Morgunblaðið - 17.12.2005, Blaðsíða 29
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 17. DESEMBER 2005 29
ERLENT
„... er opinská, leiftrandi og heillandi ... Bókin er vel og lipurlega
skrifuð og hefur þýðing Steinþórs Steingrímssonar tekist með
miklum ágætum ... ekki aðeins fyrir aðdáendur Lennons, heldur
alla þá sem ... láta sig sögu dægurtónlistar einhverju varða.“
– Sveinn Guðjónsson, Mbl.
Frábær bók sem varpar nýju ljósi á eina helstu
rokkstjörnu 20. aldar.
„... leiftrandi og heillandi“
SKRUDDA
Eyjarslóð 9 - 101 Reykjavík
s. 552 8866 - skrudda@skrudda.is
www.skrudda.is
Merkileg bók, falleg og einstæð örlagasaga ... þrátt fyrir návist dauðans
missir Ingólfur þó aldrei húmorinn.
– Illugi Jökulsson
En þessi bók er miklu meira en góð saga, raunar alveg ótrúlegt hvað honum
tekst að gera sjúkdómssögu sína spennandi, skemmtilega og sprelllifandi.
– Eiríkur Bergmann Einarsson
Hreinskilin og áhrifamikil baráttusaga.
– Jón Ingvi Jóhannesson, Kastljósi
Dómarnir eru einróma: Frábærlega vel skrifuð
og skemmtileg bók um háalvarlegt efni.
„... einstæð örlagasaga ...“
Frábærar jólabækur
Ævi Jörgens Jörgensen, eða Jörundar hundadagakonungs, hefur alltaf
verið Íslendingum hugleikin. Í þessari bók er ótrúlegt lífshlaup hans
rakið allt frá æskuárunum í Kaupmannahöfn þar til hann
lýkur ævi sinni á Tasmaníu.
Bókin kom út í Bretlandi fyrr á þessu ári og hefur hlotið
frábæra dóma lesenda og gagnrýnenda
Sérlega vel skrifuð og vönduð ævisaga.
Einstakur lífsferill!
Buenos Aires. AFP. | Argentínumenn
hyggjast greiða upp skuldir sínar við
Alþjóðagjaldeyrissjóðinn (IMF).
Gengið verður frá greiðslunni, tæp-
um tíu milljörðum Bandaríkjadala,
fyrir áramót.
Nestor Kirchner forseti greindi
frá þessu á fimmtudag en ákvörð-
unin þykir skýrt merki um þann um-
snúning sem orðið hefur á ríkisfjár-
málum Argentínu. Fjögur ár eru
liðin frá því að efnahagur landsins
hrundi og IMF þurfti að koma Arg-
entínumönnum til hjálpar.
Að sögn Kirchners ræðir um 9,81
milljarða dala (um 612 milljarða ís-
lenskra króna) og verða fjármunirn-
ir sóttir í gjaldeyrisforða lands-
manna. Greiðslan verður innt af
hendi þremur árum fyrr en áætlað
hafði verið.
Í máli forsetans kom fram að Arg-
entínumenn hefðu nú endurgreitt
IMF um sex milljarða dala frá því að
efnahagskreppan reið yfir árið 2001.
Fyrr í vikunni greindu stjórnvöld í
Brasilíu frá því að skuld landsmanna
við Alþjóðagjaldeyrissjóðinn yrði
greidd upp fyrir mánaðamót. Skuld-
in nemur 15,5 milljörðum Banda-
ríkjadala (um 967 milljörðum króna).
Argentína
gerir upp
við IMF
Madríd. AP, AFP. | Spánarþing sam-
þykkti á fimmtudag ný lög sem banna
reykingar á vinnustöðum þar í landi.
Frumvarpið naut stuðnings allra
flokka á þingi og var samþykkt með
miklum meirihluta atkvæða.
Reykingabannið mun ná yfir skrif-
stofur, verslanamiðstöðvar, menning-
arhús, almenningssamgöngutæki og
aðra almenningsstaði. Bannið tekur
gildi 1. janúar.
Lögin kveða einnig á um að ekki
megi selja fólki yngra en 18 ára tóbak
og sígarettuauglýsingar verða bann-
aðar í fjölmiðlum, á auglýsinga-
skiltum. Tóbakskynningar verða al-
mennt óleyfilegar.
Reykingar verða bannaðar í al-
mennu rými á veitingastöðum sem
stærri eru en eitt hundrað fermetrar.
Á slíkum stöðum verður heimilt að af-
marka rými fyrir reykingafólk og má
það ekki vera stærra en þriðjungur
gólfflatarins. Á minni veitingastöðum
og börum verða reykingar leyfðar ef
eigandi viðkomandi fyrirtækis svo
kýs, en þess er krafist að slíkir veit-
ingastaðir verði vandlega merktir. Þá
er gert ráð fyrir að reykingar verði
leyfðar í afmörkuðu og merktu rými á
flugvöllum, kvikmyndahúsum og leik-
húsum.
Fleiri en 50 þúsund Spánverjar
deyja á hverju ári af völdum reykinga
og eru 700 taldir látast af óbeinum
reykingum, að mati spænska heil-
brigðisráðuneytisins.
Um 30% Spánverja reykja.
Takmarkað
reykingabann
á Spáni
VEGGUR á stóru uppistöðulóni virkjunar í Ozark-
fjöllum í Bandaríkjunum brast á fimmtudag með þeim
afleiðingum að 3,8 milljarðar lítra af vatni streymdu
úr henni, hrifu með sér tvö íbúðarhús og nokkra bíla.
Þrjú ung börn slösuðust alvarlega þegar heimili
þeirra varð fyrir flóðinu og þau voru flutt á sjúkrahús
í St. Louis.
Uppistöðulónið, sem er 180 metra breitt, tæmdist á
tólf mínútum. Ógurlegur vatnsflaumurinn braut sér
leið í gegnum skóg, hreif með sér tré og stórt svæði
þaktist leir.
Veggir uppistöðulónsins eru úr möl og steypu og
voru reistir árið 1963 á nær 1.600 metra fjalli í
Missouri.
Hermt er að bilun í sjálfvirkum búnaði hafi orðið til
þess að of miklu vatni var dælt í lónið þannig að vegg-
urinn brast. AP
Flóð hreif með
sér hús og bíla
♦♦♦