Morgunblaðið - 17.12.2005, Blaðsíða 66
66 LAUGARDAGUR 17. DESEMBER 2005 MORGUNBLAÐIÐ
MESSUR Á MORGUN
ÁSKIRKJA: Fjölskylduguðsþjónusta kl.
11, félagar úr kór Áskirkju syngja, gít-
arleikari Pétur Þór Benediktsson, org-
anisti Kári Þormar, prestur sr. Þórhildur
Ólafs.
BÚSTAÐAKIRKJA: Jólasöngvar fjölskyld-
unnar kl. 11. Samvera fyrir alla fjölskyld-
una, þar sem jólalögin eru sungin og
börnin ásamt foreldrum, öfum og ömm-
um koma saman til kirkju og eiga helga
stund. Börn úr Fossvogskóla flytja jóla-
guðspjallið í helgileik. Athugið að messa
þennan sunnudag er aðeins kl. 11 og
sameiginleg fyrir yngri sem eldri. Pálmi
Matthíasson.
DÓMKIRKJAN: Messa kl. 11. Sr. Karl V.
Matthíasson prédikar. Dómkórinn syng-
ur. Organisti Marteinn H. Friðriksson.
Æðruleysismessa kl. 20. Sr. Karl V.
Matthíasson prédikar, ásamt honum
þjóna sr. Jóna Hrönn Bolladóttir og sr.
Hjálmar Jónsson. Hörður Bragason sér
um tónlistina.
GRENSÁSKIRKJA: Fjölskylduguðsþjón-
usta kl. 11. Helgileikur 5 ára barna,
jólatré o.fl. Ólafur Jóhannsson.
GRUND dvalar- og hjúkrunarheimili:
Guðsþjónusta kl. 14. Organisti Kjartan
Ólafsson.
HALLGRÍMSKIRKJA: Fjölskylduguðsþjón-
usta kl. 11. Barnakór Austurbæjarskóla
og Hallgrímskirkju og Unglingakór Hall-
grímskirkju syngja undir stjórn Friðriks S.
Kristinssonar. Fiðlusveit úr Suzuki-fiðlu-
skólanum Allegro kemur í heimsókn og
leikur nokkur lög undir stjórn Lilju Hjalta-
dóttur. Fermingarbörn tendra á fjórum
kertum aðventukransins og aðstoða í
guðsþjónustunni. Organisti Hörður Ás-
kelsson. Magnea Sverrisdóttir segir jóla-
sögu, sr. Sigurður Pálsson hefur hug-
vekju og sr. Jón Dalbú Hróbjartson leiðir
guðsþjónustuna. Tekið verður á móti
söfnunarkössum Hjálparstarfs kirkjunnar
í messunni, sem sendir voru inn á heim-
ili landsmanna.
HÁTEIGSKIRKJA: Kirkjudagur Háteigs-
safnaðar. Messa og barnaguðsþjónusta
kl. 11. Umsjón með barnaguðsþjónustu
Erla Guðrún Arnmundardóttir, Þóra Mar-
teinsdóttir og Annika Neumann. Léttar
veitingar eftir messu. Sr. Tómas Sveins-
son. Aðventusöngvar við kertaljós kl. 20.
Minnst 40 ára vígsluafmælis kirkjunnar.
Dr. Sigurbjörn Einarsson, biskup, flytur
hugvekju. Barnakór syngur undir stjórn
Þóru Marteinsdóttur. Kór Háteigskirkju
og almennur söngur sem Douglas A.
Brotchie stjórnar. Meðleikarar eru tromp-
etleikararnir Einar St. Jónsson og Guð-
mundur Hafsteinsson og orgelleikarinn
Guðný Einarsdóttir.
LANGHOLTSKIRKJA: Kirkja Guðbrands
biskups. Jólasöngvar fjölskyldunnar við
kertaljós kl. 11. Stund fyrir unga sem
gamla, þar sem söngur skipar veglegan
sess, en einnig fá allir kerti og verður
ljósið borið frá altari. Prestur sr. Jón
Helgi Þórarinsson. Organisti Jón Stef-
ánsson. Eftir stundina verður farið inn í
safnaðarheimilið þar sem gengið verður í
kringum jólatréð. Kakó og piparkökur.
Minnt er á jólasöngva Kórs Langholts-
kirkju 16.–18. desember. Sjá nánar um
starfið á vefsíðu Langholtskirkju.
LANDSPÍTALI HÁSKÓLASJÚKRAHÚS:
Landakot: Guðsþjónusta kl. 11.30. Sr.
Kjartan Örn Sigurbjörnsson. Organisti
Birgir Ás Guðmundsson.
