Morgunblaðið - 17.12.2005, Blaðsíða 75

Morgunblaðið - 17.12.2005, Blaðsíða 75
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 17. DESEMBER 2005 75 MINNINGAR veg var vinsælt leiksvæði hjá stórum hópi krakka sem ólust upp í ná- grenninu. Þar hófst vináttu margra leikfélaga, sem hefur varað allt lífið. Í Lautinni hófust kynni Steina og Stjána. Við vorum jafnaldrar, skóla- félagar, unnum á sama vinnustað, gerðumst sameignarmenn að versl- unni Steina og Stjána. Þannig tvinn- aðist okkar lífsganga. Steini í Steindó var hress strákur og lífs- glaður og sá oft spaugilegar hliðar á málunum, orðheppinn, athafnasam- ur, félagslyndur og eftirsóttur félagi. Á barnsaldri fór að bera á sjúkdómi í beinum sem háði honum alla tíð. Steini lét það þó ekki slá sig út af lag- inu heldur lifði með þessum erfið- leikum af einstökum lífskrafti þótt oft hafi hann þurft að bíta á jaxlinn. Skólaganga hófst í stubbadeild Barnaskóla Vestmannaeyja. Skóla- námið var tekið svona mátulega al- varlega. Það var svo margt sem var að gerast. Athafnalífið í Eyjum var þvílíkt á þessum árum að ungir menn máttu ekki missa af því sem var að gerast. Fylgjast varð með á bryggj- unum þar sem yfir 100 bátar voru gerðir út og iðandi mannlíf í bænum. Steini fór þónokkur sumur í sveit og líkaði það vel. Fastur liður var að safna í brennu fyrir áramót. Brennu- stæðið var alltaf það sama fyrir neð- an Sýslumannskórinn. Söfnun í brennuna stóð frá því í október og fram að áramótum. Þetta var mikil vinna og burðast var með kassa og spýtur langt umfram getu, en sam- heldinn og góður hópur gafst ekki upp. Ungur gekk Steini í Knatt- spyrnufélagið Tý og starfaði mikið fyrir félagið alla tíð. Við undirbúning Þjóðhátíðar var hann liðtækur með málningarpensilinn ásamt félögun- um Gauja, Finnsa og Magga Magg. Þetta var magnað gengi sem gerði frábæra hluti í Dalnum. Starf við Grillið á Shellmóti var ómissandi þáttur. Undirbúningur og þátttaka í þrettándagleði með Gauja Manga o.fl. var einnig ómissandi. Steini var félagi í Sjóstangveiði- félagi Vestmannaeyja, bæði sem veiðimaður og starfsmaður við mót sem félagið stóð fyrir. Einnig var hann félagi í Lionsklúbbi Vest- mannaeyja um tíma. Á þessari upp- talningu sést að Steini kom víða að þar sem hann lagði lið. Hægt væri að segja margar sögur um skemmtileg atvik og atburði sem gerðust í þessu félagsstarfi. Þjóhátíðarundirbúningi er ekki hægt að lýsa með orðum. Að- eins þeir sem við hann hafa starfað ná þeirri stemmningu. Einnig af veiðiferðum þar sem enginn fiskur fékkst, en margar veiðisögur. Af ýmsu væri hægt að taka. Eftir skyldunám í Gagnfræða- skóla Vestmannaeyja fór Steini að starfa sem verslunarmaður hjá Har- aldi Eiríkssyni h/f, raftækjafyrir- tæki. Þetta var góður skóli fyrir unga menn, því fyrirtækið var gott og afbragðs starfsfólk. Áhersla var lögð á að hafa hlutina í röð og reglu og krafa gerð um mætingar á réttum tíma. Mikið rask kom á líf allra í gos- inu 1973. Gosárið starfaði Steini hjá Fataversluninni Andersen & Lauth við Vesturgötu í Reykjavík. Steini og hans fjölskylda var strax ákveðin í að flytja aftur til Vestmannaeyja og það fljótt. Mikil breyting hafði orðið í Eyjum, vinnustaðurinn kominn und- ir hraun og það varð að finna eitt- hvað nýtt að gera. Á Þorláksmessu 1973 hringir Steini til mín og segir: „Stjáni, það vantar fataverslun í bæ- inn, við setjum upp búð.