Morgunblaðið - 12.10.2005, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 12.10.2005, Blaðsíða 22
22 MIÐVIKUDAGUR 12. OKTÓBER 2005 MORGUNBLAÐIÐ MINNSTAÐUR Kristján Ólafsson, hrl. og löggildur fasteignasali www.klettur.is STÍLL, FÁGUN, BIRTA, RÝMI, LOFTHÆÐ - FRÁBÆR EIGN Erum með í einkasölu stórglæsilegt einbýlishús á frábærum stað við Elliðavatn. Húsinu verður skilað fullbúnu að utan en fokheldu að innan, eða eftir nánara samkomulagi lengra komið. Húsið er staðsett á góðri lóð. Alls er eignin 355 fm. Frábært útsýni yfir Elliðavatn og að fjallahringnum þar í kring. Stutt á að vera í þjónustu í hverfinu í framtíðinni sem og í skóla og leikskóla. Allar nánari upplýsingar er hægt að nálgast á skrifstofu okkar í Skeifunni 11, 108 Rvík. Sölumenn frá Kletti taka vel á móti ykkur GLÆSIHÚS MEÐ EINSTÖKU ÚTSÝNI Á BÖKKUM ELLIÐAVATNS HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ SUÐURNES Suðurnes | Hitaveita Suðurnesja hefur gert samkomulag við Nátt- úruverndarsamtök Íslands (NSÍ) og Landvernd þess efnis að leggja allt að 2 km langan jarðstreng í stað háspennulínu frá virkjuninni á Reykjanesi innan 8–10 ára. Bæði NSÍ og Landvernd höfðu gert at- hugasemdir við þá spillingu á yf- irsýn yfir náttúrufyrirbæri sem loftlína myndi valda. Í kjölfar samkomulagsins var leitað til Skipulagsstofnunar um samþykki fyrir nýrri leið fyrir loft- línuna sem mun flytja orku frá virkjuninni þar til jarðstrengurinn verður lagður. Skipulagsstofnun samþykkti tillöguna sem gerir ráð fyrir að línan verði lögð með aust- urhlíð Sýrfells suður að skarðinu á milli Sýrfells og Sýrfellsdraga. Þar verður línan lögð vestur um skarðið að spennuvirki Reykjanesvirkjunar. Með þessu fyrirkomulagi mun línan liggja lægra í landinu og nær iðnaðarsvæðinu en fyrri áform gerðu ráð fyrir. Svæðinu sem lín- unni er ætlað að fara um hefur þeg- ar verið raskað með vegi og vatns- lögn. Umhverfisrask vegna vegaslóða o.þ.h. verður því óveru- legt. Samkvæmt samkomulagi Hita- veitu Suðurnesja, Náttúruverndar- samtaka Íslands og Landverndar verður allt að 2 km af loftlínunni skipt út með jarðstreng innan 8–10 ára svo fremi sem rannsóknir á jarðskjálftavirkni og yfirborðsjarð- hita leiði ekki í ljós að slíkt sé tæknilega óframkvæmanlegt, segir í sameiginlegri fréttatilkynningu frá NSÍ, Landvernd og Hitaveitu Suðurnesja. Skipaður verður samráðshópur sem verður falið að finna heppileg- ustu leiðina fyrir línuna sem þarf að reisa, kanna viðhorf ferðamanna og útivistarfólks til línunnar og ann- arra mannvirkja á svæðinu, vöktun á áflugshættu fyrir fugla, vöktunar á skjálftavirkni yfirborðsjarðhita með tilliti til áhættu við lagningu jarðstrengs og ítarlegt kostnaðar- mat á mismunandi valkostum til að draga úr sjónrænum áhrifum há- spennulínu. Samkomulag um jarðstreng Hlíðar | Ekki er ljóst með framhald framkvæmda við íþróttahús Mennta- skólans við Hamrahlíð, en Skipulags- nefnd Reykjavíkur barst á dögunum kæra Hróbjarts Jónatanssonar hrl. til úrskurðarnefndar skipulags- og byggingamála, þar sem þess er kraf- ist að framkvæmdir við austurhlið skólans verði stöðvaðar með vísan í skipulags- og byggingalög. Kærunni var vísað til umsagnar lögfræði og stjórnsýslu. Dagur B. Eggertsson, formaður skipulagsráðs, segir kæruna byggjast á formsatriðum, en þar sé því velt fram að formsatriðum hafi ekki verið fylgt í skipulagsferlinu. „Í raun er verið að biðja um að byggingarleyfi sé ekki gefið út á meðan,“ segir Dagur. „Þá er gerð athugasemd við það að húsið sé stærra en gert var ráð fyrir í skipulagi frá 1990, en það er í sam- ræmi við niðurstöður í sérstakri sam- keppni sem menntamálaráðuneytið stóð fyrir hvað varðaði útlit og innra fyrirkomulag hússins og nýtt skipu- lag tók mið af þeim niðurstöðum.