Morgunblaðið - 12.10.2005, Blaðsíða 23

Morgunblaðið - 12.10.2005, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 12. OKTÓBER 2005 23 MINNSTAÐUR HVERNIG NÆST AFBUR‹A ÁRANGUR Í STJÓRNUN OPINBERRA STOFNANA? Kynntu flér máli› og skrá›u flig á endurmenntun.is Mán. 17. okt og þri. 18. okt. kl. 8:30–17:00 Ísafjörður | Þessa dagana stendur yfir á kaffihúsinu Langa Manga á Ísafirði all- sérstök sýning á ýmiss konar teikningum, málverkum og skissum eftir Magnús Þór Jónsson eða Megas. Fyrir þá sem ekki eru innvígðir inn í fornmálin, þá má rekja lista- mannsnafn Megasar til þess að Magnús þýðir mikill á latínu, en Megas þýðir það sama á grísku. Verkin á sýningunni eru afar ólík og fjöl- breytt, en þar má finna m.a. fantasíur, blý- antsteikningar og mannamyndir með spek- ingslegum spássíuathugasemdum listamannsins. Elvar Logi Hannesson, leikari og fyrrver- andi vert á Langa Manga, sem nýlega skipti um eigendur, segir myndirnar allar í einka- eigu. „Það var nú þannig að ég kem oft við hjá honum Ara Bragasyni í fornbókabúðinni Bókinni á Klapparstíg, en hann er skemmti- legur viðræðufélagi,“ segir Elvar Logi, sem sjálfur er þekktur fyrir að bregða sér í líki meistarans á tyllidögum. „Við ræðum oft heima og geima, en svo kom þetta einhvern tíma til tals að ég var að segja honum frá sýn- ingu sem við héldum á Langa Manga á verk- um eftir Dag Sigurðarson listamann. Þá sagði Ari mér að hann ætti margar myndir eftir Megas. Ég fékk að kíkja á þær og í fram- haldinu spurði ég hvort það væri ekki grá- upplagt að halda sýningu á verkum Megasar á Vestfjörðum. Og Ari er slíkur öðlingur að hann brást vel við því.“ Elvari Loga finnst myndirnar að eigin sögn frábærar, en hann á eina af þeim. „Þessi mað- ur er náttúrlega frábær listamaður, hvort sem um er að ræða tónlist, ritlist eða mynd- list,“ segir Elvar Logi. „Því miður hefur fólki fyrir vestan ekki gefist kostur á að kynnast þeirri hlið á Megasi fyrr en nú.“ Ari Gísli Bragason, bóksali í Bókinni, segir myndirnar að sínu mati einstakar og mikill andi og breidd sé í þeim. „Hver mynd er líka með ákveðna sögu,“ segir Ari. „Megas er náttúrlega myndlistarmenntaður og hann gerði verkin á því tímabili þegar hann hafði nýlokið myndlistarnámi.“ Verkin komust í eigu Ara Gísla fyrir u.þ.b. tíu til fimmtán árum síðan í gegnum sam- skipti þeirra varðandi bókaverslunina og miðlun á bókum og ritum, en að sögn Ara Gísla er Megas einn öflugasti sérprentana- og tímaritasafnari hér á landi. „Hér var um að ræða nokkurs konar vöruskipti, við höfum í gegnum árin skipst á ritum og myndum.“ Að sögn Guðmundar Hjaltasonar, verts á Langa Manga, hafa gestir tekið sýningunni mjög vel og hafa hæfileikar Megasar komið sumum gestum í opna skjöldu þó aðrir hafi þekkt til þessarar hliðar á honum. „Sýningin var sett upp núna um helgina og fólk er mjög ánægt með þetta,“ segir Guðmundur. „Þetta er mjög fjölbreytt, mig minnir að elsta mynd- in sé frá því snemma á sjöunda áratugnum.“ Guðmundur segir veggi Langa Manga opna fyrir þá listamenn sem þar vilja sýna, enda sé búið að bóka þá út næsta árið og byrj- að að bóka út 2007. Sýningin á verkum Meg- asar stendur til loka október, en þá tekur við sýning Árnýjar Herbertsdóttur ljósmyndara. Á Langa Manga er einnig að sögn Guð- mundar vettvangur upprennandi trúbadora og er það ætlunin að hann verði nokkurs kon- ar „uppeldisstöð“ fyrir söngvaskáld og tón- listarfólk. „Það er því við hæfi að sýna hér verk eftir sjálfan Megas, sem hefur verið mörgum fyrirmynd,“ segir Guðmundur. Sýning á myndverkum eftir Megas á Langa Manga Skipti á myndum og bókum Ljósmynd/Halldór Sveinbjarnarson Listavert Guðmundur Hjaltason, vert á Langa Manga, er ánægður með sýninguna á verkum Megasar, en forveri hans í starfi, Elfar Logi Hannesson leikari, setti sýninguna upp. Eftir Svavar Knút Kristinsson svavar@mbl.is LANDIÐ Sauðárkrókur | Fjörutíu og átta út- lendingar vinna í sláturhúsi KS á Sauðárkróki í haust. Þetta er mesti fjöldi erlendra starfsmanna sem þar hefur verið til þessa. Fólkið kemur flest frá Póllandi, sextán. Tólf koma frá Svíþjóð og Nýja-Sjálandi. Þá eru sjö Serbar og einn frá Frakklandi. Sumt af fólkinu er nú að koma í ann- að skipti og nokkrir í þriðja sinn til að vinna við sauðfjárslátrunina. Að sögn Ágústs Andréssonar