“ Ég maldaði í móinn og sagði að það væri nú ekki mitt fag. „Þú verður með mér,“ sagði hann. Þar með var það ákveðið. Verslunin Steini og Stjáni var opnuð l. febrúar l974 í Drífanda við Báru- stíg. Verslunin var gott innlegg í bæjarlífið á þessum tíma. Steini ann- aðist búðina af sinni einstöku snyrti- mennsku, allt í röð og reglu. 1978 var keypt húsnæði fyrir verslunina á Skólavegi 4 og hún starfrækt þar til ársins 1990. Árið 1975 hitti Steini hana Brynju sína sem staðið hefur með honum í lífsbaráttunni frá þeim tíma. Baráttu sem ekki hefur alltaf verið áfallalaus. Fljótlega keyptu þau Grímsstaði við Skólaveg og hefur fjölskyldan átt þar yndislegt heimili. Velferð barnanna Margrétar og Þorsteins Ívars voru þeirra hugðarefni. Kveðjustundin er komin, ótíma- bær og óvænt. Eftir sitja minningar um góðan dreng. Elsku Brynja, Margrét, Þorsteinn Ívar, Doddi, Magga tengdó, systkini, tengdafólk og fjölskyldur.Við Guðný sendum okkar innilegustu samúðar- kveðjur. Megi góður Guð styrkja ykkur til að takast á við sorgina. Kristján G. Eggertsson (Stjáni). „Nei, nei, er nú ekki búið að leggja nóg á mig!!!" sagði Steini, þegar hann sá mig í dyragættinni, þegar ég heimsótti hann á Landspítalann. Þegar hann hafði lýst því hvernig komið væri fyrir sér, varð mér strax ljóst að vinur minn væri helsjúkur og ætti því miður ekki langt eftir. Við áttum gott spjall saman og hann sagði mér að hann hefði rætt við séra Kjartan Örn fyrr um morg- uninn. Steini sagðist hafa játað það fyrir prestinum að hann skuldaði Kjartani Erni enn hjónavígsluna þeirra Brynju fyrir margt löngu!!! og við yrðum nú að fara að telja þetta fram, en ég hefi um árabil aðstoðað þau hjónin við framtalsgerð. Þar áður hafði ég til margra ára annast bókhald og uppgjör fyrir „Steina og Stjána hf.“, herrafata- verzlun, sem Steini rak af myndar- skap um árabil. Þar eins og annars staðar var mikill metnaður í gangi, og var það ófrávíkjanleg regla að fyrsta uppgjörsverkefni hvers árs var bókhald og skattskil fyrir „Steina og Stjána hf.“ Undanfarin ár hefur Steini unnið í Kertaverksmiðjunni Heimaey og nú í sumar útvegaði hann okkur sér- staklega falleg kerti við brúðkaup dóttur okkar. Við hugsum ávallt til þín er við tendrum Heimaeyjarljós með þökk fyrir liðna tíð. Kæru Brynja, Margrét og Þor- steinn Ívar. Við Jenna sendum ykk- ur samúðarkveðjur og biðjum Guð að vera með ykkur og blessa minn- ingu góðs vinar. Ágúst Karlsson. Það er laugardagskvöld fyrir um það bil 35 árum. Fimm ungir menn eru á leið á dansleik í Höllinni. Einar í Valhöll, Geir á Reynistað, Goggi í Klöpp, Árni í Gerði og Steini í Steindó. Við erum staddir í norð- austur-herberginu á Vesturvegi 4, heimili Steina. Reykjarmökkurinn í herberginu er ógurlegur, þrír reykja vindla, einn sígarettur og einn reykir ekki. En þetta var fyrir öll reykinga- bönn, svo að menn létu sig hafa það. Svo var drukkið Dimple Whisky og Vodka í kók og síðast en ekki síst Sjenni. Doddi pabbi Steina skýtur inn kollinum við og við og segir sög- ur, en af þeim kunni hann nóg. Þegar menn héldu að þeir væru tilbúnir, þá var haldið á ball. Við þurftum ekkert að flýta okkur