Morgunblaðið - 21.08.2005, Blaðsíða 57

Morgunblaðið - 21.08.2005, Blaðsíða 57
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 21. ÁGÚST 2005 57 KRINGLAN KEFLAVÍKAKUREYRI KICKING AND SCREAMING kl. 2 - 8.15 MADAGASCAR m/ensku tali kl. 4 - 10.30 MADAGASCAR m/ísl.tali kl. 2 - 4 - 6 Þrælskemmtileg rómantísk gamanmynd um dóttur sem reynir að finna draumaprinsinn fyrir mömmuna. HERBIE FULLY... kl. 12 2.20 -4.20 -6.30 -8.40 DECK DOGZ kl. 6 - 8 - 10 THE ISLAND kl. 10.40 B.i. 16 ára THE PERFECT MAM kl. 4.20 - 8 MADAGASCAR m/ísl.tali kl. 12-2.10-4-6.15 BATMAN BEGINS kl. 11.30-1.50-10 FANTASTIC FOUR kl. 1.50 - 3.55 - 8 SIN CITY kl.10 HERBIE FULLY... kl. 2 - 4 - 6 - 8 WHO´S YOUR DADDY kl. 6 - 10.10 400 KR. MIÐAVERÐ Á ALLAR MYNDIR KL. 3 UM HELGAR Í HÁSKÓLABÍÓI. SKELETON KEY kl. 8 - 10 B.i. 16 ára HERBIE FULLY LOADED kl. 2 - 4 - 6 - 8 THE ISLAND kl. 10 MADAGASCAR m/ísl.tali. kl. 2 - 4 m/ensku tali kl. 6 Sýnd bæði með íslensku og ensku tali.     EWAN McGREGOR SCARLETT JOHANSSON ÞEIR VILJA EKKI AÐ ÞÚ VITIR HVAÐ ÞÚ ERT!  Kvikmyndir.is  S.V. Mbl.  DV  Ó.H.T. RÁS 2  Kvikmyndir.is  S.V. Mbl. HÁDEGISBÍÓ AR MYNDIR KL. 12 UM HELGAR Í SAMBÍÓUNUM KRINGLUNNI Rithöfundurinn og háð-fuglinn Helen Fielding sem er frægust fyrir að skapa hina seinheppnu Bridget Jon- es hefur snúið aftur til síns fyrra starfs sem pistlahöf- undur. Helen varð heimsfræg á einni nóttu þegar bók hennar Brid- get Jones’s Diary kom út en í henni gátu fjölmargar nútímakonur fundið sig og í seinheppni hennar í ásta- málum. Færri vita þó að Helen hóf feril sinn sem dálkahöfundur á borð við þann sem Sarah Jessica Par- ker lék í Sex and the City og nú hefur Helen snúið sér að fyrri iðju, mörgum til mikillar ánægju. Áhugasamir geta nálgast pistl- ana á netsíðu breska blaðsins The Independent á fimmtudögum. Fólk folk@mbl.is AÐALHEIÐUR Jónsdóttir söng sig inn í hjörtu landsmanna í Idol- keppninni hér um árið og hefur síð- an varla hætt að syngja. Heiða í Idol, eins og hún er oftast kölluð, á lag á plötunni Svona er sumarið en það er bara forsmekkurinn að sóló- plötu sem væntanleg er fyrir jól. „Idol-keppnin hefur gefið mér frábært tækifæri og er hálfgerður stökkpallur,“ sagði Heiða þegar blaðamaður tók hana tali. „Ég hef verið á fullu að syngja og fékk út- gáfusamning við Senu sem gefur út plötuna í haust. Plötuna vinn ég með Þorvaldi Bjarna Þorvaldssyni, sem er þvílíkur heiður enda er hann auðvitað snillingur.“ Frumsamin lög og tökulög Lagið á Svona er sumarið plöt- unni heitir „Starlight“ og er eftir Gunnar Þórðarson sem verður lík- lega með nokkur lög á plötunni: „Platan verður í dramatískum og kraftmiklum dúr – sem hentar minni rödd mjög vel. Hún verður bæði með tökulögum, s.s. úr smiðju Bonnie Tyler og Heart sem var fræg á 8. áratugnum og „Dimmum rósum“, góðu, íslensku lagi með Töturum, og svo með frumsömdum, spennandi nýjum íslenskum lögum. Ég syng lög bæði eftir óþekkta og þekkta höfunda, bæði eftir Þorvald Bjarna og svo fleiri unga og spræka höfunda.“ Syngjandi frá fæðingu Heiða hefur í sumar sungið víðs- vegar en hún starfar einnig á leik- skóla. Hún segir börnin kát að hafa stjörnu fyrir kennara: „Þau eru mjög hrifin og ótrúlegt hvað þessi keppni nær jafnt til ungra sem ald- inna. Þetta er auðvitað skemmtileg- asta starf í heimi fyrir utan tónlist- ina.“ Heiða segist alla tíð hafa stefnt á tónlistarferil: „Ég hef verið gólandi frá því ég fæddist og það hefur allt- af verið stefnan að fást við tónlist, og einhvern veginn hefur aldrei neitt annað komið til greina.“ Ferill- inn fór af stað þegar Heiða stundaði nám við Verslunarskólann: „Ég tók þátt í söngleikjunum öll árin, sinnti því kannski meira en náminu, og var í hljómsveitinni URL frá því ég var 16 ára.“ Heiða hefur lagt stund á klass- ískan söng við Söngskólann í Reykjavík þó hún segist ekki ætla sér frama á óperusviðinu en vill gjarna hafa þann grunn sem klass- ísk söngmenntun veitir henni. Bráð- um gerist Heiða sjálf kennari en hún mun kenna söng í tónlistarskóla Þorvaldar Bjarna þar sem mikill stjörnufans setur sig í kennarastell- ingar. Heiða, sem fyrir skömmu varð 24 ára, er á leið í verðskuldað frí með fjölskyldunni en hellir sér í upp- tökur á nýju plötunni þegar hún snýr aftur til landsins. Tónlist | Ný sólóplata með Heiðu úr Idol í bígerð Dramatísk og kraftmikil Morgunblaðið/Árni Torfason Aðalheiður (Heiða) Ólafsdóttir Idol-stjarna. Eftir Ásgeir Ingvarsson asgeiri@mbl.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.