LAUGARNESKIRKJA: Guðsþjónusta og
sunnudagaskóli kl. 11. Að þessu sinni
annast þeir Þorgeir Ástvaldsson og
Ragnar Bjarnason tónlist í guðsþjónust-
unni en sóknarprestur þjónar ásamt
meðhjálpara. Sunnudagaskólinn er í
höndum Hildar Eirar Bolladóttur, Heimis
Haraldssonar og Þorvaldar Þorvaldsson-
ar.
NESKIRKJA: Messa og barnastarf kl.
11. Kór Neskirkju syngur. Organisti
Steingrímur Þórhallsson. Sr. Kjartan
Jónsson prédikar og þjónar fyrir altari,
ásamt dr. Sigurði Árna Þórðarsyni. Börn-
in byrja í kirkjunni en fara síðan í safn-
aðarheimilið. Brúður, söngur, sögur, leik-
ir og margt fleira. Öll börn fá kirkjubók og
límmiða. Umsjónarfólk er Guðmunda,
Björg og Ari. Kaffi, djús og spjall í safn-
aðarheimilinu eftir messu.
SELTJARNARNESKIRKJA: Jólastund fjöl-
skyldunnar kl. 11. Selkórinn syngur fal-
leg jólalög undir stjórn Jóns Karls Ein-
arssonar. Sunnudagaskólabörnin hvött
til að mæta, sögustund, tónlist og margt
fleira. Organisti Pavel Manasek og prest-
ur sr. Sigurður Grétar Helgason. Verið
velkomin.
ÍSLENSKI SÖFNUÐURINN í Lundúnum:
Jólaguðsþjónusta verður haldin sunnu-
daginn 18. desember næstkomandi fyrir
Íslendinga í Lúxemborg og hefst hún
klukkan 13 í kirkju mótmælenda í Lúx-
emborg. Sr. Sigurður Arnarson þjónar fyr-
ir altari og prédikar og Íslenski kirkjukór-
inn syngur og stjórnandi og organisti er
Hermann Bragi Reynisson. Eftir guðs-
þjónustuna verður jólaball Íslendinga-
félagsins.
FRÍKIRKJAN í Reykjavík: Fjölskylduguðs-
þjónusta kl. 14. Hugljúf stund með leik-
inni helgisögu og miklum söng í umsjá
Önnu Siggu, Kalla og Fríkirkjukórsins.
Englamyndir og andabrauð á sínum stað
í lokin. Kl. 17 Stórtónleikar til styrktar
geðsviði Reykjalundar. Landsþekkt söng-
og tónlistarfólk kemur fram endurgjalds-
laust. Allur ágóði rennur óskiptur til mál-
efnisins. Kl. 20 heilunarguðsþjónusta í
samstarfi Fríkirkjunnar í Reykjavík og Sál-
arrannsóknarfélags Íslands.
ÁRBÆJARKIRKJA: Jólasöngvar kirkju-
kórsins og kórs eldri borgara kl. 11.
Stjórnandi Krístín Pétursdóttir. Barn bor-
ið til skírnar. Organisti og kórstjóri Kriszt-
ina Kallo Szklenár.
BREIÐHOLTSKIRKJA: Jólasöngvar fjöl-
skyldunnar kl. 11. Barnakórinn syngur
undir stjórn Ástu B. Schram, undirleikari
Keith Reed. Stundin er í umsjá Jóhanns,
Sólveigar, Þóru og sr. Gísla Jónassonar.
Tekið er við baukum Hjálparstarfs kirkj-
unnar.
DIGRANESKIRKJA: Jólaball sunnudaga-
skólans kl. 11. Jólatrésskemmtun, geng-
ið í kringum jólatré, jólasveinninn kemur
í heimsókn. Heitt súkkulaði og piparkök-
ur. Jólastund Digraneskirkju kl. 16.
Prestur: sr. Magnús B. Björnsson.
Morgunblaðið/Sigurður ÆgissonSiglufjarðarkirkja.
Guðspjall dagsins:
Vitnisburður
Jóhannesar.
(Jóh. 1.)
Skáldsaga
Ninnataka tvö
JónínaBenediktsdóttir
N
innataka
t
ö
"Lífið sjálft er gróft og miskunnarlaust og mér finnst bókin neyða fólk
til að líta inn í raunveruleikann." - Alexía Nótt
Mögnuð bók!
RAFLAGNA
ÞJÓNUSTA
RAFSÓL
Skipholti 33 • 105 Reykjavík
Sími:
553 5600
E
i
n
n
t
v
e
i
r
o
g
þ
r
í
r
2
6
6
.0
0
2
lögg i l tu r ra fverk tak i
Fréttasíminn 904 1100