því að Óli þjónn hélt fyrir okkur sama borðinu í nokkur ár (kostaði eitt-tvö sjennaglös). Yfir- leitt var eitthvað spáð í kvenfólkið og gekk nú misjafnlega í þeim málum. En það var auðvitað eitt aðalum- ræðuefnið daginn eftir, er við hitt- umst á Vesturvegi 4 í norðaustur– herberginu hans Steina. Eitthvað mundu menn misjafnlega vel hvort þeir hefðu verið með stelpu, hver það hefði verið og hvar hún átti heima. Þegar menn voru nánast að andast úr reykjarmekki, þá var haldið í bíl- túr á Skodanum hans Dodda, þar sem enn var reykt. Síðan um kvöldið var annaðhvort spilað eða farið í bíó. Afþreyingin fyrir unga menn á þess- um tíma var ekki mikil. Kannski heppilegt að pubbar voru ekki komn- ir til sögunnar. Eitthvað þessu líkt stóð þetta samband í nokkur ár. Þannig nokkurn veginn munum við félagarnir eftir okkar bestu árum með Steina. Á þessum tíma hefði okkur ekki grunað að tveir úr þess- um hópi væru nú látnir. Fyrst Goggi og nú Steini. Það væri að æra óstöð- ugan að rifja meira upp frá þessum árum, en ef einhver gæti og kynni það þá hefði það verið Steini, því að hann hafði mikla frásagnargáfu, ýkti svolítið og átti til að enda sögurnar: „Þetta er alveg satt.“ Þá vissum við hinir að hún var kannski ekki alveg sönn. Minningin er góð og mun lifa um ókomna tíð. Elsku Brynja, Margrét og Þor- steinn. Innilegar samúðarkveðjur. Einar Friðþjófsson, Geir Sigurlásson, Árni G. Gunnarsson. Þegar Steini vinur minn hringdi og sagði að hann ætti að koma í rann- sókn á Landspítalanum, óraði mig ekki fyrir því að það yrði hans síð- asta ferð. Næsta dag kom hann í sjúkraflugi og var lagður inn á bráðamóttöku til rannsókna og lækninga. Hann hafði verið greindur með ólæknandi sjúkdóm sem engu eirir og eftir aðeins sextán daga var hann allur. Þegar ég hóf störf hjá Rafveitu Vestmannaeyja í ágúst 1968 og hafði verið kynntur fyrir starfsfólkinu, fóru starfsmenn Rafveitunnar með mig í verslun Haraldar Eiríkssonar og kynntu mig fyrir ungum og hress- um afgreiðslumanni, sem hét Þor- steinn Þorsteinsson. Með okkur tókst vinátta sem staðið hefur óslitið í þrjátíu og sjö ár. Steini var einn hressasti maður sem ég hef kynnst, hafði ánægju af lífinu og deildi gam- ansemi sinni óspart með öðrum. Þar sem ég var án fjölskyldu minnar að vinna í Eyjum langtímum saman tóku Steini og hans félagar mig að sér að nokkru leyti og sáu um að mér leiddist ekki. Frá þessum árum minnist ég endalausra skemmtilegra stunda með Steina og atburða sem aldrei gleymast. Svo tók alvaran við og Steini stofnaði fjölskyldu. Gæfan birtist honum er hann kynntist ungri blómarós, Brynju Friðþórsdóttur, sem varð lífsförunautur hans. Saman eignuðust þau Margréti og Þorstein Ívar, sem eru stolt foreldranna. Með fjölskyldum okkar varð svo náið samband, að segja má að við værum ein fjölskylda, hvort sem var úti í Eyjum eða í Kópavoginum. Steini og fjölskylda hans voru au- fúsugestir sem dvöldu til lengri eða skemmri tíma á mínu heimili og þannig treystust fjölskyldu- og vina- böndin bara enn betur. Margar ánægjustundir áttum við saman og er þá margs að minnast eins og ferðanna til Portúgals. Ekki var hægt að hugsa sér traustari vin en Steina. Hann var ekki síður vak- inn og sofinn yfir velferð fjölskyld- unnar, sem var honum