Morgunblaðið - 12.10.2005, Blaðsíða 6
6 MIÐVIKUDAGUR 12. OKTÓBER 2005 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
HEIMSFERÐIR kynna í dag sjö
áfangastaði í Evrópu í beinu leigu-
flugi og verður lægsta fargjald aðra
leiðina 6.890 krónur. Þúsundir sæta
verða í boði til Barselóna og Alic-
ante á Spáni, Forli á Ítalíu, Düssel-
dorf og München í Þýskalandi, Prag
í Tékklandi og Búdapest í Ung-
verjalandi. „Við köllum þetta loftbrú
og ætlum með þessu að blanda okk-
ur enn frekar í samkeppnina á lág-
gjaldamarkaðnum,“ segir Andri
Már Ingólfsson, framkvæmdastjóri
Heimsferða, í samtali við Morgun-
blaðið.
Heimsferðir hafa um árabil selt
þúsundir flugsæta til ýmissa áfanga-
staða, ekki síst í sunnanverðri Evr-
ópu, auk þess sem ferðaskrifstofan
hefur boðið hefðbundnar sólarlanda-
ferðir, þ.e. flug og gistingu. „Margir
hafa ferðast með okkur til Prag,
Búdapest og Barselóna og fyrst lág-
gjaldaflugfélögin ætla að auka fram-
boð sitt frá Íslandi ætlum við að
gera það líka,“ segir Andri Már og
telur að þessu aukna framboði verði
vel tekið og að eftir sem áður muni
Íslendingar ferðast til sólarlanda.
Andri Már segir að eftir að fram
kom að Heimsferðir muni næsta
sumar bjóða reglulegar ferðir til
Alicante á lágu fjargjaldi hafi þegar
um 300 sæti verið bókuð. „Við höf-
um líka náð mjög góðum samning-
um við flugfélögin Futura og LTU
og ætlum að leggja alla áherslu á að
bjóða lægstu fargjöld hverju sinni á
þessa áfangastaði,“ segir hann enn-
fremur. „Það er deginum ljósara að
með sífellt hagstæðari fargjöldum
ferðast Íslendingar meira og ég tel
því hreint ekki um offramboð að
ræða þótt við bætum við þessum
þúsundum sæta í leiðakerfi okkar í
sumar.“
Heimsferðir bjóða
sjö áfangastaði á
lágum fargjöldum
HELGI Jóhannsson, framkvæmdastjóri Sum-
arferða, segist fagna aukinni samkeppni á flug-
leiðinni til Alicante, en Iceland Express hefur
tilkynnt að það hyggist hefja flug þangað og
Heimsferðir hafa tilkynnt að félagið hyggist
taka þátt í samkeppninni, en það hefur flogið á
þessari flugleið eins og Sumarferðir.
Helgi sagði að þeir hefðu tvöfaldað sæta-
framboð sitt í ár í 450 sæti á viku og það hefði
ekki dugað til að anna eftirspurninni, þannig að
honum fyndist fínt að fá einhvern valkost til að
kaupa viðbótarsæti ef hann vantaði.
Helgi sagði að þeir hefðu verið með sárafá
sæti á tilboðsverði. Þeir hefðu hins vegar verið
með 15 þúsund sæti á sérkjörum. Það væri
mjög villandi að vera með takmarkaðan fjölda
sæta á mjög lágu verði og á takmörkuðum
brottförum og síðan önnur sæti á aðalferða-
mannatímanum mun dýrari en það. Þeim fynd-
ist það óheiðarlegt gagnvart sínum viðskipta-
mönnum.
„Þetta er kannski ekki mjög heiðarlegt gagn-
vart neytendum að koma því inn hjá fólki að nú
séu fargjöld allt í einu komin niður í 7–10 þús-
und,“ sagði Helgi.
Hann sagði að hann teldi það vandamál varð-
andi ferðaþjónustuna að menn hefðu alltof lengi
verið að fara í kringum hlutina og þess vegna
þætt fólki hún almennt tortryggileg.
„Við verðum áfram með 450 sæti í viku á
Alicante. Við vorum tvisvar sinnum stærri í
fyrra en hinir aðilarnir. Við vorum með tvö flug
í viku með yfir 200 sæta vélum og við munum
bara ef eitthvað er bæta við það,“ sagði Helgi.
Hann sagði að þetta væri samkeppni sem
væri spennandi, en þeim fyndist að menn
þyrftu að vera heiðarlegir varðandi hvert verðið
væri á þeim tíma sem 95% þjóðarinnar væri að
fljúga og þar ætluðu þeir að vera lægstir.
Þúsundir sæta á lægstu fargjöldunum
Andri Már Ingólfsson, framkvæmdastjóri
Heimsferða, sagði aðspurður að öll sætin til
Alicante yrðu ekki á sama verðinu, enda yrðu
menn fljótt gjaldþrota ef miðað væri eingöngu
við lægsta verðið. Þessi flugleið væri tíu tíma
hringur og þeir væru með hagkvæmasta sæta-
gjaldið á þessari leið, því þeir væru með hag-
kvæmustu flugvélina og treystu sér í sam-
keppni við hvern sem er á þessari flugleið.
