósakhæfir. Ganga íslensku lögin þar skemur en t.d. dönsku lögin frá árinu 2000, sem þó var byggt á við samningu frum- varpsins. Dönsku lögin heimila lögreglu að halda upplýsingum um erfðaefni manna, sem sýknaðir hafa verið af ákæru, í tíu ár frá sýknudóminum. Munu Danir færa þau rök fyrir þeirri reglu, að jafnvel þótt menn hafi verið sýknaðir af einu broti sé algengt að þeir komi við sögu lögreglu síðar. Í breskum rétti er heimilt að færa í erfða- efnisskrá upplýsingar um þá sem eru grun- aðir, en ef máli lýkur með sýknudómi eða nið- urfellingu máls er óheimilt að vitna til þeirra upplýsinga í máli sem síðar kann að verða höfðað á hendur viðkomandi. Í Bandaríkj- unum mun víða heimilt að skrá grunaða menn. Gagnagrunnar lögreglu, sem hafa að geyma upplýsingar um erfðaefni brotamanna, hafa verið mjög umdeildir víða um lönd. Íslenskir þingmenn settu þó fáa fyrirvara og umræður voru nánast engar. Tveir þingmenn stigu í pontu eftir að ráðherra hafði mælt fyrir frum- varpinu, en engar umræður urðu um málið eftir það. Breytingartillögur allsherjarnefndar voru samþykktar með yfirgnæfandi meiri- hluta og frumvarpið varð að lögum fyrir at- beina 45 þingmanna, en 18 voru fjarverandi. Athugasemdir við frumvarpið komu þó fram í umsögnum, sem leitað var eftir. Þannig benti t.d. Lögmannafélag Íslands á að ekki væru skýr fyrirmæli í frumvarpinu um hvern- ig ætti að nálgast lífsýni úr dæmdum mönn- um, en þingið virtist ekki telja þetta ann- marka og skýrði viðkomandi ákvæði ekki að þessu leyti. Þarf líklega að bíða fyrirmæla reglugerðar þar um. Eftirlit með skránni Persónuvernd er falið að hafa eftirlit með því að skráning og meðferð skráðra upplýs- inga í erfðaefnisskránni séu í samræmi við gildandi lög og einnig að hafa eftirlit með því að óviðkomandi fái ekki aðgang að skránni eða geti haft áhrif á skráningu í hana. Sam- kvæmt lögunum má veita lögreglustjórum, ríkissaksóknara og dómsmálaráðuneytinu að- gang að upplýsingum úr skránni, sem og er- lendum dómstólum og dómsmálayfirvöldum við ákveðnar aðstæður og rannsóknarstofu sem annast greiningu erfðaefnisins í skrána. Í umsögn Persónuverndar um frumvarpið kom fram, að stofnunin var ósátt við ákvæði um að hún gæti komið tillögum á framfæri við ríkislögreglustjóra og dómsmálaráðuneytið, hefði hún athugasemdir við starfrækslu skrár- innar. Taldi Persónuvernd þetta ákvæði ganga of skammt og vísaði til þess að sam- kvæmt lögum um persónuvernd og meðferð persónuupplýsinga hafi stofnunin heimildir til að knýja fram úrbætur, en ekki eingöngu koma tillögum á framfæri. Þrátt fyrir þessa athugasemd Persónuverndar stendur ákvæðið óbreytt í lögunum. Annar þáttur í eftirliti með starfrækslu skrárinnar er að þegar upplýsingar um ein- stakling hafa verið skráðar ber ríkislög- reglustjóra að tilkynna honum skriflega um skráninguna og tilgang hennar. Lögum sam- kvæmt getur hinn skráði kært ákvörðun rík- islögreglustjóra til dómsmálaráðherra, leitað álits umboðsmanns Alþingis og leitað atbeina dómstóla, bjóði honum svo við að horfa. Afskráð 2 árum eftir andlát Sá sem skráður verður í erfðaefnisskrá lög- reglu hverfur ekki af þeirri skrá fyrr en tveimur árum eftir andlát sitt, eða ef hann er sýknaður við endurupptöku máls. Persónu- vernd vildi að sett yrðu ákvæði í lögin um hvernig afmá skuli upplýsingar, t.d. að slíkt skyldi gerast sjálfvirkt með tæknilegri lausn, enda taldi stofnunin ella hætt við því að mis- brestir yrðu á lögboðinni eyðingu upplýsinga. Alþingi fór ekki að þessari ábendingu, en bú- ast má við að einhverjar reglur um þetta verði að finna í væntanlegri reglugerð. Reglur annarra þjóða um afskráningu upp- lýsinga eru mismunandi. Sums staðar er upp- lýsingum eytt eftir tiltekinn árafjölda frá af- plánun, ef hinn brotlegi hefur ekki komið við sögu á ný. Dönsku lögin miða við 70 ára aldur. Rökin fyrir slíkri reglu eru óljósari en rökin fyrir að skráning falli niður hafi menn gengið braut dyggðarinnar um ákveðinn tíma. Samið við FBI Þótt lögin um erfðaefnisskrá lögreglunnar séu rúmlega fjögurra ára gömul hefur ekkert bólað á gagnagrunninum til þessa. Nú hillir hins vegar undir að hann verði að veruleika. Töfina má rekja til samningaviðræðna við bandarísku alríkislögregluna, FBI, um afnot af hugbúnaði stofnunarinnar. Árni Albertsson, aðstoðaryfirlögregluþjónn hjá embætti rík- islögreglustjóra, segir að samningaviðræður við FBI hafi nýlega komist á skrið aftur, eftir töf sem varð vegna nýrra samninga FBI við lögregluyfirvöld annarra þjóða. „Við höfum fengið í hendurnar viljayfirlýsingu frá stofn- uninni og erum að vinna í því að afla vélbún- aðar sem getur nýtt hugbúnaðinn þaðan.