allt. Þrátt fyr- ir að lífið væri ekki alltaf dans á rósum vegna veikinda, var alltaf stutt í glaðværð og góða skapið hjá honum. Nú þegar komið er að kveðjustund allt of fljótt er þakklæti fyrir allar ánægjustundirnar, sem við áttum saman, mér efst í huga. Elsku Brynja, Margrét, Þorsteinn Ívar og aðrir aðstandendur, innilega samúð vottum við, ég og fjölskyldan, ykkur. Megi minningin um góðan dreng lifa með okkur öllum um ókomna framtíð. Haukur Ársælsson. Týrari að vera, það talið er hér töluvert hnoss, svona rétt eins og ber. Fræknustu englar sem ferðast um ský, forðum á jörðinni voru í Tý. Þetta vísukorn kom upp í huga mér við fréttir af andláti vinar, Þor- steins Þorsteinssonar, eða Steina Steindó, eins og hann var alltaf nefndur í vinahópi. Nú hafði enn einn frækinn bæst í englahópinn. Ég er búinn að þekkja Steina í rúm fjörutíu ár. Leiðir okkar fóru að skarast og skarast meira og meira vegna starfa í SJÓVE og Tý. Á þessum árum höfðum við marga hildi háð, eins og sagt var til forna. Þetta voru ekki allt úrslitaorustur fyrir þjóðfélagið, en við tókum þær alvarlega. Að mála stofurnar á Grímsstöðum fyrir jólin eða mála eins og eina þjóðhátíð, halda stjórnarfundi hjá SJÓVE eða draga í sveitir á bátana, allt voru þetta háalvarleg mál í okkar huga. Öll voru þau leyst sem slík. Steini var að mörgu leyti furðu- legur. Þegar allir voru að springa úr hátíðleika læddi Steini einni skrítlu í hópinn, sem sprakk og öll verk voru unnin af léttleika úr því. Þessu er ekki slegið hér fram til að ófrægja Steina, onei, onei, hann hafði svo stórar áhyggjur af málum, sem hann hafði tekið að sér, að hann átti vont með svefn, ef illa miðaði að hans mati. Við vorum báðir í þeim hópi bæjarbúa sem tigna guðinn Tý og Týr því okkar félag og þar voru mörg handtökin unnin og ekki alltaf frá átta til fimm. Oft í kringum peyjamótin og þjóðhátíð var sólar- hringurinn of stuttur. Oft á tíðum brá hann sér á handfæri með Gauja vini sínum í Gíslholti á Barðanum og veiddist þá sem aldrei fyrr. Menn gætu haldið af þessum lín- um að Steini hafi verið einhleypur sprangari, en svo var nú aldeilis ekki. Steini átti yndislega eiginkonu, hana Brynju sína, fallegt heimili og falleg börn. Við sem eftir lifum erum mörg hver betri af að hafa kynnst Steina Steindó og margir Týrarar eiga eftir að sakna hans. Að lokum, Brynja mín, þú mátt vita að frá okkur vinum Steina send- ast bænir til Guðs um styrk handa þér og börnum ykkar. Góður drengur er genginn, góð minning lifir. Magnús Magnússon. Desember er mánuður ljóss og friðar og þá kveikjum við á kertum til þess að minnast fæðingar frels- arans. Margir kveikja á kertum til að minnast þeirra sem kvatt hafa jarð- neskt líf á árinu. Okkur óraði ekki fyrir að við myndum tendra á kerti í minningu Steina á aðventunni í ár. Ef hægt er að tala um konung kertanna þá komst Steini næst því að vera það því hann vissi allt um þau. Hann stjórnaði framleiðslu á bestu kertum landsins, Heimaeyjar- kertum, af einstakri röggsemi og ósérhlífni. Örfáum dögum áður en Steini dó var hann harðákveðinn í að ná heilsu til að fara á vinnustaðinn sinn fyrir jól til að athuga hvort allt væri ekki örugglega eins og það ætti að vera. Innra með honum sló hjarta úr gulli og hann var ávallt