Morgunblaðið - 17.12.2005, Blaðsíða 72

Morgunblaðið - 17.12.2005, Blaðsíða 72
72 LAUGARDAGUR 17. DESEMBER 2005 MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR ✝ Finnur IngiFinnsson fædd- ist á Blönduósi 20. febrúar 1958. Hann lést á heimili sínu fimmtudaginn 8. desember. Foreldr- ar hans voru Finnur Kristjánsson, f. 11. apríl 1923, og Sæ- björg Jónsdóttir, f. 14. nóvember 1926. Finnur Ingi átti fjögur systkini. Þau eru Jón Árni, f. 13. mars 1954, Kristján, f. 8. maí 1956, Karlotta Jóna, f. 1. maí 1959, og Agnes, f. 22. maí 1965. Finnur Ingi átti soninn Stein- dór, f. 10. október 1980. Móðir hans er Nanna Jónsdóttir. Finnur Ingi kvæntist hinn 18. maí 1991 Ásdísi Árnýju Sigur- dórsdóttur, f. 24. apríl 1966. Þau slitu samvistum. Börn þeirra eru Ása Guðrún, f. 26. október 1989, Halldór, f. 1. október 1995, og Bryndís, f. 22. júní 2000. Finnur Ingi lauk námi í bílasmíði frá Iðnskólanum í Reykjavík 1983. Hann vann í Bíla- skálanum frá 1979– 1984. Hann vann hjá réttingaverkstæð- inu Kyndli frá 1984– 1985, í Blikksmiðj- unni Höfða frá 1985–1988 og í blikksmiðjunni KK Blikki frá 1988– 1993. Hann var há- seti hjá Hafrann- sóknastofnun 1993–1994, hjá Landhelgisgæslunni frá 1994– 1995. Hann vann hjá Marel frá 1995–1996. Finnur var bóndi á Skerðingsstöðum í Reykhólaveit frá 1996–2003 og vann í Þörunga- vinnslunni á Reykhólum til dauða- dags. Á árunum 1982–1989 vann hann sem dyravörður og barþjónn í Þórskaffi. Útför Finns Inga verður gerð frá Reykhólakirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 13. Elsku Finnur, ég veit ekki hvern- ig ég á að geta kvatt þig, því helst vil ég geta haldið þér í fangi mínu. Nú á þessum tíma leita minning- arnar á mig, um öll árin okkar sam- an, okkar fyrstu kynni, hlátur okk- ar og grát. Þegar englarnir okkar komu í heiminn og hve stoltur þú varst af þeim og vel man ég þegar þú kynntir mig fyrir Steindóri, þín- um elsta syni. Það er svo margt sem ég get sagt um þig og árin okkar en það er of erfitt. Við áttum svo marga hamingjudaga sem lýsa skærar nú en stjörnur himinsins. Þrátt fyrir að við skildum að skipt- um fyrir fjórum árum höfum við búið á sama blettinum hér á Reyk- hólum og börnin okkar getað labb- að á milli húsa og öllum hátíðisdög- um höfum við eytt saman ásamt því að fara í ferðalög sem fjölskylda. Hún Bryndís litla dóttir okkar skottast hér um og bíður jólanna, skreytir allt hátt og lágt en veit þó að pabbi verður ekki hér. Halldór sem gengur hér um, eftirmynd þín, hlakkar líka til en getur þó ekki tekið þátt í barnslegri gleði systur sinnar því hann hugsar mikið til þín. Ása Guðrún hugsar mikið um þig en segir ekki margt en öll erum við þó saman hér, þú, ég og börnin okkar, og minningin um þig mun hjálpa okkur um hátíðarnar því það er af mörgu að taka þar sem þú ert annars vegar, elskan mín. Ég mun sakna þín sárt og mun gera mitt allra besta til að koma börnum okk- ar til manns svo þú getir verið stoltur af okkur öllum. Ég veit að þú munt fylgjast með okkur ásamt Halla frænda. Við höfum öll fundið