Morgunblaðið - 17.12.2005, Blaðsíða 57
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 17. DESEMBER 2005 57
UMRÆÐAN
ÞAÐ KENNIR ÝMISSA GÓMSÆTRA
GRASA Í SANDHOLT BAKARÍI VIÐ
LAUGAVEG. INNAN UM GERÐAR-
LEG BRAUÐ, GIRNILEGAR KÖKUR
OG RJÚKANDI KAFFI LEYNAST
GULLMOLAR OG STOLT
BAKARÍSINS. HANDGERÐIR
KONFEKTMOLAR Í
HUNDRAÐA VÍS, HVER
ÖÐRUM LJÚFFENGARI
OG HREIN LISTAVERK
Á AÐ LÍTA. EFTIR AÐ
HAFA SÉRVALIÐ ALLT
SEM ÞIG LANGAR Í
GENGUR ÞÚ ÚT
MEÐ MOLANA ÞÍNA
Í FALLEGRI ÖSKJU
OG BROS Á VÖR.
Það er ekki bara kaffið
sem er gott með súkk-
ulaðinu. Styrkt vín
með miklu ávaxta-
bragði tvöfalda
ánægjuna. Rivesalte
Grenat 1999 frá Pujol
er verðlaunað vín
með löngu eftir-
bragði sem gott er
að drekka sem fordrykk og
jafnvel enn betra með eftir-
réttinum, þá gjarna úr rauð-
um ávöxtum og ekki síst
mildu súkkulaði.
Ráðlagt er að drekka vínið
við 15°C, og það fæst í flest-
um vínbúðum fyrir 1.990 kr.
Bragðbestu jólatrén í bænum
Opið til
kl. 22
til jóla
JÓLAVÍN MEÐ
SÚKKULAÐINU
OG EKKI NÓG MEÐ AÐ
ÞAR FINNIST GÓÐIR
KONFEKTMOLAR HELD-
UR HEILU JÓLATRÉN ÚR
HANDGERÐU KONFEKTI
ÚR HINU HEIMSÞEKKTA
GÆÐASÚKKULAÐI FRÁ
VALRHONA. ÞAÐ GETA
FÁIR STAÐIST.
HUGSJÓNIR Sjálfstæðisflokks-
ins hafa alla tíð heillað mig: Frelsi
einstaklingsins og viðskiptafrelsi í
opnu og frjálsu – mannúðlegu
markaðsþjóðfélagi með borg-
aralegu lýðræði.
Ég fæddist þegar kalda stríðið
var ennþá eitt stærsta hreyfiafl al-
þjóðlegra stjórnmála. Og fljótlega
eftir að ég byrjaði að lesa af ein-
hverju viti fór ég að fylgjast með
skrifum ritstjóra Morgunblaðsins
um þá ógn sem fylgdi alræði
kommúnismans og baráttu borg-
aralegra lýðræðisafla fyrir frelsi.
Seinna urðu knapplega skrifuð
Helgispjöll þáverandi ritstjóra
Morgunblaðsins mér mikill inn-
blástur. Rauði þráðurinn í þessum
„essayum“ – sem einkenndi líka
oft bæði Reykjavíkurbréf og leið-
ara – voru listilega skrifaðar hug-
leiðingar um undrið einstakling-
inn, einræði vs. lýðræði, refagryfju
stjórnmálanna og dýrið í mann-
inum vs. hinn guðdómlega inn-
blástur sem í honum býr.
Allt í einu heggur
sá sem hlífa skyldi
Í áraraðir var Morgunblaðið
vissulega málgagn Sjálfstæð-
isflokksins. Og þegar það hætti því
hélt það áfram að vera samvizka
hans samt. Atriði eins og virðing
fyrir einstaklingnum og frelsi
hans, markaðsbúskapur án íhlut-
unar ríkisins og kristilegt siðgæði
voru ríkur þáttur í áminningum
Morgunblaðsins ásamt hugleið-
ingum um yfirburði borgaralegs
lýðræðis þrátt fyrir ófullkomleika
þess eins og við
þekkjum það. Fyrir
þessum hugsjónum
barðist Sjálfstæð-
isflokkurinn flokka
bezt öll kald-
astríðsárin. Og flokk-
urinn náði að hefta
útbreiðslu alræð-
ishugmynda í stjórn-
málum og skapa hér
opið og frjálst þjóð-
félag með dyggum
stuðningi Morg-
unblaðsins.
En nú virðist þetta
hafa breyst. Þótt ótrúlegt sé virð-
ast margar af helstu hugsjónum
Sjálfstæðisflokksins og Morg-
unblaðsins hafa verið að breytast í
andhverfu sína á síðum blaðsins
undanfarið. Morgunblað nútímans
ver til dæmis af mun meiri ákafa
athafnafrelsi embættismanna rík-
isins til afskiptasemi og íhlutunar í
líf borgaranna heldur en athafna-
frelsi þeirra síðarnefndu. Þetta
hefur komið fram í ítrekuðum
áköllum blaðsins um sífellt harka-
legri eftirlitsstofnanir ríkisins.
