Morgunblaðið - 17.12.2005, Blaðsíða 100
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLUNNI 1, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181,
ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1122, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI 1 LAUGARDAGUR 17. DESEMBER 2005 VERÐ Í LAUSASÖLU 220 KR. MEÐ VSK.
ÁRVAKUR hf., útgáfufélag Morg-
unblaðsins, hefur keypt 50% hlut í
félaginu Ári og degi ehf., útgáfu-
félagi Blaðsins, og var kaupsamn-
ingurinn undirritaður í gær, og síð-
ar samþykktur á hluthafafundi Árs
og dags.
Kaupin eru í samræmi við
ákvörðun stjórnar Árvakurs, og
eru liður í framkvæmd stefnuyfir-
lýsingar félagsins í kjölfar kaupa
tveggja nýrra hluthafa á hlutum í
Árvakri nýverið, segir Hallgrímur
B. Geirsson, framkvæmdastjóri Ár-
vakurs. Í stefnuyfirlýsingunni kom
m.a. fram að stefnt væri á útgáfu á
nýjum vettvangi, stækkun á dreifi-
kerfi Morgunblaðsins og eflingu á
starfsemi prentsmiðju blaðsins.
Hörð samkeppni
Með kaupunum skapast ný sókn-
arfæri fyrir fjölmiðla félagana í
þágu lesenda og auglýsenda, jafn-
framt því sem fjölmiðlarnir styrkja
stöðu sína í hörðu samkeppnisum-
hverfi, segir Hallgrímur. Kaupverð
er ekki gefið upp.
Hallgrímur segir uppstokkun á
öðru hvoru blaðanna ekki á dag-
skrá, í það minnsta ekki í upphafi,
og er gengið út frá því að ritstjórnir
Morgunblaðsins og Blaðsins muni
starfa sjálfstætt. Ekki er gert ráð
fyrir starfsemi Blaðsins í nýju
skrifstofuhúsnæði Morgunblaðsins
við Hádegismóa sem nú er í bygg-
ingu.
„Við gerum ráð fyrir að ná fram
samlegðaráhrifum í öðrum rekstri,
eins og í framleiðslu og vinnslu
blaðanna, og gerum líka ráð fyrir
því að geta samnýtt sölu- og auglýs-
ingadeildir. Þar sjáum við færi á að
reka Blaðið enn hagkvæmar en
gert er,“ segir Hallgrímur.
Efling og stækkun dreifikerfis
Morgunblaðsins hefur verið á döf-
inni síðan nýir eigendur bættust í
hóp eigenda Árvakurs, en Hall-
grímur segir það geta tekið nokk-
urn tíma. Þegar nýtt kerfi verður
komið í notkun verður bæði Morg-
unblaðinu og Blaðinu dreift að
morgni dags. „Það er markmið okk-
ar að auka verulega dreifingu
Blaðsins og dreifa því sem víðast,
eins og kostur er,“ segir Hallgrím-
ur. Auk þess segir hann að færi gef-
ist á því að taka að sér aðra dreif-
ingu.
Styrkja samkeppnisstöðu
við aðra frímiðla
„Kaupin styrkja auðvitað sam-
keppnisstöðu Blaðsins við aðra frí-
miðla,“ segir Sigurður G. Guðjóns-
son, stjórnarformaður Árs og dags,
sem segir kaupin hafa mikil áhrif á
Blaðið. „Þetta mun þýða það að
dreifingarkerfið verður tekið til
endurskoðunar, og reynt að ná auk-
inni dreifingu og fyrri dreifingu en
verið hefur.“
Sigurður segir að engir hluthafar
hafi gengið út úr félaginu við kaup
Árvakurs, heldur hafi allir hluthaf-
ar selt helming síns hlutar. Auk Ár-
vakurs munu því hluthafar í Ári og
degi vera þeir Sigurður G. Guðjóns-
son, Karl Garðarsson, Steinn Kári
Ragnarsson og Björgvin Þorsteins-
son, auk fjögurra smærri hluthafa.
Kjörin var ný stjórn í Ári og degi
á hluthafafundi eftir kaupin í gær.
Sigurður G. Guðjónsson var kjör-
inn formaður stjórnarinnar, Hall-
grímur B. Geirsson varaformaður,
og þeir Guðbrandur Magnússon og
Steinn Kári Ragnarsson með-
stjórnendur. Framkvæmdastjóri
Árs og dags og ritstjóri Blaðsins er
sem fyrr Karl Garðarsson.
Árvakur kaupir helming
hlutafjár í Blaðinu
Morgunblaðið/RAX
Sigurður G. Guðjónsson, stjórnarformaður Árs og dags, og Stefán Egg-
ertsson, stjórnarformaður Árvakurs, undirrituðu samninginn í gær.
Styrkir stöðu
miðlanna, segir
framkvæmda-
stjóri Árvakurs
Eftir Brján Jónasson
brjann@mbl.is
KRÓNAN og Bónus bjóða innfluttan nor-
mannsþin fyrir jólin á innan við tvö þús-
und krónur, upp í rúmlega tveggja metra
há tré. Tré af sömu gerð og stærð kosta
um sjö þúsund krónur þar sem þau eru
dýrust.