fyrir nærveru ykkar. Ekki hafa áhyggjur af okkur. Þú gafst okkur allt það sem þú áttir og meira til. Við munum sakna þín og ætíð elska þig. Þakka þér fyrir englana okkar og öll árin sem við áttum saman. Ég mun aldrei gleyma þér. Verði góður guð með þér og umvefji þig hlýju og ást. Við elskum þig. Þín Ásdís Árný Sigurdórsdóttir. Elsku pabbi. Við söknum þín og vonum að þér líði vel hjá Halla frænda og guði. Við viljum þakka þér fyrir að vera pabbi okkar. Það var oft gaman hjá okkur á Skerð- ingsstöðum og eftir að þú fluttir hingað inn á Reykhóla. Það verður skrítið að halda jólin án þín en við vitum að þú verður hjá okkur. Freyju líður vel, hún á núna heima hjá góðu fólki í Mosfellsbæ. Við erum með Bínu hjá okkur og líka ástargaukana þína og þeir syngja með okkur jólalögin, en það gekk ekki vel í gær því litlu gauk- arnir sluppu út inni í kompu og mamma þorði ekki inn til að ná í jóladótið okkar en okkur tókst að lokum að plata þá inn aftur með mat. Það var mjög fyndið hvernig þeir flugu alltaf yfir hausnum á mömmu og hún skríkti eins og þeir. Elsku pabbi. Megi guð vera með þér. Ástarkveðjur. Halldór og Bryndís. Nú legg ég augun aftur, ó, Guð, þinn náðarkraftur mín veri vörn í nótt. Æ, virst mig að þér taka, mér yfir láttu vaka þinn engil, svo ég sofi rótt. (Þýð. S. Egilsson.) Mamma og pabbi. Fimmtudagurinn 8. desember rann upp, ósköp venjulegur dagur. Ég fór í vinnuna eins og venju- lega en svo dimmdi skyndilega. Bróðir minn Kristján kom til mín og um leið vissi ég að eitthvað hræðilegt hafði komið fyrir. Nú sit ég og fer yfir ævi okkar Finns. Minningarnar flæða og ég sé hvernig við einhvern veginn vorum alltaf samferða og samleiða í lífinu. Aldursmunur okkar var bara rúmt ár og í minningunni sé ég okkur alltaf saman þrjú, Finn, mig og vin- konu okkar Soffu frá Hamarlandi sem var góð vinkona okkar beggja. Við vorum fimm systkinin frá Skerðingsstöðum og eflaust hefur ekki alltaf verið auðvelt fyrir mömmu og pabba að ala okkur upp, enda heyrðist oft í mömmu að „aldrei á byggðu bóli hafi verið til eins miklir óþekktarangar“. Við Finnur vorum alla tíð miklir vinir þó að sjálfsögðu slettist stund- um upp á vinskapinn eins og geng- ur. Þegar skólaganga byrjaði þá hjóluðum við systkinin, Kristján, Finnur og ég, saman inn að Reyk- hólum og æði oft þurftu þeir bræð- urnir að hvetja systur sína áfram og bíða við brúsapallinn á Höllu- stöðum eftir að ég næði þeim. Í skóla var Finnur alla tíð hrókur alls fagnaðar og ef einhvers staðar heyrðist hlegið mikið var hann að segja brandara eða gera prakkara- strik. Eftir skóla lágu leiðir okkar út á vinnumarkaðinn og þá vorum við ætíð nærri hvort öðru við Finnur. Í fyrstu ætluðum við ekki að vera það en einhvern veginn leið mér aldrei vel nema ég væri einhvers staðar í lítilli fjarlægð að minnsta kosti til að komast á sömu böllin. Þegar við fluttum svo til Reykjavík- ur þá leigðum við saman systkinin, Finnur, Kristján og ég. Þá var oft gaman og við skemmtum okkur mikið. Kristján flutti síðan þegar hann gifti sig og