Andri Már bætti því við hverri vél væri skipt
upp í fjögur fargjöld til dæmis. 30 sæti gætu
verið á lægsta fargjaldi og 40 á næstlægsta far-
gjaldi og svo framvegis. Síðan væru ákveðin
tímabil sem hefðu hærra hlutfall af lægri far-
gjöldum en önnur og það væri bara gert til þess
að beina sölunni þangað. Einhver slík formúla
lægi að baki og hún væri til stöðugs endurmats
í ljósi þess hvernig samkeppnin þróaðist, en það
væru þúsundir sæta á þessum lægstu fargjöld-
um.
Sama hugmyndafræði
Birgir Jónsson, framkvæmdastjóri Iceland
Express, sagði að sama hugmyndafræði væri
að baki fluginu til Alicante og varðandi flug fé-
lagsins til London og Kaupmannahafnar að
þetta væru verðflokkar þannig að fyrstu sætin í
vélina væru ódýrust og síðan hækkaði verðið
eftir því sem meira seldist í vélina. Hins vegar
yrði fjöldi sæta meiri í þessum verðflokki, þann-
ig að það yrði um dálítið mörg sæti að ræða.
„Við gerum okkar alveg grein fyrir hvar verð-
punkturinn á markaðnum liggur og við munum
náttúrlega bara verða lægri en hann. Við gerum
okkur fulla grein fyrir því að við erum að fara í
mikið verðstríð og erum bara til í það,“ sagði
Birgir ennfremur.
Hann sagði að þeim fyndist gaman að sjá það
að um leið og þeir tilkynntu að þeir væru að
fara til Alicante lækkuðu allir verðið. Það væri
kannski ekkert ólíkt því sem gerðist þegar Ice-
land Express hefði farið inn á Kaupmannahöfn
og London.
Sumarferðir fagna samkeppni
Morgunblaðið/Golli
Samkeppnin um ferðamennina næsta sumar
til sólarlanda virðist ætla að verða hörð.
SILVÍA Svíadrotting
segir heimsóknina í ís-
lenska Barnahúsið
vorið 2004 hafa haft
mikil áhrif á sig. Þetta
kom fram í ávarpi
hennar við opnun
fyrsta sænska Barna-
hússins þann 30. sept-
ember síðastliðinn. Í
ávarpinu sagði Silvía
meðal annars: „Á
meðan á heimsókn
minni til Íslands stóð
fyrir rúmu ári gafst
mér tækifæri til að
heimsækja Barna-
húsið þar. Ég óskaði
mér þess þá að hægt væri að opna
sambærilegt Barnahús í Svíþjóð.
Hús þar sem lögð yrði öll áhersla á
þau börn sem verða fyrir kynferð-
islegu ofbeldi“.
Hún sagði einnig mikilvægt að
barn þyrfti aðeins að segja sögu
sína einu sinni í stað þess að þurfa
að endurtaka hana allt að sex til
átta sinnum. Þá sagði hún það hafa
verið mikið gleðiefni þegar fram
kom í heimsókninni að saksóknari
og lögregla gætu
spurt mikilvægra
spurninga með aðstoð
sérhæfðs barnasál-
fræðings með mikla
reynslu í að túlka frá-
sagnir barna og lík-
amstjáningu þeirra.
Drottningin fékk
því framgengt í kjöl-
far heimsóknarinnar
að veitt var sérstakt
fjármagn úr sjóði
World Childhood Fo-
undation til þess að
Barnahús gæti orðið
að raunveruleika í
Svíþjóð sem fyrst, en
þau samtök stofnaði hún árið 1999.
Á vef Barnarverndarstofu, bvs.is,
er hægt að nálgast ávarp Silvíu í
íslenskri þýðingu.
Á vef Barnaverndarstofu kemur
einnig fram að það sé þeim mikið
gleðiefni að hafa haft slík áhrif á
þetta málefni í Svíþjóð og tákn-
rænt að Svíar hafi ákveðið að nota
nafnið „Barnahus“ sem er þýðing á
hinu íslenska heiti og er þetta orð
nýyrði í sænsku máli.
Silvía drottning við opnun Barnahúss
Segir íslenskt
Barnahús hafa
haft mikil áhrif
Silvía Svíadrottning
BÆJARSTJÓRN Akraness hélt í
gær sinn eitt þúsundasta fund en
63 ár eru frá því fyrsti fundurinn
var haldinn, 26. janúar árið 1942
– þegar Ytri-Akraneshreppur
fékk kaupstaðarréttindi. Fjöl-
menni var við fundinn sögulega
en að honum loknum var boðið til
móttöku í Safnaskálanum að
Görðum, þangað var öllum núver-
andi og fyrrverandi bæjarstjórn-
armönnum boðið ásamt öllum
þeim sem gegnt hafa stöðu bæj-
arstjóra á Akranesi í gegnum ár-
in.
Þúsundasti fundur bæjarstjórnar Akraness