Morgunblaðið - 17.12.2005, Blaðsíða 39
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 17. DESEMBER 2005 39
THE FESTIVAL OF
NINE LESSONS AND CAROLS
(A CHRISTMAS SERVICE IN ENGLISH)
HALLGRÍMSKIRKJA, REYKJAVÍK
4pm 18. December, 2005
Minister: Reverend Sigurður Pálsson
Hallgrímskirkja Motet Choir
Organist and conductor: Hörður Áskelsson
Soloist: Daði Kolbeinsson
British Embassy
Reykjavík
Það er bæði fljótlegt og þægilegt að
leita að uppskriftum á netinu, þótt
því verði ekki neitað að ákveðin hug-
arró og ánægja fylgi því að fletta
fagurlega skreyttri matreiðslubók.
Sjálf hef ég staðið mig að því uppá
síðkastið að slá æ oftar inn leit-
arorðum á netinu í stað þess að seil-
ast eftir uppskriftum í einhverri af
hinum fjölmörgu matreiðslubókum
sem prýða bókahillur heimilisins.
Gerðar hafa verið nokkrar býsna
góðar vefsíður á íslensku með upp-
skriftum við allra hæfi og það er
sannarlega hægt að mæla með
mörgum þeirra.
www.eldhus.is
Hér hefur verið safnað saman
miklum fjölda af uppskriftum af
ýmsu tagi. Auðvelt er að leita að
uppskriftum á þessum vef, því þær
eru flokkaðar eftir efni. Nýjar upp-
skriftir eru vel þegnar, segja um-
sjónarmenn vefsins.
www.uppskriftir.is
Þetta er bæði skemmtilegur og
fróðlegur vefur. Þarna eru ekki ein-
göngu fjölbreyttar uppskriftir, held-
ur fylgja jafnframt upplýsingar um
næringarinnihald allra uppskrifta.
www.freisting.is
Þessi vefur er tileinkaður íslensk-
um matreiðslumeisturum og bök-
urum. Hægt er að finna fjöldann all-
an af uppskriftum, bæði einföldum
og flóknum með því að fara inn á
„uppskriftir“. Ennfremur eru þar
hagnýt ráð af ýmsum toga.
www.ms.is
Þetta er vefur MS sem sérhæfir
sig í framleiðslu mjólkurafurða og af
heimasíðu fyrirtækisins er hægt að
fara inn á „uppskriftir“ þar sem
gefnar eru hugmyndir að fjörlegum
ábætisréttum fyrir unga og aldna.
www.manneldi.is
Lýðheilsustofnun gerir tilraun til
að koma til móts við þá sem leita að
uppskriftum á netinu.
Farið er inn á heimasíðuna og til
að nálgast uppskriftir er nauðsyn-
legt að fara eftir krókaleiðum að
uppskriftum, inn á þráð sem heitir
„næring“ og er ekki áhugaverður
fyrir harðsvíraða matgæðinga, síðan
inn á „fræðslu“ og þaðan inn á
„fræðsluefni“. Þaðan er farið inn á
þráð sem ber heitið „matur, mat-
aræði og holdafar“ og af þeirri síðu
er gefinn kostur á uppskriftum sem
samræmast að öllum líkindum
markmiðum manneldisráðs, án þess
að ég hafi gætt sérstaklega að því.
Ég var satt að segja orðin svo leið
þegar ég loksins komst að uppskrift-
unum, að ég hafði ekki lengur áhuga
á þeim.
www.hlad.is
Þarna tala veiðimenn saman og
skiptast meðal annars á upp-
skriftum og upplýsingum um með-
höndlun og matreiðslu villibráðar.
Af forsíðu er farið inn á „spjallborð“.
Þaðan liggur greið leið inn á spjall-
rás sem nefnist Verkun og elda-
mennska villibráðar og hefur að
geyma nokkurn fjölda af upp-
skriftum auk góðra ráða um með-
höndlun villibráðar.
www.byssa.is
Farið er inn á „spjallið“ af upp-
hafssíðu. Á þessum slóðum ræða
menn bæði um stangveiði og skot-
veiði. Boðið er uppá spjallrás um
uppskriftir, sem ekki eru þó ýkja
margar.
www.jol.is
Þessi vefsíða er tileinkuð jólum og
undirbúningi þeirra. Auðvelt er að
leita að uppskriftum af upphafssíð-
unni og þar eru nokkrar skemmti-
legar uppskriftir, allt frá skötu að
vestfirskum sið uppí girnilega eft-
irrétti.
Ýmsar fleiri vefsíður bjóða upp á
fjölbreyttar uppskriftir og því er
ekki annað hægt en að hvetja lands-
menn til að kíkja á netið og leita að
hugmyndum að hversdagsmat eða
veislukosti.
Í leit að góðum uppskriftum
Það fer eng-
inn í grafgötur um það
að tölvur skipa stóran
sess í lífi okkar nútíma-
manna. Brynja Tomer
leit til dæmis á mat-
reiðslubækur eins og
helgar bækur þar til
hún fór að rápa um netið
í leit að uppskriftum.
NETIÐ
h ö n n u n : w w w . p i x i l l . i s
Stóll með stálgrindafótum
Verð: 16.800.-
THEO
Verð: 12.500.-
ARJAN
Verð: 13.500.-
LISA
Verð: 12.500.-
-20%
ROCCO leðursófasett
3+1+1
Verð áður: 232.000.-
Verð nú:
185.600.-
FOCUS leðursófasett
3+1+1
199.800.-
3+2
188.000.-
FOCUS sófasett
með óhreinindavörðu microfiberáklæði
3+1+1
Verð:
145.000.-
LUNA leðursófasett
3+1+1
188.000.-
3+2
178.000.-
BÆJARL IND 12 - S : 544 4420
201 KÓPAVOGUR
Opið um helgina: lau 10:00-18:00 - sun 13:00-18:00
-20%
CAPRI leðurtungusófi
Fáanlegur bæði í hvítu og dökkbrúnu leðri
Verð áður: 212.000.-
Verð nú:
169.600.-
Glæsilegar vörur
fyrir jólin
ný sending af fallegri gjafavöru
DAGLEGT LÍF