er slátrað 2.600–2.700 kindum á dag. Slátrunin hefur gengið mjög vel enda húsið vel mannað. Fallþungi er um hálfu kíló- grammi meiri en á sama tíma í fyrra og flokkun betri. Ágúst áætlar að slátrað verði um 95 þúsund fjár hjá KS í haust og að slátrun ljúki um 25. október. Þar á eftir fer í gang slátrun á folöldum og nautgripum. Tæplega 50 útlendingar vinna við slátrun Stykkishólmur | Það var góður dag- ur í sögu Golf- klúbbsins Mostra í Stykkishólmi, mið- vikudagurinn 5. október sl. Þá var undirritaður sam- starfssamningur á milli golfklúbbsins og bæjarstjórnar Stykkishólms um áframhaldandi upp- byggingu á Vík- urvelli, golfvelli Hólmara. Ríkharður Hrafn- kelsson, formaður Mostra, var kátur með að hafa náð samkomulagi við bæjaryfirvöld um uppbyggingu vallarins og var þakklátur bæj- arstjórn fyrir mikinn velvilja og gott samstarf. Ríkharður segir að samning- urinn sé í framhaldi af samskon- ar samningi sem var gerður 1998 um uppbygginu fyrsta áfanga Víkurvallar sem lauk árið 2002. Hann segir að gengið sé til verks um að klára uppbygginu golfvall- arins. Framkvæmdirnar miðast að mestu við grunnteikningu eftir Hannes Þorsteinsson frá árinu 1997. Að sögn Ríkharðs felur samn- ingurinn í sér að Víkurvöllur verði byggður upp í endalega mynd, ásamt því að byggð verður upp æfingapúttflöt á milli golf- skála og tjaldstæðis, sem, auk kylfinga, eldri borgarar, tjald- stæðisgestir og bæjarbúar geta almennt nýtt sér til æfingar og ánægju. Áætlað er að framkvæmdir hefjist á næstu vikum með greftri og ýtuvinnu, þ.e. grófvinna á svæðið áður en vetur konungur skellur á. Vinnan mun svo halda áfram af fullum krafti í vetur og alveg fram á sumarið 2008. Framkvæmdunum á að ljúka á þremur árum með opnun vall- arins í endalegri mynd á miðju sumri 2008. „Stykkishólmsbær mun leggja til 18 milljónir til fram- kvæmdanna á þremur árum og er það góður styrkur frá ekki stærra bæjarfélagi,“ segir Rík- harður. „Með tilkomu þessa áfanga í uppbyggingu golfvall- arins náum við því markmiði okk- ar að eignast góðan golfvöll. Við erum að stíga mjög stórt skref inn í framtíðina, ekki eingöngu fyrir kylfinga í Stykkishólmi, heldur er góður golfvöllur mjög gott innlegg í ferðaþjónustuna hér í bæ því hann hefur mikið og gott aðdráttarafl. Við erum þess fullvissir að framkvæmdum lokn- um verður hér í Stykkishólmi níu holu golfvöllur í fremstu röð á Ís- landi,“ segir hinn dugmikli for- maður Mostra. Það kom fram í máli Erlu Frið- riksdóttur, bæjarstjóra, að bæj- aryfirvöld hafa verið jákvæð fyr- ir því í gegnum árin að byggja upp góða og fjölbreytta íþrótta- aðstöðu í Stykkishólmi. Hún segir að með góðri íþróttaaðstöðu sé verið að koma til móts við þarfir íbúanna og til þess sé litið þegar verið er að bera saman þjónustu sveitarfélaga við íbúa sína. Erla segir ennfremur að ferðaþjón- ustan njóti góðs af slíkum fram- kvæmdum, þær hafa aðdráttarafl fyrir ferðamenn eins og sund- laugin og golfvöllurinn hafa sannað. Morgunblaðið/Gunnlaugur Árnason Golfvinir Það er gott samstarf á milli bæjar- stjórnar og Golfklúbbsins Mostra. Erla Friðriks- dóttir bæjarstjóri og Ríkharður Hrafnkelsson, for- maður Mostra, undirrituðu samstarfsamning um að gera góðan golfvöll í Stykkishólmi „Við erum að eignast góðan golfvöll“ Stokkseyri | Um helgina var nýr sparkvöllur vígður á Stokkseyri við hátíðlega athöfn. Stendur hann við Barnaskólann á Stokkseyri og hefur verið mjög vinsæll af æsku staðarins frá því hann var settur upp í sumar. Völlurinn er afrakstur samstarfs sveitarfélagsins Árborgar og Knatt- spyrnusambands Íslands og einn af mörgum gervigrasvöllum sem lagðir hafa verið vítt og breitt um landið í sumar. Á opnunarhátíðinni á föstu- daginn færðu fulltrúar Knatt- spyrnusambandsins barnaskólanum á Eyrarbakka og Stokkseyri tvo keppnisbolta og Ungmennafélagi Stokkseyrar 20 æfingabolta, í tilefni dagsins. Tveir nemendur í barnaskólanum klipptu á borða með aðstoð Einars Njálssonar bæjarstjóra og opnuðu völlinn þannig á táknrænan hátt. Leikinn var stuttur opnunarleikur og síðan gæddu krakkarnir sér á íspinnum og fullorðnir á kaffi og meðlæti í boði Íþrótta- og tóm- stundanefndar Árborgar. Morgunblaðið/Jóhann Óli Hilmarsson Klippt á borða á sparkvelli
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.