inn kom Agnes yngsta systir okkar. Þau Agnes bjuggu síðan saman en þar kom að Finnur keypti sína fyrstu íbúð í Spóahól- unum. Þar var yndislegt að koma. Þegar hann flutti þangað inn fékk hann Guðnýju þáverandi mágkonu okkar, sem hann alla tíð hélt mikið upp á og hefur reynst honum góður vinur, til að koma til sín og hjálpa til að raða upp styttum og skraut- munum svo vel færi og það hefði hver fullkomin húsmóðir verið stolt af því heimili, enda var snyrti- mennskan honum mikilvæg. Aldrei sá maður Finn öðruvísi en hreinan og vel klæddan og alla tíð var hann mikill smekkmaður á fatnað og var vel klæddur þegar hann fór á mannamót. En samleið okkar Finns var svo sannarlega ekki lokið þegar ég gifti mig. Í veisluna mætti stúlkan sem hann elskaði alla tíð síðan, en hún er systurdóttir mannsins míns. Þess er líka að geta að Ásgeir mað- urinn minn var vinnufélagi og vinur Finns þegar ég kynntist honum. Ég minnist þess þegar við Ásgeir buð- um Ásdísi og Finni í hrygginn í Efstalandinu, en þá voru þau ný- byrjuð að vera saman og við vildum leggja okkar lóð á vogarskálarnar til að það yrði nú eitthvað meira úr þessu. Þannig æxlaðist það að föð- uramma og föðurafi dætra minna eru langamma og langafi barna Finns og Ásdísar. Er hægt að flækja þetta meira saman? Finnur var mikill náttúruunn- andi. Hann þekkti í æsku hvern einasta fugl sem yfir flaug og átti stórt og mikið safn af eggjum. Einu sinni fórum við í mikinn leiðangur upp á fjall ég og Finnur. Þá keyrði pabbi okkur inn á Hrafnanes og þar fórum við upp fjallið. Ástæðan var sú að Finnur hafði frétt af him- brimahreiðri og við hættum ekki fyrr en við fundum hreiðrið sem var úti í miðju vatni en heim kom- um við glöð, ánægð og blaut með eggið. Einu sinni fórum við Finnur sam- an á hestum yfir Tröllatunguheiði. Það var skemmtileg ferð sem lifir í minningunni að eilífu. Þar kom í ljós sú mikla væntumþykja sem Finnur hafði alla tíð á dýrum. Við hefðum sjálfsagt getað verið 5–6 klukkutíma en við vorum 12 því Finnur þurfti alltaf að vera að stoppa annaðhvort til að hvíla hest- ana eða til að skoða náttúruna í kring. Við lögðum af stað kl. 8.30 að morgni og ætlaði pabbi svo að sækja okkur í Tröllatungu. Það er sýnilegt að pabbi hefur þekkt börn- in sín því að við vorum að spretta af hestunum í Tröllatungu þegar bíll- inn birtist. Í eitt af síðustu skiptunum sem ég heyrði í Finni þá tilkynnti hann mér að hann hefði skírt hvolpinn sinn í höfuðið á mér, þ.e. Lotta. Hann hló mikið og spurði hvort það yrði ekki gaman þegar yrði farið að sýna Lottu frá Skerðingsstöðum á kynbótasýningum. Ég hló með hon- um og sagði það mikinn heiður að fá nöfnu. Síðustu árin hafa verið Finni og öllum þeim sem að honum standa erfið. Þegar ég settist niður til að skrifa þessi örfáu orð þá var ég full af reiði. Þegar ég les síðan þessi orð aftur þá sé ég að kannski á ég frekar að vera þakklát. Þakklát fyr- ir að hafa orðið þeirrar gæfu að- njótandi að fá að alast upp með honum og læra af honum umhyggj- una sem hann sýndi öllu því lífi sem í