traustur og áræðinn. Við erum Steina afar þakk- lát fyrir ógleymanlega samveru, samvinnu og vináttu. Við færum fjölskyldu hans og vin- um hugheilar samúðarkveðjur. Minning um góðan mann lifir. Gísli Matthías og Olga Björt. Það er sárt að kveðja Steina sem við höfum þekkt svo lengi og hefur í reynd verið sem einn af fjölskyld- unni. Okkar kynni hófust löngu fyrir gos í Vestmannaeyjum. Við hjónin kynntumst Steina og Brynju þegar þau voru að byrja að draga sig sam- an, við hittum þau eitt laugardags- kvöld á skemmtistaðnum Sigtúni við Suðurlandsbraut. Steini gisti þá sem oftar á Hrauntungunni. Hann hafði áhyggjur af því hvort ekki væri hægt að stækka sófann sem hann svaf á svo hann gæti boðið þessari fallegu konu að gista hjá sér. Við sögðum að sjálfsögðu væri ekkert mál að stækka sófann og við útlistuðum hvernig það væri gert. Þetta var náttúrlega allt „lygi“. Það var engan veginn hægt að stækka sófann en þau sváfu nú saman þessa nótt og hafa gert síðan. Steini hundskamm- aði okkur síðar fyrir þetta en að sjálfsögðu meinti hann ekkert með því. Ávöxtur þeirra sambands eru yndislegu börnin þeirra Margrét og Þorsteinn Ívar sem sárt sakna föður síns nú á þessari sorgarstund. Við viljum senda þeim okkar innilegustu samúðarkveðjur. Við viljum þakka fyrir allar skemmtilegu stundirnar og allar sögurnar sem Steini sagði, hann var ótrúlega skemmtilegur sögumaður. Einnig viljum við þakka fyrir þær góðu móttökur sem við fengum þegar við komum til Eyja með strákana okkar á peyjamótin en Steini starfaði við þau í mörg ár. Elsku Brynja, megi Guð gefa þér styrk á þessari sorgarstund. Við vilj- um votta þér og fjölskyldu þinni okk- ar dýpstu samúð. Ársæll og Helga. Það er svo erfitt að átta sig á, skilja og sætta sig við þegar fólk á besta aldri skilur við okkur. Eftir stöndum við, án útskýringa en með minninguna að leiðarljósi. Við kynntumst honum Steina fyrir rúmum ellefu árum og höfum síðan þá átt með honum margar góðar stundir úti í Eyjum. Oft hittumst við um jól, áramót, og á þjóðhátíðum, þar sem fjölskyldan hefur verið sam- an komin og glatt á hjalla. Það sem kemur fyrst upp í huga okkar er hversu jákvæður og gamansamur hann var og alltaf mjög umhyggju- samur um okkar hagi. Nærvera hans var afar góð. Við útigrillið var Steini sannarlega á heimavelli og þar urðu lambalærin að miklum meistaramál- tíðum. Elsku Steini, takk fyrir okkur. Minning þín lifir sem ljós í hugum okkar. Ég horfinn er úr heimi, minn hugur er á sveimi um ókunn undralönd. Ég finn mig léttan líða á ljóssins örmum víða, mig leiðir einhver æðri hönd. (Jóhannes úr Kötlum.) Elsku Brynja, Margrét og Þor- steinn Ívar. Við biðjum þess að guð gefi ykkur styrk, varðveiti ykkur og umvefji með hlýju og yl. Diljá, Vilhjálmur og María Ósk. ÚTFARARSTOFA KIRKJUGARÐANNA Vesturhlíð 2 • Fossvogi • Sími 551 1266 • www.utfor.is REYNSLA • UMHYGGJA • TRAUST Önnumst alla þætti útfararinnar Þegar andlát ber að höndum Arnór L. Pálsson framkvæmdastjóri Ísleifur Jónsson útfararstjóri Frímann Andrésson útfararþjónusta Svafar Magnússon útfararþjónusta Hugrún Jónsdóttir útfararþjónusta Guðmundur Baldvinsson útfararþjónusta Halldór Ólafsson útfararþjónusta Ellert Ingason útfararþjónusta
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.