Ekki er jafn mikill munur á hæsta og
lægsta verði stafafuru og rauðgrenis.
Færst hefur í vöxt að fólk fari og höggvi
sitt eigið tré og um helgina gefst fólki víða
um land kostur á að gera það. Um 40 þús-
und jólatré eru seld í landinu árlega og
eru um 8 þúsund þeirra úr íslenskum
skógum. Innflutt tré eru með um 80% hlut-
deild. | 8 og 40
Morgunblaðið/Brynjar Gauti
Jólatré hjá Byko í Breidd hæsta tréð.
Normanns-
þinur á mis-
jöfnu verði
ÍSLENSK tunga nefnist þriggja binda
verk upp á 1.700 blaðsíður sem er komið
út en það er fyrsta heildstæða lýsingin á
málinu sem skrifuð hefur verið. Aðalhöf-
undar eru Guðrún Kvaran, Höskuldur
Þráinsson og Kristján Árnason en meg-
inefni bókanna er lýsing á íslensku nú-
tímamáli en sögulegri þróun þess eru
einnig gerð nokkur skil.
Höfundarnir segja í samtali í Lesbók í
dag að í ritunum sé meðal annars fjallað
um breytingar sem séu að verða á íslensku
um þessar mundir. Þau segja öll ástæðu til
þess að fylgjast mjög vel með þróun máls-
ins á næstu árum og þá ekki síst í ljósi auk-
inna áhrifa enskunnar. Kristján segir
enskuna „algjörlega yfirgengilega“ og
bent er á að Íslendingar séu eina Norð-
urlandaþjóðin sem ekki hafi mótað sér op-
inbera málstefnu. | Lesbók
Segja enskuna
yfirgengilega
MIKIL einbeiting ríkti meðal nemendanna í 8
ára bekk í Ísaksskóla þegar blaðamaður lagði
leið sína þangað ásamt ljósmyndara í gær-
morgun. Krökkunum höfðu fyrr um morg-
uninn verið gefnar bækur með hundrað su-
doku-þrautum í þremur styrkleikaflokkum.
Aðspurðir sögðust nemendurnir hæstánægðir
með nýju þrautinar þó fæst þeirra hefðu leyst
sudoku áður. Aðeins örfáir krakkar svöruðu
því játandi að hafa spreytt sig á þrautunum áð-
ur, þá helst fyrir hvatningu frá og með aðstoð
foreldra sinna.
Aðspurð sagði Jenný Guðrún Jónsdóttir, um-
sjónarkennari bekkjarins, gaman að sjá hversu
áhugasamir krakkarnir væru um að glíma við
þrautirnar enda þær ein besta leið til þess að
þjálfa rökhugsun. Benti hún á að um væri að
ræða sambland af krossgátum og talnaleikjum,
sem gæti nýst vel í stærðfræðikennslu síðar.
„Við vorum svo heppin að Þórdís Bachmann
hjá Para-útgáfunni færði okkar þessar bækur
að gjöf,“ sagði Edda Huld Sigurðardóttir,
skólastjóri Ísaksskóla. „Við leggjum mikið
kapp á að hafa fjölbreytt verkefni fyrir börnin
og þetta er kærkomin viðbót í þá átt.“
Glímt við
sudoku
Morgunblaðið/Þorkell
Kristín, Finndís Diljá og Bryndís Inga, nemar í 8 ára bekk, sýndu sudoku-þrautunum mikinn
áhuga og fengu góðar ábendingar frá umsjónarkennara sínum, Jennýju Guðrúnu Jónsdóttur.
MP Fjárfestingarbanki hefur keypt
tæplega 5% af stofnfjárhlutum í
Sparisjóði vélstjóra á genginu 24.
Þetta eru hátt í 160 hlutir. Nafnverð
hvers hlutar er nú um 39 þúsund
krónur og greiðir bankinn því um
936 þúsund krónur fyrir hvern stofn-
fjárhlut, eða samtals hátt í 150 millj-
ónir króna fyrir tæplega 5% hlut.
Stjórn SPV samþykkti viðskiptin
á fundi í gær, en þau eru samkvæmt
lögum um fjármálastofnanir háð
samþykki stjórnarinnar. Jón Þor-
steinn Jónsson stjórnarformaður
segir að salan hafi verið samþykkt
einróma á fundinum.
Sigurður Valtýsson, fram-
kvæmdastjóri MP Fjárfestingar-
banka, segir að bankinn vilji eignast
5–10% hlut í SPV. „Við höfum átt
mjög gott samstarf við sparisjóðinn
sem er einn af stærstu hluthöfunum í
MP Fjárfestingarbanka. Og við höf-
um nú þegar upplýst Fjármálaeft-
irlitið um þessi kaup,“ segir hann.
Stofnfjárhlutir í SPV
seldir á 936 þúsund hver
MP kaupir | 22
♦♦♦