Morgunblaðið - 12.10.2005, Blaðsíða 31

Morgunblaðið - 12.10.2005, Blaðsíða 31
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 12. OKTÓBER 2005 31 UMRÆÐAN Meðal efnis er: - Vetrarklæðnaður á börn og fullorðna - snyrtivörur fyrir veturinn - íslensk hönnun í vetrarklæðnaði - vetrarferðir innanlands - dekrað við bílinn í vetur - réttu skórnir fyrir veturinn - bækur - afþreying í skammdeginu - útilýsingar - heitir pottar og margt fleira. Vertu viðbúinn vetrinum! Vetur, glæsilegur blaðauki um allt sem gott er að hafa í huga þegar vetur gengur í garð, fylgir Morgunblaðinu laugardaginn 29. október 2005. Auglýsendur, pantið fyrir kl. 12.00 miðvikudaginn 26. október. Allar nánari upplýsingar veitir Katrín Theódórsdóttir í síma 569 1105 eða kata@mbl.is Í MORGUNBLAÐINU laug- ardaginn 1. október svaraði Sig- ursteinn Másson gagnrýni Andra Fannars Guðmundssonar og Kjart- ans Smára Höskuldssonar á fyr- irlestur hans, „Háskóli Íslands, gróðrarstía geðraskana“. Ef marka má umfjöllun fjöl- miðla hélt Sigursteinn því fram að hroki og mann- fjandsemi kennara við sál- fræðiskor Háskóla Íslands valdi geðröskunum nem- enda. Umræðan eins og hún snýr að þjóðinni Í svari sínu dregur Sig- ursteinn upp skopmynd af Andra og Kjartani og gefur í skyn að þeir séu andsnúnir því að HÍ taki málefni geð- fatlaðra til umfjöllunar. Heldur hann virkilega að ágreiningur sé um hvort eigi að leit- ast við að hjálpa nemendum sem stríða við andlega vanheilsu? Nú standa yfir geðhjálpardagar og við HÍ hefur verið stofnað félag fólks með geðraskanir og áhugamanna um málefnið. Við fögnum því heils- hugar. En við vekjum athygli á að gagnrýni Andra og Kjartans beind- ist aðeins að þeirri vafasömu fullyrð- ingu að kennarar orsaki geðraskanir og að HÍ sé „gróðrarstía geðrask- ana“. Þetta er einfaldlega ekki rétt. Formaður Geðhjálpar á að vita betur en svo að tala um orsakasamband og að fella allar geðraskanir undir sama hatt. Sigursteinn segir að gagnrýni Andra og Kjartans byggist á afbök- un fjölmiðla á orðum hans; hann hafi til dæmis slegið nokkra varnagla. Hvort þetta er rétt skiptir ekki máli. Sigursteinn, sem er sjálfur fjölmiðla- maður, átti að sjá sóma sinn í að leið- rétta umfjöllun fjölmiðla. Það hefur hann ekki gert og ber því að hluta ábyrgð á þeirri umræðu sem hér hef- ur hafist. Óeðlilegt væri ef hann leið- rétti ekki misskilninginn og gerði grein fyrir samhenginu og þeim var- nöglum sem hann talar um. Hvað er átt við með því að andlegri velferð nemenda „sé kerfisbundið stefnt í voða“? Er virkilega sanngjarnt að halda því fram að HÍ ýti beinlínis undir geðsjúkdóma eins og Vísir.is hefur eftir Sigursteini? Á þeim árum sem við höfum verið hér höfum við aldrei þolað eða orðið vitni að slíkri meðferð. Hvað er hroki og mannfjandsemi? Af umfjöllun Morgunblaðsins og Stöðvar 2 að dæma virðist Sig- ursteinn tala um kröfur til nemenda um talsvert vinnuframlag og ákveðin vinnubrögð. Sálfræði leggur áherslu á agaðar aðferðir til skýringar á mannlegri hegðun, hugsun og skynj- un. Að ætlast til að nemendur til- einki sér þessi vinnubrögð er ekki hroki heldur eðlileg og nauðsynleg krafa. Það er sérstaklega til bóta fyrir geðsjúka að þeir nemendur sem stefna að klínískum starfsframa fái viðunandi undirbúning til að fást við geðraskanir. Nemendur eru strax á fyrsta degi varaðir við álaginu og þeim sagt að námið sé erfitt, enginn komist létt frá þessu, og já, margir falla. Nem- endur vita að hverju þeir ganga og það er gott. Ímyndum okkur fallhlut- fallið og vonbrigðin ef allir héldu að þetta væri auðvelt. Í svargrein Sig- ursteins virðist hann vera sammála því að eðlilegt sé að gera kröfur, en í hverju felst þá hrokinn og sú óeðli- lega kröfuharka sem hann talar um? Sé þessi túlkun afbökun á orðum hans er rétt að hann leiðrétti það, því málefnaleg gagnrýni á uppbyggingu námsins á fullan rétt á sér. En per- sónuárásir tökum við nærri okkur fyrir hönd kennara. Þeir hafa reynst okkur vel og við þekkjum þá bara sem vandað fólk. Hvernig á að haga eftirliti með andlegri líðan nemenda? Sigursteinn nefnir skeytingarleysi kennara gagnvart andlegri velferð nýnema. Kennarar hafa engin tök á að kynnast hundruðum nemenda persónulega og fylgjast með