Mikilvægar hugsjónir bjóða
ekki upp á undantekningar
Það tók opinbera embættismenn
ellefu hundruð daga að rannsaka
gögn frá Baugi, sem var aflað með
mjög harkalegum aðgerðum af
hlægilega litlu tilefni. Og þrátt
fyrir öflugt aðhald virtustu dóm-
stóla landsins ætlar þetta „mál“ að
verða að einhvers konar þráhyggju
hjá sumum kjörnum
fulltrúum og embætt-
ismönnum þjóð-
arinnar. Þessi sterka
eftirfylgni vekur mjög
óþægilegar spurn-
ingar.
Það er dyggð að
standa með vinum sín-
um í pólitískri baráttu.
Og það er dyggð að
sýna ýtrasta trúnað og
traust sínum sam-
herjum. En þegar
menn taka þátt í því
að mikilvægar hug-
sjónir breytist í andhverfu sína af
hálfu samherja hættir það að vera
dyggð að styðja málatilbúnað
þeirra um leið og farið er yfir viss
mörk. Mikilvægar hugsjónir eru
ekkert gamanmál. Þær eru ekki
heldur einkamál né áróðursmál.
Og ef þær eiga rétt á sér gera þær
ekki mannamun. Þar eru engar
undantekningar. Og allir ein-
staklingar eiga að njóta þeirra.
Líka þótt þeir hafi eignast valda-
mikla óvini í Sjálfstæðisflokknum.
Skemmdarstarfsemi í
skjóli opinberra embætta
Borgaralegu lýðræðisþjóðfélagi
var aldrei ætlað að einkennast af
stórum gráum svæðum sem menn
í opinberum embættum gátu vals-
að um að vild. Í borgaralegu rétt-
arríki áttu að vera skýr takmörk
fyrir því hve langt menn gætu
gengið til að klekkja á andstæð-
ingum sínum. Um það átti hið
borgaralega lýðræðis- og rétt-
arríki að snúast sem grundvall-
arhugsjónir Sjálfstæðisflokksins
hvíla á.
Vandi fylgir vegsemd hverri.
Það er vandi að auðgast eins og
það er vandi að fara með völd.
Þessi vandi snýst ekki síst um það
að kunna að hemja sjálfan sig.
Mér virðist Morgunblaðið ekki
hafa kunnað að hemja sjálft sig í
skrifum sínum um Baugsmálið. Og
ekki heldur nokkrir áhrifa- og
valdsmenn í Sjálfstæðisflokknum.
Á sama tíma virðist mér efna-
mennirnir sem um ræðir hafa
valdið undraverðri velgengni sinni
furðuvel.
Yfirmaður Ríkislögreglustjóra-
embættisins er dómsmálaráðherra
og fyrrverandi aðstoðarritsjóri
Morgunblaðsins. Hans yfirmaður
er forsætisráðherra. Þetta eru og
voru allt heiðursmenn. En heið-
ursmenn geta líka gerst sekir um
siðferðisbrest. Ætlar einhver að
halda því fram að deildarstjóri
efnahagsbrotadeildar Ríkislög-
reglustjóraembættisins hafi farið í
tug- eða hundraða milljóna króna
rannsókn á tilteknu einkafyrirtæki
úti í bæ í þrjú ár af nær engu til-
efni án samþykkis síns yfirmanns?
Og svo koll af kolli?
Baugsmálið virðist í fljótu
bragði hafa falið í sér meira en
„veiðileyfi“. Þetta virðist hafa ver-
ið hnitmiðuð skemmdarstarfsemi
og hefndaraðför valdsmanna og
opinberra embætta undir stjórn
Sjálfstæðisflokksins að tilteknu
einkafyrirtæki og forsvarsmönnum
þess. Þessi skemmdarstarfsemi í
skjóli embætta ríkisins er að mín-
um dómi mun alvarlegri en allt
sem Morgunblaðið hefur skrifað
um eignasamþjöppun í þjóðfélag-
inu í leiðurum sínum undanfarið.
Hún er lögleg. Aðför opinberra
embætta og valdhafa að einkafyr-
irtæki og forsvarsmönnum þess er
það sannarlega ekki og brýtur
gróflega í bága við helztu hug-
sjónir Sjálfstæðisflokksins.
Skaðinn er skeður
Það sem er ekki síst gagnrýni
vert í aðdraganda Baugsrannsókn-
arinnar er auðvitað aðkoma rit-
stjóra Morgunblaðsins og lyk-
ilmanna í Sjálfstæðisflokknum. Og
það sem er mjög gagnrýnisvert við
rannsóknina sjálfa er þvílíkum
skaða hún hefur valdið þessu fyr-
irtæki sem rannsóknin miðaðist
við að vernda – á yfirborðinu.
Undir yfirskini þess að verið sé að
vernda fyrirtækið er því valdið
meiri skaða en orð fá lýst. Og það
af lögregluyfirvöldum með fulltingi
dómsmálaráðherra! Segja má að ef
einhverjum var í mun að klekkja á
þessu fyrirtæki eða forsvars-
mönnum þess ætti þeim sömu að
vera sama hvernig mál hafa þróast
hjá dómstólum. Skaðinn er skeður.
Sjálfstæðisflokkurinn,
Morgunblaðið og Baugur
Ragnar Halldórsson fjallar um
stefnu Sjálfstæðisflokksins,
Baugsmál og Morgunblaðið
’…ef einhverjum var ímun að klekkja á þessu
fyrirtæki eða forsvars-
mönnum þess ætti þeim
sömu að vera sama
hvernig mál hafa þróast
hjá dómstólum.‘
Ragnar Halldórsson
Höfundur er kvikmynda-
gerðarmaður.