“ Árni segir að uppsetning kerfisins hér sé ekki einföld, einmitt vegna þess að embættið sé lítið í samanburði við þau lögregluembætti sem FBI hefur samið við hingað til. „Hugbún- aðurinn miðast við tugi, hundruð og jafnvel þúsundir útstöðva, en íslenski grunnurinn verður aðeins vistaður í einni tölvu hjá emb- ætti ríkislögreglustjóra. Sú tölva verður ótengd öllum öðrum tölvum og til að komast í hana verða menn að komast inn um nokkrar læstar dyr hjá embættinu og kunna lykilorð í þokkabót. Við teljum upplýsingarnar vel varð- ar með þessu móti.“ Þótt nú styttist í að erfðaefnissafn lögreglu verði að veruleika segir Árni að ekki borgi sig að nefna neina dagsetningu í því sambandi. „Lögin eru klár og reglugerðin að mestu leyti líka. Hins vegar eiga samningar eftir að ganga fram og til baka milli okkar og FBI áð- ur en málinu verður lokið, auk þess sem tölu- verðan tíma tekur að ljúka öllum tækni- málum. Góðir hlutir gerast hægt.“ Hugbúnaðurinn, sem FBI hefur þróað, kall- ast CODIS, Combined DNA Index System. Hann var fyrst tekinn í notkun af lögreglu- yfirvöldum og rannsóknarstofum í 14 ríkjum Bandaríkjanna árið 1990, en fjórum árum síð- ar var FBI veitt lagaheimild til að setja á fót erfðaefnisgrunn sem næði til Bandaríkjanna allra. Lögregluyfirvöld geta því skipst á upp- lýsingum og hægt er að samkeyra grunnana innan ríkja eða á landsvísu. Samkvæmt upp- lýsingum á heimasíðu FBI, www.fbi.gov, hafa öll 50 ríki Bandaríkjanna sett lög sem heimila að tekin séu lífsýni úr dæmdum mönnum og erfðaefnisupplýsingar um þá færðar í gagna- grunn. Lífsýninu sjálfu eytt Erfðaefnisskrá lögreglu verður eingöngu notuð til að bera kennsl á menn, en ekki verð- ur hægt að lesa aðrar upplýsingar út úr henni, til dæmis heilsufarsupplýsingar. Skýringin er sú, að við rannsókn sakamála er leitað eftir svokölluðu „junk DNA“, sem er á því svæði litninga þar sem fjölbreytni er mest, en DNA á því svæði hefur ekki skilgreint hlutverk. Ís- lensku lögin gera ráð fyrir að lífsýninu sjálfu sé eytt, eftir að erfðaefnið í því hefur verið greint. Þannig er komið í veg fyrir þá hættu að lífsýnin séu notuð síðar í öðrum tilgangi en þeirra var aflað. Í frumvarpi dómsmálaráð- herra var gert ráð fyrir að fela mætti líf- sýnasafni vörslu sýnis, en breytingartillaga allsherjarnefndar setti undir þann leka. Erfðaefnisskráin verður að þessu leyti sam- bærileg við fingrafaraskrár. Í apríl 2004 fjallaði fréttarit UNESCO, Menntunar-, vísinda- og menningarstofnunar Sameinuðu þjóðanna, um mismunandi áherslur ríkja að þessu leyti. Þar kom fram, að í Þýskalandi, Austurríki, Finnlandi, Sví- þjóð, Danmörku og Hollandi er sýnum eytt eftir að erfðaefnið er skráð, til að koma í veg fyrir hættuna á að þau verði síðar notuð í öðr- um tilgangi. Í Bretlandi er hins vegar heimilt að geyma sýnin um aldur og ævi, Frakkar geyma þau í 40 ár eftir greiningu og mörg ríki Bandaríkjanna leyfa vörslu sýnanna, í mis- langan tíma þó. Rökin fyrir vörslu eru yf- irleitt, að hugsanlega þurfi að skoða sýnin aft- ur síðar. Fréttarit UNESCO vísar hins vegar til ummæla talsmanna bandarískra samtaka um borgaraleg réttindi, þess efnis að 6% bandarískra fyrirtækja og stofnana leiti eftir erfðafræðilegum upplýsingum við ráðningu starfsmanna, að þeim forspurðum. Þá búi bandaríska varnarmálaráðuneytið yfir stórum erfðafræðilegum grunni, sem settur hafi verið á laggirnar til að bera kennsl á látna her- menn. Grunnurinn geymi upplýsingar um þrjár milljónir manna og þegar séu allmörg dæmi um að FBI hafi sóst eftir upplýsingum úr grunninum í tengslum við rannsókn saka- mála. Með því ákvæði laganna að lífsýninu beri að eyða, sneiddi íslenski löggjafinn framhjá miklu deilumáli. Frumvarpið sigldi lygnan sjó gegnum þingið og ef til vill rísa engar deilur um málið héðan af. Víst er að lögreglan hefur beðið erfðaefnisskrárinnar með óþreyju og lít- ur svo á að ótti við slíka banka sé með öllu ástæðulaus. Glæpamennirnir og genin þeirra Lög um erfðaefnisskrá lögreglu voru samþykkt fyrir rúmum fjórum árum. Ragnhildur Sverrisdóttir segir að ekkert hafi bólað á gagnagrunninum fram til þessa, en nú stefni í að honum verði komið á laggirnar, með fulltingi hugbúnaðar frá FBI. Morgunblaðið/Júlíus Erfðaefnisskrá lögreglu, sem er í burðarliðnum, getur nýst bæði til að sanna sekt og sýknu manna. rsv@mbl.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.