“ Dagur segir áhöld hafa verið uppi um hvaða skipulag væri í gildi á reitn- um, þegar málið var í skipulagsráði. Því hafi skipulagið verið auglýst til að hafa allan varann á. „Við vitum þó að það eru íbúar sem næst búa sem hafa lagst gegn þessari uppbyggingu,“ segir Dagur. „Á elstu skipulagsupp- dráttum var að vísu gert ráð fyrir húsinu á öðrum stað á lóðinni, en það breyttist 1990. Þetta hús tekur mið af nýjustu kröfum til íþrótta og kennslu- rýma og verður byggt samkvæmt þeim. Það er búið að bíða eftir þessu húsi í áratugi og nú er þetta mál kom- ið á framkvæmdastig og ég held að flestir, ef ekki allir, séu fegnir því.“ Morgunblaðið/Árni Sæberg Íþróttahús Skipulagsnefnd barst kæra á dögunum vegna framkvæmda við íþróttahús MH. Bygging íþróttahúss MH í uppnámi Fréttasíminn 904 1100 Kópavogur | Nýr grunnskóli við Vatnsenda var vígður við hátíðlega athöfn á föstudag sem leið og ber hann nafnið Vatnsendaskóli. Þegar er risinn fyrsti áfangi skól- ans og skólastarf með 120 nem- endum í 5 bekkjadeildum hefur þegar hafist. Næsti áfangi skólans verður tekinn í notkun að ári. Athöfnin hófst með ávarpi skóla- stjóra, Guðrúnar Soffíu Jón- asdóttur. Síðan tók formaður skóla- nefndar, Ármann Kr. Ólafsson, til máls og rakti uppbyggingu svæð- isins sem hann þekkir allvel sem fyrrverandi formaður skipulags- nefndar bæjarins. Gerði Ármann náttúrufar svæðisins að umræðu- efni sínu og kom með ýmsan áhuga- verðan fróðleik um náttúru þess. Að loknu ávarpi formanns skóla- nefndar tók bæjarstjóri, Gunnar I. Birgisson, til máls, kom á framfæri árnaðaróskum og afhenti skólann formlega. Við hönnun á Vatnsendaskóla var gert ráð fyrir að í skólanum verði ríkjandi áherslur á raun- greinanám með sérstökum áherslum á náttúrufræði. Í skóla- byggingunni er gert ráð fyrir sér- stakri aðstöðu sem á að styðja við þessar áherslur en umhverfi skól- ans við Elliðavatn er að sögn að- standenda skólans sérstaklega vel til þess fallið að fara með nemendur í vettvangsferðir umhverfis vatnið og inn í Heiðmörkina sem er hinum megin við vatnið. Nýr 120 barna leikskóli mun taka til starfa í Vatnsendahverfi 1. nóv- ember nk. Nýr grunnskóli við Vatnsenda vígður við hátíðlega athöfn á dögunum Ljósmynd/Krissý Ánægja Ármann Kr. Ólafsson, formaður Skólanefndar, Guðrún Soffía Jón- asdóttir skólastjóri og Gunnar I. Birgisson, bæjarstjóri Kópavogs, voru að vonum ánægð með hinn nýja skóla. Raungreinafræðsla í náttúrunniHlíðar | Nokkrir íbúar í Hlíðahverfií Reykjavík hafa tekið höndumsaman við að vekja athygli á því að Hlíðahverfið er orðið að því sem þeir kalla „eins konar hverfi smá- eyja, sundurskornu af stórum og umferðarþungum stofnæðum með óþolandi umferðarhávaða og hættulegri mengun sem oftsinnis á vetrum fer yfir heilsufarsmörk“. Segja íbúarnir einfalda leið til að takast á við þessi vandamál, en hún sé að koma Miklubrautinni í lok- aðan stokk frá Kringlu og að Hringbraut. Tími sé kominn til þess að Hlíðahverfið verði sameinað á ný. Á vefnum www.hlidar.com er hafin undirskriftarsöfnum við áskorun á borgarfulltrúa, borg- aryfirvöld og þingmenn að beita sér fyrir því að sameina hverfið. Segja aðstandendur málið varða hagsmuni 5.700 íbúa Hlíðahverfis og 43.000 ökumanna sem fara um Miklubrautina á hverjum degi. Vilja sameina Hlíðarnar Seltjarnarnes | Seltjarnarnesbær hefur samið við Og Vodafone um að bjóða upp á svo kallaðan „heitan reit“, eða þráðlausa háhraða int- ernettengingu, á Bókasafni Sel- tjarnarness. Þetta frumkvæði gerir gestum með fartölvur mögulegt að vafra um á Netinu, sýsla með tölvupóst og miðla gögnum sín á milli án fastrar tölvutengingar. Þá er hægt að tengjast skólanetum um vinnuhlið (VPN-gátt og TELNET) en þjón- ustan er án endurgjalds fyrir gesti bókasafnsins. Heitur reitur á bókasafninu Hafnarfjörður | Nemendur og kenn- arar Víðistaðaskóla og starfsmenn félagsmiðstöðvarinnar Hraunsins, sem staðsett er inni í Víðistaðaskóla blása til unglingaþings í dag, í tilefni dags borgaravitundar og lýðræðis. Þingið hefst kl. 9 í dag í íþrótta- húsi skólans og kl. 17–19 verður síð- an uppskeruhátíð þar sem hópar lesa upp tillögur sínar. Unglingaþing í Víðistaðaskóla
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.