Morgunblaðið - 12.10.2005, Blaðsíða 50
50 MIÐVIKUDAGUR 12. OKTÓBER 2005 MORGUNBLAÐIÐ
BRESKI leikarinn Daniel Craig er
sagður hafa hreppt hlutverk njósn-
arans James Bond en hann lék
m.a. í kvikmyndinni Layer Cake á
móti leikkonunni Siennu Miller á
síðasta ári. Mun hann taka við
hlutverkinu úr höndum Pierce
Brosnan, sem leikið hefur í síðustu
fjórum kvikmyndum um njósnara
hennar hátignar.
Ef satt reynist mun Craig vera
fyrsti ljóshærði leikarinn í hlut-
verki Bonds.
Craig komst í slúðurfréttirnar í
vikunni eftir að kvennagullið Jude
Law sleit sambandi sínu við Siennu
Miller eftir að upp komst að hún
hafði haldið framhjá með Craig. Á
samband þeirra Craigs og Miller
átt að hafa staðið yfir í tvær vikur.
Að sögn breska dagblaðsins
Daily Mirror mun Law hafa fyrst
haft grun um sambandið á milli
leikaranna þegar hann heyrði
fyrrum unnustu sína hvísla „ég
elska þig, Daniel“ í síma. Vinur
hans staðfesti grun hans.
Blaðið hefur eftir heimildar-
manni sínum, að Jude Law hafi í
fyrstu ekki viljað trúa því að
Sienna Miller hafi haldið fram hjá
honum, sérstaklega ekki eftir allt
sem þau hafi gengið í gegnum áð-
ur. En fyrr í sumar sleit Sienna
Miller trúlofun sinni með Jude
Law eftir að hún komst að því að
hann hefði haldið framhjá henni
með fóstru barna hans frá fyrra
sambandi.
Að sögn breska dagblaðsins
Daily Mail er búist við að aðstand-
endur myndanna um James Bond
muni tilkynna um valið á Daniel
Craig í hlutverki James Bond með
formlegum hætti síðar í vikunni.
Daniel Craig næsti Bond
Reuters
Daniel Craig er sagður vera næsti James Bond.
Verðið á karlhórum hefur lækkað
töluvert fyrir evrópskar konur!
Sýnd kl. 4 ísl.tal
RACHEL McADAMS CILLIAN MURPHY
HÖRKU SPENNUTRYLLIR FRÁ WES CRAVEN
LEIKSTJÓRA SCREAM MYNDANNA.
Topp5.is
Í 36.000 FETUM VARÐ HENNAR
VERSTA MARTRÖÐ AÐ VERULEIKA.Sími 564 0000í i
Miða sala opn ar kl. 15.15i l l. .
kl. 5.20, 8 og 10.40
Sýnd kl. 5.20, 8 og 10.40 B.i. 14 ára
Hrikalega hraður háloftatryllir með Jamie Foxx, Josh Lucas og Jessicu Biel í aðalhlutverkum.
FRÁ LEIKSTJÓRA FAST AND THE FURIOUS & XXXF LEI F E F I
Hrikalega hraður háloftatryllir með Jamie Foxx, Josh Lucas og Jessicu Biel í aðalhlutverkum.
Sýnd kl. 6, 8 og 10 B.i. 14 ára
Göldrótt
gamanmynd!
Sýnd kl. 5.45, 8 og 10.15
S.V. / MBL
S.V. / MBL
RACHEL
McADAMS
CILLIAN
MURPHY
Sýnd kl. 4 og 6
Sprenghlægileg gamanmynd!
Sýnd kl. 10 b.i. 14 ára Sýnd kl. 4 í þrívídd
Sýnd kl. 5.45, 8 og 10.20 B.i. 14 ára Sýnd kl. 8 og 10 B.i. 14 ára
RACHEL McADAMS CILLIAN MURPHY
Hrikalega hraður háloftatryllir með Jamie Foxx, Josh
Lucas og Jessicu Biel í aðalhlutverkum.
FRÁ LEIKSTJÓRA FAST AND
THE FURIOUS & XXX
HÖRKU SPENNUTRYLLIR FRÁ WES CRAVEN LEIK-
STJÓRA SCREAM MYNDANNA.
Í 36.000 FETUM VARÐ HENNAR VERSTA
MARTRÖÐ AÐ VERULEIKA.
Topp5.is
S.V. / MBL
Sýnd kl. 6
Skemmtileg ævintýramynd með íslensku tali.
Skemmtileg ævintýramynd
með íslensku tali.
450
kr.
450
kr.
Menning og samfélag
Skiptir máli hvað stendur í jólabókunum? Skiptir máli hvað er verið að sýna í listasöfnunum?
Hvað græða fyrirtækin á menningu? Hvað græðum við á menningu?
Málþing í tilefni af 80 ára afmæli Lesbókar Morgunblaðsins fimmtudaginn
13. október kl. 17 í Hafnarhúsinu.
Dagskrá þingsins:
• Halldór Jón Kristjánsson, bankastjóri Landsbanka Íslands: Viðskipti og menning.
• Þórunn Sigurðardóttir, stjórnandi Listahátíðar í Reykjavík:
Eru menningarmál hluti af umræðunni í breyttu samfélagi?
• Jón Karl Helgason, bókmenntafræðingur: Gráa svæðið.
• Vilhjálmur Árnason, prófessor í heimspeki við Háskóla Íslands:
Samfélagsumræða og rökræðumenning.
Stjórnandi þingsins er Þröstur Helgason, umsjónarmaður Lesbókar.
Pallborðsumræður verða að erindum loknum. Auk fyrirlesara taka þátt Þorvaldur Þorsteinsson,
forseti Bandalags íslenskra listamanna, Kolbrún Halldórsdóttir,
alþingismaður og leikstjóri, og Þorsteinn Hilmarsson,
upplýsingafulltrúi Landsvirkjunar.