líðan þeirra. Hvernig ætti slíkt eftirlit að fara fram? Tillögur að lausnum væru mun uppbyggilegri en persónu- árásir. Sumum okkar hefur liðið illa hér eða átt í persónulegum vanda og þá voru það einmitt þeir kennarar sem sakaðir eru um mannfjandsemi og hroka sem reyndust okkur vel. Okk- ur sárnar umræða þar sem ráðist er á skor sem við erum ánægð með og þykir vænt um. Kennarar hafa augljóslega ekki leyft sér að verjast ásökunum með vísun í hjálp og stuðning sem þeir hafa veitt nemendum sínum; enda eru ásakanirnar þess eðlis að ekki er hægt að svara þeim öðruvísi en að játa hroka eða lýsa yfir eigin ágæti sem væri kjánalegt og jafnvel hroka- fullt. Þeir hafa heldur aldrei att nein- um af sínum nemendum á foraðið til að taka upp hanskann fyrir þá. Við finnum þá hvöt algjörlega hjá sjálf- um okkur. Hvers konar umræðu viljum við? Sigursteinn vísar í nafnlausa tölvupósta sem þola ekki dagsljós og einstök atvik máli sínu til stuðnings. Því er sú ályktun, að reglan í sál- fræðiskor HÍ sé hroki og mann- fjandsemi, hæpin. Kennurum við sál- fræðiskor getur auðvitað orðið á eins og öðrum og auðvitað semur mönn- um misvel án þess að við neinn sé að sakast. Það réttlætir ekki opinberar ásakanir um að hroki og mann- fjandsemi ríki við skorina og að það sé viðvarandi. Er einhver kennari við HÍ sem allir eru ánægðir með? Við óskum eftir sanngjarnri um- ræðu um málefni geðsjúkra og að málflutningur sé ekki byggður á út- úrsnúningum, sleggjudómum og persónuárásum. Slíkt eru engum til bóta og við tökum ekki þátt í því. Sú umræða sem á undan hefur gengið er ekki boðleg. Er ekki mál að linni? Baldur Heiðar Sigurðsson, Ella Björt Daníelsdóttir, Heiða María Sigurðardóttir, Sigrún Sif Jóelsdóttir og Vaka Vé- steinsdóttir fjalla um málefni geðsjúkra ’Við óskum eftir sann-gjarnri umræðu um málefni geðsjúkra og að málflutningur sé ekki byggður á útúrsnún- ingum, sleggjudómum og persónuárásum.‘ Að ofan frá vinstri: Vaka Vésteinsdóttir, Ella Björt Daníelsdóttir, Baldur Heiðar Sig- urðsson, Heiða María Sigurðardóttir og Sig- rún Sif Jóelsdóttir. Höfundar eru nemendur og fyrrver- andi nemendur við sálfræðiskor HÍ. HINN 12. október er Dagur lýðræðis á vegum Evrópuráðsins (COE) en árið 2005 var valið sem „Euro- pean year of citizens- hip through educa- tion“. Fólk er almennt hvatt til að halda daginn hátíð- legan með einum eða öðrum hætti, lýðræð- inu til sóma. Við í ungmennaráðum Miðbæjar og Vest- urbæjar ákváðum að halda opið málþing á degi þessum sem ber yfirskriftina: „Jafn- rétti, fordómar, áhrif!“ Munum við sérstaklega ræða þessi málefni frá sjónarhorni ungs fólks, sérstaklega þeirra sem ekki hafa kosningarétt. Við munum velta því fyrir okkur hví ungmenni eru jafn valdalaus og raun ber vitni, hvort þau eigi meiri völd skilin og hvers vegna. Ættu unglingar að hafa eitthvað að segja um breytingar á skóla- námskrá, styttingu náms til stúd- entsprófs, nýtt leiðakerfi Strætó BS eða aðra hluti sem snerta ung- menni? Eins og áður kom fram er mál- þingið opið öllum þeim sem áhuga og skoðanir hafa. Það verður hald- ið hinn 12. október af ungmenna- ráðum Miðbæjar og Vesturbæjar í sal Menntasviðs Reykjavík- urborgar að Fríkirkjuvegi 1. Mál- þingið hefst kl. 17. Hefst fundurinn á stuttu myndbandi með viðtölum við fólk á förnum vegi, framsaga frá ungmennaráðum (mér frá Vesturbæj- arráði og Gunnari Dofra frá Miðbæj- arráði) og hverf- aráðum (Katrín Jak- obsdóttir frá Vesturbæ og Ingi- björg Sólrún Gísla- dóttir frá Miðbæ) Einnig mun Sesselja Snævarr, deildarstjóri hjá menntamálaráðu- neytinu halda stutt er- indi um Dag lýðræðis og Evrópuráðið. Þar næst skipta áheyrendur sér í um- ræðuhópa, ræða valin málefni og álykta eða koma frá sér öðrum skriflegum athugasemdum. Þegar niðurstöður hafa verið kynntar verða almennar umræður og mál- fundinum lýkur. Mun það vænt- anlega gerast fyrir kl. 19. Verið velkomin, hlakka til að sjá sem flesta! Ungmenni á Degi lýðræðis Brynja Halldórsdóttir fjallar um Dag lýðræðisins Brynja Halldórsdóttir ’Eins og áðurkom fram er málþingið opið öllum þeim sem áhuga og skoð- anir hafa. ‘ Höfundur er í ungmennaráði Vesturbæjar og Reykjavíkurráði ungmenna.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.