kringum hann var. Elsku bróðir, ég trúi því að allir þeir ættingjar sem farnir eru á undan þér taki á móti þér og hjálpi þér. Við systkinin vorum búin að skipuleggja ferð vestur um helgina til að taka til í húsinu þínu á meðan þú værir á sjúkrahúsi. Við ætluðum að gera allt svo fínt eins og þú vild- ir hafa allt í kringum þig. Við kom- um vestur en í allt öðrum tilgangi. Elsku Steindór, Ása Guðrún, Halldór og Bryndís, munið að pabbi elskar ykkur meira en allt annað í heiminum. Honum líður vel núna hjá Halla frænda og öllum hinum. Elsku pabbi og mamma og systk- ini mín, guð gefi okkur öllum styrk til að komast í gegnum þennan erf- iða tíma. Mig langar að þakka þeim fjöl- mörgu sem hafa hjálpað okkur á þessum erfiðu stundum. Sérstakar þakkir vil ég senda Ingibjörgu FINNUR INGI FINNSSON Innilegar þakkir færum við ættingjum, vinum og öllu því góða fólki sem sýndi okkur samúð, vináttu og hlýhug við andlát og útför ástkærrar eiginkonu minnar, móður okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu, BÁRU HÓLM, Hátúni 11, Eskifirði. Kristinn G. Karlsson, Einar Hólm, Lilja Berglind Jónsdóttir, Súsanna Kristinsdóttir, Halldór Árnason, Þórunn Kristinsdóttir, Skúli Jónsson, Pétur Karl Kristinsson, Gunnhildur Ósk Sæbjörnsdóttir, Guðrún Björg Kristinsdóttir, barnabörn og langömmubörn. Hugheilar þakkir sendum við öllum þeim sem sýndu okkur hlýhug og vinarþel við andlát og út- för eiginmanns míns, föður okkar, tengdaföður og afa, EINARS ODDSSONAR fyrrverandi sýslumanns, Úthlíð 6, Reykjavík. Halla Þorbjörnsdóttir, Karl Einarsson, Kristín Bragadóttir, Páll Einarsson, Andrea Ösp Karlsdóttir, Berglind Ýr Karlsdóttir og Birkir Örn Karlsson. Innilegar þakkir til allra sem sýndu okkur samúð og vinarhug við andlát og útför móður okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu, GUÐRÚNAR ARADÓTTUR, Aragötu 5 og síðustu ár á Skjóli. Sérstakar þakkir til starfsfólks á Skjóli fyrir um- hyggjuna á liðnum árum. Ari H. Ólafsson, Þorbjörg Þórisdóttir, Björn G. Ólafsson, Helga Finnsdóttir, Jónas Ólafsson, barnabörn og barnabarnabörn. Innilegar þakkir til allra þeirra sem sýndu okkur samúð og hlýju við andlát elskulegs eiginmanns míns, föður okkar, tengdaföður, afa og langafa, KRISTVINS JÓSÚA HANSSONAR húsasmíðameistara, Efstasundi 94, Reykjavík. Sérstakar þakkir til starfsfólks á hjúkrunar- heimilinu Skjóli. Anna G. Hallsdóttir, Þorbjörg Kristvinsdóttir, Bjarni B. Sveinsson, Höskuldur Kristvinsson, Barbara J. Kristvinsson, Hallur Kristvinsson, Sigrún Einarsdóttir, Katla Kristvinsdóttir, Jóhann Thoroddsen, barnabörn og barnabarnabörn. Ástkær faðir okkar, tengdafaðir og afi, JÓNAS SIGURÐSSON lést á Hrafnistu Reykjavík miðvikudaginn 7. des- ember. Útför hans hefur farið fram í kyrrþey. Sérstakar þakkir færum við starfsfólki Hrafnistu fyrir hlýhug og góða umönnun. Kristrún Jónasdóttir, Viðar Jónasson, Anna Kristín Einarsson, Amanda Roberts, Mark Roberts, Þórunn Viðarsdóttir, Linda Viðarsdóttir, Jónas Páll Viðarsson.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.